Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Síða 21
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
21
frá Tröllatungu:
Gj afir til klukkukaup-
anna eru þegar
farnar að berast
Klukkan góða
frá Tröllatungu. Hún
verður almenningi til
sýnis eftir nokkra daga.
Islandsklukkan
„Sú var tíö, segir í fornum bók-
um, aö íslenska þjóðin átti aðeins
eina sameign sem metin var til fjár.
Það var klukka.“ Á þessum orðum
hefst íslandsklukkan hans Halldórs
Laxness. Lesendur fá einnig að fræð-
ast um að „svo var klukkan forn að
enginn vissi lengur aldur hennar
með sannindum."
Nú stendur landsmönnum til boða
að kaupa klukku sem er áhka forn
og hún er einnig metin til fjár. Þjóð-
minjasafninu hefur verið boðin
klukkan fyrir 650 þúsund krónur og
Þór Magnússon þjóðminjavörður
hefur ákveðið að efna til almennra
samskota til klukkukaupanna.
Eins og komið hefur fram í fréttum
DV er þetta klukka sem um aldir var
í kirkjunni í Tröllatungu í Stein-
grímsfirði. Þótt ekki sé vitað um
aldur klukkunnar þá er vitað að eitt-
hvað á niunda hundrað ára er síðan
hún var steypt því klukkur af þess-
ari gerð voru ekki steyptar eftir árið
1150.
Aðeinsfá eintök til
Klukkur af þessari gerð eru mjög
fágætar og að sögn Þórs Magnússon-
ar eru aðeins nokkur eintök til í
heiminum. Því leggur Þjóminjasafn-
ið mikla áherslu á að klukkan gangi
ekki því úr greipum. Reyndar er
búist við að klukkan komi til lands-
ins einhvern næstu daga því trygg-
ingarfé hefur þegar verið fengið að
láni.
Eftir að DV sagði frá klukkukaup-
unum hefur fé þegar borist til
Þjóðminjasafnsins. Strax daginn eft-
ir að fréttin birtist kom maður á
skrifstofu þjóðminjavarðar með 1%
af kaupverði klukkunnar. Þegar
klukkan kemur heim verður hún
almenningi til sýnis í Þjóðminjasafn-
inu þannig að þeir sem vilja gefa til
kaupanna geta skoðað gripinn í leið-
inni
Saga klukkunnar frá Tröllatungu
er ekki htrík. Hún var þar í kirkj-
unni allt til þess að hún var lögð
niður árið 1906. Talið er líklegt að
klukkan hafi komið þangað ný en
kirkja var reist í Tröllatungu á fyrstu
árum kristni í landinu. Kirkjubónd-
inn í Tröllatungu hefur viljað búa
kirkju sína góðum gripum.
Meðan klukkan var í Tröhatungu
segir fátt af henni. Þar hafa prestar,
sem sumir voru gaidramenn eins og
sjálfsagt er um presta á Ströndum,
látið hringja herrni við allar athafnir
frá því sóknarböm í Kirkjubóls-
hreppi vora skírö og th þess að þau
voru til moldar borin.
Fjórar klukkur og bjöllur tvær
Árið 1317 hefur þessi klukka þegar
verið komin í tölu gamalla gripa. Þá
lét biskup skrifa upp allar eigur
kirkjunnar í Tröllatungu og þar voru
taldar „íjórar klukkur og bjöllur
tvær“. Nú er aðeins ein þessara
klukkna til.
Saga klukkunnar tók eiginlega
ekki óvænta stefnu fyrr en kirkja í
Tröllatungu var lögð niður árið 1906
og hluti af eigum hennar seldur á
uppboði. Þá komst klukkan í einka-
eigu og hefur verið það síðan.
Núverandi eigandi klukkunnar býr
í Lundúnum og er afkomandi þess
sem eignaðist hana á uppboðinu í
Tröllatungu. Hjá Þjóðminjasafninu
Þór Magnússon þjóðminjavörður með fyrstu ávisunina sem barst í söfnunina til kaupa á klukkunni frá Tröllatungu.
