Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1988.
Fréttir
Kvennsigurvegarar
voru frá fjórum löndum
Innandyra i Simmonscourt sýning-
arhöllinni er fátt þessa stundina sem
minnir á glæsilegan tónleikasal fyrir
Eurovisionkeppnina. En nú er unnið
að því að koma upp sviði og tækni-
búnaöi.
DV-mynd Reuter
íþróttadeild hestamannafélagsins
Fáks hélt vetraruppákomu hina
síöari laugardaginn 26. mars síð-
astliðinn. Þátttaka var töluverð
enda veðurblíða með eindæmum.
Keppt var í tölti og 150 metra skeiði.
Töltkeppninni var skipt niður í
karla- , kvenna- , barna- og ungl-
ingaflokk og skeiðinu í karla- og
kvennaflokk.
Ellefu konur mættu með fáka
sína í töltkeppnina. Sigríður Bene-
diktsdóttir varð í 1. sæti með
Árvakur, Jenny Mandal varð önn-
ur á Þyt, Sólveig Ásgeirsdóttir
þriðja með Neista, Maaike Berg-
grafer fjórða með Skugga og
Guðbjörg Kristinsdóttir fimmta
með Óð. í karlaflokki stóð efstur
Sævar Haraldsson með Kjarna,
Hreggviður Eyvindsson var annar
með Bessa, Þórður Þorgeirsson
þriðji með Ringó, Hinrik Bragason
fjórði meö Glókoll og Hafliði Hafl-
dórsson fimmti með Fák. í ungl-
ingaflokki stóð efstur Ólafur
Jónsson með Soldán, Ingibjörg
Guðmundsdóttir var önnur með
Dropa, Álfur Þráinsson var þriðji
með Rökkva, Svanur Þorvaldsson
flófði með Kolskegg og Skorri
Steingrímsson fimmti með Púkka.
í barnaflokki stóð efstur Róbert
Petersen með Rút, Jón Þorbergsson
var annar meö Sörla, Erla B. Theó-
dórsdóttir var þriðja með Rúbín,
Sigurður Vignir Matthíasson íjórði
með Greiða og Gísli Geir Gylfason
fimmti með Storm.
Þrír lágu hjá konunum
Framvegis verður ekki aldurs-
greining í 150 metra skeiði þannig
að allir fákar hafa jafnan rétt til
keppni í þeirri grein. Að þessu
sinni sigraði í flokki skeiðhesta
með karlknapa Börkur, sem Tómas
Ragnarsson sat, og rann Börkur
skeiðið á 14,7 sekúndum. Frábær
tími á þessum tíma árs. Snarfari
var annar á 15,6 sekúndum og var
knapi Sigurbjöm Bárðarson.
Hruggnir var þriðji á 15,9 sekúnd-
um og var knapinn Ragnar Hin-
riksson. Fimm konur tóku þátt í
150 metra skeiðkeppninni og lágu
þrír hestanna. Funi sigraði á 18,5
sekúndum. Knapi var Jenny
Mandal. Mjöll var önnur á 20,5 sek-
úndum og var knapi Edda Rún
Ragnarsdóttir. Þór var þriðji á 21,0
sekúndum og var knapinn Barbara
Meyer. Það er athyglisvert að
kvenknapar komu frá fjórum lönd-
um. Jenny Mandal er frá Sviþjóð,
Maaike Berggrafer frá Hollandi,
Barbara Meyer frá Þýskalandi en
aðrir sigurvegarar íslenskir.
Sigurvegarar í töltkeppni kvenna. Frá vinstri talið: Sigriður Benedikts-
dóttir, Jenny Mandal, Maaike Berggrafer, Sólveig Ásgeirsdóttir og
Guðbjörg Kristinsdóttir. DV-mynd E.J.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verður haldin i þessari sýningarhöll, Simmonscourt sýningarhöllinni,
þann 30. apríl næstkomandi í Dublin.
DV-mynd Reuter
Söngvakeppnin
í sýnmgaihöl
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva fer fram í Simmons-
court sýningarhöllinni í Dublin þann
30. apríl næstkomandi. Ekkert stórt
tónleikahús er í borginni og hafa írar
því þurft aö grípa til þess ráðs að
setja sýningarhöllina í hlutverk tón-
leikahallar.
Húsið er ekki ýkja stórt en sjálft
keppniskvöldið munu um 1400 áhorf-
endur geta fylgst með keppninni í
húsinu. Hins vegar munu um 200
milljónir manna um allan heim fylgj-
ast með beinni útsendingu frá
keppninni.
Undirbúningsvinna innandyra er
hafin og er nú unnið að þvi að koma
upp sviði, tæknibúnaði o.fl. sem
reynist nauðsynlegt í keppninni svo
þeir Sverrir Stormsker og Stefán
Hilmarsson ásamt öðrum keppend-
um geti sýnt heimsbyggðinni hvað í
þeim býr.
