Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Blaðsíða 40
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið I hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í slma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrifft - Dreiffíjig: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988.
Hrafn ónýtur:
Tjónút-
gerðarínn-
ar 20 til 25
milljónir
Tryggingamiðstööin hefur greitt
útgerðarfyrirtækinu Þorbirni í
Grindavík tryggingarverðmæti
Hrafns Sveinbjamarsonar þriðja,
alls 57,8 milijónir króna. Björgunar-
aðgerðum hefur verið hætt. Þrátt
fyrir að tryggingafélagið hafi greitt
útgerðinni tryggingarverðið er tjón
útgerðarinnar mikið. Miðað við sölu-
verð fiskiskipa undanfarin misseri
má áætla að söluverð Hrafns Svein-
bjamarsonar þriðja hefði getað orðið
80 til 85 milljónir króna.
Tryggingamiðstöðin hefur geflð
björgunarsveitinni Þorbirni bátinn
með því sem í honum er. Reynt verð-
ur að draga bátinn lengra upp í
fjöruna svo unnt verði að taka úr
honum verðmæti. Báturinn var mjög
vel útbúinn og í honum voru góð
tæki og vélar. Aðeins er Uðin rúm
vika frá því að aðalvél bátsins var
tekin upp.
Eiríkur Tómasson útgerðarmaður
sagði að þegar væri hafin leit að öðr-
um báti, bæði innanlands og utan.
Sagði Eiríkur að markaðurinn væri
erfiður hér á landi. Þaö væri brýnt
fyrir fyrirtækið að fá bát sem fyrst.
A meðan færri bátar landa hjá Þor-
bimi en fyrirhugað var verður
keyptur fiskur á fiskmörkuðum.
Varðskipið Óðinn:
Dró græn-
lenskan tog-
ara til hafiiar
Þegar varðskipið Óðinn var á leið
til Reykjavikur frá strandstaðnum
við Hópsnes kallaði til hans græn-
lenskur togari sem var vélarvana.
Grænlenski togarinn var á reki úti
af Garðskaga. Óðinn dró togarann til
Hafnarfjarðar. Gekk verkið mjög vel.
-sme
Tvær ungar konur, fæddar 1964 aðkonumarhafihaftmeðsérsam- hversu miklu magni þær heföu
og 1966, hafa verið úrskurðaöar í starf. komiðtillandsinsíferðumsínum.
gæsluvarðhald fyrir innflutning á Grunur er um að konumar hafi Mál þetta er nú til rannsóknar
fíkniefnum. Konumar voru báðar farið nokkrar ferðir til útlanda í og hafa margir aöilar verið hand-
teknar um síðustu helgi, önnur á þessum tilgangi á undanfomum teknir og yftrheyrðir vegna rann-
föstudag og hin á sunnudag. vikum. Þær munu aöallega hafa sóknarinnar. Ekki hefur þótt
Önnur þeirra var að koma frá flutt til landsins amfetamín. Fíkni- ástæða til aö óska eftir gæsluvarð-
Amsterdam.Húnhafðiífórumsín- efnadeild lögreglunnar gat ekki haldsúrskurðum yfir fleiri aðiitun
um 200 grömm af hassi og 210 sagt um hversu margar feröir kon- en konunum tveimur.
grömm af amfetamíni. Ljóst þykir umar hefðu fariö og ekki heldur -sme
Starfsmenn Mjólkursamsölunnar héldu fjölmennan fund I morgun þar sem farið var yfir stöðu samningamála.
Að sögn Ólafs Ólafssonar trúnaðarmanns, sem sést fremst á myndinni, gefa viðbrögð við óskum starfsmanna
ekki tilefni til bjartsýni og þvi má fara að búast við aðgerðum a> þeirra hálfu. DV-mynd KAE
Mjólkurlaust vegna fundarhalda
ASr°o,
ÞRttSTUR
68-50-60
VANIR MENN
„Þetta er nú bara fundarhald með
starfsfólkinu en þessi tími er best til
þess fallinn,“ sagði Ólafur Ólafsson,
trúnaðarmaður hjá Mjólkursamsöl-
unni. í morgim tafðist útkeyrsla hjá
Mjólkursamsölunni fram til kl. 10
vegna fundar starfsfólks. Flestir
starfsmanna þar eru í Dagsbrún en
eru með sérsamninga. Ólafur, sem
er stjórnarmaður í Dagsbrún, sagði
að litlar undirtektir hefðu komið
fram við kröfum starfsmanna.
