Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Síða 9
8
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
í þessari grein ætla ég ekki aö rekja
ævisögu Karpovs - þaö eru ekki aö-
eins skákunnendur sem kunna skil
á henni. En þar sem þessi grein birt-
ist í dagblaði á Norðurlöndum langar
mig að minna á að það var einmitt á
þeim slóðum, nánar tiltekið í Stokk-
hólmi, sem titilblað skáksögu
Karpovs var skrifað er hann varð
heimsmeistari unghnga í skák árið
1969. Síðan hefur mikið vatn runnið
til sjávar en svo furðulegt sem það
er hefur Karpov aldrei komið til ís-
lands. Undirritaður þekkir Anatólí
frá því í bemsku, hefur mikið skrifað
um hann, en varð hreint undrandi á
því að heyra að hann heíði aldrei
komið til Reykjavíkur. Blaðamaður
komst að þessu er honum var falið
það verkefni að ræða við heims-
meistarann fyrrverandi að beiðni
íslenska dagblaðsins Dagblaðið - Vís-
ir sem hafði sent spurningalista til
APN-fréttastofunnar. Karpov var
svo vinsamlegur að svara þessum
spumingum en hafði lítinn tíma þar
sem hann var á fórum til St. John í
Kanada á hraðskákmót. Þess vegna
getur verið að einhverjum spuming-
um -sé ósvarað, en í samtali okkar
komum við inn á flest það sem þar
hafði verið spurt um.
- Hefur þig aldrei langað að koma
til íslands, sem er svo þekkt fyrir
skákáhuga?
Mig hefur alitaf langað að koma
þangað, einkum eftir að ég kom til
hinna Norðurlandanna. Það vekur
líka áhuga að á íslandi er meiri
skákáhugi en í nokkru öðm vest-
rænu landi. Á undanfornum ámm
hafa átt sér stað þar gífurlegar fram-
farir í skákinni. 240 þúsund manna
þjóð á sex stórmeistara. Hvergi í
heiminum hefur náðst slíkur árang-
ur miðað við höfðatölu. Hugsaðu þér:
Landslið þessa litla lands hefur
möguleika á því að komast á verð-
launapall á ólympíuleikunum í skák!
En það hefur alltaf viljað svo til að
ég hef ekki haft tækifæri til þess að
þiggja neitt af þeim fjölmörgu boðum
sem mér hafa borist um að taka þátt
í skákmóti þar. En það lá einu sinni
við að ég færi til Reykjavíkur sem
áhorfandi á einvígi Spasskís og
Fischers árið 1972. Þá var verið að
leiða getum að því að með tímanum
yrði ég með í baráttunni um heims-
meistaratitilinn. Ég var þá 21 árs og
menn vildu senda mig til að ég mætti
öðlast reynslu og þekkingu, sem
nauðsynleg er í slíkri baráttu. Það
tókst ekki og það var einhver skrif-
flnnska sem kom í veg fyrir það. Ég
fór til að keppa við Fischer nokkrum
árum síðar, en það einvígi var ekki
haldið og það var ekki mér að kenna.
Um tíu ára skeið var ég heimsmeist-
ari og ég hef veriö sigurvegari á um
70 skákmótum. Það má heita að ég
hafi sett nokkurs konar heimsmet á
þessu sviöi. í stað Fischers urðu and-
stæðingar mínir þeir Viktor Kortsnoj
og Garrí Kasparov.
- Nú „stal“ Jóhann Hjartarson, 25
ára stórmeistari frá íslandi, Kortsnoj
frá þér þegar hann lagði hann að
velli í einvíginu í St. John. Hvað hef-
ur þú um þetta að segja?
Satt að segja kom sigur Jóhanns
Hjartarsonar mér mjög á óvart. Ég
taldi að Kortsnoj mundi sigra í þess-
ari viðureign, þó ekki væri nema
vegna þess að hann er reyndastur
hinna leiðandi skákmanna í því að
tefla einvígi. Hann þarf heldur ekki
að kvarta undan því aö aldurinn hái
honum þar sem hér var ekki um
langa viðureign að ræða. Hér er ein-
hver önnur ástæða...
