Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988. 37 Skák Fyrir helgina birtum við „glæsileg" lok á skák stórmeistaranna Beljavskys og Christiansens frá alþjóðamótinu í Reggio Emilia um áramótin. Christiansen hafði svart og átti leik í þessari stöðu: ....M HH^ Sfl^, ..................... Eför 36. - Dxf7 37. Hd7 Dxf6 38. DxfB Hh2 +! sættust þeir á jafntefli því að eftir 39. Kxh2 Hg2 +! 40. Kxg2 er svartur patt. Þessi flétta Christinsens er sér lega fall- eg en því miður stenst hún ekki! í stað 37. Hd7 leiðir 37. Rg4 +! til vinnings fyrir hvítan. Eftir 37. - hxg4 38. Dxf7 Hh3 + 39. Kgl Hg3+ 40. Kfl er svartur glataður, þar sem 40. - Hf3+ er einfaldlega svaraö með 41. Dxf3 og hvítur á hrók til góða. Og ekki nóg með það. Eftir 37. Hd7 Dxffi getur hvítur enn unnið með 38. Hh7+! eins og Ásgeir Överby, ísafirði, hefur bent á. Eftir 38. - Kxh7 39. Dxffi er pattiö ekki lengur í stöðunni og hvítur á unnið tafl. Bridge Hallur Símonarson Það var mikil spenna á bridgehátíð á laugardag í lokaumferð tvímennings- keppninnar. Mikil skiptmgarspil eins og svo oft áður í keppninni. Spil nr. 93 - næstsíðasta spilið - var þannig: * D87543 V 732 ♦ K2 + G7 * KG102 VÁKD94 + K1065 N V A S ♦ Á96 VG106 ♦ ÁD10754 + 8 ♦ 85 ♦ G9863 ♦ ÁD9432 Það áttu margir í erfiðleikum með sagnir og gegn Hjalta Elíassyni og Jóni As- bjömssyni komust A/V í sex hjörtu. Sú sögn var dobluð til að fá út spaöa. Það gekk eftir. Út kom spaði sem Hjalti trompaði. Hann tók síðan laufás. Það gerði 200 og var við toppinn. Sigurvegararnir Sundelin og Gullberg stönsuðu í 4 hjörtum sem Sundelin spil- aði. Suður hafði doblað fjögur lauf, keðjusögn Gullbergs í austur. Norður spilaði út laufi sem suður tók á ás. Spil- aði síðan tígli eftir langa mnhugsun upp í gaffal blinds. Sundelin drap kóng norð- urs með ás - kastaði sjálfur laufi - og bað síðan um spaðaás. Brá talsvert þegar suður trompaði og spilaöi laufi. Sundelin drap á kóng og kastaði spaða úr blindum. Tók síðan tvisvar tromp, þá spaðakóng og síðan gosa. Trompaði spaðadrottningu norðurs og fékk 11 slagi. 650 og það var um meðaltal. Það nægði Svíunum til sigurs á mótinu því Sontag og Molson fengu lítið fyrir spihð. Gegn þeim voru spiluð 4 hjörtu og unnin sex. Lauf kom út. Drepið á ás og lauf áfram. Trompað í blindum og laufi kastað á tígulás. Trompin tekin og sagn- hafi hitti síðan rétt í spaðann. Krossgáta y Z 3 £T lo 7 1 e i 9 /O II h IZ /3 1* J ÁT Uo _ 17 ’H « io □ írétt: 1 óvissa, 7 hlaup, 8 hestur, i sigaði, 12 viðkvæm, 14 meltingar- íri, 15 traökiö, 17 herma, 19 kíána, ) kássa, 21 málmur. óðrétt: 1 vanrækja, 2 hætta, 3 vömb, bátur, 5 komast, 6 böl, 9 lokaðist, . snáða, 13 eydd, 16 kveikur, 18 tví- Ijóði. ausn á síðustu krossgátu: árétt: 1 herfa, 6 óm, 8 ah, 9 árla, 10 fsi, 11 mas, 12 gustir, 14 urtunni, 17 ?r, 19 snap, 21 brúk, 22 smá. óðrétt: 1 haugur, 2 elfur, 3 riss, 4 ii, 5 arminn, 6 ólar, 7 maski, 13 tusk, 5 trú, 16 nam, 18 ýr, 20 pá. Sumir vita aldrei að Lalli er giftur....og hann er einn af þeim. Lalli og Lína Slökkvilið-lögregla Reykjavík: Lögreglan sími 11166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Seltjarnarnes: Lögreglan sími 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100. Keflavík: Lögreglan sími 13333, slökkvilið sími 12221 og sjúkrabifreiö sími 13333 og í sím sjúkrahússins 14000. Vestmannaeyjar: Lögreglan sími 1666, slökkvilið 2222, sjúkrahúsið 1955. Akureyri: Lögreglan símar 23222,23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 22222. ísafjörður: Slökkvilið sími 3300, bruna- sími og sjúkrabifreið 3333, lögreglan 4222. Apótek Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta apótek- anna í Reykjavík 12. til 18. febr. 1988 er í Breiðholtsapóteki í Mjóddinni og Apó- teki Austurbæjar. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni virká daga en til ki. 22 á sunnudúgum. Upplýsingar um læknis- og lyfiaþjónustu eru gefnar í síma 18888. Mosfellsapótek: Opið virka daga frá kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12. Apótek Garðabæjar: Opið mánudaga- fostudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl. 11-14. Sími 651321. Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá kl. 9-19, laugardaga kl. 9-12. Hafnarfjörður: Norðurbæjarapótek er opið mánudaga til fimmtuda’ga frá kl. 9-18.30, Hafnarfjarðarapótek frá kl. 9-19. Bæði apótekin hafa opið fóstudaga frá kl. 9-19 og laugardaga frá kl. 10-14 og fil skiptis annan hvem helgidag frá kl. 10-14. Upplýsingar í símsvara apó- tekanna, 51600 og 53966. Apótek Kefiavíkur: Opið frá kl. 9-19 virka daga, aöra daga frá kl. 10-12 f.h. Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opið virka daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokað laugar- daga og sunnudaga. Akureyrarapótek og Stjörnuapótek, Akureyri: Virka daga er opið í þessum apótekum á afgreiðslutima verslana. Apótekin skiptast á sína vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidaga- vörslu. Á kvöldin er opiö í því apóteki sem sér um þessa vörslu til kl. 19. Á helgidögum er opið kl. 11-12 og 20-21. Á öðrum tímum er lyijafræðingur á bak- vakt. Upplýsingar eru gefnar í síma 22445. Heilsugæsla Slysavarðstofan: Sími 696600. Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur og Seltjamames, sími 11166, Hafnar- fjörður, sími 51100, Keflavík, sími 13333, Vestmannaeyjar, sími 1955, Akureyri, sími 22222. Krabbamein - upplýsingar og ráðgjöf á vegum Krabbameinsfélagsins virka daga kl. 9-11 í síma 91-21122. Læknar Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn- arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar- stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og timapantanir í sími 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í símsvara 18888. Borgarspítalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími 696600) en slysa- og sjúkravakt (slysadeild) sinnir slösuðum og skyndi- veikum allan sólarhringinn (sími 696600). Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðiri er opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar- daga kl. 10-11. Sími 612070. Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar, sími 51100. Keflavík: Neyöarvakt lækria frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar. Vakthaf- andi læknir er í síma 14000 (sími Heilsugæslustöðvarinnar). Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í síma 1966. Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heilsu- gæslustöðinni í síma 22311. Nætur- og helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far- sími) vakthafandi læknis er 985-23221. Upplýsingar hjá lögreglunni í sima 23222, slökkviliðinu í sima 22222 og Akureyrarapóteki í síma 22445. Heiinsóknartími Landakotsspítali: Alla daga frá kl. 15-16 og 18.30-19. Bamadeild kl. 14-18 alla daga. Gjörgæsludeild eftir sam- komulagi. Borgarspitalinn: Mánud.