-JBj
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 19 20 Ib.Ab
Sparireikningar
3ja mán. uppsógn 19 23 Ab.Sb
6 mán. uppsogn 20 25 Ab
12mán.uppsogn 21 28 Ab
18mán. uppsogn 32 lb
Tékkareikningar, alm. 8 12 Sb
Sértékkareiknmgar 9-23 Ab
Innlán verötryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsogn 2 Allir
6mán. uppsogn 3.5 4 Ab.Úb, Lb.Vb, Bb.Sp
Innlánmeð sérkjörum 19 28 Lb.Sb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 5,75-7 Vb.Sb
Sterlingspund 7.75-8.25 Úb
Vestur-þýskmork 2-3 Ab
. Danskarkrónur 7,75-9 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) ' lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv) 29,5-32 Sp
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 31-35 Sp
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Alhr
Hlaupareikningar(yfirdr) 32.5-36 Sp
Utlán verötryggö
Skuldabréf 9.5-9.75 Allir nema Ub
Útlán til framleiöslu
Isl. krónur 30.5 34 Bb
SDR 7.75-8.25 Lb.Bb. Sb
Bandarikjadalir 8.75-9.5 Lb.Bb. Sb.Sp
Sterlingspund 11-11.5 Úb.Bb, Sb.Sp
Vestur-þýsk mörk 5-5,75 Ub
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 45.6 3.8 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverðtr. feb. 88 35,6
Verðtr. feb. 88 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala mars 1968stig
Byggingavísitala mars 343 stig
Byggingavisitala mars 107,3stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 9% . jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávoxtunarbréf 1.4803
Einingabréf 1 2,670
Einingabréf 2 1,555
Einingabréf 3 1.688
Fjölþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1.0295
Kjarabréf 2,725
Lífeyrisbréf 1 342
Markbréf 1.417
Sjóðsbréf 1 1,253
Sjóðsbréf 2 1,365
Tekjubréf. 1.391
Rekstrarbréf 1.06086
HLUTABRÉF
Soluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 128 kr.
Eimskip 420 kr.
Flugleiðir 284 kr.
Hampiðjan 144 kr.
Iðnaðarbankinn 177 kr.
Skagstrendingur hf. 189kr.
Verslunarbankinn 140kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavlxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Áb = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= lönaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nónari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast I DV á fimmtudögum.
Áhuginn snýr að
hugmyndasmíð
Nafn: Hafsteinn Ólafsson
Aldur: 58 ára
Staða: Byggingameistari
„Ég hef alltaf verið uppfullur
af því að framkvæma eitthvað
sem aðrir hafa ekki gert,“ segir
Hafsteinn Ólafsson bygginga-
meistari sem vakið hefur mikla
athygli fyrir að eiga hugmyndina
aö einu nýstárlegasta húsi sem
fram hefur komiö hér á landi í
áraraðir. Hús þetta er tvöfalt,
eins og margir vita, þ.e.a.s. hús
með öðru húsi utan um, sein hlíf-
ir innra húsinu fyrir kulda.
Víða komið við
Hafsteinn er 58 ára gamall,
fæddur og uppalinn í Grindavík.
Hann flutti fljótlega úr heimabæ
sínum og hefur raunar búið víða
um land.
Hafsteinn hefur lengst af starf-
að við smiðar og hefur verið
viðriðinn stofnun ýmissa fyrir-
tækja í þeim iönaði. Hann var
einn af stofnendum byggingafyr-
irtækisins Ramma hf. í Keflavík.
Síöar flutti hann til Siglufjarðar
og setti á fót fyrirtækiö Húsein-
ingar hf. sem var fyrsta verk-
smiðjan sinnar tegundar hér á
landi en þar eru framleidd ein-
ingahús. Hafsteinn dró sig út úr
þessari starfsemi rétt fyrir 1980.
Þá flutti hann í Kópavoginn og
stofhaði ásamt öðrum fyrirtækið
Húsaeinangrun í Reykjavík. Fyr-
ir nokkrum árum seldi Hafsteinn
fyrirtækið og fór að smíöa eins
og Pétur og PáU, eins og hann
orðar það sjálfur. Nú hefur hann
sett á stofn 'fyrirtækið Tvöfalt sf.
en eins og nafnið bendir til selur
fyrirtækið tvöföld hús. Hafsteinn
segist ákveðinn í að lítil sem eng-
in yfirbygging verði í fyrirtæk-
inu. „Ég stend einn aö þessu og
verö áfram einn,“ segir hann. Tvö
hús eru þegar seld og hefur Haf-
steinn nú á prjónunum aö bjóða
eldri borgunun í Kópavogi að
kaupa. „Margir þurfa að minnka
viö sig og vilja gjarnan hafa yfir-
byggöan garð í ellinni. Þau henta
því mjög vel auk þess spm þau
eru ódýr,“ segir hann. Auk þessa
hugsar Hafsteinn sér að selja
húsin til Grænlands í framtíöinni
en hann segir þau henta einstak-
lega vel þar i landi.
í Félagi hugvitsmanna
Eiginkona Hafsteins er Sóley
Ásta Sæmundsdóttir og eiga þau
sex uppkomin böm. En hvaö ger-
ir hann í frístundum?
„Ég hef æjög gaman af að ferð-
ast og þá aðaUega innanlands. Ég
hef nú ferðast nokkuð erlendis
en veit varla hvað maður hefur
þangað að sækja. Annars er ég
orðinn latur. Ef ég á frí sit ég
gjarnan og sofna.
Áhugi minn snýr mjög mikið
að hugmyndasmíðinni, sem ég
hef fengist mikiö viö gegnura ár-
in. Reyndar er ég í Félagi hugvits-
manna og finnst mér aö um
þessar mundir sé í fyrsta skipti í
sögunni komin alvara í þennan
félagsskap. Afstaða fólks er orðin
allt önnur en hún var.“
-JBj