Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1988, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1988, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 1988. Fréttir í dag mælir Dagfari Til skamms tíma þekkti íslenska þjóðin bara einn Sverri. Sá var Hermannsson og hefur verið bæði þingmaður og ráðherra og fór stundum eins og hvítur storm- sveipur um þingsali og fjárhirslur hins opinbera. Nú er kominn fram á sjónarsviðið nýr Sverrir sem kall- ar sig Stormsker. Stormurinn fylgir greinilega nafninu! Stefán stórsöngvari vildi kenna sig við foðurland sitt og hét Stefán íslandi. Sverrir Stormsker er ekki minni maður í listinni og kennir sig líka við ættjörðina. Stormsker er það, landið sem við búum í, bæði vegna þess að stormurinn fylgir þessu skeri okkar og eins vegna þess að persónur eins og þeir nafnamir fara báðar um líkt og hvítir stormsveipir og sjást ekki fyrir. Nú er Sverrir Stormsker búinn að slá í gegn. Hann hefur sigrað í söngvakeppni sjónvarpsins með laginu „Þú og þeir“. Þessir „þeir“ eru ljóðiö sem gerir þá fræga í ann- að sinn þegar Stormskerið er orðið að útflutningsvöru í beinni útsend- ingu. En þeir eiga fleira sameiginlegt, Sverrir Hermannsson og Sverrir Stormsker, heldur en hvíta storm- grín að hinum stjórnmálaflokkun- um með þeim árangri að þjóðin er farin að taka konumar alvarlega. Satt að segja er ekkert lát á stór- merkum uppgötvunum hér á landi. Verkalýðshreyfingin er búin að uppgötva að hún semur betur af sér ef hún semur fyrir austan eða norðan. Eyjólfur Konráð er búinn að uggötva að íslendingar eigi til- kall til Atlantshafsins og veröur reiður þegar Bretar nenna ekki að tala lengur við hann um þessa út- þenslustefnu sína. íslendingar eru búnir að uppgötva að þeim hefur áskotnast gardínutappaverksmiðja og kantlímingarfabríka sem geta framleitt gardínutappa og kanthm- ingar fyrir samanlagöa heims- byggðina. Og Steingrímur býðst til að tala við Arafat og það án þess að honum stökkvi bros. Við emm miklir húmoristar, íslendingar. Það er ekki nema von að Sverrir Stormsker sé vinsælasti maður þjóðar sem hefur húmor fyrir öllu þessu gríni og tekur það alvarlega. Það er svo sannarlega kominn tími til að útlendingar fái að kynnast þessari gamansömu þjóð sem tekur Sverri Stormsker alvarlega og ger- ir hann að útflutningsvöru. Dagfari Sverrir Stormsker sveipinn. Þá skortir hvomgan sjálfstraust ef marka má ummæh sigurvegarans á stóru stundinni. Hann þakkar þjóðinni fyrir að hafa greind til að átta sig á að lagið hans bar af öðrum. Hann segist hengja sig ef lagið komist ekki í efstu tíu sætin í úrslitakeppninni. Sverrir Stormsker er jafnvel búinn að tiln- efna heppilegan staö fyrir úrshtin í Evrópukeppninni á næsta ári þeg- ar ísland hefur sigrað. Hann leggur til að félagsheimiUð í Kjós verði notað. Það er aUt í lagi með þennan strák. Hann hefur verið að gera grín að íslendingum síðustu árin með mgluðum lögum og rugluðum textum og sú spuming hefur stund- um vaknað hvort hann nái laginu. Nú hefur honum tekist að láta ís- lendinga taka sig alvarlega og samið fyrir þá lag og texta sem verður framlag þjóðarinnar til menningarinnar sem nú rís hvað hæst í hinum siömenntaða heimi. Og segist vera uppgötvaður. Með því að taka Stormskerið há- tíðlega og uppgötva hann mun okkur væntanlega takast að gera sama grín að Evrópukeppninni eins og Stormskerið hefur verið að gera grín að okkur. Og jafnvel þótt þetta sé alveg óvart vegna þess aö önnur lög í sjónvarpskeppninni vom of léleg til að hægt væri að velja þau gerir það ekki til meðan Sverrir gerir grín að okkur og við getum gert grín aö hinum. í raun- inni fer þetta að verða bráðfyndið og enginn vafi er á aö útlendingum mun finnast þetta bráðfyndið líka því textinn í laginu er auðskiUnn og alþjóðlegur fyrir utan Jónas HaUgrímsson og Jón Pál. En hvað gerir maður ekki fyrir rímið? Já, íslendingar hafa bæði húmor og greind. Fyrir utan það aö upp- •götva Sverri Stormsker hafa