Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1988. Fréttir Afskipti Ingva Hvafhs af launamálum starfsmanna undirrótin: „Fékk hótunarbréf þar sem ég var sakaður um vanrækslu í starfi“ - segir Ingvi Hrafh sem segist ekki vera að hætta hjá sjónvarpinu „Ég fékk hótunarbréf frá aðstoð- arframkvæmdastjóranum þar sem mér var sagt að ef ég léti ekki af stuðningi mínum við fréttamenn í kjarabaráttu þeirra þá yrði litið svo á að ég sem opinber starfsmaður væri sekur um vanrækslu í starfi sem þýðir auðvitað ekkert annað en brottrekstur,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri sjónvarpsins, í samtali við DV í gær. Ingvi Hrafn sagði að þetta hefði verið sá dropi sem fyllt hefði mælinn og því hefði hann látið ummæli sín um aðstoð- arframkvæmdastjórann, Ingimar Ingimarsson, flakka í Nýju lífi. Ingvi Hrafn sagði að óþolandi ástand væri í kjaradeilu frétta- manna og sjónvarpsins og eitraði þessi deila allt andrúmsloft. Hann hefði séð sig knúinn til að taka af- stöðu með sínu fólki enda kröfur fréttamanna réttmætar. Kröfurnar lúta að greiðslum fyrir það sem fréttamenn vinna sem verktakar, s.s. Kastljósþætti og fréttalestur. „Ég hef sagt að ég láti ekki reka mig fyrir að taka afstöðu með mínu fólki enua eru fréttamenn gróflega hýrudregnir. Þeir hafa verið sviptir samningum þannig að þeir hafa fengið sér lögfræðing í samvinnu við BHM til að undirbúa aðgerðir til að ná rétti sínum. Þetta eru vinnubrögð sem eru ekki mönnum bjóðandi, áminningarbréf til starfs- manna hanga upp um alla veggi en það er verk aðstoðarframkvæmda- stjórans. Þetta sýnir andann.“ Ingvi Hrafn bætti því við að hann vissi ekki til þess að hann væri að hætta hjá sjónvarpinu. Hann væri á leiöinni til Akureyrar yfir pásk- ana til aö renna sér á skíðum með fjölskyldunni en ljóst væri að allir aðilar biðu heimkomu útvarps- stjóra vegna framhalds málsins. -SMJ EskHjörður: Hörkusala Hölmatinds Emil 'niDrarensen, DV, Eskifiröi: Skuttogarinn Hólmatindur SU frá Eskifirði seldi 147,5 tonn af ýsuðum fiski í Hull í gær. Mjög gott verð fékkst fyrir aflann, alls 12,6 milljónir eða 85,58 kr. fyrir kílóið. Uppistaða aflans var þorskur. Að sögn Péturs Bjömssonar, um- boðsmanns í Hull, eru það einkum þrjár ástæður sem valda þessu góöa verði. í fyrsta lagi fremur lítið fram- boð á markaðnum frá öðrum stööum, svo sem írlandi, Eystrasaltslöndun- um og úr Norðursjó, þar sem veður þar hefur verið óhagstætt og bátar lítið á sjó. í öðru lagi páskavikan fram undan og því yfirleitt mikil fisk- neysla og eftirspurn eftir fiski. í þriðja lagi hefðu gæði aflans verið mjög mikil og túrinn stuttur hjá tog- aranum. Vilhjálmur Vilhjálmsson hjá LÍU sagði að verð á breska markaðinum hefði verið gott í janúar og framan af febrúar en síðan hefði það lækkaö og á tímabili hefði meðalverð á gáma- fiski verið komið niður í 56 til 62 krónur. Hásetahlutur í túrnum gerir 130 þúsund krónur. Skipstjóri á Hólmatindi í þessari veiðiferð var Sturlaugur Stefánsson. Það er ekki bara í Reykjavík sem vandræði eru að finna bílastæði. í miðbæ Akureyrar er oft þröng á þingi og þessi mynd, sem tek- in var í Hafnarstræti, sýnir það vel. DV-mynd gk-Akureyri Mývatnssveít: Fjölmennt bridgemót Rnnur Baldurasan, DV, Mývatnssveit Steingríms-mótið í bridge var hald- ið í félagsheimilinu Skjólbrekku um daginn og var spilað fiögur fimmtu- dagskvöld. Mótið var haldið til minningar um Steingrím Jóhannes- son á Grímsstöðum í Mývatnssveit, sem lést 1986, en hann var mikill bridgespilari. 40 manns tók þátt í mótinu en þetta var tvímennings- keppni og voru þeir yngstu 13 ára en sá elsti, Jón Pétur Þorsteinsson, 80 ára, en hann var lengi makker Stein- gríms heitins. Aðeins ein kona var þátttakandi. Gústav Nilsson gaf bik- ar til keppninnar og verður aftur keppt um hann næstu þijú ár en síð- an fer bikarinn til varðveislu hjá bridgefélaginu. Úrslit urðu sem hér segir: 1. Egill Freysteinsson Jón Aðalsteinsson...........344 2. Kristján Yngvason Sveinn Helgason.............324 3. Gústav Nilsson Björn Ingvarsson............320 4. Ármann Pétursson GunnarJónsson...............316 5. Haukur Aðalgeirsson Ragnar Sigfinnsson..........309 Þetta var fjölmennásta bridgemót í langan tíma hér í sveit. Síðan er búið eitt kvöld í þriggja kvölda einmenn- ingskeppni í Skjólbrekku og er þátttaka einnig ágæt í þeirri keppni. Menningarvaka Suðurnesja Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum Þessi þrjú sýna myndverk í Fjöl- brautaskóla Suöurnesja á menning- arvökunni sem nú stendur yfir hér syðra. í miðið er Erlingur Jónsson sem kom alla leið frá Noregi til að halda sýningu á skúlptúr- og högg- myndum sínum. Halla Haraldsdóttir, til hægri, sýnir olíumálverk og gler- verk en Ásta Pálsdóttir sýnir vatns- litamyndir. Menningarvakan stendur fram yfir páska. DV-mynd Ægir Már Krítarálag til kennara Kennarar hafa verið með hávaða í vetur og krafist hærri launa og ýmissa annarra kjarabóta. Eftir lýsingum sumra forystumanna þeirra eru fá störf erfiðari né ábyrgðarmeiri hérlendis en að kenna börnum að draga til stafs svo ekki sé nú minnst á það ofurmann- lega átak sem þarf til að geta annast kennslu þegar ofar dregur í skóla- kerfinu. Hins vegar vill svo hlálega til áð kennarar hafa ekki numið ákvæði kjarasamninga betur en svo að þeir vita ekki hvort þeir hafa samþykkt aö fara í boðuð verkföll eða ekki. Þegar efnt var til atkvæöagreiðslu meðal kennara um hvort veita skyldi forystunni heimild til verkfafisboöunar litu verkfallssinnar svo á aö farið hefði fram atkvæðagreiðsla um aö ijúka í verkfall. Þetta þótti Indriða H., formanni samninganefndar ríkis- ins, skrítin túlkun og þárf nú félagsdómur að skera úr um það um hvað Kennarasamband íslands var að greiöa atkvæði á dögunum. Þá tekur ekki betra við þegar kem- ur að atkvæðagreiðslu Hins ís- lenska kennarafélags. Þar var þó ákveðið að atkvæðagreiðslan skyldi vera hrein og bein: Verkfall eða ekki verkfaU. Þar urðu úrslit þau að verkfallssinnar reyndust aðeins tveimur fleiri en þeir sem ekki vildu verkfall. Hins vegar skil- uðu 60 kennarar auðu. Meirihlut- inn vill verkfall, sagði forystan kotroskin, en þá kemur Indriöi H. aftur til skjalanna og bendir á aö meirihluti þeirra sem tók þátt í at- kvæðagreiðslunni hafi ekki greitt atkvæði með verkfalli. Mál þetta er orðið allt hið skemmtilegasta fyrir okkur sem stöndum hjá og fylgjumst með. Staðreyndin virðist vera sú að kennarar skilja ekki kjarasamninga sem þeir hafa sjálf- ir átt þátt í að semja og skrifa undir. Við skulum bara vona að þeir hafi betri skilning á námsefn- inu sem þeir eru aö reyna aö miðla til nemendanna. Hins vegar halda sumir foreldrar barna á grunn- skólaaldri því fram, að sum námsgögn, sem börnin fá, séu svo torskilin að aðstoð við heimanám sé útilokuð nema þá helst hvað varðar margfóldunartöfluna sem viröist hafa fengið aö haldast óbreytt að mestu. Þegar kemur út í flóknari reikning lítur út fyrir að kennarar séu ekki aflögufærir hvað kunnáttu varðar. A.m.k. þykja þaö almennt ekki léleg kjör þegar meðallaun kennara í des- embermánuði síðastliðnum reynd- ust vera 125 þúsund krónur. Og vinnuálagið er nú ekki meira en svo að kennara með fulla kennslu- skyldu er þrælað til aö kenna 35 stundir á viku í 26 vikur á ári. Þaö er ekki furða þótt kennurum gangi illa aö troða þvi inn í allan almenn- ing að þeir séu láglaunahópur. Engu að síður veröur auðvitað aö taka tillit til sérstöðu kennara. Þessi stétt hefur til dæmis komist að þeirri niðurstöðu að óheppilegt sé að vera á Evuklæðum við störf og ber að virða það sjónarmið, ekki síst barnanna vegna. Kennarar fara því fram á að fá greitt sérstakt fatagjald fyrir aö vera ekki strípað- ir við kennsluna. Þessa kröfu ber að taka til greina og samþykkja aö hver skóli láti skreðarasauma fót á alla kennara. Þessi fót verða auö- vitað eign ríkisins og má ekki nota nema þegar kennarar eru að störf- um. Þeir verða því að mæta til vinnu í eigin fatnaði en skipta svo yfir í ríkisfótin áöur en starfið hefst á morgnana. Vera má að nauösyn- legt reynist að byggja sérstaka búningsklefa fyrir kennara vegna þess arna en óþarfi að horfa í þann kostnað. Sömuleiðis er fyllsta ástæða að athuga kröfu kennara um sérstakt krítarálag. Það vita allir sem reynt hafa að það er tals- vert erfiði fólgið í því að skrifa meö krít á töflu, auk þess sem krítin vill loða við hendur sem kostar það að kennarar þurfa að þvo sér næst- um því jafnoft ’og tannlæknar. Dagfari vill að sérkröfur sem þess- ar verði teknar til alvarlegrar athugunar í íjármálaráðuneytinu því hver yrði framtíö barna okkar í höndum nakinna, krítarlausra kennara? Þá kemur einnig til greina að ríkið greiði nokkra upp- hæð í styrki til þeirra kennara sem vildu kynna sér ákvæði kjara- samninga sem þeir hafa samþykkt. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.