Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Blaðsíða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988.
Utlönd
Einn af helstu aöstoöarmönnum
Moshe Mubarak, forseta Egypta-
lands, gagnrýndi í gær harðlega
tillögur Bandaríkjamanna uin friö-
arsamninga milli araba og ísraela.
sagði hann að tillögumar fáelu ekki
í sér nein nýmæli og væru beinlín-
is rangar í ýmsum atriöum.
Áður höföu Egyptar og Jórdanir
hvatt Bandaríkjamenn til aö stefha
að endanlegum friði í Mið-Austurlöndum, fremur en tímabundnum lausn-
um sem byggi á sjálfsstjóm Palestínumanna á herteknum svæðum undir
ytírstjóm ísraela.
Aðstoöarmaðurinn, Osama Baz, sagði að egypska ríkisstjómin hefði
þegar láöö efasemdir sfnar um tillögumar í ljós viö stjómvöld í Wash-
ington.
Baz sagöi hins vegar mikilvægt að umræður um þessi mál væm komn-
ar á hreyfingu og halda yröi þeim áfram.
George Shultz, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, er væntanlegur til
Mið-Austurlanda siðar í þessum mánuði, til viðræðna viö leiðtoga araba
og ísraela um hugmyndir Bandaríkjamanna.
Ef til vtll Van Gogh
Lítið oliumálverk, sem talið er
mögulegt- að hollenski málarinn
Vinœnt Van Gogh hafi málað, var
í gær selt fyrir fimm þúsund doll-
ara á uppboði í Haag.
Sölu verð þetta er til raikilla muna
lægra en seljendur höfðu vonast til
því uppboöshaldari opnaði tilboðin
í verkið á tuttugu og fimm þúsund
dollurum og fór í lokin niöur í
helming þess sera hafði verið sett
sem lágmarksverð fyrir málverkið.
Uppboðshaldarinn hafði skýrt frá því aö hann hefði fundið málverkiö,
sem er merkt „Vincent“, á heimili eldri konu.
Það hversu lágt verð fékkst fyrir verkiö þykir benda til þess að list-
fræöingar og listunnendur efist stórlega um að Van Gogh hafi í raun
málað myndina. Verk Van Gogh seljast um þessar mundir fyrir tugi
miljóna dollara en ekki fáein þúsund.
Einn maður lét lífið þegar bifreið varð alelda og sprakk við innkeyrsl-
una í Downing-stræti í London, göhma þar sem Margaret Thatcher,
forsætisráöherra Bretlands, býr, 1 nótt. Aö sögn lögreglunnar í London
er ekki talið að sprengiefni hafi verið í bifreiðinni.
Sprengingin varð laust eftir miðnætti og segir lögreglan að svo viröist
sem bifreiðin hafi ekiö upp að gangstétt við þann enda Downing-strætis
og hafi hún orðið alelda svo tíl samstundis. Þegar slökkvilið hafði ráðið
niðurlögum eldsins fannst lík ökumanns í bifreiðinni.
Föstur og bænahald
**»«■>*’
um síðustu helgi og hafa þar
þeldökkra í landinu undanfariö ár.
Desmond Tutu, erkibiskup f Suð-
ur-Afrfku, hefur hvatt safhaðarfólk
sitt til þess aö fasta og liggja á bæn
alla miðvikudaga og föstudaga, þar
ti ofbeldisöldunni, sera gc-ngur yfir
bæi þeldökkra f landinu um þessar
mundir, linnir.
Tólf manns létu lffið í átökum
andstæðra hreyfinga þel-
dökkra í bænum Pietermaritzb urg
yfir fjögur hundruö látist í átökum
Hátíð í Kína
Mikil hátíöarhöld standa nú yfir
í Kína og er það hin árlega vor-
hátíö sem haldin er með tilheyr-
andi skrautsýningum, glensi og
gamni.
Ekki tekst þó alls staöar jafnvel
til því um sfðustu helgi kviknaði i
heilu þorpi út frá flugeldi og brann
þaö til kaldra kola. Hundrað tutt-
ugu og fimm hús voru rjúkandi
rústir eltir.
Talið er að eignatjón 1 brunanum
hafi verið um áttatiu þúsund doll-
arar en ekki var ralnnst á meiðsl á
fólki.
Utanrikisráðherra Italíu, Giulio Andreotti, tók í gær á móti Yitzhak Shamir, forsætisráðherra Israels, á flugvellinum
í Róm. ítalir voru ekki feimnir við að tjá Shamir skoðun sína á aðgeröum ísraelsmanna. Simamynd Reuter
Shamir mætti
andstöðu
Forsætisráðherra ísraels, Yitzhak
Shamir, mætti andstöðu í gær er
þriggja daga opinber heimsókn hans
til Italiu hófst. Þetta er fyrsta utanför
forsætisráðherrans eftir að óeirðim-
ir á herteknu svæðunum blossuðu
upp fyrir tveimur mánuðum.
Heimsókn Shamirs hófst með fundi
hans og Cossiga, forseta Ítalíu. Auk
þess hitti Shamir leiðtoga gyðinga. Á
báðum fundunum deildu menn á
stefnu ísraelsmanna. Aö sögn ítalsks
embættismanns lagði Cossiga
áherslu á að alþjóðleg friðarráð-
stefna með leiðtogum araba og
Sameinuðu þjóðunum væri besta
lausnin til að koma á friði í Miðaust-
urlöndum. Shamir, sem er mjög
andvígur slíkri ráðstefnu, kvaðst
ekki vera sömu skoðunar og Cossiga.
