Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1988.
5
Fréttir
Atvmnuleit fyrir fatlaða
- hafín á Norðuriandi eystra
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Jú, ég tel þörfina fyrir þessa aö-
stoö viö fatlað fólk vera fyrir hendi,“
segir Inga Magnúsdóttir en hún hef-
ur verið ráðin atvinnuleitarfulltrúi
fyrir fatlaða í Norðurlandskjördæmi
eystra, með aðsetur á Akureyri.
í samtali við DV sagði Inga að starf-
semin myndi hefjast strax eftir páska
en Inga vinnur í samvinnu við Bjarg
og Iðjulund á Akureyri og svæðis-
stjóm fatlaðra á Norðurlandi eystra.
„Ég geri mér grein fyrir því að starf
mitt byggist aö verulegu leyti upp á
því að góð samvinna takist við vinnu-
Inga Magnúsdóttir, atvinnuleitarfull-
trúi á Norðurlandi eystra, á skrifstofu
sinni á Akureyri.
veitendur. Því vænti ég þess að ég
muni mæta skilningi þeirra þegar ég
fer á þeirra fund og kynni þeim þetta
verkefni. Það starf, sem ég vinn, felst
í því að koma fötluðu fólki út á hinn
almenna vinnumarkað, bæði í formi
starfsþjálfunar og endurhæfingar, og
að þetta fólk geti náð fótfestu á
vinnumarkaðinum. ‘ ‘
Inga sagði að bara á Akureyri væru
sennilega um 100 manns sem þyrfti
á þessari aðstoð að halda. Hún hefur
aðstööu á skrifstofu Félagsmála-
stofnunar að Strandgötu 19 og veitir
þar allar upplýsingar.
Alþjóðlegt skákmót í Okham í Engíandi:
Jón L. og Þröstur
unnu í fyrstu umferð
- en Hannes Hlífar gerði jafhtefli
Jón L. Ámason, DV, Okham:
Þrír íslenskir skákmenn taka nú
þátt í opnu alþjóðlegu skákmóti í
Okham í Englandi. Þetta eru þeir Jón
L. Árnason stórmeistari, Þröstur
Þórhallsson, alþjóðlegur meistari, og
Hannes Hlífar Stefánsson, heims-
meistari unglinga. Þeir Jón L. og
Þröstur unnu sínar skákir í fyrstu
umferð mótsins en Hannes Hlífar
gerði jafntefli.
Jón L. sigraði Bretann Agnos en
Þröstur sigraði van Wiants frá Lúx-
emburg, Hannes gerði jafntefli viö
Frakkann Patrat.
Meðal þátttakenda á mótinu eru
fimm stórmeistarar. Þeir eru Jón L.
Árnason, Sokolov, nýbakaður Júgó-
slavíumeistari, Sovétmennirnir
Boris Gelfand, núverandi Evrópu-
meistari unglinga, og Svetlana
Matvejevu, heimsmeistari kvenna 20
ára og yngri, og svo tékkneska stúlk-
an Ildiko Madl, yngsti kvenstór-
meistari í heimi.
A'lls taka 52 skákmenn frá 22 þjóð-
löndum þátt í mótinu. Tefldar verða
9 umferöir eftir Monrad-kerfi. Mót-
inu lýkur 5. apríl.
UNICORN
fyrir
pflukastarann
Eigum hinar heimsþekktu og
vönduðu UNICORN pílur og
skífur í miklu úrvali. Færustu
pílukastarar nota að sjálfsögðu
UNICORN.
Útsölustaðir:
Billiardbúðin Ármúla 15,
Sportval Hlemmi,
Sportval Kringlunni,
Bikarinn Skólavörðustíg 14,
Sportvöruverslun Kópavogs,
Sportgallerí Hafnarfirði,
Akrasport Akranesi,
Reiðhjólaverkstæði
MJ. Keflavík.
unicorn
Þú hittir beint í mark með
UNICORN.
BILUARDBUÐIN
Ármúla 15, Reykjavík, sími 33380
Eitt umslag
..engin bið!
Starfsfólk Útvegsbankans segir biðröðum stríð á hendur!
Þú færð þér umslag og lætur reikningana þína í það.
Þú skilar umslaginu í næstu afgreiðslu bankans.
Við greiðum og millifærum samdægurs.
Þú færð síðan kvittanirnar sendar heim í pósti.
Komdu og kynntu þér málið.
Sóaðu ekki lengur tíma þínum í biðraðir.
Þú getur gengið frá umslaginu heima.
Það borgar sig að skipta við Útvegsbankann!
WKISU
USTAiST
"fZ/rí/í/íM-tí ssré-rs
* uivscsiuwaíss
'aBá5ESS2S8-.:-—«öi
?3Sgsa»
•r'.s&jieá 4A í .l***W!ÍÍ liwirriiiiÉilKi i. '
“W*®*** • “ Bisumtt C-M w, vT
fól~V ,
ap Utvegsbanki Islandshf
Nnrwrifi
►VS LRí-