Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Blaðsíða 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988.
Smáauglýsingar
■ Bflar til sölu
AMC Eagle Sport 4x4 ’81. Aukahlutir:
útvarp og segulband, 4 hátalarar, raf-
drifið loftnet, Halogen kastarar, litað
gler, snúningsmælir, spegill og ljós í
skyggni, afturrúðuþurrka, veltistýri,
Heavy-duty fjaðrir, toppgrind, 4ra gíra
gólfskipting, leðurklætt stýri, auka-
mælasett, aflbremsur, vökvastýri o.fl.
Einn eigandi, skráður 28/101981, mjög
vel með farinn. Uppl. í síma 19575.
Skíðafólk - góða ferð! Þessir hentugu
skíðakassar taka 5-6 pör af skíðum
ásamt skóm o.fl. Gott verð. Mjög létt-
ir. Hjólbarðastöðin, Skeifunni 5, símar
689660, 687517.
Buick Century station '84 til sölu, V-6,
3 lítra, hvítur, 5-7 manna, sjálfskipt-
ur, veltistýri og aflbremsur, rafmagn
í rúðum, hraðastillir, loftkæling, vön-
duð hljómtæki, toppgrind. Uppl. í síma
12500 og 39931 eftir kl.19. •
Til sölu Oldsmobile Cutlass Ciera ’83,
ekinn 40.000 mílur, sjálfskiptur,
vökva- og veltistýri, sumar- og vetrar-
dekk, hvítur að lit, gullfallegur bíll,
verð 650.000, ath. skipti, skuldabréf.
Uppl. í síma 92-16069 e.kl. 18.
Toyota Cressida turbo dísil ’86, metal-
lakk, centrum og rafmagn í öllu,
stereogræjur. Uppl. í síma 675733 eftir
kl. 16 eða 985-20220.
Monte Carlo '79 til sölu, toppeintak,
hvítur, með vínrauðum vinyltoppi,
nýuppt. vél, skipting. Ath. skuldabréf.
Uppl. í vs. 92-11937, hs. 92-12071 og
92-13537.
Fréttir
Tillögur félagsmálaráðherra um kaupleiguíbúðir:
Verðum að lappa
upp á drögin
- segir Alexander Stefánsson sem segir tillögur ráðherra ekki vera nertt neitt
í þmgflokki Framsóknarflokks-
ins var samþykkt í gær að frum-
varp um kaupleiguíbúðir yrði lagt
fram sem ein heild en ekki bútað
sundur eins og flokkurinn hafði
gert tillögu um. Með þessu kemur
flokkurinn til móts við Alþýðu-
flokkinn en þessir tveir flokkar
hafa deilt hart um tillögur Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráð-
herra um kaupleiguíbúðir i
þingmannanefnd stjómarflok-
kanna. En þrátt fyrir þessa
samþykkt er enn ágreiningur um
tillögumar.
„Eins og þetta liggur fyrir er þetta
ekki neitt neitt og leysir engan
vanda fyrir almenning í landinu,“
sagði AÍexander Stefánsson, full-
trúi Framsóknarflokksins í nefnd-
inni, í samtali við DV í gærkvöldi.
„Það er hugsanlegt að með þessu
verði hægt að byggja eitthvað fleiri
leiguíbúðir og þá helst á höfuð-
borgarsvæðinu. Ég sé ekki að
kaupleigan skih sér í þessum tillög-
um. Hún virðist vera meiri auglýs-
ing fyrir ráðherra. Það er hins
vegar tekið fram í stjórnarsáttmál-
anum að kaupleiga skuh tekin upp
í húsnæðiskerfinu. Við verðum því
að reyna að lappa upp á tillögur
ráðherra svo að við fáum lögin
ekki í bakið frá þeim aðilum sem
eiga að fjármagna þetta kerfi.“
I tillögunum er gert ráð fyrir að
lífeyrissjóöirnir fjármagni kaup-
leigukerfið. Alexander sagði að
nefndin væri nú að kanna hug
þeirra til tillagnanna og að sér virt-
ist ekkert samráð hafi verið haft
við þá. Það væri því mikil vinna
fram undan hjá nefndinni og óvíst
hvenær hún lyki störfum.
