Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Qupperneq 37
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988. 49 Arið 1981 féliu myndlistarverðtaunin í skaut myndhöggvaranum Sigurjóni Ólafssyni sem hér sést taka við „riddarakrossi“ Kolbrúnar Björgólfsdóttur úr hendf Aðalsteins Ingólfssonar listfræðings. í fyrra hlaut Óskar Gíslason kvikmyndaverðlaunin fyrir framlag sitt til islenskrar kvikmyndagerðar. Hér skálar hann við Hilmar Karlsson sem sat i dómnefnd vegna kvikmyndaverðlaunanna. Frá verðlaunahátíðinni 1979: Sverrir Hólmarsson afhendir Stefáni Baldurssyni leiklistarveróiaunin. aö biðja um laufaútspil. En jafnvel bestu áætlanir geta beðiö afhroð. í gegnum árin hafa sagnir norðurs þótt nokkuð traustar og jafnvel Zia hafði stuttu áður líkt þeim við Eng- landsbanka. Norður sá sér leik á borði til þess að stöðva laufaútspilið. Það var ljóst að suður hafði ekki hækkað í sex spaða með trompstuðn- ingi og því hlaut hann að eiga fyrstu fyrirstöður í báðum rauðu litunum. Sjö spaðar hlytu því að eiga góöa möguleika ef það tækist að stöðva laufaútspil. Zia féll því á sálfræðibragði norð- urs þótt vamaráætlun hans væri góðra gjalda verð. Bridgefélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 8. febrúar var haldið áfram með barómetertvímenning fé- lagsins og er staða efstu para þannig eftir tvö fyrstu kvöldin: 1. Hannes R. Jónsson - Þórarinn Sófusson, 114 stig. 2. Sigurður Sverrisson - Árni Bjarnason, 83 stig. 3. GuðniÞorsteinsson-SigurðurB. Þorsteinsson, 76 stig. 4. Ársæll Vignisson - Trausti Harð- arson, 75 stig. 5. BjörgvinVíglundsson-EinarSig- urðsson, 72 stig. 6. Óskar Karlsson - Þorsteinn Þor- steinsson, 65 stig. Bridge Stefán Guðjohnsen Bridgedeild Skagfirðinga Þegar tveggja kvölda spilamennska er eftir af yfirstandandi butler í Drangey í Síöumúla eru þessi pör efst: 1. Jón Þorvarðarson - Guðni Guðbjamarson 139 2. Ragnar Hjálmarsson - Haraldur Ragnarsson 120 3. Anton R. Gunnarsson - Hjördís Eyþórsdóttir 119 4. Sigmar Jónsson - Vilhjálmur Einarsson 111 5. Elísabet Jónsdóttir - Leifur Jóhannesson 111 (ÚI iFwal Febrúar- heftið komið út r 5D irmfl DV íþróttapistill • Margir keppendur á vetrarólympiuleíkunum i Kanada hafa komiö örmagna i mark en ekki sá islenski sem kom ekki skiðunum á keppnisstaö i tæka tíð. Sökin er þó varla öll skiðamannsins heldur forráöamanna ís- lenska liðsins. Símamynd Réuter Að gleyma skíðunum morgun gegn sovéskaliðinu CSKA Moskva, í Evrópukeppni meistara- liða. Víkingar hafa oft náð stórgóð- um úrslitum í Evrópuleikjum og því gæti allt gerst á morgun þó svo flestir reikni < með sigri gestanna. Víkingar sýndu sannkallaöan stjörnuleik gegn Fram á dögunum og það er ekkert „skúnkalið“ sem sigrar Framliöiö með 11 marka mun. Víkingar fengu hvarvetna mikiö hrós fyrir leik sinn og það var almennt álit leikmanna liösins eftir leikinn gegn Fram að Víkings- liðið heföi náð að sýna sinn besta leik f vetur. í einu blaðanna var þó sagt að leikurinn heföi verið lé- legur og fyrirsögnin var „Þvælu- leikur.“ Furðuskrif sem þessi áttu Víkingar ekki skilið og vonandi verður dómgreind og einbeiting leikmanna Islandsmeistaranna meiri á sunnudagskvöldið en blaðamannsins sem ura leik Vík- ings og Fram skrifaði. Deilur vegna dóms Nýlega var körfuknattleiksmað- urinn ívar Webster í Haukum dæmdur í leikbann til 1. apríl vegna atviks sem upp kom í leik Hauka og Breiðabliks í úrvalsdeildinni. Þá sló Webster andstæðing sinn í gólf- ið svo sá á honum. Webster fékk áminningu í héraðsdómi en eftir áfrýjun Blika var haim dæmdur í keppnisbann til 1. apríl. Forráða- menn körfuknattleiksdeildar Hauka skrifuðu langt bréf i eitt dagblaðanna á fimmtudag þar sem þeir furðuðu sig á þessmn dómi. Að mínu áliti var þessi dómur nokkuð harður en þó réttlátur að mörgu leyti. Engum hefði korniö á óvart þótt Webster hefði fengiö bann i 3-4 leiki. En aö sleppa hon- um alveg viö refsingu heföi veriö alveg út í hött þótt