Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Page 10
10 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988. Erlendbóksjá 1 lWriteWhatlUke A s®tecöo« o» H»s «ar»ö»gs »i» »»«***»«* «m wev»t*msm tmettím Eins og Steve Biko sýndist I WRITE WHAT I LIKE. Höfundur: Sleve Blko. Penguin Books, 1988. Steve Biko var rúmlega þrítug- ur þegar hann lést í haldi hjá suðurafrísku lögreglunni árið 1977. Þá þegar haíði hann vakið athygli sem einn af efnilegri leið- togum blökkumanna í landinu. Dauöi hans varð tilefni til mjög ákveðinnar gagnrýni á lögreglu- yflrvöld og stjórnvöld almennt í Suður-Afríku. í þessa bók hefur verið safnað saman greinum, ræðum, stefnu- yfirlýsingum og vitnisburðum sem Steve Biko lét frá sér fara í lifanda lífi. Hér er því hægt að kynnast því með hans eigin orð- um hváða augum hann leit ástandið í Suður-Afríku og hvernig hann taldi aö hægt væri að breytá því. Forvitnilegast er að lesa viðtal, sem tekið var sama árið og Biko lést en þar ræðir hann um leiðir til þess að koma á meirihlutastjórn í landinu, og ítarlega kafla úr vitnisburði Biko fyrir rétti í maí 1976 en þar skýr- ir hann vjðhorf sín og hugsjónir. Þá rekur einn af vinum Bikc, séra Aelred Stubbs, ævi hans og feril í lokakafla bókarinnar. Sherlock Holmes snýr enn aftur SHERLOCK HOLMES AND THE CASE OF THE RALEIGH LEGACY. Höfundur: L.B. Greenwood. SL Martins Press 1987. Þeir sem hafa spreytt sig á að skrifa sögur um Sherlock Holmes hafa fæstir náð viðunandi ár- angri. Höfundi þessarar sögu tekst þó betur upp en flestum öðrum. Hér er það Watson sem enn á ný ritjar upp og setur á blað frá- sögn af ævintýri sem hann og Holmes lentu í. Að þessu sinni er gátan falin í gömlu skjali sem á að hafa gengið í erfðir í Raleig- h-flölskyldunni allt frá því sá hinn frægi Sir Walter Raleigh var og hét á valdatímum Elísabetar fyrstu Englandsdrottningar. í þessu skjali er fjallað um fjársjóð en með þeim hætti að enginn hef- ur getaö fundiö flársjóðinn. Holmes fær það verkefni að reyna að ráða gátuna. Hann verð- ur brátt var við að aðrir hafa áhuga á leyndardómnum og það svo að hinum lögmætu erfingjum stafar hætta af. En fyrst er auövitað að ráða í hið foma skjai og það getur að sjálfsögðu enginn - nema Sherlock Holmes. Hver myrti jarlinn af Erroll í Hamingjudal? WHITE MISCHIEF. Hölundur: James Fox. Penguin Books, 1988. Seint í janúar árið 1941 fannst Joss- lyn Hay, öðru nafni jarlinn af Erroll, dauður í Buick-bifreið sinni skammt frá Nairobi í Kenýa sem þá laut breskum yfirráðum. Hann hafði ver- ið skotinn til bana. Hver myrti jarlinn af Erroll? Þeirri spumingu var ekki svarað við réttar- höldin sem fylgdu í kjölfarið. Vangaveltur þar um hafa því verið vinsælt tómstundagaman af og til síðan og eru enn. Það sem nú hefur vakið umræður um málið á ný er gerð kvikmyndar um þetta fræga morð en þessi bók er endurútgefin nú af þvi tilefni. Nafn fómarlambsins eitt og sér hlaut að vekja athygli. Jarlinn var af einni virðulegustu aðaisætt í Bretaveldi: í Skotlandi er hún talin næst sjálfri konungsættinni. En það kom fleira tii sem gerði morð hans vinsælt umræðuefni. Josslyn Hay var sem sé fremstur í flokki þeirra bresku Kenýabúa sem kenndir vom við Happy Valiey í Kenya en þeir voru alræmdir fyrir vægast sagt léttúðugt líferni. Josslyn tók þátt í því af lífi og sál ásamt konu sinni sem efndi til samkvæma er minntu einna helst á gleðskap Messalínu til foma. Josslyn, sem var WHITE ISCHIEF THEY SSOUOHT SO MUCH TO Af «1CA. OUtMOUR, GSSD, DSCAOSHCE - AND MU8DÍ R afar glæsilegur á velli, þótti djarftæk- ur til kvenna en til þess að vekja áhuga hans þurftu þær að 'vera gift- ar. Hann átti af þeim sökum marga óvildarmenn: eiginmenn sem hann hafði kokkálað meira og minna opin- berlega. Og þegar hann var myrtur féll ein- mitt