Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1988, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988.
63
Vísnaþáttur
Mikilsvert og
máttugt vald
mun í töfrum
kvenna
Tveir hagmæltir tala saman:
Alltaf ert þú aö yrkja.
Ég ætti að hætta því.
Verst er þann draug aö virkja
sem var aldrei dugur í.
Fer ekki allt til fjandans
sem framið er, illt og gott?
Ljúfasta iöja landans
er leikur meö háö og spott.
Einn af aldamótamönnum
Árni G. Eylands var einn af alda-
mótamönnunum svokölluðu. Hann
fór til Noregs og víðar og aflaöi sér
menntunar, vann síðan langa ævi
heima á Fróni aö hugsjónamálum
sínum sem voru fyrst og fremst
tengd gróðri og landbúnaði. Hann
gegndi trúnaðarstöðum og skrifaði
mikið í blöð og talaði oft í útvarp.
Hann gaf líka út ljóðabækur. Hér
eru vísur eftir hann:
Gætinn vel um gróða og tap,
greiðvirkur til smárra taka.
Hitt er víst um höföingsskap
hann mun enginn reyna að
saka.
Hér yrkir hann um leiðtoga sem
honum var ekki að skapi. Mjög tók
hann þátt í deilum í pólitík um sína
daga.
Hvar sem þínar leiöir lágu,
léstu rök og stefnu falt,
þú varst ótrúr yflr smáu,
yfir stærra settur skalt.
Þín í mörgu skálkaskjóli
skipulagður frami beið,
þér skal upp að æösta stóh
áður en lýkur forin greið.
Öllum ratar þar í þokum
þjóðmálanna á æti og bein,
svo mun þér að leiðarlokum
lýðurinn reisa bautastein.
En hér talar hann meira um einka-
hagi:
Skagafirði skartar vor,
skín á vötn og strauma,
þar hef ég öll mín æskuspor
átt og bjarta drauma.
Hér á ég hinstu að greiða gjöld,
greiða úr lífs míns rími,
þegar bráðum kemur kvöld,
kyrrð og háttatími.
Á öðrum stað:
Eigðu minni um marga daga,
minni um tún og græna haga.
Eigðu minni um stríð og starf.
Það er öll min ævisaga.
Auðunn Bragi Sveinsson
Auðunn Bragi Sveinsson, fyrr-
verandi skólastjóri, er nú kominn
á eftirlaunaaldur og hefur meir en
áður getað helgað sig ritstörfum.
Síðustu ár hefur hann haft umsjón
með útgáfu rita um kennara og tek-
ið saman söfn tækifærisvísna. Þar
er töluvert af vísum föður hans,
Sveins frá Elivogum, t.d. þessi:
Holdið fagra mikils met
margar stundir til þess hiakka.
Én hið magra ýldukét
óneyddur ég vil ei smakka.
Hér var Sveinn að gera upp á
milli tveggja kvenna en ekki að
tala um mat. Það vissu þeir sem
nærri voru þegar vísunni var kast-
að fram. En Auðunn getur líka
verið vel hagmæltur. Hér birtir
hann vísu eftir sig:
Linar sút að súp.a af stút,
sýnast hnútar lífsins rakna.
En ef menn lúta oft að kút
eðli brútalt fer að vakna.
Á síðustu bókavertíð gaf Skugg-
sjá í Hafnarfirði út læsilega bók
eftir Auðun Braga. Með mörgu
fólki heitir hún, þaö eru frásagnir.
Ennfremur gaf Letur út lítið þýð-
ingarsafn eftir hann á smáljóðum
eftir danska spekinginn Piet Hein.
Dæmi:
Sárt er að ala sorg í hjarta,
svo og að hða heilsuskort.
Samt ei skaltu sýta og kvarta
sértu laus við annaðhvort.
Þetta hefði íslenskum hagyrðingi
getaö dottið sjálfum í hug en ekki
er verra að sækja það til frægðar-
manns í Danaveldi.
Dýrt kveðið
Þrjár eftirfarandi dýrt kveðnar
vísur eru eftir þrítugan Reykvík-
ing, sem líklega vinnur á Keflavík-
urílugvehi, og fylgdi þeim ágætt
bréf. Heldur hefur nú þáttastjóri
horn í síðu rímþrauta þegar efnið
er htið annað en orðaleikur. Betur
mætti nota gáfuna. En við þetta
hafa íslendingar unað um aldir og
ekki vildum við vera án shkra
dæma úr fortíðinni.
Nyrst við pól hjá nornastól,
næturíjólan sefur.
