Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988.
Sandkom____________
Viövarandi
ástand?
Breskir og síöan bandarísklr her-
menn hafa frá upphafi hersetu hér
höfðað mjög sterkt til stórs hóps ís-
lenskra kvenna. Á stríðsárunum var
þetta kallað „ástand" og konumar,
sem sóttust eftir félagsskap her-
mannanna, voru sagðar „í ástand-
inu". Þetta þótti ekki fínn stimpill og
sérlega urðu islenskir karlmenn sár-
móðgaöir yfir þ ví að vera afskiptir
svona. Fjallað er um ástandið sem
hluta af fortíðinni, en er það í raun-
inni svo? Þaö er viðkvæmt raál en
þó alkunn staðreynd að stór hópur
kvenna leggur enn töluvcrt á sig tiJ
að komast „upp á Völl“ tilaðnjóta
samneytis hermannanna. Barnungar
stúlkur af Suðumesjum og víðar
rey na að klifra yfir girðingar, fela sig
í farangursgeymslum bíla og hafa
ekki áhyggjur af því að lenda í kasti
við lögregluna til þess eins að komast
til dátanna. Þvi eru margir á því að
„ástandið'* hafi verið viðvarandi.
Ungmeyjar
heimsækja
hermenn
Úrklippa úr V&urfréttum «n þar sést mynd af
bilada hliðinu scm hefur veítt grindviskum
ungmeyjum óheftan aógang aó undrum her*
mannalifsins.
Oghverátti
að kvarta?
Víkurfréttir í Keflavík hefur
nokkrar áhyggjur af þessum málum
eins og ýmsir fleiri. í nýlegu tölublaði
er greint ftá þvi að rafmagnsstýrt
hlið við varnarliðsstöðina við
Grindavik hafi bilað og því staðiö
opið 1 þrjár vikur. „Að sögn aðila, er
hafa aðgang aö stöðinni, stóð ckkJ á
að grindvískar ungmeyjar notfærðu
sér þetta og hafa síðan heimsótt stöð-
inaallmikið." Víkuríréttir höfðu
samband við Þorgeir Þorsteinsson,
lögreglustjóra á Kefla víkurflugvelli
og báru söguna undirhann. Síðar
segir blaðið: „Eftir aö hafa kannað
málið sagði hann það rétt vera að
einhverjar stúlkur hetðu komið
þama, en engin vandk væði hlotist af
því, að minnsta kosö heföu engar
kvartanir borist." Manni verður nú
bara á að spyija: Hverjir heföu svo-
sem átt að kvarta? Varla hermenn-
imir sem að öllu jöfnu kúra þarna
kvenmannslausirlkuldaogtrekki. •
Og ekki stúlkukindumar þvi það eru
þær sem hópast þama inn um það
sem í þeirra augum hlýtur að vera
hliðiðaðparadís.
t*etr eru ekkert dfundsvsrðlr al dvollnni Mnnl-
lokaftr I herstöft Innl og verla vlft þvl að búast
aftþalrsendllnn lormlogar kvertanir þó-ein-
hverjar velvlliaftar atulkur vlljl vtytlv þelm
atundlr.
Eftir hverju
ersóst?
En eftir h veiju eru þær að sækja
svona stáft? Sumir halda því fram að
ástæðan sé sú aö hermennimir séu
örlátir á veigar af ýmsu tagi og ein-
staka þeirra lumar jafhvel á hass-
mola. Aðrir vilja meina að þetta sé
ævintýraþrá því hvaöa karlmaöur
getur ekki viðurkennt að þaölfljóti
að vera spennandi að vera eini karl-
maðurinn í samkvæmi með þrjátíu
ungum stúlkum sem allar keppast
um að ná athygli hans og bjóða dýrar
veigar í skiptum fyrir blföu hans.
Hins vegar geta þessi samskipti vald-
iö alvarlegum tilfinningalegum
flækjum og ættu ungraeyjamar því
að hugsa sinn gang áður en þær
bregðaséruppáVölL
Umsjón Axel Ammertdrup
Fréttir____________________i
Hreppstjóri skytur
sex kindur á færi
- enn deilt um sauðfjárveikivamir á Barðastrond
„Það er alsiða hér að skjóta kindur
úr klettum," sagði Bjarni Hákonar-
son, hreppstjóri Barðastrandar-
hrepps, í samtali við DV, en Bjarni
skaut á færi sex kindur Reynis bónda
ívarssonar á Móbergi í Rauðasands-
hreppi við annan mann í síðustu
viku. Kindumar höfðu farið yfir
sauðfjárveikivarnagirðingu er skilur
hreppina að. Sú girðing hefur ekki
verið fjárheld um langt skeið.
