Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Side 15
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988. 15 Sagan og samtíminn Þau vandamál, sem viö er að etja í efnahags- og atvinnumálum þjóð- arinnar um þessar mundir og mikið eru til umræðu í fjölmiðlum og meðal hagsmunaaðila, eru al- varleg. En þau eru einnig leysanleg sé vilji ogþor fyrir hendi hjá þeim sem völdin hafa. Og auðvitað er vandinn smávægilegur sé hann borinn saman við ýmsa þá erfiö- leika sem íslensk þjóð hefur tekist á við gegnum aldirnar. Það hefur löngum þótt strembið aö búa á íslandi. Reyndar hefur það aldrei verið eins auðvelt og nú. Það kemur því engum á óvart í sjálfu sér að í sögubókum skuli langmest bera á öllum þeim hörm- ungum sem yfir hafa dunið. Við lestur slíkra bóka liggur beinast við að ætla að þjóðarsagan sé ein óþrjótandi táralind. Því fer auðvit- að víðsfjarri. Sem betur fer hafa margir haft fyllstu ástæðu til að una glaðir við sitt hér á landi gegn- um aldirnar. íslandsklukka til landsins Ánægjulegt áminning um sam- hengið í lífi þjóðarinnar er sú íslandsklukka sem Þjóðminjasafn- ið hefur beitt sér fyrir að fá aftur til landsins. Þessi klukka, sem tahn er nær níu hundruð ára gömul, hefur lengst af verið prýði sveita- kirkju á Ströndum. Fyrir liggur að kirkjuklukkur af þessu tagi voru smíðaðar fram undir árið ellefu hundruö og fimm- tíu en ekki eftir það. Þessi litla klukka er því gerð fyrir daga Snorra Sturlusonar, já, væntanlega á þeim tímum þegar Ari fróöi Þor- gilsson var að semja íslendingabók. Kannski hefur verið hringt til tíða í Tröllatungu með þessari klukku á þeim árum er Guðmundur góði hraktist með föruneyti um landið undan ásókn valdfíkinna höfö- ingja. Akveðið hefur verið að efna til söfnunar til þess að gera Þjóðminja- safninu kleift að kaupa ldukkuna. Vonandi verða viðbrögð lands- manna rausnarleg, enda til hneisu ef þessi klukka, sem er svo nærri því að vera jafngömul þjóðinni, heföi lent í höndum útlendinga. Lærum við af sögunni? íslandsklukkan úr Tröllatungu- kirkju er kjörið tilefni nokkurra vangaveltna um mikilvægi sög- unnar fyrir samtímann. Er það rétt, sem Hegel hélt fram, að hvorki þjóðir né ríkisstjómir lærðu neitt af sögunni? Er ljós reynslunnar ávallt í skut þjóðarskútunnar og . skín því einungis á þær öldur sem eru að baki? Vissulega er margt sem bendir til þess að samtímamenn læri lítið af mistökum forfeðranna og dragi jafnvel rangar ályktanir af sögunni ef einhverjar. Hins vegar er það ekki rétt, sem eitt sinn var talinn sannleikur, aö sagan endurtaki sig. Auðvitað minna samtímavið- burðir stundum á atburði liðinna tíma, en þá er oftast um að ræða skrumskælda eftirlíkingu. Það sem áður var ekta tekur þá gjarnan á sig farsakennda mynd. Nú eru vel gerðir farsar yfirleitt skemmtílegir. En fátt er jafneymd- arlegt og lélegur farsi, að ekki sé nú talað um þegar þolandinn í verkinu er lifandi fólk sem æskir þess eins að fá að búa í friði og njóta afraksturs erfiðis síns. Líklega eru engin af gæðum lífsins eins vand- fundin um þessar mundir og eimitt þetta; að fá að rækta garðinn sinn í friöi. Stjórnarfarsinn Af farsakenndum atburöum