Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988.
7
dv Viðtalið ... . Fréttir
Trésmiðavél þessi er eitt þeirra atvinnutækja sem Glitnir hf. hefur þurft að
taka af viðskiptavinum sínum vegna vanskila. DV-mynd KAE
FjárfestingarSyrirtæki:
litið um
vanskil
Aflí á vertíðinni:
Best á línu
fyrir vestan
Kolbrún Jónsdóttir, varaþing-
maður Borgaraflokks, tók sæti á
Alþingi í síðustu viku.
DV-mynd S
Frvtíminn
fer allur í
flokkinn
Kolbrún Jónsdóttir kom inn á
þing í lok síðustu viku sem vara-
þingmaður Borgaraflokks fyrir
Hreggvið Jónsson sem nú er far-
arstjóri á ólympíuleikunum í
Calgary í Kanada. Kolbrún er
borin og barnfædd Hafnfirðing-
ur, fædd 2. júlí 1945. Hún býr enn
í Hafnarflrði og er önnur konan
sem búsett er í Hafnarfirði sem
fer inn á þing.
, .Ragnheiður Sveinbj örnsdóttir
er eina konan, búsett í Hafnar-
flrði, sem tekið hefur þingsæti á
undan mér. Hún var á þingi sem
varaþingmaður Framsóknar-
flokks fyrir 14 árum og þótti mér
ákaflega vænt iim þegar hún
sendi mér skeyti af því tilefni að
ég settist á þing.“
Eiginmaður Kolbrúnar er
Steingrímur Magnússon, lög-
reglumaður í Hafnarfirði. Þau
eiga þrjú börn. Ágústu, sem
stundar nám í viðskiptafræði viö
Háskóla íslands, Soffiu, sem er í
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
og Jón Vigni, sem er átta ára.
Kolbrún er með gagnfræðapróf
frá Flensborgarskóla í Hafnar-
firði og auk þess hefur hún farið
á stjómunarnámskeið hjá Stjórn-
unarskólanum. Hún hefur starf-
að sem framkvæmdastjóri
verktakafyrirtækisins JVJ hf. í
Hafnarfirði síðan 1976 en á árun-
um 1963-1971 starfaði hún í
Samvinnubanka íslands.
- Er langt síðan þú fórst að hafa
afskipti af stjórnmálum?
„Nei, ég get ekki sagt það. Árið
1986 fór ég í framboð í bæjar-
stjórnarkosningum í Hafnarfirði
og svo hef ég starfað í Borgara-
flokknum síðan hann var stofn-
aður, fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar. Það er alveg stórkostlegt
að vera komin inn á Alþingi og
raunar er þetta allt annar heimur
en maður hefur þekkt. Starf al-
þingismannsins er krefjandi
þjónustustarf sem tekur allan
tíma sem maður hefur. Ég hef því
tekið mér frí í vinnunni meðan
ég sit á Alþingi en ég býst við að
það verði í u.þ.b. þrjár vikur.“
- En hver eru i^elstu áhugamál-
in?
„Síðustu tíu mánuði, eða síðan
Borgaraflokkurinn var stofnað:
ur, hefur allur minn frítími farið
í að byggja Borgaraflokkinn upp.
Þetta hefur verið mjög skemmti-
legur timi enda nóg að gera.
Þingmenn flokksins hafa verið
mjög duglegir og höfum við verið
að stofna kjördæmafélög um allt
land og haldiö fundi. Auk þess er
flokkurinn búinn að stofna ung-
liðahreyfmgu í Reykjavík og á
Akureyri. Starfið er því oröið
mjög öflugt enda er Albert Guð-
mundsson besti pólitíkus sem við
eigum í dag. Hann hefur hjartað
á réttum stað og er ekki ríg-
bundinn í kerfinu eins og svo
margir.“ -JBj
Fjárfestingarfyrirtæki eru tiltölu-
lega nýlegt fyrirbæri á íslenska
viðskiptamarkaðnum. Fyrirtæki
þessi fjármagna kaup á tækjum til
atvinnurekstrar með fjármögnunar-
og kaupleigusamningum.
Fjárfestingarfélagið Glitnir hf. er
elsta fyrirtækið þessarar tegundar
hér á landi en þaö hóf starfsemi sína
í byrjun árs 1986. Glitnir hf. hefur
haft á leigu geymsluhúsnæði við
Ármúla í Reykjavík til að hýsa þau
atvinnutæki sem þarf að taka af
kaupendum vegna vanskila. DV leit-
aði eftir upplýsingum hjá Kristjáni
Óskarssyni, framkvæmdastjóra
Glitnis hf., hvort mikið væri um van-
skil í þessum viðskiptum. „í svona
Júlia Imsland, DV, Höfru
Síðastliðinn sunnudag kl. 18.30 ók
rúta frá Neskaupstað á fjóra hesta á
brúnni yfir Laxá í Nesjum og varð
að aflífa tvo hestana á staðnum. Eng-
rekstri má alltaf reikna með að þurfi
að taka tæki til baka vegna vanskila
en þau seljast þá alltaf fljótt aftur.