-föstud. kl. 18.30-19.30. Laugard.-sunnud. kl. 15-18. Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og 18. 30-19.30. Fæðingardeild Landspitalans: Kl. 15-16 og 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Heimsóknartími frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30. Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kl. 15.30-16.30 Kleppsspítalinn: Alla daga kl. 15-16 og 18.30- 19.30. Flókadeild: Alla daga kl. 15.30-16.30. Grensásdeild: Kl. 18.30-19.30 alla daga og kl. 13-17 laugard. og sunnud. Hvítabandið: Frjáls heimsóknartími. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15-17 á helgum dögum. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug- ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15-16.30. Landspitalinn: Alla virka daga kl. 15-16 og 19-19.30. Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16 alla daga. Sjúkrahúsiö Akureyri: Alla daga kl. 15.30- 16 og 19-19.30. Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sjúkrahús 'Akraness: Alla daga kl. 15.30-16 og 19-19.30. Hafnarbúðir: Alla daga frá kl. 14-17 og 19-20. Vífilsstaðaspítali: Alla daga frá kl. 15-16 og 19.30-20. Vistheimilið Vifilsstöðum: Sunnudaga kl. 14-17, fimmtudaga kl. 20-23, laugar- daga kl. 15-17. Vísir fyrir 50 árum 16. febrúar Jafnvel ungtfólk eykur vellíðan sína með því að nota hárvötn og ilmvötn. Verð í smásölu frá kr. 11.10til kr. 14eftirstærð. Áfengisverslun ríkisins. Spakmæli Það er betra að vitkast af óförum annarra en sínumeigin. Olaus Petrí Söfnin Borgarbókasafn Reykjavíkur Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s. 79122, 79138. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud.-fimmtud. kl. 9-21, föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið mánud.-laugard. kl. 13-19. Hofsvallasafn, Hofsvallagötu 16, s. 27640. Opið mánud.-föstud. kl. 16-19. Bókabílar, s. 36270. Viökomustaðir víðs vegar um borgina. Sögustundir fyrir böm: Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgarbókasafnið í Gerðubergi, fimmtud. kl. 14-15. Bústaöasafn, miðvikud. kl. 10-11. Sólheimar, miðvikud. kl. 11-12. Allar deildir eru lokað'ar á laugard. frá 1.5.-31.8. Ásmundarsafn við Sigtún. Opnunar- tími safnsins er á þriðjudögmn, fimmtu- dögum, laugardögum og sunnudögum frá kl. 14-17. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74: opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13.30-16.00. Árbæjarsafn: Opið eftir samkomulagi í síma 84412. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi7: Saf- nið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11.30-16.30. Náttúrugri’pasafnið við Hlemmtorg: Opið sunnudaga, þriðjudaga, fimmtu- daga og laugardaga kl. 14.30-16. Norræna húsið við Hringbraut: Sýn- ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19. Bókasafn Norræna hússins: mánu- daga til laugardaga kl. 13-19. Sunnu- daga 14-17. Þjóðminjasafn íslands er opið sunnu- daga, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga frá kl. 13.30-16. Bilanir Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og Seltjamames, sími 686230. Akureyri, sími 22445. Keflavík, sími 2039. Hafnarfjörður, sími 51336. Vestmannaeyjar, sími 1321. Hitaveitubilanir: Reykjavík og Kópa- vogur, sími 27311, Seltjamames, sími 615766. Vatnsveitubilanir: Reykjavík og Sel- tjarnarnes, sími 621180, Kópavogur, sími 41580, eftir kl. 18 og um helgar, sími 41575. Akureyri, sími 