Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1988. Utlönd Sannfærandi sigur Dukakis Ólafur Amarson, DV, New Vork; Michael Dukakis vann mjög sann- færandi sigur í forkosningum demókrata í Connectícutríki í gær. Dukakis )ilaut fimmtíu og níu pró- sent atkvæða og fjörutíu og tvo af fimmtíu og níu fulltrúum ríkisins á flokksþingi demókrata sem haldið verður í sumar. Jesse Jackson varð í öðru sætí meðal demókrata, með tuttugu og átta prósent atkvæða og sextán fulltrúa á flokksþingið. Albert Gore varð þriðji með átta prósent og einn fulltrúa. Sigurinn í gær var nauösynlegur fyrir Dukakis sem beið mikinn hnekki þegar hann tapaði fyrir Jack- son með miklum mun í Michigan á dögunum. Connectícut er nágranna- ríki Massachusetts, heimaríkis Dukakis, og ósigrn- þar hefði í raun þýtt endalok hjá Dukakis. Þessi ákveðni sigur í Connectícut þýöir hins vegar að Dukakis veröur enn um sinn að teljast sigurstranglegast- ur meðal demókrata. Ósigurinn stóri í gær var áfall fyrir Jackson en ekki þó óyfirstíganlegt. Jackson fékk níutíu og níu prósent Michael Dukakis vann sigur i forkosningunum í Connecticut og hefur þar með rétt hlut sinn í baráttunni nokkuð að nýju. Símamynd Reuter Ný aðferð við ávísanafölsun Arma Bjamason, DV, Denver: Nokkrir bandarískir bankar hafa á síðustu vikum tapað um sjötíu þúsund dollurum á nýrri og áður óþekktri aðferö viö ávisanafals. Einhveijir óprúttnir náungar hafa gefið út ávísanir smurðar efnabl- öndu sem gerir það að verkum að ávísanimar leysast upp í Ktlar agn- ir eftir stuttan tíma og eru þar með tapað fé. Það var reiknistofa í Chicago sem annast tékkaviðskiptí íyrir 142 banka sem varð fyrst vör við ávís- anirnar meö efnablöndunni. Hún sendi aövörun til allra bankanna í byijun þessa mánaðar og baö þá að vera á veröi gagnvart þessum ávísunum sem virtust fitugar og illa lyktandi. Slíkar ávísanir hafa borist tíl fimm eða sex banka á Chicago-svæðinu og í Tennessee. Aöferðin sem notuð hefur veriö viö svikin er sú að opnaöur hefur verið nýr ávísanareikningur i ein- hverjum banka með því aö leggja inn litla fjámpphæð. Síðan er gefin út ávísun fyrir miklu hærri upp- hæö og áður en hún hefur skilaö sér í gegnum kerfið hefur penin- gaupphæðin, sem lögö var inn í upphlafi, veriö tekin út og reikn- ingnum lokað. Svikaramir skilja engin spor eftir sig því upplýsing- amar, sem þeir gáfu við opnun reikninganna, voru ósannar og tékkinn, sem þeir gáfu út og var innstæðulaus, varð aö skami í höndum bankamannanna vegna efhablöndunnar sem falsaramir báru á hana. Stríð vegna kvenpresta Guimlaugur A. Jónssan, DV, Lundú Algjört stríð ríkir nú á milli Bo Holmbergs, sænska kirkjumálaráð- herrans, og Bertils Gártners, biskups í Gautaborgarbiskupsdæmi. Eins og svo oft áður er þaö afstaða Gártners til kvenpresta sem árekstrinum veld- ur. Gártner hefur sem sé eina ferðina enn neitað aö vígja kvenkyns guð- fræðing' til prestsþjónustu í Gauta- borgarbiskupsdæmi. Bo Holmberg hafði fyrir hönd ríkisstjómarinnar krafist þess að umræddur guðfræði- stúdent yrði vígður en hefur nú fengið neitandi svar frá biskups- dæminu. „Kirkjufólk í Gautaborg hefði getað bjargað andhtinu með því að notfæra sér sinn lagalega rétt tíl að kalla á annan biskup að framkvæma prests- vígluna," segir Holmberg, greinilega allt annað en ánægður með hið neit- andi svar. Gártner segir hins vegar aö hér sé um að ræða grundvallarspurningu, það er aö segja um frelsi kirkjunnar gagnvart ríkinu. „Ég hef mátt þola hótanir og þvinganir vegna þessa máls,“ segir Gártner og bætír því viö aö það hafi orðið tíl þess