þaö liggi fyrir að Webster hafi eldd gert flugu mein frá þvi hann kom fyrst til Is- lands fyrir niu árum. Meö því heföi verið gefið hættulegt fordæmi og hver veit nema aö körfuknattleik- urinn heföi þá breyst í hnefaleika meö timanum. Stcfán Kristjánsson Það ætti ekki aö hafa fariö fram þjá einum eina9ta manni aö vetra- rólymþíuleikar standa nú yfir í Calgary í Kanada. Sjónvarpið hefur verið undirlagt af útsendingum frá leikunum og meira að segja frétta- tímar hafa orðið aö víkja fyrir útsendingum frá Calgary. Ogþegar þannig er málum komið er mælir- inn orðinn fullur að minu mati og nóg komið og meira en það. Vetraríþróttir hafa átt mjög litlu láni að fagna hér á landi og áhugi almennings í algeru lágmarki. Hér er ekki átt viö almenna útiveru fólks á skíðasvæðum og öðrum úti- vistarsvæðum heldur keppni í vetrariþróttum. Það kóm því eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar það var gjört kunnugt aö sjón- varpiö hygðist sýna frá leikunum í Kanada í 40 klukkustundir. Ekki hefði ég orðið ósáttur við þessa nið- urstööu sjónvarpsins ef fyrir hefði legið mikill áhugi almennings á vetraríþróttum og svo aðalatriðið í þessu öllu saraan, ef við hefðum sent snjalla íslenska keppendur á alþjóðlegan mælikvarða til lei- kanna. Þessu var ekki að heilsa og sjónvarpið hefur rækilega gert í buxur nar og hreinlega ofhoðiö fólki og það ekki í fyrsta skipti. Einar Vilhjálmsson gleymdi spjotinu heima og keppir Víkjum sögunni að íslensku keppendunum á ólympíuleikunum í Kanada. Ég hef áður látiö þá skoð- un í ljósi að viö eigum ekki að senda keppendur á mót eins og ólympíu- leika nema þeir geti náö sómasam- legum árangri. Með fullri viröingu fyrir íslendingunum þremur þá heföu þeir betur heima setiö en af staö farið að mínu mati. Og svo gat maður ekki annað en brosaö þegar þær Iréttir bárust að einn keppend- anna væri hættur við þátttöku vegna þess að skióin komust ekki til Calgary í tæka tið.Hræddur er ég um að heyrst heföi hijóð úr horni ef slíkt heföi hent íþrótta- menn í öörum íþróttagreinum. Hvað myndi fólk seg'a ef Einar okkar Vilþjálmsson spjótkastari heföi oröiö aö hætta við þátttöku á stórmóti vegna þess að hann heföi gleymt spjótinu heima og ekki get- aö æft sig fyrir mótið? Allt tal og afsakanir um að flugvélum hafi seinkað og því hafi skíöin komiö of seint til Calgary er léttvægt og afsakar ekki þetta furðulega atriði. Það er ekki óvæntur atburöur aö flugvélum seinki og varkárir menn gera ráð fyrir slíku. Verja átti fjármunum í aðra hluti Búiö er að verja hundruöum þús- unda 1 þátttöku íslendinga I ólympíuleikunum í Kanada. Þess- um miklu fjármunum heföi mátt verja til betri hluta. Til dæmis til þess að styrkja raunverulega af- reksmenn okkar 1 íþróttum sem búa sig undir sumarleikana í Seo- ul. Ég hef sagt það áður og segi þaö enn aö við eyðum alltof miklum peningum i of stóran hóp íþrótta- manna í stað þess að styrkja þá rausnarlega sem eitthvað geta. Hér á ég við spjótkastarana Einar Vil- hjálmsson og Sigurð Einarsson, júdókappann Bjama Friðriksson, sundmanninn Eðvarð Þór Eö- varðsson og svo auðvitað landsliðiö okkar í handknattleik. Þetta er sá hópur íþróttamanna sem á styrki skfiiö. Verðlaunahafinn veit ekkertennþá Enn er ekki búið að velja þann hóp íþróttamanna sem keppa á fyr- ir Islands hönd í Seoul. Handbolta- landsliöið er aö vísu ekki hægt aö veþa endanlega fyrr en í sumar en keppendur í einstaklingsgreinum á að velja einu ári fyrir ólympíu- leika. Þetta er ekki gert, einlrverra hluta vegna, og þvi eru afreksmenn okkar sem að framan eru taldir oft á vonarvölinni fiárhagslega. Bjami Friöriksson, sem vann til brons- verðlauna á síðustu ólympíuleik- um, sem frægt er orðiö, hefur ekki enn fengið aö vita hvort hann fær að keppa í Seoul eða ekki þó flestir reikni með því sem öruggum hlut. Sýna Vikingar annan „pvæiuieik“? Vfkingar leika sem kunnugt er á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.