Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988.
5
I>V
Fréttir
Veítingahúsið á Öskjuhlíð:
Raunveið matar 75% hðerra
en á öðmrn veitingastöðum
Raunviröi þess matar sem seldur
veröur i fyrirhuguðu veitingahúsi á
Öskjuhlíö verður 75% hærra en ger-
ist á sambærilegum veitingastöðum.
Þótt reiknaö sé meö mjög góöri nýt-
ingu borða'og hráefnis- og rekstrar-
skilyrði verði öll með besta móti
verður ekki komist hjá taprekstri á
veitingahúsinu.
í veitingahúsinu er gert ráð fyrir
200 sætum. 60% meðalnýting á dag
þykir mjög góð. Samkvæmt reynslu
betri veitingahúsa má reikna með að
hver viðskiptavinur borði fyrir um
2.000 krónur í hvert sinn. Ef það
verður ofan á í Öskjuhlíðarveitinga-
húsinu verður dagssalan um 240
þúsund krónur. Allt undir 40% í hrá-
efniskostnað þykir gott. Launakostn-
aður er um þriðjungur af veltu.
Söluskattur er lagður á sölu veitinga-
húsa. Þessir þrír liðir nema um 227
þúsund krónum á dag af 240 þúsund
króna sölu. Þá á eftir að taka tillit til
Likan að fyrirhuguðu veitingahúsi á hitaveitutönkunum á Öskjuhlíð.
opinberra gjalda, rafmagns, hita og
fleira.
Það lætur nærri að fjármagns-
kostnaður vegna byggingarinnar
verði um 60 milljónir á ári. Það þýð-
ir að hvem dag verði fjármagns-
kostnaðurinn 160 til 170 þúsund
krónur. Miðað við 120 gesti á dag
þarf hver gestur að greiða um 1500
krónur í fjármagnskostnað fyrir ut-
an það verð sem er á öðrum veitinga-
stöðum.
Gunnar Bjömsson hitaveitustjóri
sagði í samtali við DV að engum hefði
dottið í hug að veitingahúsið ætti eft-
ir að standa undir fjármagnskostn-
aði. Gunnar sagði aö byggingin væri
hugsuð sem höur í umhverfisátaki
Öskjuhlíðar. Það er þvi gert ráð fyrir
að kostnaður vegna byggingarinnar
greiöist með heitavatnsnotkun við-
skiptavina Hitaveitu Reykjavikur.
-sme
Laxalón:
Tvöfaldar framleiðsluna
þrátt fyiir fiskdauðann
- segir Ólafur Skúlason framkvæmdastjóri
ís liggur enn yfir eldiskvíum Laxa-
lóns í Hvammsvík í Hvalfirði og óvist
er hvert ástand fisksins þar er. Stjórn
Laxalóns tók þá ákvörðun að slátra
ekki þeim fiski sem náð hafði slátur-
stærð þar sem of kostnaðarsamt
hefði verið að brjótast gegnum ísinn.
Sjávarhiti í Hvalfirði hefur hækkað
lítillega en hann er enn undir frost-
marki. í öðmm eldisstöðvum í
Hvalfirði reyndist megnið af fiskin-
um vera dautt þegar reynt var að
slátra fyrir síðustu helgi.
„Þrátt fyrir þetta áfall munum við
tvöfalda framleiðslu okkar á þessu
ári, eins og í fyrra,“ sagði Olafur
Skúlason, framkvæmdastjóri Laxa-
lóns, í samtali við DV. Ólafur sagði
að Laxalón myndi halda áfram eldi
í Hvammsvík og fyrirhugað væri að
sleppa þar seiðum næsta sumar. „Við
munum læra af þessum vetri,“ sagði
Ólafur.
í Eiðisvík fyrir utan Reykjavík og
í Grundarfirði hefur sjávarhiti einn-
ig hækkað og er nú við frostmarkið.
„Sjórinn hér fyrir utan er mun heit-
ari og ef við fáum vestanátt erum við
sloppnir," sagði Einar Sigurjónsson,
framkvæmdastjóri Haflax í Eiðisvík,
í samtali viö DV í gær.
Einar sagði að helsta áhyggjuefnið
eftir þennan kuldakafla væri það að
tryggingafélög og lánastofnanir
kipptu að sér höndum gagnvart sjó-
kvíaeldi. Þaö væri ekki nema við-
héldist norðanátt með miklu frosti
að fiskstofninn í kvíum félagsins
væri 1 hættu. -gse
Bilun í hreinsibúnaði Áburðarverksmiðjunnar:
Stóð til að stöðva
framleiðsluna
Við lá að stöðva þyrfti framleiðslu óhreinsaður. Við það lagði gult ský úr hreinsibúnaðinum. Frosttappinn
Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi yfir verksmiðjuna og nágrenni henn- myndaðist þegar rafmagn fór af
fyrir síöustu helgi vegna frosttappa - ar. Mælitæki í reykháfum verk- verksmiðjunni í síöustu viku þegar
sem myndaðist í hreinsikerfi verk- smiðjunnar sýndu svo mikla bilun varð í Korpuvirki.
smiðjunnar. Vegna bilunarinnar mengun að til stóð að stöðva fram- -gse
slapp útblástur verksmiöjunnar út leiðsluna, þegar tókst að þíða frostið
Júlía Imsland, Höfn;
Treg veiði er hjá þeim Hornafjarð-
arbátum sem byijaðir eru á neta-
veiðum en sæmileg veiði hjá
línubátum þegar þeir komast á sjó.
Næg vinna hefur verið í fiskvinnsl-
unni og er unnið tiu tíma á dag.
Margir útlendingar vinna í fiskinum
og eru það Svíar, Pólverjar og Eng-
lendingur eins og verið hefur víðs
vegar á landinu.
Það hefur hingað til þótt í verka-
hring karlmanna að vinna á lyftur-
um í frystihúsum en hún Guðrún
Valgeirsdóttir. er búin að kollvarpa
þeirri skoðun. Guðrún hefur síöast-
liðinn mánuð unnið á lyftara bæði
viö löndun og í vinnslunni og stendur
sig með prýði, að sögn verkstjóra.
Kópavogur:
Tekinn á 121 km hraða
á óskoðuðum bíl
Lögreglan í Kópavogi tók öku- ekki verið færöur til skoðunar.
mann á 121 kílómetra hraöa á Ökumaðurinn var sviptur ökuleyfi
Hafnarfjaröarvegi á fóstudagskvöld- og númerin voru klippt af bílnum.
ið. Bílhnn, sem maðurinn ók, hafði -sme
„Jói“ æfður
á Hvamms-
tanga
Júlíus G. Antonsson, DV, V-Húnavatnssýslu:
Hafnar eru æfingar hjá leikflokkn-
um á Hvammstanga á leikritinu Jóa
eftir Kjartan Ragnarsson. Leikverkið
fjallar um Jóa og fjölskyldu hans. Jói
er ekki eins og fólk er flest. Koma
því upp ýmis vandamál þegar breyt-
ingar verða innan fjölskyldunnar.
Leikstjóri er Þröstur Guðíeifsson en
leikendur eru sjö. Áætlað er að frum-
sýna 30. mars nk.
Þar sem
PLUS og MINUS
mætast í frystihúsinu, vöruskemmuhnf
eða iðnaðarhúsnæðinu er lausnin að nota
XX/ÍLiðnaðarplasthengi
til varnar hita- og kuldatapi.
Hljóðeinangrandi og gegnsæ.
Leitið
upplýsinga
ASTRA
Austurströnd 8
- sími 61-22-44