að hann hafi látið af öllum vangaveltum um að fá annan biskup til að framkvæma vígsluna. Hann segist ekki lengur vilja neina málamiðlun vegna árás- anna frá ríkisstjórninni. af atkvæðum blökkumanna í ríkinu og yfir tuttugu prósent af atkvæðum hvítra. Hann átti hins vegar ekkert svar gegn Dukakis sem var á heima- velh. Úrshtin í gær verða að teljast alvar- leg viðvörun til Albert Gore, sem hefur ekki unnið einn einasta sigur í forkosningum utan Suðurríkjanna. Virðist framboð hans nú í mikilli hættu. Stuðningur við Gore utan Suöurríkjanna virðist vera mjög lít- ill. Það lítur út fyrir að baráttan um útnefningu Demókrataflokksins komi tíl með að standa fyrst og fremst milli Dukakis og Jacksons en engar hkur eru nú taldar á þvi að annar hvor þeirra nái að hljóta meirihluta þingfulltrúa í forkosning- um. Nú er beðið með eftirvæntingu eft- ir forkosningum í Visconsin, sem verða eftir viku, og sérstaklega þeirra sem verða í New York þann 19. apríl næstkomandi. Talið er að þá skýrist mjög hvort það verður Dukakis eða Jackson sem fer meö flesta fulltrúa með sér á flokksþingið í Atíanta í sumar. Dukakis hefur nú 683 fulltrúa, Jackson 650 og Gore um 380 fulltrúa. Robert Dole hefur nú gefið útnefningu sem forsetaefni repúblikana upp á bátinn og dregið sig i hlé. -Simamynd Reuter Dole gefst upp Ólafur Amarson, DV, New York; Robert Dole, helstí keppinautur George Bush um útnefningu sem for- setaefni Repúblikanaflokksins fyrir kosningarnar í haust, játaði sig í gær sigraðan og hætti þátttöku í forkosn- ingum repúblikana. Þessi ákvörðun hafði lengi legið í loftinu en Dole hafði þrjóskast við að viðurkenna staðreyndir. Það munaði einungis einum eða tveimur dögum, að flestra matí, að Dole tækist aö tryggja sér útnefningu Repúblikanaflokksins. Eftir sigur í Iowa hafði Dole forystu, samkvæmt skoðanakönnunum, fyrir forkosn- ingamar í New Hampshire. Með harðri auglýsingaherferð á síðustu stundu, sem Dole lét ósvarað, tókst Bush hins vegar að tryggja sér góðan sigur í fylkinu. Eftir það var framboð Doles dauðadæmt og „súper“-þriðju- dagurinn innsiglaði þann dauðadóm. Dole lýstí því yfir í gær að hann myndi styðja George Bush af öllum krafti í kosningunum í haust og flest- ir stuðningsmenn Doles hafa gengið tíl hðs við Bush. Nú er eini keppi- nautur Bush um útnefningu Repúbl- ikanaflokksins Pat Robertson en . hann hefur lítið fylgi og er ekki tek- inn mjög alvarlega. Yfirlýsing Doles er talin mjög mik- ilvæg fyrir Repúblikanaflokkinn. Nú getur Bush einbeitt sér að undirbún- ingi fyrir forsetakosningamar sjálfar á meðan demókratar eru dæmdir til að stunda bræðravig fram á sumar. í gær vora einnig forkosningar hjá repúblikönum í Connectícut. Bush sigraði þar með yfirburðum, hlaut sjötíu prósent atkvæða, Dole tuttugu prósent og Pat Robertson fjögur pró- sent. ULTRA GLOSS Ift | Ekkert venjulegt bílabón .ffiSfri heldur glerhörð lakkbrynja! VEIST 1*05! pý MUNINN? „Glerungur", ekki vax. ULTRA GLOSS er hvorki vax, harp- is né silikon. Þaó flokkast undir bóngljáa, sem á ensku kallast „paint sealant". í bókstaflegri þýð- ingu merkir oröið „lakk þéttir“, sem við höfum Islenskað I „lakk- brynju". Yf irborö lakksins er hrein- lega innsiglaö gegn utanaökom- andi veörunaráhrifum og óþrifum. Þó tilgangurinn sé augljós, þá er þettameiraspurning um endingu. Til eru 3 tegundir af „paint seal- ants“, þ.e. grunnefniö getur verið: plast, teflon eða gler. í ULTRA GLOSS er glergrunnur, sem trygg- ir bæði styrkleika og endingu. Sterkasta handbónið á markaðnum. Grunnefniö I ULTRA GLOSS heitir „Siloxine", en það