Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Side 20
20
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
V erðmunur á einum borða
Hér geisar nú slíkt verðstríð að ég
man ekkí annað eins. Stórmarkaðir
keppast 'við að auglýsa verðlækkun
á grænbaunadós og fólk ekur um
bæinn þveran og endilangan til að
versla þar sem er ódýrast sam-
kvæmt opinberum könnunum. Ég
hef nú horft á þetta svona úr fjar-
lægð enda af þeirri kynslóð sem
varð fyrir því óláni að brenglast
verulega á verðskynfærunum þau
ár sem verðbólgan var hér við völd
í nafni hinna og þessara stjóm-
málaflokka. Get þó ekki neitað því
að þessi áróður um að almenningur
sé besta verðlagseftirlitið er farinn
að síast inn í minn þykka haus. Ég
get nefnt þér eitt dæmi.
Eins og þú hefur eflaust tekið eft-
ir var borðinn í ritvélargarminum
mínum orðinn það slitinn að ég
þurfti að fara með penna ofan í
flesta stafi svo þú gætir lesið til-
skrifið. Á dögunum sá ég að við svo
búið mátti ekki lengur standa og
geri mér ferð í verslunarhof lands-
manna, Kringluna. Þar fmn ég
bókabúð og snarast inn i þeim til-
gangi að festa kaup á borða í
ritvélina. Ég hafði verið svo for-
sjáll áður en ég fór að heiman að
skrifa á miða tegundarheiti ritvél-
arinnar ásamt einhveijum tölu-
stöfum sem fylgja heitinu. Ung og
geðþekk stúlka hlustar á þessar
upplýsingar, fer fimum höndum
um húlur og kemur með lítinn
pakka. „Þessi borði passar í vél-
ina.“ „Takk,“ segi ég og skoða
pakkann af athygli. Það var svona
gluggi á pakkanum og ég sannfærð-
ist um að þarna inni væri ritvélar-
borði. Ekki hafði ég gert mér
neinar hugmyndir um hvað þessi
einfaldi hlutur mundi kosta. Spyr
því um verð. „Átta hundruð tutt-
Finnurðu
átta breytingar?
Þessar tvær myndir sýnast 1 fljótu bragöi eins en á neðri
myndinni hafa falliö burt hlutar af myndinni eða þeir
breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt að finna
þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa
þetta trúum við því að allt komi þetta að lokum.
Merkið með hring eða krossi þar sem breytingamar eru
og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar.
Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og
veitum þrenn verðlaun, öll frá versluninni Japis, Brautar-
holti 2. Þau eru Supertech segulband (verðmæti 3.948,-),
Supertech útvarp (verðmæti 2.840,-) og LED útvarpsvekjari
(verðmæti 1.590,-).
í öðm helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu
en ný þraut kemur í næsta helgarblaði.
Góða skemmtun!
Merkiö umslagið:
„Átta breytingar - 81, c/o DV, pósthólf5380,125 Reykjavík.“
Verðlaunahafar 79. gátu reyndust vera: Ingibjörg Þor-
valdsdóttir, Jörvabyggð 6, 600 Akureyri (segulband); Sjöfn
Ólafsdóttir, pósthólf 186, 900 Vestmannaeyjum (útvarp);
Leifur Eyjólfsson, Gauksrima 11, 800 Selfoss (útvarpsvekj-
ári).
Vinningamir verða sendir heim.
!><------------------------------------------------1
NAFN ....................................
HEIMILISFANG ............................
PÖSTNÚMER ...............................
„Til dæmis gat hugsast að hann blési mér andagift í brjóst svo ég næði
aö skrifa ódauðlegt snilldarverk."
ír.
ugu og níu krónur,“ svarar stúlkan
alúðlega. Ég skal segja þér eins og
er að mér bara brá. Fjárhagurinn
ekki beysinn og einhvem veginn
fannst mér þetta hátt verð fyrir svo
lítinn hlut þótt nauðsynlegur sé ef
verið er að pikka á ritvél á annað
borð. Nú gat að visu verið aö þessi
borði væri gæddur sérstökum eig-
inleikum sem ég vissi ekki um. Til
dæmis gat hugsast að hann blési
mér andagift í bijóst svo að ég
næði að skrifa ódauðlegt snilldar-
verk. Hvergi var þó upplýsingar að
finna þess efnis utan á pakkanum.