Geymsluhúsnæðið sem við höfum á
leigu er um 100 m2 að flatarmáli og
hefur það komið okkur á óvart að
það stendur yflrleitt næstum tómt.
Vanskilamál af þessari tegimd hafa
verið miklu færri en við bjuggumst
við. En við verðum aö gera ráð fyrir
þessum möguleika og höldum því
geymsluhúsnæðinu. ‘ ‘
Þegar blaðamaður heimsótti Glitni
hf. hafði fyrirtækið í sinni vörslu
smíðavél, jarðýtu, 3 PC tölvur og
leigubíl en nú eru tölvurnar og bíll-
inn farin.
in slys urðu á fólki og litlar skemmd-
ir urðu á rútunni og hélt hún áfram
austur. Það má teljast mikil mildi að
þarna skyldi ekki verða stórslys því
lítilhindrun eríláguhliðarhandrið-
inu á brúnni og hátt niður.
Bátar sem róa með línu frá Pat-
reksfirði og Rifi hafa fengið bestan
afla það sem af er vetrarvertíð. Á
Rifi er Rifsnes SH aflahæst með 245
tonn í þrettán sjóferðum. Tjaldur SH
hefur fengið 212 tonn í jafnmörgum
sjóferðum. Línubátar frá Rifi róa
með tvöfalda línu og hefur aflinn
verið nokkuð jafn og góður frá ára-
mótum.
Patrekur og Vestri frá Patreksfirði
hafa fengið mjög góðan afla á línu
að undanfómu. I síðustu viku land-
aði Patrekur 67,5 tonnum af slægðum
fiski og Vestri um 60 tonnum. Patrek-
ur og Vestri hafa hvor um sig veitt
tæp tvö hundruð tonn af slægðum
fiski frá miðjum janúar.
í Ólafsvík er aflinn bestur hjá línu-
bátunum. Þeir sem róa með tvöfald-
an gang hafa verið að landa 13 til 17
tonnum. Gunnar Bjarnason SH er
aflahæstur í Ólafsvík með um 130
tonn í 13 róörum.
í öðrum verstöðum er afli yfirleitt
tregur. Dalaröst ÁR hefur fengið tæp
tvö hundruð tonn í dragnót. Aflinn
er nær eingöngu langlúra og sand-
koli. Afli netabáta er alls staðar
tregur. • -sme
ri Jeep ri AMC
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval original
varahluta í AMC og Jeep bifreiðar. Einnig
aukahlutir fyrir Wagoneer og Cherokee árg.
'84-'88, m.a. upphækkunarsett, toppgrind-
ur, mottusett, vindskeiðar, sílsalistar, stokk-
ar, útispeglar, varadekkspokar, safarígrindur
að framan, stuðarahlífar, dráttarbeisli, aur-
hlífar o.fl. o.fl.
Ath. sérpantanir á ca 2-3 vikum án auka-
kostnaðar. Hraðpantanir á ca 3 dögum.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.,
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, simar 77200 - 77202
BREYTTUR AFGREIÐSLUTÍMI
p F á h ÓST- OG SÍMSTÖÐVA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU rá og með 15. febrúar 1988 breytist afgreiðslutími póst- og símstöðva öfuðborgarsvæðinu. Opið verður frá kl?8.30-16.30 mánudaga, þriðju- daga, miðvikudaga og föstudaga og frá kl. 8.30-18.00 fimmtudaga.
R-1 Pósthússtræti 5 Póst- og símstöðin Kópavogi R-4 Klepps vegi 152 Póst- og símstöðin Gar ðabæ R-5 Rauðarárstíg 27 Póst- og símstöðin Hafnarfirði R-7 Neshaga 16 Póst- og símstöðin Seltjamamesi R-8 Ármúla 25 Póst- og símstöðin Mosfellsbæ R-9 Arnarbakka 2 R-lOHraunbæ 102c R-11 Lóuhólum 2-6
Póstútibúið R-3, Kringlunni, er opið mánudaga til föstudaga frá kl. 8.30-18.00. Póstútibúið R-6, Umferðarmiðstöðinni, er opið mánudaga til föstudaga frá kl. 8.30-19. 30 og laugardaga frá kl. 8.30-15.00. UMDÆIVIISSTJÓRI
-JBj
Höfh:
Rúta ók á hesta