Hjá Jóhanni kom fram sjaldgæfur
hæfileiki til þess að byggja upp hjá
sér baráttuanda, sem er miklu erfið-
ara að gera í einvígi heldur en á
skákmótum. Hann náði yfirhöndinni
fljótt og örugglega og tapið í síöustu
skákunum var auðskýrt - tauga-'
óstyrkur hjá byrjanda. í aukaskák-
unum var það ekki aðeins ég sem
stóð furðu lostinn gagnvart þeim
hæfileika Jóhanns aö beijast af
krafti.
- Hvað viltu segja um komandi ein-
vígi ykkar á milli?
Eg get ennþá bara dæmt eftir
íþróttahæfileikum Jóhanns og hæfni
hans til að undirbúa sig þar sem ég
veit ég ekki heldur hvemig ég mun
haga öðrum undirbúningi. A vetmria
er ég venjulega á skíðum en á sumr-
in stunda ég sund og tennis.
Ég er oft spurður um hver afstaða
mín sé til tölvunotkunar í skákundir-
búningi. Mér finnst tölvan koma sér
Anatólí Karpov - Jóhann hefur einstæðan hæfileika til að byggja upp baráttuanda.
nomer ze 154/154/ 5 Etranlc
OSfsO-880216-ze-5
po zaiavke ”dagbladid-vishir”
anatoLii karpov: •
”Jdu matcha s hiartarsonom 'i vstrechl s relklavlkom”
stranica 1
ne budu pereskazyvat biografiiu etogo vydaiuscegosla gros-
smelstera - ona nepLcho iz.vestna ne toLko LiubiteLiam .shah-
mat. no koL. rech idet o severe evropy, napomniu, chto imenno v
etih kralah, v stokgoLme, po-suscestvu i byL otkryt karpovym
tituLnyi. List”ego znamenltoi shahmatnoi biografli - v 1969
/1969/ godu zavoevano zvanie chempiona mira sredi iunoshei.
S teh por on vystupaL vo mnogih stranah. a vot v lsLandli,
kak eto nl udlvlteLno, pobyvat emu do sih por ne dovodiLos.
ia znaiu anatoLiia. s ego detstva, mnogo pisaL 0 nem, no 0
tom, chto on nikogtía ne videL relkiavika, uznaL soversh’enno
neojldanno - kogda besedovaL s nlm seichas po prosbe isLandskoi
oazety ”dagbLadld-vishir”, peredavshei voprosy dLia eks-chem-
piona mlra cherez apn. otvechaL karpov, ochen toropias na samoLet,
uvozivshli ego v kanadu na ustroennyi tam grandloznyl bLictur-
nlr v qorode. sent-djone. i mojet. byt potomu my Llsh pribLiziteLno
Viðtalið vlð Karpov f frumgerð sinni á rússnesku.
hef ekki skoðað sjálfar skákirnar...
Þegar eftir alþjóðaskákmótíð í Wik-
an-Zee í Hollandi tók ég mér tveggja
vikna „frí“ frá skákinni og hef notað
þann tíma til þess að styrkja mig lík-
amlega og andlega, en ég gekk mikið
á þann styrk í einvíginu í Sevilla.
Hvað varðar Jóhann Hjartarson man
ég vel eftír því eina skiptí sem við
höfum teflt saman. Það var á ólymp-
íuskákmótinu í Dubai. Ég hafði svart
og upp kom spænskur leikur. Ég
náði betri stöðu en fór mér of hægt
og þegar við tefldum biðskákina náði
Jóhann jafntefli. Mér virðist hann
vera einstaklega seigur og ötull skák-
maður sem ekki er auðvelt að kljást
við.
- Er stutt í það að þú hefjir undir-
búning fyrir einvigiö við Jóhann?
Þetta er erfið spuming. Það eru
mörg skákmót á dagskrá hjá mér og
það er heldur ekki vitað hvenær
næsta umferð hefst í viðureign
áskorendakeppninnar. Þess vegna
mjög vel í upplýsingaleit, hún getur
flýtt fyrir og sparað okkur tíma. En
hún hugsar ekki fyrir okkur, við
verðum sjálfir að vinna...
- En skákklukkan gengur hraðar og
hraöar...