sam- tímans hefur stjórnarfarsinn vakið mesta athygli manna upp á síðkast- ið. Ætla mætti að stjórnarherramir, sem verulegur meirihluti þjóðar- innar kaus í síðustu kosningum, hefðu í nógu að snúast við að rétta hag þjóðarskútunnar. Að sögn stefnir í tíu milljarða viðskipta- halla á árinu. Forsvarsmenn út- flutningsgreinanna segja allt vera á heljarþröm. Boðuð er stöðvun í fiskiðnaði á næstunni nema til komi gengisfelling eöa aðrar álíka aðgerðir af hálfu stjórnvalda. Fólki í ullariðnaði er sagt upp hundruð- um saman. Búgreinar, sem áttu að verða bjargráö í landbúnaðar- kreppunni, svo sem refarækt, eru komnar á vonarvöl. Og launafólk, sem hefur mátt þola hrikalegar verðhækkanir á algengustu nauð- synjavörum og stóraukna skatt- heimtu, býr sig til átaka. Skyldu nú ráðherrarnir ekki sitja á fundum nánast dag og nótt til þess að ráða fram úr þessum vand- ræðum og rétta hlut framleiðslu- greina og launafólks? Nei, ekki aldeilis. Slík mál halda ekki fyrir þeim vöku eða verða tíl- Laugardags- pistill Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri efni tíl bókana 1 ríkisstjóm. Þeir gætu þess vegna verið sofandi við stýrið. Moskvudansinn Til Moskvu eða ekki til Moskvu, það er spurningin sem hefur haldið vöku fyrir ráðherrum íslensku rík- isstjórnarinnar undanfarna daga. Fyrst vildi Steingrímur Her- mannsson fá að fara til Moskvu með forseta íslands og leysa ullar- vörukreppuna í leiðinni. Heimsókn forsetans til Sovétríkjanna hefði auðvitað orðið þjóðinni til sóma eins og aðrar opinberar heimsókn- ir Vigdísar Finnbogadóttur og ekki hefði sakað að leysa ullarsölumálin í leiðinni. Það þótti sumum sam- starfsráðherrunum hins yegar ófært því þá yrði Steingrími þökk- uð lausn þess máls og væri hann þó nógu skrattí vinsæll fyrir. Auk þess sem hann ætti .að vera á NATO-fundi á sama tíma. Þá lagði Steingrímur til að Hall- dór Ásgrímsson færi í austurveg, enda fær í flestan sjó eftír hvala- slaginn við Kanann. Ekki var því betur tekið í ríkisstjóminni. Frið- rik Sophusson taldi nefnilega aö ef einhver ætti að fara til Moskvu væri það iðnaðarráðherra - þ.e. hann sjálfur. Hann gæti þá leyst ullarsöludeiluna og orðið hetja. Kratar vildu líka vera með og sögðu Jón Sigurðsson á lausu tíl austurfarar. Niðurstaðan varð svo sú sem frægt er orðið að enginn fór til Moskvu. En starfsfólk í ullariðnaði spilar ýmist bingó á vinnustað eða fer á atvinnuleysisbætur. Enn muna margir nafn þess manns sem lék á hörpu sína meðan Róm brann, jafnvel einstaka ráð- herrar. Af því hátterni draga menn þó ógjaman réttar ályktanir til að miða við eigin aðgerðir. Það brenn- ur því fleira en Róm. Sjálfskaparvíti Hvernig stendur annars á því að eftir góðæri undanfarinna ára, með verulegri aukningu þjóðartekna, hefur enn tekist að koma efnahags- málunum í hnút? Eins og oft áður hafa landsmenn við enga aðra að sakast en sjálfa sig og þau stjómvöld sem meiri- hlutinn hefur kosið yfir þjóðina. Því er viðbmgðið hversu illa ís- lendingum hefur tekist að halda á málum á tímum vaxandi þjóðar- framleiðslu og batnandi viðskipta- kjara. Nú sem fyrr við slíkar ástæður hefur þjóðin ekki aðeins vanrækt að leggja