Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Qupperneq 40
52
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
Lífsstm DV
Fjallaferðir:
Oft er þægilegra að vera á farartæki sem hæfir aðstæðum.
Það eru margir sem líta jeppaeig-
endur öfundaraugum á veturna. Þeir
geta brugðið sér út fyrir bæinn yfir
vetrartímann þrátt fyrir lélega færð.
En hvað geta þeir sem ekki eiga
jeppa tekið til bragðs ef þá langar til
að skella sér út fyrir borgarmörkin
þegar færð er slæm?
Einn möguleikinn er að leigja sér
jeppa til lengri eða skemmri ferða.
DV kannaði hjá nokkrum bílaieigum
hvort algengt væri að fólk nýtti sér
þessa þjónustu og hvað hún kostaði.
Við fengum þær upplýsingar hjá
bílaleigunum að ekki væri aigengt
að leigðir væru jeppar til einstakl-
inga sem ætluðu í stuttar ökuferðir.
AðaUeigjendur jeppa yfir vetrartím-
ann eru fyrirtæki sem eru að senda
fulltrúa sína út á land.
DV hafði samband viö Bílaleigu
Flugleiða, Bílaleigu Arnarflugs, Bíla-
leigu Akureyrar og bílaleiguna Geysi
og grennslaðist fyrir um leigu á slík-
um bílum. Fyrstur fyrir svörum varð
Baldur Ágústsson hjá Bílaleigu Ak-
ureyrar.
„Það er auðvitað algengt að jeppar
séu leigðir á veturna," sagði Baldur.
„Það er þó ekki mikið um að einstakl-
ingar taki svona bíla á leigu. Yflrleitt
eru það fyrirtæki og stofnanir sem
nýta sér þessa þjónustu. Það eru
mismunandi gerðir og flokkar á þess-
um farartækjum og jafnframt
mismunandi verð. Ódýrustu gerðir
eru leigðar á 2.500 kr. á dag ásamt
25 kr. gjaldi á hvern ekinn kílómetra.
Dýrustu tegundirnar eru á 3.313 kr.
á dag ásamt 33,10 kr. á hvern ekinn
kílómetra. Síðan erum við með helg-
artilboð á minni jeppunum þannig
að hægt er að fá jeppa fyrir 2.850 á
dag og inni í því er 100 km keyrsla.
Ef fólk kemur til okkar og vill fá
dýrari jeppa yfir helgi getum við
samið um verðið.“
Við spurðum hvernig jeppamir
væra útbúnir og svaraði Baldur því
að ef nota ætti jeppann utan Reykja-
víkur væri sett í hann skófla, keðjur
Ferðir
og tóg, við það væri að bæta að allir
jeppamir væru á snjó- og nagla-
dekkjum.
Hafsteinn Hasler hjá bílaleigunni
Geysi taldi fólk ekki nýta sér nóg
möguleikann á því aö fá leigða jeppa.
Hjá Geysi kostuðu minni bílarnir
1.975 kr. dagurinn, auk 19,75 kr. á
ekinn km, og stærri bílamir voru á
3.350 kr., auk 33,50 kr. á ekinn kíló-
metra.
„Ef fólk vill fá bílana yfir helgi gef-
um við 10-20% afslátt en afsláttur er
mismunandi eftir tegundum. Við
bjóðum viðskiptavinum okkar upp á
að leigja farsíma með bílnum og kost-
ar það 850 á dag, ásamt kostnaði af
símtölum þeirra. Við höfum orðið
varir við að fólki finnst töluvert ör-
yggi í þessu og tekur oft með sér
síma.“
Böðvar Þórisson hjá Bflaleigu
Flugleiða og Þorbjörn Gíslason hjá
Bílaleigu Arnarflugs höfðu svipaða
sögu að segja.
Flugleiðir eru bara með minnstu
jeppategundirnar og kostar 2.163 kr.
að leigja þá hvern dag, ásamt kíló-
metragjaldi sem er 21,63.
Bílaleiga Amarflugs er með sama
verð fyrir smærri bíla en stærri bílar
kosta 3.300 kr. á dag, auk 33 kr. á
hvem ekinn kílómetra.
-EG