Ef þú ert að tala um aldur minn
þá tel ég mig ekki vera farinn að eld-
ast neitt að ráði, ég verð 37 ára í
maí. Vinur minn og jafnaldri, Jan
Timman frá Hollandi, lætur heldur
engan bilbug á sér finna. Auðvitað
hafa Nigel Short frá Englandi, Jó-
hann Hjartarson og Artúr Júsupov,
sem er aðeins eldri en þessir tveir,
sín tromp á hendinni, en við höfum
ekki í hyggju að gefast upp fyrir
þeim. Þaö er bara kynslóð fjórða ára-
tugarins, að undanteknum Lajosh
Portish, sem er horfin af skákvellin-
um. Nú er mikið rætt um að sovésku
stórmeisturunum hafi gengið iUa í
einvígjunum. Satt að segja er ég hissa
á því og þá sérstaklega á því að So-
kolov skuU hafa beðið lægri hlut
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
9
fyrir Spraggett. Við höfum aldrei
beðið sUkt afhroð og það er varla
hægt að segja að þetta sé aUt komið
undir tilvfljun einni saman. Eintóm-
ar tílvUjanir verða næstum lögmál.
Það verður að bíða með endanlega
niðurstöðu, en hér er nokkuð sem
þarf að hugleiða vel.
- En ef við tölum um það að skák-
klukkan gangi hraðar í þeim skiln-
ingi að nú gætir áhuga á að stytta
umhugsunartímann í hverri skák
þannig að umhugsunartíminn verði
hálftími á aUa leiki, gott ef þetta á
ekki að ná tíl heimsmeistarakeppn-
innar... Er þetta skákinni í hag?
Á undanfomum árum hafa komið
fram nýjár hugmyndir í byrjunum,
miðtafl hefur verið skoðað og endur-
metið og endatafli er beitt betur. Og
þá fer aUt í einu að verða vart áhuga
á því að halda sýningu á skákUst-
inni, satt að segja að gera hana aö
verslunarvöru. Hóf er best í öUu og
það á einnig við hér. Það er ekkert
hættulegt ef um er að ræða skemmtí-
lega íþróttasýningu. En sé þess ekki
gætt gætí farið svo að það kæmi nið-
ur á taflmennsku komandi kynslóða
og að skáklistin öll yrði fyrir óbætan-
legu tjóni.
- Það virtist svo sem Kasparov og
Karpov hefðu farið langt fram úr
hinum stórmeisturunum. Er bUið
ekkert að minnka?
Það er alltaf auðveldara að elta þá
sem hafa forystuna en að ryðja
óþekktar brautír. Auövitað á bUið
milli okkar og þeirra sem á eftir okk-
ur koma að minnka. En það veit
enginn hvenær þeir ná okkur. Ég
veit það ekki sjálfur/Úr því fá aðeins
skorið tíminn einn og komandi ein-
vígi, þar á meðal viöureign mín við
Jóhann Hjartarson.
Þegar við kvöddum AnatóU
Karpov, fyrrverandi heimsmeistara,
bað hann okkur að bera öUum skák-
unnendum á íslandi kveðju sína, sem
sagt aUri þjóðinni, og fullvissa þá um
að hann mundi nota fyrsta tækifæri
sem gæfist tíl þess að koma í heim-
sókn þangað.
Alexander Roshal
skákfréttaskýrandi
Karpov er næsti mótherji Jóhanns:
Heimsmeistari í áratug og
frábær mótaskákmaður
Fróðir menn telja lUclegast að
skákmaöurinn nái sínu besta við
35 ára aldur en eftir það geti tafl-
mennskunni smám saman hrakað.
Frá þessu eru þó margar undan-
tekningar, bæði skákmenn sem
slegið hafa í gegn ungir og eins
aðrir sem láta engan bilbug á sér
finna þótt komnir séu á háan ald-
ur.
Anatoly Karpov er á 37. aldursári
og samkvæmt því ætti hann að
vera á besta skákaldri. Samt er
hann tiltölulega gamall í hettunni.
Hann var heimsmeistari í áratug,
1975-1985 og á þeim tíma var hann
nánast einráður í skákheiminum.
Ólíkt mörgum fyrirrennurum sín-
um tefldi hann mikið sem heims-
meistari og enginn hefur náð svo
jöfnum og góðum árangri sem
hann. Á heimsmeistaraárum sí.n-
um tók hann þátt í 33 mótum (ef
einvígi, sveitakeppnir og Iettari
mót með styttri umhugsunartíma
eru frátahn). Efsta sætinu, skiptu
eða óskiptu, náði hann 28 sinnum
en aöeins fimm sinnum varð hann
að sætta sig við að lenda neðar í
töflunni. Sannarlega einstæður ár-
angur.