DV-mynd BG
hefur lengi verið vitað um klukkuna
og hún var þar til sýnis fyrir nokkr-
um árum en hefur ekki verið boðin
til kaups fyrr en nú.
Tröllatunga í Steingrímsfiröi er
kennd við landnámsmanninn í firð-
inum sem kallaður var Steingrímur
trölli. Strandamenn segja að þetta sé
besta jörðin í sýslunni af þeim sem
ekki hafa hlunnindi. Þarna sátu
prestar til ársins 1885 þegar prests-
setrið var flutt að Felli í Kollafirði.
Sumir prestanna þóttu merkir menn
en af öðrum fór misjafnt orð. Einn
sá skrautlegasti var galdramaðurinn
Oddur Þorsteinsson sém var prestúr
í Tröllatungu á 16. öld.
Oddur þessi var eitt sinn dæmdur
frá prestskap fyrir barneign með
mágkonu sinni ungri og átti hann að
hafa ginnt hana með göldrum. Oddur
fékk þó hempuna aftur en þurfti að
greiða stórfé. Sagt var að Oddur
væri rammgöldróttur og átti hann
að ganga í hóla til huldufólks.
Virðulegt handverk
En klukkan frá Tröllatungu er
hljóð um sögur sem þessar enda er
það fyrst og fremst aldur hennar sem
gerir hana verðmæta. Líklegt er talið
að hún hafi verið steypt í Þýska-
landi, þaðan sem margir gamlir
kirkjugripir eru upprunnir. Þar um
slóðir var klukkusteypa sérstakt
handverk. Klukkusmiðir ferðuðust
milli kirkna og steyptu klukkur á
hverjum stað. Ekki er vitað til að
shkir handverksmenn hafi komiö
hingað til lands enda lítinn kopar að
hafa hér. Klukkan er því innflutt.
Þýskir klukkusmiðir voru snilling-
ar í sinni grein sem best sést af
endingu klukknanna sem þeir
steyptu. Fyrir nokkram árum var
klukka af sömu gerð og sú frá Trölla-
tungu grafin upp úr höfninni í
Heiðarbæ, sem einu sinni var í Dan-
mörku en tilheyrir nú Véstur-Þýska-
landi. Þessi klukka er nær þúsund
ára gömul og lá í höfninni í margar
aldir. Samt er hún enn heil og ó-
sprungin eins og klukkan frá Trölla-
tungu.
Annars voru Rússar stórtækastir
allra klukkusmiða. Áriö 1733 steyptu
þeir stærstu klukku sem gerð hefur
verið. Sú klukka stendur nærri
Kremlarmúrum í Moskvu. Hún hef-
ur þá sérstöðu meðal kirkjuklukkna
að henni hefur- aldrei verið hringt.
Þetta er 193 tonna flikki sem aldrei
tolldi á undirstöðum sínum. Eina
skiptið sem heyrðist í henni var þeg-
ar hún féll til jarðar og þá brotanði
úr henni 11 tonna koparflís.
Minni en islandsklukkan
Klukkan frá Tröllatungu er all-
miklu minni en þessi ..konungur
kirkjuklukknanna". Hún er aöeins
24,5 sentímetar á hæð og er þvi með
minni kirkjuklukkum og sjálfsagt
minni en sjálf Islandsklukkan sem
snærisþjófur af Akranesi og böðull
úr Kjósinni hjuggu miöur á Þingvöll-
um.
..Klifra þú upp á húsiö Jón Hregg-
viðsson aumur þræll, sagði kóngsins
böðull, og höggðu á tóverkiö sem
heldur klukkunni," skrifar Halldór
Laxness í íslandsklukkunni. ..Það
hlægir mig aö þann dag sem minn
allranáðugasti herra bífalar mér aö
bregða um háls þér snörunni hér á
þessum staö skuh þó ekki verða
hringt klukku.“ -GK
Gleymdirðu einhverrí gjöf?
Engar áhyggjur - þú fœrð bestu merkin ítískuheiminum, tollfrjálst
um borð hjó okkur.