Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
3
Fréttir
Akureyrarflugvöllur:
Vargfugli sagt stríð á hendur
Gylfi Krisljánsson, DV, Akureyn:
„Við teljum að vera vargfugls hér
við flugvöllinn sé mikið vandamál
og hann hefur valdið stórtjóni á flug-
vélum þótt slys hafi ekki orðið,“
sagði Rúnar Sigmundsson, umdæm-
isstjóri Flugmálastjórnar á Akur-
eyrarflugvelh, í samtali við DV.
í sumar stendur til að ganga frá
öryggissvæöum við flugbrautina og
þarf þá að sækja efni á leirumar í
námunda við flugvöllinn. Þar eru
varpsvæði ýmissa fugla og vegna
þessa funduðu flugvallaryfirvöld og
náttúruverndarmenn á dögunum.
Rúnar Sigmundsson sagði að ýms-
Saurbæjarhreppur:
Slapp naum-
lega úr
eldsvoða
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Bóndinn að Hólakoti í Saurbæjar-
hreppi í Eyjafirði slapp naumlega er
eldur kom upp í íbúðarhúsi hans
seint í fyrrakvöld.
Tilkynnt var um eldinn frá næsta
bæ og tók það slökkviliðið á Akur-
eyri um hálfa klukkustund að
komast á vettvang. Þá var húsið al-
elda og brann það til kaldra kola og
allt sem í því var.
Bóndinn komst naumlega út um
glugga og skarst nokkuð við það á
hendi en fjórir hvolpar, sem vom í
húsinu, drápust. Björgunarsveitin í
Saurbæjarhreppi var á fundi í Stein-
hólaskála rétt hjá og komu menn úr
henni fyrstir á vettvang en gátu lítið
aðhafst vegna tækjaskorts. Húsið var
einingahús og stendur ekkert eftir
af því nema útveggir.
Skotárásin á Eiðsgranda:
Lögreglan
litlu nær
Hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
er verið að rannsaka hver og hvaðan
var skotið á bifreið Jóhönnu Stefáns-
dóttur þegar hún var á ferð eftir
Eiðsgranda síðastliðið sunnudags-
kvöld. Ekkert hefur komið fram við
rannsóknina sem færir lögreglu nær
því hver skaut á bílinn og í hvaða
tilgangi.
Ekki er vitað nákvæmlega hvar
bíllinn var þegar skotið reið af. Jó-
hanna Stefánsdóttir gerir sér ekki
að fullu grein fyrir hvar á Eiðs-
granda hún var stödd þegar atvikið
átti sér stað. -sme
Framsókn ályktar
gegn Þorsteini
Harðorð ályktun gegn vinnubrögð-
um Þorsteins Pálssonar forsætisráð-
herra varðandi heimboð forseta
íslands til Sovétríkjanna var sam-
þykkt á stjórnarfundi Framsóknar-
félags Reykjavíkur í fyrradag. Tekur
fundurinn undir sjónarmið Stein-
gríms Hermannssonar utanríkisráð-
herra að rétt hefði verið að taka boði
Sovétmanna. Alkunna sé að opin-
berar heimsóknir þjóðhöfðingja
stuðli að auknum viðskiptatengslum
þjóöa og ísland sé engin undantekn-
ing frá því. -SMJ
ar mávategundir væm til ama við
flugvöllinn. „Aðalvandamálið eru
hópar fugla sem koma að flugbraut-
inni nyrst og nota brautina sem
hvíldarstað. Þetta hefur valdið stór-
tjóni, m.a. lentu fuglar í hreyfli
Mitsubishi vélar Flugfélags Norður-
lands fyrir nokkrum árum og var
hreyfillinn ónýtur eftir. Fleiri dæmi
mætti nefna um það tjón sem fugl-
amir hafa valdið," sagði Rúnar.
í vor er áformað að hefja aðgeröir
gegn fuglinum og er talið árangurs-
ríkast aö reyna að taka egg hans
jafnóðum og hann verpir í námunda
við flugvöllinn.
Roual Flaya de Palma
íbúoahótela sem feröaskrif:
er eitt þeirra konunglegu
ferðaskrifstofan Atlantik býöur á
Mallorka. Allar ibúðir eru meö baöi, eldhúsi, síma og
svölum meö frábæru útsýni yfir lokkandi sundlaug í
glæsilegum garöi. Skemmtanastjórar halda uppi fjöri
daga og kvöld meö íþróttum, leikjum og léttri keppni
fyrir fullorðna sem börn.
*«*
Roual Jardin del Mar er eitt þeirra frábæru ibúöa-
hótela á Mallorka sem feröaskrifstofan Atlantik býöur.
Hvergi er til sparaö. íbúðirnar eru glæsilegar, viö
hótelið er frábær útivistaraöstaða, á jarðhæð eru
loftkældar setustofur, veitinga- og danssalur. Viö
hóteliö geta börnin unað í barnagaröi með einka-
sundlaug og leiktækjum.
Royal Magaluf er eitt af glæsilegum ibúðahótelum
sem feröaskrifstofan Atlantik býöur á Mallorka. Þaö er
alveg við ströndina. Úr íbúðunum er útsýni yfir hafiö.
Á stórum svölum hótelsins er veitingasala og hótelinu
fylgir frábær sundlaug.
Viltu skemmta þér
konunglega?
I
m
Royal Cristina er spánnýtt íbúöahótel i hótelkeðj-
unri'i sem feröaskrifstofan Atlantik hefur skipt viö á
Mallorka í áraraöir. Velja má eftir þörfum milli íbúöa
og stúdíóa. Stutt er á góöa veitingastaöi í nágrenninu
og það tekur ekki langan tima aö fara inn til Palma til
þess aö versla eöa reika um.
1988
IDám
Viö bjóöum bestu gistinguna
og besta umhverfiö á
Mallorka. Viö getum einnig
boöiö góöan félagsskap því
viö þekkjum viöskiptavini
okkar. Peir koma aftur og
aftur.
Mallorkaferðir'88
30.3.
13.4.
10.5.
10.5.
22.5.
22.5.
03.6.
03.6.
12.6.
12.6.
24.6.
15 d. Póskaferð
28d. Klúbbur601.
13 d. Stutt ferð
25 d. Lengri ferð
13 d. Stuttferð
22 d. Lengriferð
10 d. Stuttferð
22 d. Lengriferð
13 d. Stuttferð
22d. Lengri ferð
10 d. Stuttferð
22 d. Lengriferð
13 d. Stuttferð
22 d. Lengriferð
10 d. Stuttferð
22 d. Lengriferð
13d. Stuttferð
22 d. Lengriferð
lOd. Stuttferð
22 d. Lengriferð
13 d. Stuttferð
22 d. Lengriferð
10 d. Stuttferð
22 d. Lengriferð
13 d. Stuttferð
22 d. Lengriferð
lOd. Stuttferð
22 d. Lengri ferð
29d. Klúbbur6011.
22d. Klúbbur601II.
8d. Sérlega stutt ferð
8d. Sérlega stutt ferð
40d. Klúbbur60IV.
15 d. Jólaferð
miXVTIK
FERÐASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTlG 1 SÍMAR 28388 - 28580
Páskaferð 30. mars
til 15. april
Verð kr. 25.800*
* Miöaö viö 2 fulloröna og 2 börn i ibúö