Óvart sendur á alvörumót
Anatoly Evgenívits Karpoy fædd-
ist 23. maí 1951 í bænum Zlatoust í
sunnanverðum Úralfjöllum. Hann
lærði mannganginn fjögurra ára
gamall og snemma þóttí sýnt að
einstakt efni væri á ferð. Sjálfur
hefur hann sagt svo frá aö hann
hafi litla rækt lagt við byrjana-
rannsóknir, enda bar taflmennska
hans þess merki og ber e.t.v. enn.
Karpov litli tefldi traust í byrjun
tafls og þróaði með sér afar næmt
stöðuskyn. Hann kærði sig kollótt-
an um þaö þótt leikfélagar hans á
næstu borðum fórnuðu mönnum á
báðar hendur.
Aðeins fjórtán ára gamall hlaut
hann meistaratitil í Sovétríkjunum
og var sá yngsti sem þann heiður
hafði hlotið. í lok ársins 1966, er
Karpov var 15 ára gamall, þótti
yfirvöldum því tími tíl kominn að
senda hann til útlanda. Fyrir val-
inu varð unglingamót í Tékkóslóv-
akíu. Karpov og annar ungur
piltur, Viktor Kupreitsik (sem sigr-
aði svo eftirminnilega á Reykjavík-
urskákmótinu 1980), voru gerðir
út af örkinni en við komuna til
Tékkóslóvakíu varð ljóst að mistök
höfðu átt sér stað. Mótið var alls
ekki ætlað unglingum, heldur var
þetta alvöruskákmót fullorðinna.
Þar sem Tékkar eru gestrisin þjóð
vildu þeir ekki senda þessa skák-
þyrstu unglinga á burt en leyfðu
þeim að vera með í mótinu. Úrslitin
komu á óvart: Karpov sigraði og
tapaði ekki skák!
„Hann er of mjór“
Vorið 1969 sigraði Karpov á
þriggja manna úrtökumótí í Len-
ingrad, fyrir ofan Armenann
Rafael Vaganjan og Mikhail Stein-
berg, og vann sér þar meö rétt til
að tefla á heimsmeistaramóti ungl-
inga í Stokkhólmi í ágúst. Sovét-
menn höfðu átt erfitt uppdráttar á
heimsmeistaramótínu og höfðu
ekki átt sigurvegara í fjórtán ár -
er Boris Spassky varð heimsmeist-
ari. Anatoly Karpov var því fagnað
sem þjóðhetju er hann sneri frá
Stokkhólmi. í undanrásunum var
hann reyndar nokkuð óstyrkur en
í úrslitunum sigraði hann með yfir-
buröum. Hlaut 10 v. af 11 möguleg-
um en næsti maður, Ungverjinn
Adorjan, hlaut 7 v.
Samvinna Karpovs og þjálfara
hans, stórmeistarans Semion Fur-
man, hófst ári fyrir heimsmeistara-
mótíö og stóð allt þar tíl Furman
lést, 1978. Furman sagði svo frá að
hann hefði strax séð að Karpov
ætti framtíðina fyrir sér. Bæði
hefði hann til að bera sérstakt
stöðuskyn og innsæi sem ein-
kenndi ávallt snjöllustu skákmeist-
arana og eins góða endataflstækni.
En að sögn Furmans voru ekki all-
ir sannfæröir um hæfileika
Karpovs: „Þessi strákur verður
aldrei stórmeistari. Hann er of
mjór,“ sagði Edvard Gufeld er
hann sá Karpov í fyrsta sinn. Fur-
man bætir.við að Efim Geller hafi
staðiö við hlið Gufelds og ekki ver-
ið á sama máli: „Þaö er eðlilegt aö
hver dæmi eftír sínum aðstæðum,"
sagði Geller. „Þú varðst til dæmis
ekki stórmeistari fyrr en þú varst
orðinn 100 kílógrömm á þyngd!“
Leiðin að heimsmeistaratitl-
inum
Minningarmót um Alexander
Aljekín í Moskvu 1971 markar upp-
haf að glæsilegri sigurgöngu
Karpovs. Árið áður náði hann stór-
meistaratitli með 6. sætí á sterku
mótí í Caracas en eftir mótið í
Moskvu varð hann efstur í næstum
öllum mótum sem hann tók þátt í:
Hastings og San Antonio 1972,
Madrid 1973 og millisvæðamótinu
í Leningrad sama ár, þar sem hann
deildi efsta sætinu með Kortsnoj.