grunur strax á einn slíkan: Sir Jock Broughton. Hann var kominn nokkuð á sextugsaldurinn en kona hans, Diana, sem hann hafði nýlega kvænst, var innan við þrítugt. Hún var ástmey Josslyn og hafði beðið um skilnað svo hún mætti giftast elskhuga sínum. Broughton var ákærður fyrir morðið og leiddur fyrir rétt en tókst með aðstoð spjalls verianda að fá sig sýknaðan. James Fox, sem er reyndur blaða- maður, hefur kannað þetta mál árum saman; um hríð ásamt breska rithöf- undinum Cyril Connolly sem hafði mikinn áhuga á lífinu í Hamingjudal og morðinu á jarlinum af Erroll. Bók hans er tvískipt: annars vegar lýsir hann atburðunum eins og þeir gerð- ust og fólkinu sem þar kom við sögu, hins vegar rekur hann leitina að sannleikanum áratugum eftir morð- ið. Niðurstaða hans er ljóslega sú að Broughton hafi verið sekur. Hann hafi ekki þolað þá niðurlægingu sem í því fólst að þurfa að láta unga konu sína af hendi við Josslyn og því myrt hann af afbrýðisemi. Aðrir hafa haldið fram sakleysi Broughtons og einkum nefnt til sögunnar sem morð- ingja konuna sem þeir tveir börðust um. Frásögn James Fox er spennandi sem góður reyfari aflestrar. Hins vegar er vart viö því að búast að þeir sem telja að Broughton hafi ver- ið saklaus séu sáttir við niðurstöð- una, eins og reyndar hefur komið fram síðustu dagana í enskum dag- blöðum. Innan hreyfingar nýnasista THE OTHER FACE OF TERROR. Höfundar: Ray Hill og Andrew Bell. Grafton Books, 1988. Öfgahreyfingar til hægri vekja af og til á sér athygli með hryðjuverk- um í sumum Evrópulöndum en þær njóta yfirleitt lítils stuðnings meðal almennings. Hvemig fólk er það sem dregst inn í þessar hreyfingar? Hvers vegna? Og hvernig starfa þær? Ray Hill, aðalhöfundur þessarar bókar, getur sagt frá því af eigin reynslu því að hann starfaði innan breskra nýnasistahreyfinga um langt árabil - fyrst sem sannfærður öfgamaður en síðan sem njósnari fyrir andfasískt tímarit. Hill lýsir því opinskátt hvernig lítil menntun og bág lífskjör gerðu hann móttækilegan fyrir áróður öfga- manna til hægri sem kenndu þel- dökkum innflytjendum og gyðingum um allt það sem aflaga fór í bresku þjóðlífi. Hill gerðist brátt virkur fé- lagi í samtökum öfgamanna og hélt slíku starfi áfram er hann flutti með fjölskylduna til Suður-Afríku. Eftir nokkra dvöl þar tók hans hins vegar sinnaskiptum, að eigin sögn vegna þess að hann sá hvemig sú stefna, sem hann var að boða, leiddi til mannlegra hörmunga. Þegar Hill kom aftur til Bretlands ætlaði hann að hætta þátttöku í öfga- samtökunum en komst þá í samband við breskt tímarit sem berst gegn slíkum öflum og féllst á að halda áfram starfi sínu innan þeirra og gefa tímaritinu upplýsingcu- um allt sem þar gerðist. Hill var slíkur njósn- ari í nokkur ár og afhjúpaði margvis- leg samsæri, m.a. um vopnasölu og hryðjuverk. Hill lýsir þessum ferli sínum aö því er virðist opinskátt í bókinni og veit- ir innsýn í þau rangsnúnu og oft hættulegu viðhorf sem ríkja í nýnas- ískum samtökum. Metsölubækur Bretland Söluhœstu kíljurrvar: 1. Tom Clancy. RED STORM RISING. (1). 2. Stephen King: THE EYES OF THE DRAG- ON (3). 3. James Clavell: WHIRLWINO (5). 4. Oick Francis: BOLT (4). B. Stephen Kmg: IT (8). 6. Barbara Vine: A FATAL INVERSION. (-). 7. Colin Forbes: THE JANUS MAN (2). 8. Ríchard Ford: CHILDREN OF ASHGORETH. (-)■ 9. John le Carré: A PERFECT SPY. (-). 10. P. D. James: A TASTE FOR DEATH. (-). Rit almenns eðlis: 1. Rosemary Conley: THE HIP AND THIGH DIET. (-)■ 2. P.L. Fermon BETWEEN THE WOODS ANDTHE WATER. (1). 3. Pauline Cutting: CHILDREN OF THE SIEGE (2). 4. FARMHOUSE KITCHEN MICROWAVE COOKBOOK. (4). 5. Roald Dahl: GOING SOLO. (3). 6. Or. Martin Katahn: THE ROTATION OIET. (6). 7. RONAY'S CELINET GUIDE TO HOTELS & RESTAURANTS. (-). 