Þegar DV bar þessi ummæli und-
ir Jón Sæmund Sigurjónsson,
fulltrúa Alþýðuflokksins í nefnd-
inni, sagðist hann furða sig á
ummælum Alexanders. Frum-
varpsdrögin væru óvenjuvel
undirbúin enda hefðu margir lagt
þar hönd á plóg. Jón sagði að það
væri einkum tvennt sem enn ætti
eftir að leysa. Annars vegar hvort
lithr lífeyrissjóðir úti á landi væru
tilbúnir til þess að leggja fjármagn
í kerfið svo það nýttist í þeirra
heimabyggð og hins vegar væri enn
ágreiningur um leigurétt eða bú-
setarétt. Aðspurður um hvort
mögulegt væri að þessar íbúðir
yrðu í raun venjulegar leiguíbúðir
sagðist hann ekki trúa því að mála-
lok yrðu þau.
Geir H. Haarde, fuhtrúi sjálfstæð-
ismanna í nefndinni, vildi htið tjá
sig um þetta mál. Hann sagðist þó
trúa því að samkomulag næðist
enda væri það tekið fram í stjórnar-
sáttmálanum að ríkisstjórnin
stefndi að því að taka upp kaup-
leigukerfi. Andstaða gegn tillögum
félagsmálaráðherra er þó mikil
innan Sjálfstæðisflokksins.
„Ég er þeirrar skoðunar að Al-
þingi eigi að koma sér niður á
stefnu í húsnæðismálum en það
eigi ekki að vera að breyta kerfinu
um leið og skipt er um ráðherra,“
sagði Halldór Blöndal í samtah við
DV í gær.
-gse
Ungur og efnilegur nemandi í Menntaskólanum við Sund dorgar á Elliða-
vatni fyrir fyrir nokkrum dögum og bíður eftir þeim stóra. Margir hafa rennt
fyrir fisk á vatninu síðustu daga og fengiö góða veiði.
DV-mynd ÁSÞ
Helluvatn:
4 og 5 punda
silungar á doig
Veiðimenn hafa farið víða og dorg-
að síðustu daga enda veðurfar gott
til sllks og ísinn víða traustur. „Ég
er húinn að veiða hérna í klukkutíma
og fá einn góðan silung, þaö er gaman
að þessu,“ sagði veiöimaður sem
dorgaði á Helluvatni á sunnudaginn.
„Ég sá fyrir nokkrum mínútum væn-
ar bleikjur hérna í vökinni en þær
vildu ekki taka, það voru hérna
veiðimenn í gær og þeir fengu 5 sil-
unga, tveir þeirra voru 4 og 5 punda.
Þetta er hressandi útivist í þessu og
styttir biðina eftir aðalveiðitíman-
um,“ sagði veiðimaðurinn á Hellu-
vatni og hélt áfram að dorga með
Rjúpur í
Ægir Kristmsson, DV, Fáskrúösfiröi:
Óvenjulegir gestir hafa verið í
görðum' bæjarbúa að undanförnu,
það eru rjúpur sem gera sig heima-
spún í vökinni.
„Ég hef farið upp að Ehiðavatni
tvisvar og mest höfum við fengið 14
fiska en frekar voru þeir smáir, vor-
um Vatnsendamegin," sagði Árni Þ.
Sigurðsson um dorgveiðina. „Frétti
af ágætri veiði um daginn, 4-5 góðum
fiskum, og svo fékkst einn veiðimað-
urinn lax,“ sagði Ámi í lokin.
Veiðimenn hafa eitthvað sótt í
bleikjuna á Norðurá og Grímsá, við
fréttum af einum sem veiddi um 70
einn daginn, feitar og fahegar. Eitt-
hvað hefur þó dregið ur veiðinni
síðustu daga.
-G.Bender
görðum
komnar. Rjúpurnar hafa mætt í mat
smáfugla, þar sem fólk hefur gefið
þeim, og fengið sér kropp. Ekki er
annað að sjá en vel fari á með þeim
og smáfuglunum.
Tímarit fyrir aHa
HENTAR ÖLLUM ALLS STAÐAR - Á FERÐALAGINU JAFNT SEM HEIMA
MEÐAL EFNIS:
Skop 2 • Ógnvænlegt valdatafl á Persaflóa 3 • Síamstvíburarnir í Brasilíu 10 • Maðurinn sem varði
heiður sinn 15 • Ekki eyðileggja fortíðina 19 • Fulltrúi syndarinnar á þingi 23 • Sköpunargáfa og
þunglyndi 31 • Hve vel þekkir þú maka þinn? 35 • Til Meg sem er að verða þrettán 39 • Röð af
tilviljunum 41 • Hugsun í orðum 47 • Saga af svikum: Toshibahneykslið 48 • Nýtt lyf gegn kólesteróli
55 • Diplómat eftir dauðann 60 •Kuklarakreddur og læknisdómar 75 • Hvaða vikudag fæddist þú?
81 • Er farið að halla undan fæti fyrir þér? 86 • Völundarhúsið 96 •