Reynir á Móbergi sagði í samtali
við DV að óþarfi hefði verið að skjóta
kindurnar. Þær væm ósýktar, hefðu
auk þess ekki haft samgang við ann-
að fé og væm því hættulausar.
„Sýslumaður fól mér að koma
kindunum úr hreppnum. Ekki var
hægt að fara með þær til baka sam-
kvæmt lögum um sauðfjárveikivarn-
ir. Því var ekki annað ráð en að
skjóta þær,“ sagði Bjami.
„Mér hefur enn ekki verið tilkynnt
af neinum opinberum aðilum að fé
frá mér hafi verið skotið," sagði
Reynir ívarsson á Móbergi. „Mér var
gefinn kostur á því í haust að sækja
þessar kindur. Þá var hins vegar
ekki hægt að smala vegna þoku. Ég
skil ekki hvers vegna meiri ógn
stafar af þeim nú en í haust. Manni
þykir þetta heldur leiðinlegt og ég á
erfitt með að skilja hvað liggur að
baki svona aðgerðum."
Að sögn Bjama hreppstjóra Há-
konarsonar veröa skrokkarnir
urðaðir. Þeir era lemstraðir eftir fall-
ið úr klettunum og auk þess fellur
þessi aílífunaraðferð hvorki að lög-
um né kröfum markaðarins um
hreinlæti við slátmn.
-gse
Guttormur Pétur Einarsson um hæstaréttardóminn í bjórsamlagsmálinu:
Dæmdur fyrir það sem allir geta
„Ég var dæmdur fyrir það sem all-
ir geta gert," sagði Guttormur Pétur
Einarsson, forstjóri Ámunnar.
Hæstiréttur hefur dæmt Guttorm
fyrir starfrækslu Bjórsamiags
Amunnar. Guttormur segir að hver
sem vilji geti blandaö sams konar
bjórlíki eins og hann var dæmdur
fyrir að blanda.
Tveir dómarar af þremur dæmdu
Guttorm sekan viö 7. grein áfengis-
laga, greinin hljóðar svo: „Bannað
er að bragga á íslandi eða búa til
áfenga drykki eða áfengisvökva og
drykkhæft það áfengi sem er eða
gert hefur verið óhæft til drykkjar".
Guttormur telur sig ekki hafa brot-
ið gegn þessari grein. Hann segist
ekki hafa bruggaö áfenga drykki.
Hann hafi blandað bragðefnum sam-
an við löglega fengið vín. Það sama
geti hver sem vill gert. í flestum
matvöruverslunum fæst bjórblendi
sem hægt er að blanda saman við vín
og pilsner. Þegar það hefur verið
gert verður úr sams konar bjórlíki
og Bjórsamlagið blandaði, að þvi
undanskildu að Bjórsamlagið setti
að auki sætuefni í bjórlíkið.
Guttormur hefur undir höndum
alla reikninga Bjórsamlagsins. Þar
stemmir allt reikningshald upp á
sentílítra. Hann segir að við rann-
sókn málsins hafi ítrekað verið reynt
að sanna upp á sig misferli. Svo sem
bruggun áfengis, þjófnað á víni fé-
laga í Bjórsamlaginu og svindl við
blöndun. Hann segir að ekkert slíkt
hafi sannast á sig.
Þegar Bjórsamlagið var stofnað, 22.
janúar 1985, var það tilkynnt til
firmaskrár. Einnig var gerður samn-
ingur sem allir félagar í Bjórsamlag-
inu urðu að undirrita í votta
viðurvist. Samning þennan segist
Guttormur hafa látið Rannsóknar-
Linda Björk Sverrisdóttir, starfsmaður Ámunnar, blandar bjórliki handa forstjóranum. „Ég er sá eini á landinu sem
má ekki blanda þannig mjöð," sagði Guttormur Pétur Einarsson. DV-mynd KAE
iögreglu í té. Hann segist jafnframt
hafa óskað eftir því að ef samningur-
inn bryti í bága við lög yrði gerð
athugasemd. Það var ekki gert. Bjór-
samlagið starfaði í tæpar tvær vikur.