8. Beigent, Leight, Lincoln: THE MESSIANIC LEGACY. (-)• 9. Keith Floyd: FLOYD ON FRANCE. (7) 10. Van der Post: A WALK WITH A WHITE BUSHMAN. (-). (Byggt á The Sunday Times) Bandaríkin Metsölukíljur: 1. Stephen King: THE EYES OF THE DRAGON. 2. Robin Cook: OUTBREAK. 3. Stdney Sheldon: WINDMILLS OF THE GODS, 4. Sally Beauman: DESTINY. 5. Pat Conroy: THE PRINCE OF TIDES. 6. Elmore Leonard: BANDITS. 7. V.C. Andrews: GAROEN OF SHADOWS. 8. Phyllis A. Whitney: SILVERSWORD. 9. Lawrence Sanders: CAPER. 10. Irving Wallace: THE CELESTIAL BED. 11. Hilary Norman: IN LOVE AND FRIENDSHIP. 12. Paul Erdman. THE PANIC OF '89. 13. Dtane Carey: FINAL FRONTIER. 14. Tom Clancy: REO STORM RISING. 15. Barbara Michaels: SHATTEREO SILK. Rit almenns eðlis: 1. Whitley Strieber: COMMUNION. 2. M. Scott Peck: THE ROAD LESS TRAVELEO. 3. Beryl Markham: WEST WITH THE NIGHT. 4. Judith Viorst: NECESSARY LOSSES. 5. Kirkland/Lawrence: DANCING ON MY GRAVE. 6. John Feinstein: A SEASON ON THE BRINK. 7. Budd Hopktns: INTRUDERS. 8. Bill Cosby: FATHERHOOD. 9. Harold Kushner: WHEN ALL YOU'VE EVER WANTED ISN'T ENOUGH. 10. Richard Bach. A BRIDGE ACROSS FOREVER 11. Joseph Wambaugh: ECHOES IN THE OARKNESS. (Byggt á New York Times Book Review) Danmörk: Metsölukiljur: 1. M. Atwood: TJENERINOENS FORTÆLL- ING. (-). 2. Andersen-Nexö: PELLE ERQBREREN l-ll. (2). 3. NUDANSK ORDBOG. (3). 4. Jean M. Auel: HULEBJ0RNENS KLAN. (4). 5. Jean M. Auel: HESTENES DAL (5). 6. Isabel Allondo: ANDERNES HUS. (6). 7. Pu Ji: DEN SIDSTE KEJSER (7). 8. Hanne Vibeke Holst: NATTENS KYS. (9). 9. Isabel Allende: KÆRLIGHED OG M0RKE. (8). 10. Elsa Morante: HISTORIEN. (10). (Byggt á Politíken Sondag) Umsjón: Ðías Snæland Jónsson Glerdýr Williams THE GLASS MENAGERIE. Höfundur: Tennessee Williams. Penguin Books, 1988. í bandarískri leikritun eftir- stríðsáranna höfðu tveir menn afgerandi forystu: Arthur Miller og Tennessee Williams. Og af mörgum mögnuðum leikritum Williams frá fimmta og sjötta ára- tugnum eru Glerdýrin í fremstu röö. Eins og í flestum merkustu leik- ritum Williams er ráörík og skapstór kona í aðalhlutverkinu í þessu verki, Amanda Wingfield, sem lifir að verulegu leyti í fortíð- inni og fyrir það að útvega fatl- aðri dóttur sinni, Láru, eiginmann. Sonur hennar, Tom, verðandi skáld, þráir hins vegar það eitt að sleppa úr þeirri prí- sund sem faðmur móðurinnar er honum. Glerdýrin eru öðru fremur um leit að ást sem ekki gefur færi á sér, drauma og vonir sem rísa og bresta. Og í Tom er mikið af höf- undinum sjálfum enda leikritið að umtalsverðum hluta byggt á persónulegri lifsreynslu Will- iams. i AI..LHN I GINSBERG í.oii n mx> POFA1S 1947-19«) Ljóðasafii hippaskáldsins COLLECTED POEMS 1947-1980. Höfundur: Allen Ginsberg. Penguin Books, 1987. Á sjöunda áratugnum, blóma- tímanum svonefnda, var Allen Ginsberg fremsta hippaskáldið og gúrú þeirra sem töldu hömluleysi æðsta stig tilverunnar. Þótt um- hleypingar þessa tíma séu löngu orðnir sagnfræði ein hefur Gins- berg ekki failið í gleymskunnar dá eins og svo mörg önnur hippa- skáld. Hann er eiginlega eins konar minnismerki um þessa liðnu tíð. Ljóð Ginsbergs eru mikil að vöxtum en afar misjöfn að gæð- um. Sum bestu verka hans voru reyndar ort löngu áður en blóma- skeiöiö hóf sína stuttu vegferö: Ginsberg var áhugaverðasta ljóð- skáld bítsins og sendi frá sér merkasta ljóö sitt, Howl, árið 1956. Það er enn fimasterkt harmkvæði um glataða kynslóð. í þessu heildarsafni ljóða Gins- bergs frá árunum 1947 til 1980 er af eðlilegum ástæðum mikið af ljóðum sem hafa eingöngu for- vitnisgildi sagnfræðilegs eðlis. En inn á milli glóir sá máttugi kveö- skapur sem felur í sér frumlega og áhugaverða sýn skáldins á veruleika sjötta og sjöunda ára- tugarins í Bandaríkjunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.