tíl hliðar af tekjuaukanum heldur hefur eyðsl- an og sóunin farið langt fram úr því sem aflað hefur verið. Þetta á ekki aðeins við um eyðslu einstaklinganna heldur einnig og ekki síður hins opinbera. Nú eru við stjórnvölinn boðberar slagorðs sem þeir vona vafalaust að allir séu búnir að gleyma: báknið burt. Það sannast nefnilega enn einu sinni að því meira sem ríkjandi stjórn- málamenn segjast vera á móti útþenslu kerfisins þeim mun frek- ar þenst það út undir þeirra forsjá. Aukin skattheimta Nú em einnig við völd stjóm- málamenn sem hafa margendur- tekið andstöðu sína við aukna skattheimtu. Stundum hafa sumir þeirra jafnvel lofað að lækka skatta. Það er auðvitað við hæfi og í samræmi við farsa íslenskra stjórnmála að skattheimta hefur aldrei verið meiri en einmitt nú. Stjómmálaforingjarnir hafa hellt olíu á eld óánægjunnar í þjóöfélag- inu með margvíslegum breytingiun í skattamálum sem hafa íþyngt ein- staklingunum með aukinni skatt- heimtu og vaxandi verðbólgu. Þessu finna launamenn fyrir í hvert sinn sem þeir fara út í búö að kaupa í matínn. Margir þeirra finna einnig fyrir aukinni skatt- heimtu í hvert sinn sem þeir taka við launum fyrir unnin störf. Óánægja launafólks Það þarf engan að undra þótt al- varleg óánægja hafi grafiö um sig meðal almennings síöustu mánuði því launafólk hefur horft á verð- gildi launanna hraðminitka í höndum sér. Síðustu mánuði hefur verðbólgan ætt áfram vegna hækk- ana á þeim vörum sem almenning- ur verður að kaupa og það að mestu fyrir tilverknað stjómvalda sjálfra. Við þetta bætist að staðgreiðslu- kerfið, sem í reynd er eitt af afrekum svonefndrar verkalýös- forystu, kemur illa við marga, til dæmis þá sem hafa verið að kikna undan kostnaði við húsnæðisöflun síðustu árin og eru enn en fá ekki lengur skattalækkun til mótvægis við gífurlega vaxtabyrði. Þaö þarf því engan að undra þótt ríkisstjómin hafi ekki lengur meirihluta meðal þjóðarinnar í skoðanakönnunum. Hversu lengi enn? Nú hefur því stundum verið hald- ið fram að því minna sem ríkis- stjórnir aðhafist þvi betra. Vafalaust er hægt að finna þeirri kenningu stað með dæmum. Rang- ar ákvarðanir, byggðar á röngum forsendum, geta oft valdið óbætan- legu tjóni. En aðgerðaleysi er ekki síöur skaðlegt þegar alvarleg vandamál steðja að, hvað þá þegar aögerða- leysi í sumum málum er samfara óskynsamlegum ákvörðunum í öðrum. Margir sem fylgst hafa grannt með störfum ríkisstjórnarinnar spyrja sig nú hversu lengi þetta stjórnarsamstarf haldi. Brestirnir í því eru augljósir. Viljinn til sam- eiginlegra athafna virðist lamaður. Það trúnaöartraust, sem nauðsyn- legt er í ríkisstjórn, virðist ekki fyrir hendi. Stundum er engu lík- ara en verið sé að búa í haginn fyrir samstarfsslit. Auðvitað skiptir ekki öllu máli hversu lengi ríkisstjórn situr. Hitt er mun mikilvægara að ríkisstjórn sitji ekki áfram ef hún er í reynd orðin óstarfhæf vegna innbyrðis væringa. Þótt erfiðlega gangi að læra af sögunni er svo skammt síð- an slík ríkisstjóm sat við völd með hrikalegum afleiðingum að þau spor hljóta enn að hræða. Elias Snæland Jónsson -f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.