23206. Keflavík, sími 1515, eftir lokun 1552. Vestmannaeyjar, símar 1088 og 1533. Hafnarfjöröur, sími 53445. Símabilanir: í Reykjavík, Kópavogi, Seltjamamesi, Akureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist í 05. Bilanavakt borgarstofnana, sími 27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17' síðdegis til 8 árdegis og á helgidögum er svaraö allan sólarhringinn. Tekið er viö tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgarinnar og í öörum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. Tilkyimingar AA-samtökin. Eigir þú við áfengis- vandamál að stríða, þá er sími samtak- anna 16373, kl. 17-20 daglega. Stjömuspá Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 17. febrúar: Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.): Ákveðið ástarid gæti veriö hagstætt varðandi skipulagn- ingu og góða afkomu í næstu viku. Málin þróast þannig að þú átt auðveldara með að átta þig á úrlausnum. Þú átt greiðari aögang að ýmsum upplýsingum. Fiskarnir (19. febr.-20. mars): Þú ættir aö gæta þess að blanda þér ekki í misklíð ann- arra því að upp úr því hefurðu ekkert nema leiðindin. Þú ættir að reyna að hressa þig við og fara út á meðal fólks en haltu fast um pyngjuna. Hrúturinn (21. mars.-19. apríl.): Þú er ipjög skarpur rnn þessar mundir og ættir að taka að þér fyrir hendur það sem hefur vafist fyrir þér, sérstak- lega þó tölur og fjármál. Það er ýmislegt sem greiðst gæti út. Nautið (20. apríl-20. maí); Það geta komið upp hin ótnilegustu vandamál í dag en sum eru þó byggð á misskilningi. Þú ættir að vinna vel seinni partinn. Þú færð fréttir sem skýrast ekki strax. Tvíburarnir (21. maí-21. júní): Andrúmsloftið er frekar neikvætt svo þú skalt ekki vænta mikils af fólki í kringum þig. Þú ættir aö bíða til kvölds með aö finna jákvæðar úrlausnir á umræðum. Krabbinn (22. júní-22. júlí): Þú er fljótur til að láta pirra þig og ergja. Þú ættir að taka þig á, slaka vel á og takast á við verkefnin af endumýjuð- mn þrótti. Ljónið (23. júlí-22. ágúst); Það er ekki óliklegt að þú sért að bíöa eftir rólegum degi. Þú ættir að velja félagsskap með fólki á svipuðu plani og þú sjálfur og með sömu skoðanir. Ef þú ferð út fyrir munstrið lendirðu í streitu og vitleysu. Meyjan (23. ágúst-22. sept.): Þú ættir að sýna þolinmæði í dag, sérstaklega í samskiptum við fólk Ef þú vilt fá eitthvað fram skaltu fara hægt í sak- imar. Vogin (23. sept.-23. okt.): Þú nærð bestum árangri í dag með því að fylgja straumum frekar en að róa á móti og reyna að breyta einhvetju. Það gæti orðið einhver spenna í kvöld viðvíkjandi kostnaði. Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.): Þú ættir að taka þær ákvarðanir í dag sem þú hefur verið að geyma. Dagurinn verður bjartur og nýtist þér vel. Þú átt það til að vera utan viö þig og skalt því leggja á minnið hvað þú gerir við hlutina. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.): Þú getur orðið fyrir einhveijum vonbrigðum með ákveðið samband. Þú ættir að reyna aö komast í rólegt samband. Gerðu eitthvað annað en þú hefur verið að gera að undan- fömu, það getur verið mjög gaman. Steingeitin (22. des.-19. jan.): Það liggur einhver óákveðni í loftinu í kringum þig, sér- staklega er fólk á báðum áttum um hvérnig það á að láta. Vertu viö öllu búinn, jafnvel að ákveðið samband fari að nokkm út um þúfur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.