Ég hugsaði mig lengi um. Hristi
pakkann. Opnaði hann og gægðist
inn en sá ekkert nema venjulegan
borða, kolsvartan og ógnandi. „Já-
há,“ sagöi ég loks. „Það er nefnilega
það. Einmitt já . Átta hundruð og
eitthvað krónur. Það vill bara svo
illa til að ég er ekki með nema
fimmhundruðkall á mér svo ég
verð víst að koma seinna, takk fyr-
Að svo mæltu drattaðist ég út úr
búðinni, þungt hugsi. Gat verið að
ég þyrfti að borga á níunda hundr-
að fyrir einn svartan borða? Ég
gæti étið ýsu fyrir þessa upphæð
vikum saman. Sá var þó hængur-
inn á að meðan ég ætti ekki borða
í ritvélina ætti ég ekki peninga tfi
að kaupa í matinn. - Það er sví-
virða að skattleggja svona atvinnu-
tæki fólks, sagði ég við sjálfan mig
og hugsaði Jóni Baldvin þegjandi
þörfina. Mundi þá að hann er alltaf
að prédika fyrir fólki að það eigi
að afla sér upplýsinga um verö sem
víðast.
Morguninn eftir skoða ég ritvél-
ina betur og kem þá auga á spjald
sem á var letrað heitið Skrifstofu-
vélar. Ég ákveð að reyna þar.
Hringi samt fyrst og skilst á sím-
svaranda að þetta fyrirtæki sé
eiginlega ekki tíl lengur, eða runn-
ið saman við IBM eða eitthvað
BÍéftil vinar
\
Sæmundur Guðvinsson
svoleiðis. Ég spyr samt um borða
og les enn tegimdarheitíö af miðan-
um góða. Jú, þaö er til borði í
þessar.vélar. „Og hvað kostar nú
svona borði?“ spyr ég varfæmis-
lega. „Tvö hundruö sjötíu og fimm
krónur,“ er svarað að bragði.
„Hvað segirðu," segi ég öldungis
hlessa. Viðmælandinn endurtekur
upphæðina. Mér datt í hug að þetta
gætu verið mistök eða gamalt verð
og flýtti mér á Hverfisgötuna þar
sem fyrirtækið er til húsa. Rétti
fram miðann góða og spyr um
borða. Fæ hann í hendur eftír and-
artak. Spyr um verð. Tvö hundruð
sjötíu og fimm. „Ertu viss um að
þetta passi í mína vél?“ spyr ég
fullur grunsemda. „Ef ritvélin er
með þessu tegundarheiti og númeri
þá passar hann. Þetta er venjulegur
borði með leiðréttingarborða.“ Ég
flýttí mér að borga og fékk tölvu-
skrifaða nótu því til staðfestingar
að ég hefði staðgreitt áðurgreinda
upphæð. Snarast svo heim og set
borðann í og allt í himnalagi.
Eftir langa og flókna útreikninga
komst ég að raun um að ég hafði
sparað hvorki meira né minna en
fimm hundruð fimmtíu og fjórar
krónur á því að kaupa ekki borð-
ann þar sem hann bauðst fyrst.
. Fyrirþessaupphæðgetégtildæm-
4 is keypt tvö og hálft kíló af rauð-
sprettuflökum þar sem verð á þeim
er lægst samkvæmt auglýsingum
frá Jóni viðskiptaráðherra. Það
munar um minna, ég segi nú ekki
annað.
Þú fyrirgefur þótt það komist
ekki annað að hjá mér núna en
þessi saga af borðanum. Eftir þetta
fer ég að verða eins og'vargur í
búðunum. Maj-gspyr um verð og
dreg í efa við afgreiðslufólk að ekki
megi fá þetta eða hitt á lægra verði
annars staðar. Þetta endar með því
að ég get étíð bæði fisk og kjöt
ókeypis, eða þannig.
Að endingu örfá orð um Ebbu
frænku. Nú uppástendur hún að
skella sér í heimsókn til þín um
páskana ásamt kallinum og tveim-
ur bamabörnum. Ég veit að þú
getur ekki hugsað þér að fá þetta
lið inná þig, en hvaö á ég að gera?
Ég er búinn að benda henni á aö
fara frekar í fjallgöngu, helst að
ganga á jökul (þar er svo mikið af
fóldum sprungum, þú veist) en það
er ekki tautí við hana komandi.
Láttu þér nú detta eitthvð gott ráð
í hug og láttu mig vita.
Þinn vinur,
Sæmundur
P.S. Fljótamenn skutu ísbjarnar-
hún í gær. Ætli þeir þurfi að borga
matarskatt ef þeir éta kjötið?
i