eru örþunnar glerflögur (micro-chips), sem að- eins verða greindar í smásjá. Með flókinni aðferð, sem byggist á blöndunarröð og breytilegu hita- stigi, er siloxini blandað saman öðrum efnum, sem tryggja sterka bindingu gljáans við allar gerðir lakks. Eftir að blll hefur verið bón- aður með ULTRA GLOSS, veröur efnahvarf, svipað því þegar tveggja þátta viðgerðarefnum er blandað saman. Samruninn við lakkið tekur 12-36 tlma, allt eftir umhverfishita. Þannig . myndar ULTRA GLOSS níösterkan „gler- ung“ I yfirborði lakksins, sem ver það fyrir salti, tjöru, útblásturs sóti og öörum óhreinindum. Ending langt umfram hefðbundnar bóntegundir. Erlendis ábyrgist framleiðandi, að ULTRA GLOSS veiti 18 mánaða veðrunarvörn. Hérlendis hafa ver- iögeröarmargartilraunirvarðandi þetta atriði. Niðurstöður sýna, að I rigningu perlar vel á vélarhllf og þaki, 8 mánuðum eftir að bónaó var. Einnigeráberandi hve auðvelt er að þrífa bilinn, sem einnig er sönnun þess, að varnarlagiö er enn fyrir hendi. Þetta er I rauninni afar eölilegt þegar haft er I huga hvernig vörn ULTRA GLOSS er. Ef yfirborö lakks er skoðað I smásjá, þá er áferð þess svipuó hraunhellu. Hugsumokkurað við hellum eftir- farandi efnum — I fljótandi formi, á 3 slikar hellur: Vaxi, plasti og gleri. Við storknun fá yfirboróin á sig sléttaog fallegaáferó. En hvað meö endingu? Við hita bráðnar vaxiö og gufar upp, rétt eins og öll vaxbón í sólskini. Vaxið þvæst auk þess auðveldlegaaf með oliu- eyði. Plastið þolir hitann mun bet- ur, en þvæst af með olíueyði auk þess að plast sem sllkt er ekki slit- sterkt efni. Glerið (ULTRA GLOSS) þolirhitann fullkomlega, auk þess sem þaö endurkastar útfjóiublá- um sólargeislum, en þeireru meg- in orsök þess að lakk upplitast. Tjörueyðir vinnur ekki á glerinu, enda er ULTRA GLOSS eini bón- gljáin.i, fáanlegur á islenskum bensinsölum, sem þolir þvott með tjörueyði. Þar með rætist draumur bónara, um að glans og glæsilegt útlit geti enst mánuð- um saman. Létt i notkun. í Islenskum leiðbeiningum með bóninu kemur fram hve létt er að bóna með ULTRA GLOSS. Bóniö er einfaldlega borið á, látið þorna og siöan þurrkað af með hreinum klút. Hinsvegar eru tvö atriöi, sem hafa ber I huga þegar bónað er. í fyrsta lagi að hitastig sé ekki und- ir 5 gráðum. Bónið myndi hrein: lega ekki þorna við þann hita. í öðru lagi, aö ekki hellirigni á bíl- inn næstu 6-12 tima. Tlminn mið- ast við hitastig milli 15-5 stig. Mik- ill vatnsagi þennan tima hefur áhrif áendinguna. Hinsvegarskal bent á, að hægt er að bóna með ULTRA GLOSS, t.d. með stuttu millibili þegar aðstæður eru hag- stæðar, og byggja þannig upp sterka varnarskel, sem auk þess styrkir lakkið verulega gegn stein- kasti. Nýtt lag bætist ofan á gam- alt, e_f bóninu er nuddað létt á bíl- inn. í þessu sambandi skal aftur vakin athygli á, að bónlagið sem fyrirer þvæst ekki af þótt bllinn sé þveginn áður með tjörueyði. Þetta er ekki mögulegt með neinu öðru handbóni, og gagnast þeim vel, sem nýta sér þjónustu þvotta- stöðva reglulega. Reynsla. Eftir 3ja ára reynslu af ULTRA GLOSS hérlendis er Ijóst, að þeir sem notað hafa bónið, kaupa það aftur og aftur. Þeir sem til þekkja, vita aö helsti ókostur vax-bóns er aö tjara sest auðveldlega I vaxið. Og til að ná tjörunni af þarf slðan tjörueyði, sem jafnframt þvær vax- ið af. í vetrarakstri er áberandi hve lltil tjarasest IULTRAGLOSS, auk þess sem mjög auðvelt er aó ná henni af. Miðað við endingu er ULTRA GLOSS með ódýrustu biiabónum á markaðnum. Útsölustaðir: Cssoj stöövarnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.