Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1988, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1988, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 1988. 29 Lífestfll Hægt er að fá tugi tegunda af sumarbústöðum í teiknipakka. Sumarbústaöur á 11 þús- und krónur fermetrinn Fyrir þá sem vilja byggja sumarbú- stað sinn sjálfir er hentugt að kaupa sér teikningar að sumarbú- stað og vinna eftir þeim. Þaö ætti í öllu falli að vera töluvert ódýrara en að kaupa tilbúinn bústað. Sé fólk laghent, örlítið útsjónarsamt og hefur tíma aflögu er ekkert því til fyrirstöðu að reisa sér hús, byggt meðeiginhendi. Fáir hafa næga þekkingu til þess að byggja og hanna samþykkt sum- arhús upp á eigin spýtur. Það verður því að leita eitthvað annaö til þess að fá í það minnsta teikn- ingu að húsi sem nokkurn veginn fellur að hugmyndum tilvonandi sumarbústaðareiganda. Þetta hef- ur tíðkast hér á landi um langa hríð. Hægt er að velja um 30-40 tegund- ir af teikningum að bústöðum frá 33 m2 og upp í 60 m2 að stærð. Verð fyrir slíkar teikningar er á bihnu 14.000 kr. og upp í 26.000 kr. og er þá um að ræða teikningu að 60 m2 bústað með svefnlofti og tilheyr- andi. Innihald teiknipakka í svokölluðum teiknipakka felst Heimilið Með teiknipökkum fylgja skýringarteikningar með efnislistum. Þar sjást efnishlutar i sumarhús þannig að betra er að átta sig á hvar hver hlutur á að vera. Þessi sumarbústaður er i Öndverðarnesi, í landi múrara. Hægt er að byggja svona bústað eftir teiknipakka á aðeins 7 dögum miðað við tvo röska menn þannig að húsiö sé fokhelt. Veröið náði 1.300 þús. kr. fyrst og fremst byggingamefndar- teikning sem sýnir útlit hússins, snið þess og grunnteikningu með málum. Þær eru lagðar fyrir stjórn þess sveitarfélags, þar sem húsið skal rísa, til samþykktar. Efníslisti og vinnuteikningar Allt efni, sem er í efnislistum, er hægt að forvinna. Komi húsbyggj- andi með lista og útmældar stærðir til efnissala er mjög handhægt að taka saman efni og semja síðan um verð og greiðsluskilmála. Vinnuteikningar sýna húsið í smáatriöum. Á þeim sést tilhögun jarðvegsvinnu, sökklar, gólf, grind- ur, gluggar, sperrur, milliveggir, ytra byrði og hvers konar samsetn- ingar. Að síðustu fylgir með vörunúm- eralisti þar sem vömr þær, sem þarf að útvega í húsið, em til- greindar. Á þessum lista er gott að gera sér grein fyrir hvaö efni í bú- staöinnkostar. Hægt aö leita tilboða í efni og vinnu Sé þess óskaö að fá tilboð í smíð- ina liggja öll gögn þar að lútandi frammi, s.s. teikning, efnismagn, útboðslýsing og verksamningur. Ekki ætti að vera neitt tiltökumál að fá smiði sem taka verkið að sér. Að sögn þeirra sem til þekkja er oft talað um að verð fyrir vinnu smiðs viö verk sem þetta kosti álíka og efnið kostar. Þá er talað um aö verð fyrir 50 m2 sumarbústaö geti orðið um 1,2-1,3 milljónir. Þetta er fyrir utan verö á lóð sem oft er hægt að leigja í 20-30 ár eða aö kaupa kannski fyrir 100-300 þús. kr., svo einhveijar hugmyndir séu gefnar. -ÓTT. «C

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.