Þar með var Karpov kominn í
-áskorendakeppnina og fyrsta mót-
herja sinn, Lev Polugajevsky, vann
hann auðveldlega, 5-2. í næstu
umferð lagði hann Spassky að vellr
með 7 vinningum gegn 4 og í áskor-
endaeinvígi við Kortsnoj í Moskvu
urðu úrslit 12-11 Karpov í vil.
Karpov hafði þar með unnið sér
rétt til aö skora á heimsmeistarann
Bobby Fischer, en eins og kunnugt
er mætti Fischer ekki til leiks og
Karpov var því dæmdur heims-
meistaratitillinn,-
Kortsnoj gerði tilraun til að
hremma heimsmeistaratitilinn úr
höndum Karpovs í Baguio á
Filippseyjum 1978 og í Meranó á
Ítalíu 1981 en mistókst í bæði skipt-
in, þótt á ýmsu hefði gengið. Það
var ekki fyrr en Kasparov kom til
sögunnar sem Karpov varð að sjá
á bak titlinum. Óþarfi er að rifja
upp . vopnaviðskipti þeirra hér:
Fyrst einvígið éndalausa í Moskvu
1984-85, þá annað einvígi í Moskvu
1985, þar sem Kasparov sigraði
13-11, svo einvígi í London og Len-
ingrad 1986 (Kasparov sigraði 12-
11) og loks einvígið í Sevilla í lok
síðasta árs sem lauk 12-12 en
Kasparov hélt heimsmeistaratitlin-
um á jöfnu.
Sigursæll mótaskákmaður
Frá árinu 1975, er Karpov varö
heimsmeistari og fram á þennan
dag, hefur hann teflt á 41 skák-
mótí, ef einvígi og sveitakeppnir
eru undanskilin. Árangur hans er
stórglæsilegur, svo vægt sé til orða
tekið. í 33 skipti hefur hann orðiö
efstur en átta sinnum oröið að
sætta sig við lakara hlutskipti. Mér
telst svo tíl að hann hafi unnið 200
skákir, gert 268 jafntefli en tap-
skákirnar eru aðeins 21 talsins.
Þetta gerir 334 vinninga af 489, eða
68,3% vinningshlutfall. Þannig lít-
ur mótaskráin út:
Ár Mótsstaður Sæti
1975:
Ljubljana 1.
Mílanó 1.
1976:
Skopje 1.
Amsterdam 1.
Manilla 2.
Montilla 1.
Skákþ. Sovétr. 1.
1977:
Bad Lauterberg 1.
Las Palmas 1.
Leningrad 4.-5.
Tilburg 1.
1978:
Bugojno 1.-2.
1979:
Montreal 1.-2.
Waddinxveen 1.
Tilburg 1.
1980:
Bad Kissingen 1.
Bugojno 1.
Amsterdam 1.
Tilburg 1.
Buenos Aires 4.-5.
1981:
Linares 1.-2.
Moskva 1.
Amsterdam 2.-3.
1982:
London 1.-2.
Torino 1.-2.
Tilburg 1.
1983:
Linares 2.
Skákþ. Sovétr. 1.
Hannover 1.
Tilburg 1.
1984:
Osló 1.
London 1.
1985:
Amsterdam 1.
1986:
Vín (Opið mót) 3.-9.
Brussel 1.
Bugojno 1.
Tilburg 3.
1987:
Brussel 3.
Amsterdam 1.-2.
Bilbao 1.
1988:
Wijk aan Zee 1.
Skák
Jón L. Árnason
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Anatoly Karpov
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rfi Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8.
c3 0-0 9. h3 Bb7 10. d4 He8 11. Rbd2
Bf8 12. a4 h6 13. Bc2 Hb8 14. axb5
axb5 15. Bd3 Bc8 16. Rfl Bd7 17. Rg3
Dc8! 18. Be3 Db7 19. dxe5? Rxe5 20.
Ha7 Dc8 21. Rxe5 dxe5 22. Df3?! He6!