„Mér sýnist að samningar séu
fremur ólíklegir nú, þetta er allt
sprungið í loft upp.“ Ólafur sagði
ekki hafa verið ákveðnar neinar að-
gerðir meðal starfsmanna Mjólkur-
samsölunnar. Það væri þó ljóst að
hafnarverkamenn hefðu staöið einir
fyrir aðgerðum og það væri ekki
lengur hægt. -SMJ
LOKI
SlS-í fríkar út!
Veðrið á morgun:
Suðvest-
anátt um
allt land
Á morgim verður suðvestanátt
um allt land með snjó eða slyddu-
éljum um landiö vestanVert en víða
verður bjart austan til. Hiti verður
á bilinu 0 til 5 stig.
Smárahvammsland:
Kópavogskaup-
staður skuld-
laus við SÍS
- segirbæjarstjóri
Kópavogskaupstaður greiddi Sam-
bandi íslenskra samviimufélaga
síðdegis í gær 19,2 milljónir í útlagð-
an kostnað vegna kaupa SÍS á landi
í Smárahvammslandi sem Kópa-
vogskaupstaður gekk inn í með því
aö nýta forkaupsrétt sinn. Kristján
Guðmundsson, bæjarstjóri Kópa-
vogs, segir að inni í þessari upphæð
séu 17,2 milljónir í höfuðstól, tæp 900
þúsund í sölulaun ásamt vöxtum að
upphæð 1,1 milljón. SÍS menn telja
rúma milljón enn vanta upp á til að
fá útlagðan kostnaö greiddan að fullu
og tóku því við upphæðinni með fyr-
irvara.
„Engin ákvæði eru um það í samn-
ingum milli eigenda Smárahvamms-
lands og SÍS að ef Kópavpgkaupstað-
ur nýti sér forkaupsrétt eigi að greiða
vexti. Við gerum það samt og tel ég
Kópavogskaupstað nú skuldlausan
viö SÍS,“ segir Kristján Guðmunds-
son, bæjarsfjóri Kópavogs. „Hvað
.varðar skipulagsvinnu SÍS á landinu
er það alls ekki mál Kópavogskaup-
staðar að greiða þann kostnað. Sú
vinna er alfarið á ábyrgð SÍS og þurfa
þeir sjálfir að standa straum af þeim
kostnaði en geta ekki farið fram á
að við gerum það,“ segir Kristján.
-JBj
Fjármálastjóri SÍS:
Vantar riima
milljón
„Ég tók á móti ávísunum frá Kópa-
vogskaupstáð í gær sem við lítum á
sem hlutagreiðslur upp í útlagðan
kostnað vegna kaupa á landi í
Smárahvammslandi ásamt verðbóta-
og vaxtakostnaði,“ segir Kjartan P.
Kjartansson, fjármálastjóri SÍS. „Ég
vil ekki segja hversu há þessi upp-
hæð er en ég get sagt aö það vantar
töluvert yfir milljón krónur á þá end-
urkröfu sem við sendum Kópavogs-
kaupstað. Þessi milljón er sambland
af vangreiddum vöxtum og verð-
bótum ásamt ógreiddri vinnu við
skipulagningu landsins. Hvað við
gerum til að fá þessa upphæð greidda
vil ég ekki leiöa neinum getum að.
Haft verður samband við yfirvöld í
Kópavogi og kannað hvert viðhorf
þeirra er í málinu. Ef þeir skilja ekki
okkar sjónarmið munum við að sjálf-
sögðu skoða þann eðlilega rétt sem
við teljum okkur eiga. “
-JBj
Samningaviðræðuman
Hægur gangur
en sígandi
Samningafundir Verkamannasam-
bandsins og vinnuveitenda stóð til
miðnættis í gær og verður fram hald-
ið klukkan þijú í dag. Að sögn
Karvels Pálmasonar, varaformanns
VMSÍ, miðar hægt og sígandi og
sagðist hann hafa trú á því að menn
væru nú að reyna fyrir alvöru að ná
saman. Karvel sagði að loku væri
ekki fyrir það skotið að ríkisvaldið
kæmi inn í samningana á síðari stig-
um, en enn hefði ekkert verið rætt
um hvert tillegg þess ætti að vera.
Formannafundur verður á Aust-
urlandi í dag og munu Austfirðingar
koma til hðs við samninganefnd
Verkamannasambandsins á morg-
un.
-gse