Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988. 23 Veiðivon Þurrfluguhnýtingar Ármenn hafa verið iðnir við félagsstarfið í vetur og hafa boðið upp á ýmislegt fyrir veiðimenn meðan beðið er eft- ir fyrstu veiðitúrunum. Lenn Bautista sýndi fyrir skömmu þurrfluguhnýtingar og var vel mætt. Á myndinni sést Lenn við iðju sina og Kolbeinn veiðikló Grímsson fylgist vel með handbrögðum hans. DV-mynd ÁÞS Veiðieyrað Veiðivoninsækirá Laxárfélagið með þá Orra Vigfús- son og Ingva Hrafn Jónsson yngstu menn líélt aðalfund norðan heiða fyrir skömmu og kom þar margt fróðlegt fram. En á svæði þeirra í Laxá í Aðaldal veiddust hvorki fleiri né færri en 1859 laxar og fluguna tóku 843, maðk 663 og spón og aðra gervibeitu 353. Frábær fluguveiði og best gaf Laxa blá 178, svo kom Bláa nunnan 92, Fox Fly og Hariy Mary með 61, Veiðivonin gaf 50 og Collie Dog 35. Það hefur vakið athygli hvað Veiðivonin sækir á í Laxá í Aðaldal, kannski verður hún efst eftir nokkur ár. Stærsta laxinn veiddi Ólafur Benediktsson, 24 punda hæng á maðk, en stærsta flugulaxinn veiddu þeir Sigmar og Ingólfur, 21 punda lax á Bl. Fox Silver í Hrúthólma. Meðal-' þyngdin var 10,8 pund sem er í góðu lagi. Draumurinn úti Draumur stangaveiðimanna um upptöku neta í Hvítá í Borgarfirði og víðar þar um slóðir hefur strandað í bili. Þrátt fyrir um 7 milljóna til- boð, eins og við greindum frá á sínum tíma, dugði það bændum alls ekki. 500 hundruð krónur fyrir kílóið af laxi, sem bændum var boðið. eru næstum tvöfalt markaðsverð. Ein- hverjum hefði þótt það gott. Það er á sumum að skilja þarna í Borgarflrðinum að netaveiðin sé svona skemmtileg og fræðandi, sérs- taklega fyrir unglinga. Það er eflaust fræðandi að segja ungu kynslóðinni frá hruni stórlaxanna í Norðurá í Borgarfirði, þar sem er hátíð núorðið ef sést lax yfir 20 pund? Fjörið að byrja Nokkur fjöldi veiðimanna er farinn að nota sér dorgveiðina á Geitabergs- vatni í Svínadal og hafa sumir fengið sæmilega veiði. Við heyrðum á ein- um sem fór þarna að nóg væri af fiski en hann væri frekar smár. Veiði- menn, sem renna þarna, geta fengið húsaskjól í veiðihúsi Stangaveiðifé- lags Reykjavíkur þarna við vatnið. Fínt að fá sér kaffi þar og ræða málin. -G.Bender hér á landi FORSTÖÐUMAÐUR Sumardvöl þroskaheftra barna Þroskahjálp á Vesturlandi auglýsir eftir forstöðu- manni fyrir sumardvöl þroskaheftra barna í Holti í Borgarhreppi í sumar. Umsóknarfrestur til 10. mars. Uppeldismenntun nauðsynleg. Upplýsingar veitir Einar Jónsson, Akranesi, sími 93-11211 (vinna) 11018 (heima). ÚTGERÐARMENN/SKIPSTJÓRAR Innköllun á reyköfunartækjum af gerðinni Fenzi 5000 Vegna galla sem komið hafa fram í reykköfunartækj- um af gerð Fenzi 5000 hefur Siglingamálastofnun ríkisins ákveðið að innkalla öll reykköfunartæki af þessari gerð til lagfæringar. Sá aðili sem annast þessar lagfæringar er Prófun hf., Fiskaslóö 119, Reykjavík, sími 91-26085, í samráði við umboðsaðila tækjanna hér á landi, Klif hf. Öllum hlutaðeigandi er bent á að hafa samband við fyrrgreinda aðila sem fyrst og á þessum lagfæringum aó vera lokið fyrir 1 5. apríl nk. Reykjavík 17. febrúar 1988 Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri. Viksund fiskibátar - 5 tonna, opnir. Þessir bátar eru afgreiddir allt frá því að vera plastklárir til þess að vera fullbún- ir, innréttaðir og með vél. - 9 tonna, dekkaðir. Þessir bátar njóta sívaxandi vinsælda meðal sjómanna sakir óvenju mikils stöðugleika og vandaðrar smíði. ÖRYGGI - GÆÐI - ÞJÓNUSTA NORSKIR FISKIBÁTAR -15 tonna, upplagður snurvoðarbátur - sannkall- að flaggskip. Þessi bátur er í nýrri, endurbættri gerð og kemur á markaðinn eftir breytingar á síðasta ári. Þessi bátur er tilvalinn fyrir þá sem þurfa að endurnýja úr t.d. gömlum 11—13 tonna trébátum. Við aðstoðum við allan pappírsfrágang varðandi fjármögnun og innflutning, svo og öflun tilboða í búnað og tæki. ATH. að umsóknarfrestur um lán úr Fiskveiða- sjóði er að renna út. MKSunn UMBOÐIÐ INGIMUNOUR MAGNÚSSON NÝBÝLAVEGI 22 % SÍMI43021 og 641275 EFTIR KL. 17.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.