ís- lenskir kjósendur uppgötvað KvennaUstann sem er nú orðinn hæstur í skoðanakönnunum af því að konurnar hafa verið að gera Stöð 2: Kvartað yfir of litlum sendistyrk Styrkur útsendinga Stöðvar 2, í Reykjavík og úti á landi, virðist sums staðar vera of lítill. Athuga- semdir um slæm móttökuskilyrði hafa aðaUega borist frá áhorfend- um stöðvarinnar á Húsavík, Sauðárkróki og ísafirði en einnig hefur borið á lélegum skilyrðum í Þingholtunum í Reykjavík. Sighvatur Blöndal, fram- kvæmdastjóri markaðssviðs Stöðv- ar 2, sagði í samtali við DV að hvergi væri um alvarlegt vandamál að ræða. í Reykjavík er sendistyrk- ur nægur og oftast er hægt að leysa málin þar með því að hækka loft- net. Hins vegar ætlar Stöð 2 að kanna á næstu vikum hvort eitt- hvað er hæft í þeim kvörtunum sem borist hafa utan af landi. Það yrði gert um leið og sendingarskU- yrði um aUt land verði skoðuð vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar dreifikerfis stöðvarinnar. Stöð 2 æth á næstunni að setja upp nýja senda úti á landsbyggðinni til aö bæta helstu þéttbýliskjömum sem ekki ná stöðinni inn á dreifikerfi sitt. Sighvatur sagði Póst og síma þeg- ar hafa mælt sendistyrk stöðvar- innar á Sauðárkróki og reyndist hann nægur. Stöð 2 ætlar nú að mæla styrkinn aftur tíl að fuUvissa sig um í hveiju vandamáUð Uggur, hvort eitthvað er að sendibúnaði stöðvarinnar eða móttökubúnaði fólksins. Búist er viö að athugun- inni verði lokið eftir tvær tU þrjár vikur. -JBj Skoðanakönnun DV meðal Reykvíkinga: Andstæðingar ráð- húss meria vinninginn Andstæðingar fyrirhugaðrar ráðhúsbyggingar við Tjömina rétt mörðu vinninginn í skoðanakönn- un sem DV gerði meðal Reykvík- inga um síðustu helgi. Spurt var: Ertu fylgjandi eða andvígur fyrir- huguðu ráðhúsi við Tjömina? Fylgjandi þessari ráðhúsbyggingu voru 40,5 prósent en 45,3 prósent andvíg. 10,3 prósent vom óákveðin og 3,9 prósent vUdu ekki svara spumingúnni. Þetta þýðir, að af þeim, sem tóku afstöðu, vom 47,2 prósent fylgjandi ráðhúsinu en 52,8 prósent andvíg. Spurðir voru 232 kjósendur í Reykjavík. Úrtakið er því lítið og munurinn svo lítíll að umdeilan- legt er, hvort hann er marktækur. Meirihluti karla var fylgjandi ráðhúsbyggingunni, en talsveröur meirihluti kvenna var andvígur, og réð það úrslitum. DV spurði landsmenn sömu spumingar í könnun síðastliðið Ummæli folks í könnuninni Kona sagðist vera á móti ráð- húsi ef það ætti aö vera við Ijörnina. Karl sagði, að þetta væri of núkiö bmðl. Kona sagði, aö Davíð Oddsson hlyti að geta fundið sér eitthvað betra. Karl sagöi, aö ráðhús mætti vera við Tjömina. Kona sagði, að nær væri að nota þetta fjármagn tíl að bjarga sjúkrahúsunum. Kona sagði, að ráðhúsiö væri best kom- iö við Tjömina. Kona sagöi ráöhúsið eiga að vera við Korp- úlfsstaði. Karl sagði,.að húsið yrði Ijótt. Annar sagöist með- mæltur ráðhúsi við Tjörnina enda væri máliö sér skylt Karl sagði það vera náttúruspjöll aö sefja þetta flikki við Tjömina. Kaii sagði, að ráðhúsbyggingin yrði falleg. -HH haust, og reyndust þá um 60 pró- sent þeirra, sem afstöðu tóku, andvig ráðhúsinu. En vel að merkja náði sú könnun tíl landsins áUs. -HH Reykvíkinga greinir mjög á um ráðhúsbygginguna. Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar: Fylgjandi ráðhúsbyggingunni 94 eða 40,5% Andvígir 105 eða 45,3% Óákveðnir 24 eða 10,3% Svara ekki 9 eða 3,9% Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar þessar: Fylgjandi 47,2% Andvígir 52,8% • Þakið á skemmunni þoldi ekki snjóþyngslin og lét undan. DV-mynd Ægir Mikill snjór og þakið féll Ægir Kristínsson, DV, Fáskrúðsfirði: MikUl spjór hefur verið á Fá- skrúðsfiröi í vetur - sá mesti um árabU. Víða hefur honum verið ekið í sjóinn af götunum þar sem snjó- skaflarnir hafa gert bílstjómm erfitt fyrir. Þak á einni skemmu PólarsUdar þoldi ekki snjófargið og brast irndan þunganum - féU niður svo smíða þarf nýtt þak og er tjónið töluvert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.