23. Bc2 c5 24. RÍ5 Kh7 25. g4?! Hb7
26. Hxb7 Dxb7 27. De2 Bc6 28. f3 g6
29. Rg3 Rd7 30. h4 c4 31. b4? Da8! 32.
Ddl Dd8! 33. h5 Be7 34. Kg2 Bg5 35.
Dd2 Kg7 36. hxg6 fxg6 37. Bxg5?
hxg5!
8 Wí Ulí/ áíÉ W
7 ■ ■
6 ij9]U
5 mim u ■
4
3 m n mm
2 t m * i
I ■ ■ m i
abcdefgh
38. Hal DfS 39. Re2 Rf8 40. De3
Bd7! 41. Dgl He7 42. De3 Hf7 43. Ha7
Re6 44. Hal Dd8 45. Ha7 Kf6! 46.
Hal?! Be8! 47. Hdl Db8! 48. Dgl Hh7
49. Hal Bf7! 50. Ha6 Dh8?
H • IH ■lÉX
mm wmkk
mm i i
SA
WM Ém. mm
■1
■ ■ m. m
abcdefgh
Erfitt hlutskipti bíður Jó-
hanns
Jóhann Hjartarson fær það erfiða
verkefni að glíma við þennan sigur-
sælasta mótaskákmann allra tíma
í einvígi i næstu lotu heimsmeist-
arakeppninnar. Óhætt er að segja
að Jóhann ráðist þar ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur. Karpov
hlýtur að teljast afar sigurstrang-
legur en því má þó ekki gleyma að
Kortsnoj var einnig talinn líklegur
sigurvegari í einvíginu við Jóhann.
Þetta er frábært tækifæri sem
Jóhann fær tíl að þroskast á skák-
sviðinu. Einvígi við Karpov hlýtur
að vera gott veganesti fyrir frekari
afrek, burtséð frá því hverjar lyktir
veröa. í þeim skilningi gat Jóhann
ekki fengið betri mótheija. Karpov
er aukinheldur líklegast eini kepp-
andinn í áskorendaeinvígjunum
sem þjóðin ætlast ekki til að Jó-
hann rótbusti!
Karpov hefur farið mörgum fógr-
um orðum um Jóhann eftir skák
þeirra á ólympíumótinu í Dubai
síðla árs 1986. Jóhanni tókst þar
að halda jafntefli eftir miklar svipt-
ingar. Karpov sagði síðasta haust
að Jóhann væri helsta von Vestur-
landa á skáksviöinu. Þaö er því
ljóst að hann kemur ekki til með
að vanmeta Jóhann í einvíginu.
Hér er skák þeirra félaga frá
Dubai. Spurningar - og upphróp-
unarmerki (= vondir og góðir
leikir) eru ættuð frá Jóhanni sjálf-
um. Hann skýrir skákina sérlega
vandvirknislega og skemmtilega í
bókinni „Skákstríð við Persaflóa"
sem út kom fyrir jóhn.
51. Rd4!! Dd8 52. Rxe6 Dd2+ 53.
Kg3 Bxe6 54. Hxe6 + Kxe6 55. Db6 +
K£7 56. Dc7+ Kg8 57. Db8+ KO 58.
Dc7+ Kg8 59. Db8+ Kg7 60. Dxe5 +
Kh6 61. Db8
Biðleikurinn.
61. - Dxc3 62. e5 Del+ 63. Kg2
Dd2+ 64. Kg3(?) Dd7 65. Be4 Kg7 66.
Db6 Df7 67. Kg2 Kh6?
„Lok skákarinnar teflir Karpov
svo illa, að það er með ólíkindum...
Gaf hann þá lélegu afsökun, að
taflmennska að morgni dags væri
honum ekki mjög að skapi! Eg gerði
honum þá grein fyrir því, að ég
væri nú engimrmorgunhani sjálf-
ur“ - segir Jóhann í bókinni um
ólympíumótið. Karpov missir af
tveim einfóldum vinningsleiðum,
67. - c3 og 67. - Hh4.
68. Dxb5 Hh8?! 69. Dc6 Hd8 70. b5
De8? 71. Df6 c3 72. Bxg6! Hd2+ 73.
Kg3 Dxg6 og Karpov bauö jafntefli
sem Jóhann þáði, því að hvítur
hefur gangandi þráskák eftir 74.
Dh8 + .