Hann sagðist hins vegar hafa áhuga
á tillögum Bandaríkjamanna.
Utanríkisráðherra Bandaríkja-
manna, George Shultz, er væntanleg-
ur til ísraels innan skamms til þess
að útskýra nánar tillögumar sem
fela í sér áætlun um aö ísraelar láti
hluta af herteknu svæöunum af
hendi tti þess að friður komist á.
Á fúndinum með fúiltrúum gyð-
inga, sem sjálfir eru ekki allir
sammála um aðgerðir ísraelsmanna
gegn Palestínumönnum, var Shamir
tjáð að mn allan heim litu menn á
aðgeröimar sem kúgun.
Hópur ungs fólks safnaöist saman
í Róm í gær til að mótmæla hemámi
ísraelsmanna en á laugardaginn
söfnuðust um fimmtíu þúsund
manns saman í Róm af sömu ástæðu.
Sjónvarpsmartröð
Pán Vílhjálmsson, DV, Ostó:
Sá norski ráðherra, sem nýtur
hvað minnsts álits í Noregi er Hal-
vard Bakke menntamálaráðherra.
Það sem veldur óvinsældumráð-
herrans er stefna hans gagnvart
sjónvarpsútsendingum.
í Noregi er ríkisrekin sjónvarps-
og útvarpsstöð. Stöövar þessar
nutu einokunaraðstöðu og vom
fjármagnaðar með afnotagjöldum.
Ríkisstjóm borgaraflokkanna rauf
einokun á útvarpssendingum í
upphafi þessa áratugar. Stefndu
flokkamir einnig að því að hætta
einokun á sjónvarpi en komu því
ekki í verk áður en stjórnin féll.
Verkamannaflokkurinn tók við
stjór og ráðherra menntamála,
Halvard Bakke, fór sér að engu
óðslega, hélt að kröfur um fjöl-
breyttara sjónvarpsefni myndu
deyja út. Um sama leyti hófu tvær
enskumælandi sjónvarpsstöðvar
sendingar til Norðurlanda, frá
Bretlandi og Hollandi. Þessaf
stöðvar em fjármagnaðar með aug-
lýsingatekjum, en auglýsingar em
sem eitur í beinum forystumanna
Verkamannaflokksins.
Kari Storækre, fyrrverandi eigin-
kona hins njósnadæmda Ames
Treholt, stofnaði fyrstu norrænu
sjónvarpsstöðina í einkaeign ásamt
fleirum og sótti um útsendingar-
leyfi í Danmörku, Svíþjóö og
Noregi. Sjónvarpsstöðin, sem heitir.
Stöð 3, hóf útsendingar um síðustu
áramót og fékk starfsleyfi í Dan-
mörku og Svíþjóð en Bakke,
menntamálaráðherra í Noregi,
neitaði. í bréfi, sem Bakke sendi
Stöð 3 1 desember síöastliðnum,
segir hann að ekki komi til greina
að veita útsendingarleyfi til sjón-
varpsstöðvar sem sé fiármögnuö
með auglýsingum. Þótt ráðherran-
um væri bent á að tvær enskumæl-
andi stöðvar sendu dagskrá
sneisafulla af auglýsingum allan
liölangan daginn til Noregs neitaði
hann Stöð 3 um leyfi.
Það vom þó ekki Uönar nema
tvær vikur af nýju ári þegar Bakke
menntamálaráðherra kúventi og
leyföi Stöð 3 að dreifa dagskrá sinni
í Noregi um kapalkerfi. Ráðher-
rann var harðlega gagnrýndur,
bæði fyrir og eftir að hann tók
þessa ákvörðun, og ekki dró úr
gagnrýninni þegar það fréttist um
helgina að nýrri norskri sjónvarps-
stöð heföi veriö neitað um sams
konar leyfi og Stöð 3 haföi fengiö.
Ráðherrann er sakaður um mót-
sagnir og stefnuleysi en trúlega
dregur afstaða hans dám af ráð-
villu norskra stjórnmálamanna
gagnvart breyttum aðstæðum í
fjölmiðlum.
Koivisto endurkjörinn
Gurmlaugur A Jánsaan, DV, Lundi:
Mauno Koivisto var í gær endur-
kjörinn forseti Finniands til sex ára
eins og reiknað hafði verið með. Þar
sem Koivisto náöi ekki 50 prósent
atkvæða í forsetakosningunum í síð-
astliðnum mánuði kom í hlut
kjörmanna að velja forsetann.
Þeir komu saman til fundar í gær
og eins og búist var við fékk Koivisto
atkvæði nægilega margra hægri
manna í annarri umferð kosning-
anna til aö ná kjöri.
Fyrir ýmsa hægri menn er Koivisto
þó of mikill sósíalisti til að þeir geti
hugsaö sér að greiða honum atkvæði
en Koivisto hlaut 189 af 301 kjör-
mannaatkvæði.
Hið nýja kjörtímabil Koivistos
hefst 1. mars næstkomandi.