Þá var því lokað með lögregluaðgerð
og tækin og bjórlíkið gert upptækt.
Alls vora 175 litrar af bjórlíki gerð-
ir upptækir. í dómi Hæstaréttar er
hins vegar aðeins talað um 125 lítra.
50 htrar hafa því týnst á meðan mál-
ið hefur verið til meðferðar.
I Samlagssamningnum segir meðal
annars: „Samlagiö sjálft hefur enga
milligöngu um kaup, sölu eða veit-
ingu áfengis í einu eða öðru formi,
samkvæmt skilgreiningu íslenskra
laga um áfengi, en leggur til þau óá-
fengu drvkkjarfóng sem hið fram-
lagða áfengi samlagsmanna er
blandað í.“
Guttormur segir að í öllu hafi verið
farið eftir þessum reglum. Allir þeir
sem lögðu vín til Bjórsamlagsins
fengu kvittun fyrir inneign sinni. í
öllum tilfellum var þess gætt að það
vín, sem lagt var inn, væri frá Áfeng-
isverslun ríkisins og að innsigli á
flöskunum væri órofið.
í Hæstarétti var Guttormur einnig
talinn hafa gerst brotlegur við 18.
grein áfengislaga. Hann segist allt
eins hafa búist við því. í þeirri grein
segir. „Öllum skal óheimilt að veita,
selja eða láta af hendi áfengi til ann-
arra manna gegn því að gjald eða
verðmæti komi fyrir."
Meirihluti Hæstaréttar dæmdi
Guttorm í 50 þúsund króna sekt,
greiðslu málskostnaðar og að tæki
og bjórlíki, sem gerð vom upptæk,
skyldu ekki afhent. Guttormur telur
að samtals þýði þetta fyrir sig um 350
til 400 þúsund krónur.
Minnihluti Hæstaréttar skiiaði sér-
atkvæði. Þar segir að refsing ákærða
skuli niður falla. En Guttormi verði
gert að greiða sakarkostnað.
Guttormi er heimilt, samkvæmt
dómi Hæstaréttar, að sitja í varð-
haldi í 25 daga í stað sektarinnar.
Hann hefur ekki ákveðið hvorn kost-
inn hann tekur.
-sme
Sjallinn Akureyri:
„Allt vitlaust“
gerði allt vitlaust
- og verður endurtekið um helgina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég hef ekki séð önnur eins fagn-
aðarlæti í Sjallanum áður,“ sagði
Inga Hafsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Sjallans á Akureyri, eftir
sýninguna „AUt vitlaust" sem var
þar á dögunum og er óhætt aö segja
að allt hafi veriö vitlaust í Sjallanum
bæði kvöldin sem sýningin var þar.
Allir miðar seldust upp á báðar
sýningamar á örskammri stundu í
forsölu og því hefur verið ákveðið
að aftur verði „Ailt vitlaust" í Sjall-
anum um næstu helgi, föstudag og
laugardag. Forsala aðgöngumiða
hefst á morgun, miðvikudag, og er
víst vissara að vera tímanlega á ferð-
inni ef menn ætla sér að ná í miða.
„Stjömur Ingimars Eydal" hafa nú
haldið 20 sýningar í Sjallanum og fer
þeim að fækka. Ingimar og félagar
em þó ekki hættir með sýninguna,
hún veröur í Broadway um næstu
helgi, enda voru viðtökur þar mjög
góðar um áramótin þegar „stjöm-
umar" skemmtu þar.
Akureyri:
Öskudagsball
í Dynheimum
Gylfi Kistjánason, DV, Akureyri;
Zontaklúbburinn Þórunn
hyma á Akureyri hefur boðað til
öskudagsballs í Dunheimum á
morgun og hefst það kl. 18.
Allir krakkar á Akureyri era
hvattir til að mæta í öskudags-
búningimum sínum og foreldrar
eru velkomnir. Diskótek veröur
og ýmsar uppákomur, s.s. grettu-
keppni, búningaverðlaun o.fl.
Aðgangseyrir er kr. 200 og á
staönum verða seidar veitingar,
s.s. kaíli, heitar vöfilur og gos-
drykkir. Ágóðinn af öskudags-
ballinu rennur til styrktar
byggingu Sels 2.