Fyrrum kól við Forna-Hól
firrtur skjóh refur.
Hríöargjólufaldur fól
fóla njóla jarðar.
Vegi spóla vagnahjól
vestan Ólafsfjarðar.
Vetrarsjóla kalda kjól
kyssti rólegt hafið.
Héldum jól við heimskautsból,
hækkar sólartrafið.
Höfundur, sem heitir Ingvi B.
Jakobsson, bætir við: „Efnið er, svo
langt sem það nær, norðlenskur
vetur um jólaleytið." Væri nú ekki
ráðlegra að velja auðveldari hátt
og tjá eitthvað sem lýsir frumlegri
hugsun og áhugaverðara efni fyrir
venjulegan lesanda? spyijum vér.
í eyðu
Ég set stundum vísur eftir sjálfan
mig og aðra þegar tilviljun ræður
því að annars tilbúinn þátt vantar
herslumun til þess að ná réttri
lengd. Svo er að þessu sinni. í mín-
um eigin plöggum finn ég þessa
vísu mér merkta:
Mitt er það og margra hald,
mun svo enn við brenna,
aö mikilsvert og máttugt vald
muni í töfrum kvenna.
Utanáskrift: Jón úr Vör,
Fannborg 7, Kópavogi.
HÓTEL TIL SÖLU
Til sölu hótel úti á landi í fullum rekstri. Tilvalið fyrir
ein eða tvenn áhugasöm hjón. Áhugasamir hafi sam-
band við auglýsingaþjónustu DV. Merkt H-333.
AUGLÝSINGASTJÓRI ÓSKAST
AS ÁHUGAVERÐU TÍMARITI
Þarf að geta byrjað sem allra fyrst. Upplýsingar um
aldur og fyrri störf leggist inn á auglýsingadeild DV
í síðasta lagi 27. jan. nk., merkt Auglýsingastjóri.
LÆKNASTOFA
Höfum opnað læknastofu í Læknastöðinni hf., Álf-
heimum 74. Tímapantanir í síma 686311 alla virka
daga milli kl. 9 og 17.
Ingibjörg Georgsdóttir, sérgr. barnalækningar.
Guðmundur Ásgeirsson, sérgr. barnalækningar.
Hella
DV óskar að ráða umboðsmann.
Upplýsingar í símum 99-5035 og 91-27022.
GRÉNIVÍK
DV óskar eftir að ráða umboðsmann á Grenivík frá 1. febr.
U’pplýsingar hjá umboðsmanni í síma 96-33279 og hjá af-
greiðslunni í Reykjavík í síma 91 -27022.
Skóladagheimilið Brekkukoti Viltu vinna í notalegu umhverfi á góðum stað í bæn- um. Okkur vantar aðstoðarmann á skóladagheimilið Brekkukot. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 19600-260 virka daga. Staða hjúkrunarfræðings á vöknun, dagvinna er laus frá 1. febrúar 1988. Upplýsingar gefnar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í síma 19600-300. Reykjavík, 20.1. 1988
Nauðungamppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, á neðangreindum tima: Kjarrhólmi 12, 2. hæð, austur, talinn eigandi Sigrún Halldórsdóttir, þriðjud. 26. janúar ’88 kl. 10.25. Upp- boðsbeiðandi er Tryggingastoínun ríkisins.
BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI
Engihjahi 3, 5. hæð A, þingl. eigandi Jóhann Stefánsson, þriðjud. 26. janúar ’88 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru Bæjarsjóður Kópavogs, Ari Isberg hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands. Nauðungamppboð annað og síðara
Kársnesbraut 38, kjallari, þingl eig- andi Kristján Valgeirsson, þriðjud. 26. janúar j88 kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi er Ari ísberg hdl. á eftirtöldum fasteignum fer fram i skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 i Kópavogi, á neðangreindum tima:
Kópavogsbraut 78, kjallari, þingl. eig- endur Þorvaldur Hannesson o.fl., þriðjud. 26. janúar ’88 kl. 10.10. Upp- boðsbeiðandi er Skattheimta ríkis- sjóðs í Kópavogi.
Mánabraut 17, þingl. eigandi Borgþór Bjömsson, þriðjud. 26. janúar ’88 kl. 10.30.
BÆJARFÓGETINN1KÓPAV0GI
Sæbólsbraut 26, Mð 03-01, talinn eig- andi Helga Harðardóttir, þriðjud. 26. janúar ’88 kl. 10.20. Uppboðsbeiðendur eru Jón Ingólfsson hdl., Sigurmar Al- bertsson hdl. og Bæjarsjoður Kópa- vogs.
-