Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988.
Fréttir
Skotið á bfl á Eiðsgranda:
Nærri fjörtjóni af
völdum brjálæðings
Kona úr Kópavogi varö fyrir
óskemmtilegri reynslu er skotiö var
á bíl hennar á Eiðsgranda í Reykja-
vík að kvöldi sunnudagsins. Skotiö
hæfði hægri hluta framrúðu bílsins.
Kúlan fór í gegnum rúðuna og aftur
eftir bílnum. Er sennilegt að kúlan
hafi farið í aðeins örfárra sentímetra
fjarlægð frá konunni. Kúlan gerði gat
á aftursæti bílsins og stöðvaðist í far-
angursgeymslunni.
Skömmu áður en skotið var á bíl-
inn voru böm i honum. Má fuUyrða
að hefðu bömin verið í bílnum, þegar
skotið var á hann, hefði allavega eitt
þeirra orðið fyrir kúlunni.
Konan sem fyrir þessu varð heitir
Jóhanna Stefánsdóttir. Hún sagðist
ekki hafa gert sér grein fyrir að skot-
ið hefði verið á bflinn. Hópur bama
var nærri bílnum er skotið kom og
taldi hún að bömin hefðu hent snjó-
kúlu með steini í rúðuna. Henni þótti
þó hvellurinn sem myndaðist furðu-
lega mikill.
Það var í gær, þegar eiginmaður
Jóhönnu hóf að skipta um rúðu, að
í ljós kom hvað gerst hafði. Þau höfðu
samband við lögreglu og rannsókn-
arlögreglumenn fundu kúluna við
leit í bílnum.
Þegar Jóhanna gerði sér grein fyrir
hvað hefði í raun gerst sagðist hún
hafa fundið fyrir hræðslu og að sér
Uði Ula að hugsa tU þess hve nærri
fjörtjóni hún hefði verið af völdum
bijálæðings. -sme
Jóhanna Stefánsdóttir bendir á þann staó er skotið hæfði bíl hennar. Á innfelldu myndinni má sjá bakhluta aftur-
sætis bílsins. Kúlan fór i gegnum sætið. Skömmu áður en skotið var á bílinn voru börn í aftursætinu. Það þarf ekki
aö fjölyrða um hvaða afleiðingar það heföi haft hefðu börnin verið í bilnum er skotið var á hann. DV-mynd S
Bláfellið skemmdist töluvert í
árekstri viö strandferðaskipið
Öskju í gær. Sjópróf vegna
árekstursins verða væntanlega
haldin í dag. DV-mynd S
Reykjavíkurhöfn:
Árekstur
skipa við
hafnar-
mynnið
OUuskipiö BláfeU og strand-
ferðaskipið Askja rákust saman
skammt utan við hafnarmynnið
í Reykjavíkm-höfn um miöjan dag
í gær. Sljómborössíður skipanna
skuUu saman. Askja varð fyrir
litlum skemmdum en BláfeU
skemmdist nokkuð mikið. Brúar-
vængur lagðist inn að hluta,
skemmdir komu á brú skipsins
og einnig skemmdist skipið neð-
an sjólínu.
Skipin voru að koma úr gagn-
stæðri átt, Askjan var aö fara frá
Reykjavík en BláfeUiö á leið tíl
Reykjavíkur. Yfirheyrslur yfir
áhöfnum skipanna áttu að hefjast
í morgun og sjópróf verða vænt-
anlega eftir hádegi í dag. -sme
Keppni á bridgehátíð 1988 lokið:
Zia sigraði á
lokasprettinum
Isbjamaiieitin
bar ekki árangur
Oytfi lúistjánsson, DV, Akureyri:
. „ÖU sporin sem við sáum virtust
vera af sömu stærð svo við reikn-
um með aö hér hafi aðeins verið á
ferðinni eitt dýr, þaö sem skotið var
í Haganesvík," sagði Heiðar Al-
bertsson, stöövarstjóri Skeiðsfoss-
virkjunar í Fljótum, en hann var
einn þeirra er leituðu ísbjarnar þar
í gær.
Leitarmennimir fóru 6 saman frá
Móskógum og leituöu með strönd-
inni um 4 km vegalengd. Mikið var
af slóðum eftir bjöminn á leiðinni
og einnig nokkur bæU sem styöur
það að hann hafi verið hér á landi
í nokkra daga áöur en til hans sást.
Slóðirnar vom mest við fjöruna en
af og til hafði bangsi rásað upp í
hlíðamar, en jafnan stutt og fylgdi
yfirleitt sjávannáU.
Leitarmenn sáu stóran isjaka um
50 metra undan landi nokkiu norö-
an viö bæinn Hraun og virtist þeim
sem í honum heföi verið ísbjamar-
bæU og töldu líklegt að á honum
hafi björninn komið tfi lands.
