Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988.
11
Utlönd
FJör í norska
blaðaheiminum
PáU Vittijálmsson, DV, Osló:
Síðasta vika var sérstaklega flörug
í norskum fjölmiðlaheimi. Stærsta
blað Noregs, VG, birti á þriðjudaginn
forsíðufrétt með stríðsletri þar sem
alþjóð var sagt að Norðmaðurinn og
Svíinn, sem eru í höndum mannræn-
ingja í Líbanon, væru frjálsir. Um
nóttina fóru blaðamenn VG á stúfana
og gerðu rúmrusk fjölskyldu hins
brottnumda Norðmanns til að fá
mynd í'blaöið. Frétt VG reyndist
röng og blaðið hlaut almenna for-
dæmingu fyrir óvönduð vinnubrögð.
Ritstjóri VG, Einar Hanseid, átti
ekki sjö dagana sæla það sem eftir
var vikunnar og jafnvel var gert hróp
að honum á götum úti.
Hanseid ritstjóri var tekinn í nær-
mynd í einum vinsælasta fréttaþætti
norska ríkissjónvarpsins sem sendur
er út á besta sýningartíma á laugar-
dagskvöldi. Sá þáttur var tilefni til
annars reginhneykslis í norska
blaðaheiminum í síðustu viku. Eftir
að hafa séð þáttinn ákvað eigandi
Morgenbladets að taka ritstjóra VG
í karphúsið. Eigandinn, Hroar Han-
sen, hringdi í prentsmiðjuna og las
fyrir frétt sem hann krafðist að sett
yrði í sunnudagsútgáfu Morgenblad-
ets sem var og gert. Ritstjóra blaðsins
fannst freklega fram hjá sér gengið
og sagði framferði eigandans ekki
eiga sér hliðstæðu í seinni tíma
norskri fjölmiðlasögu. Ritstjórinn
fékk stuðning hinna þijátíu blaða-
manna Morgenbladets þegar hann
krafðist skriflegrar afsökunarbeiðni
frá eigandanum og að það yrði tryggt
að eigandinn skipti sér ekki aftur af
ritstjórnarefni blaðsins.
Þegar síðast fréttist lá eigandi
Morgenbladets undir feldi og hugsaði
sitt ráð.
KONUR A TH.
Útsölunni lýkur á miðvikudag
DUNDURVERÐ A
ÖLLU
MARION
TRÖNUHRAUNI 6, HAFNARFIRDI, $lMI 651147
Nýjar vörur á fimmtudag
VERSLUNIN
mgm •• ■
Fronsk
herferð
gegn
hávaða
Bjairú Hinriksson, DV, Bordeaux:
Um þessar mundir eru Frakkar
afskaplega uppteknir af hávaða
enda hafa sérfræðingar komist
aö þvi að sá fjári kosti þjóðfélagið
árlega ógrynni peninga. Yfirvöld
eru með mikla upplýsingaherferö
í gangi og síðasta vika hefur ve-
rið helguð baráttunni gegn
hávaða.
Á hverjum degi öðlast almenn-
ingur gegnum fjölmiðla nýja
vitneskju um eðli hávaða og or-
sakir hávaðamengunar, til
dæmis hvers vegna mannsheil-
inn virðist álíta lætin í sjávar-
brimi næstum því heilsusamleg á
meðan hraðbrautarhávaði er
hreinn og klár óvinur þótt desí-
belfjöldinn sé í báðum tilvikum
sá sami. Einnig hefur komið fram
að hundseigandi er yfirleitt
ónæmari fyrh- gelti eigin hvutta
en Snata nágrannans. Það skiptir
ekki öllu máli hversu mikill háv-
aðinn er heldur miklu fremur
hvernig hann er túlkaöur. Hin
sálfræðilega hlið hávaðans er
orðin mjög mikilvæg.
Frakkar telja að alls kyns læti,
háreysti, músík, garg og yfirleitt
allt það sem hægt er að flokka
undir hávaða sé helsta ástæðan
fyrir nágrannaríg. Undir þetta
getur fréttaritari tekið. Hann hef-
ur persónulega oröið vitni aö
miklu næmi og viökvæmni
Frakka fyrir ýmsum hljóðum,
sérstaklega eftir þann tíma sem
opinberar reglugeröir segja til
um aö heyrast megi í fólki. Hér á
fréttaritari alls ekki viö ósæmi-
legan hávaða svo sem svallveisl-
ur, síðnætursjónvarpsgláp,
spilakvöld eða hljómsveitaræf-
ingar heldur eðlilegan barnsgrát,
ósköp venjulegt fótatak eða sam-
tal í viðurkenndri tónhæð.
Franska ríkið hyggst veija jafh-
miklu í hávaðaherferð sína og
þaö ver til áróðurs gegn reyking-
um.
Umsjón: Ingibjörg
Bára Sveinsdóttir og
Halldór Valdimarsson
Landsmenn 60 ára og eldrí... (og aðeins yngrí).
í tilefni 10 ára afmælis ferðaskrifstofunnar Atlantik kynnum við dagana 17. 18. og 19. febrúar
Klúbb 60 á skrifstofunni að Hallveigarstíg 1 frá kl. 16-18.
Þórir S. Guðbergsson félagsráðgjafi verður á skrifstofunni á þessum tíma
til ráðgjafar og upplýsinga.
:*€ÉÍ988Í**
Kynningarfundur á Hótel Sögu, Átthagasal, 21. febr. kl. 1400
DAGSKRÁ FUNDARINS:
1. Kynning á Klúbbi 60 og ferðaáætlun sumarsins 1988.
2. Litskyggnur frá Mallorka.
3. Ferðaþjónusta bænda.
4. Ferða- og slysatryggingar.
5. „Hvernig spörum við best“? - Ráðgjafi frá Iðnaðarbanka íslands.
6. „Fasteignakaup - búskipti" - Lögfræðiþjónustan.
7. Happdrætti: A. tveir ferðavinninga til Mallorka í 28 daga þann 13. apríl n.k.
B. Fjórir myndavélavinningar frá Hans Petersen.
8. Kaffiveitingar fyrir þá gesti sem vilja, fyrirspurnir, bókanir í ferðir og nánari upp-
lýsingar. Kaffiveitingar verbkr.370
FERÐASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTÍG 1 SlMAR 28388 - 28580
Hallveigarstíg 1
SSI -