Skutu leitarmenn úr kraftmiklum
byssum efst i jakann ef vera skyldi
aö „mamma" væri heima en svo
reyndist ekki vera.
Ljóst er aö fólki í Fljótum stendur
ekki á sama um þessa hluti enda
ekki von. Fljótamenn munu þvi
hafa andvara á sér og Uta tU sjávar
næstu daga þótt leitin í gær hafi
styrkt menn í þeirri trú að ekki
hafi fleiri dýr gengið þar á land.
Norðmenn
kaupa seiði
Tuttugufalda verðmæti þeirra á tveimur árum
Sveit Pakistanans Zia Mahmood
(Mittelmann, Cohen og Smith) sigr-
aði með nokkrum yfirburðum á opna
Flugleiðamótinu í bridge, sem lauk
að Hótel Loftleiðum í nótt. 48 sveitir
tók þátt í mótinu og sveit Zia hafði
forustu frá byrjun. Hún lenti í hrein-
um úrsUtaleik við sveit Pólaris í
lokaumferðinni. Monrad-kerfi. Fyrir
umferðina hafði Zia sjö stiga forústu
á sveit Pólaris, 131 stig gegn 124. Sveit
Alans Sontag, USA, var í þriðja sæti
með 119 stig.
Sveit Pólaris þurfti að sigra sveit
Zia með 19-11 til að sigra á mótinu.
Framan af leiknum stefndi í þaö.
Þegar hann var hálfnaöur - eftir sjö
spil - hafði Pólaris skorað 18 stig
gegn einu og það gerði 19-11. En í
lokaspilunum gekk þeim KarU, Sæv-
ari, Símoni og Stefáni Guðjohnsen
ekki eins vel. Bandaríkjamennimir
Cohen og Smith náðu slemmu í átt-
unda spiU, sem Karl og Sævar
misstu, 13-17, og sveit Zia hélt áfram
að skora. ÚrsUt í lokin 2&-10 fyrir
Zia, sem þar með hafði sigrað í öUum
sjö leikjum sínum með talsverðum
mun.
í lokaumferðinni sigraði sveit
Braga Haukssonar sveit Sontag,
18-12, og varö í þriðja sæti en sveit
Bandaríkjamannsins féU niður í
fimmta sæti. í sex efstu sætunum
urðu þessar sveitir. 1. Zia 151 stig og
hlaut sveitin 2000 doUara í verðlaun.
Sveit Pólaris hlaut 134 stig og 1200
doUara. Sveit Braga 133 stig og 600
doUara. í fjórða sæti varð sveit Jóns
Þorvarðarsonar með 132 stig. Sveit
Sontag fimmta með 131 stig og í sjötta
sæti sveit Sigurðar Steingrímssonar
með 128 stig.
-hsím
3300 tunnur
til Rússlands
Ægir Kristinssan, DV, Fáskrúðsfirði.-
Nýlega var skipað út frá Pólar-
sfld hf. 3300 tunnum af saltsfld í
ms. Keflavík sem sigla á til Rúss-
lands. Hjá PólarsUd var aUs
saltað í 24 þúsund tunnur á síð-
ustu vertíð og er töluverður hluti
enn hjá fyrirtækinu en fer á
næstu vikum. Bátar PólarsUdar,
Þorri og Guðmundur Kristinn,
hafa veitt á línu að undanfomu
og selt afla sinn á Englandi. Afli
hefur verið misjafn. Nú í seinni
hluta febrúar er ráðgert að bát-
amir fari til veiða með net og
landi afla sínum hjá Pólarsíld,
þar sem hann verður saltaður.
Norska landbúnaðarráöuneytið
hefur nú gefið grænt Ijós á innflutn-
ing laxaseiða frá íslandi, með fyrir-
vörum um sjúkdómaeftirht. Talið er
að hægt verði að selja um 4-5 miUjón-
ir seiða til Noregs á þessu ári. Þetta
magn markast ekki einungis af eftir-
spum Norðmanna heldur einnig af
því að sá skipastóU, sem fyrir hendi
er til seiðaflutninga, annar ekki
meiri flutningum. Aætlað söluverð
seiðanna er um 300 mUljónir króna.
Þegar þau verða fuUvaxin munu
Norðmenn hins vegar fá fyrir þau
um 6 miUjarða króna, en norskur
eldislax er sá dýrasti í heimi. Norð-
menn tuttugufalda þannig verðmæti
íslensku seiðanna. .ese
Þeir Billy Cohen og Ron Smith spiluðu mjög vel i sveitakeppninni í sveit
Zia. Hér spila þeir viö Svíana Göthe og Morath en Zia sigraöi Evrópumeist'-
ara Svla 25-5. Frá vinstri Göthe, Cohen, Morath og Smith. DV-mynd S