Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Page 37
aeor PCfAM OP VJTTn AfYTT^TTViTH' MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1988. 57 Lífsstm 0« hafa húsgögn veriö hönnuð með hjólum á, eins og stólar, borð og jafnvel kommóður. Hér keyrir þó um þverbak að margra áliti, því hjólin eru engin smásmiði. Hugmyndin að þessu borði er einföld. Stór hjól eru fest gegnum borðplötuna sem er úr gleri og fest með stórri ró að ofanverðu. Þar sem svo auðvelt er að fá gler unnið fyrir sig í dag er einfalt að utfæra svona hlut sjalfur. Hönnunin er að italskri fyrirmynd. Verð borðsins er um 24.000 kr. Á þessari mynd sjást húsgögn hönnuð af Phillip Starck sem talinn er fremstur meðal nútima- hönnuða. Hann hefur farið ótroðnar slóðir í hönnun sinni og notar máim á nýstárlegan hátt með notagildi að leiðarljósi. Hillurnar á myndinni eru lagðar upp að vegg án þess að nokkur nagli eða skrúfa sé notuð. Hillan leggst einfaldlega á vegginn. Þessar vörur eru í dýrari kantin- um eins og svo margt eftir fræga hönnuði. Hillan kostar 41.300 kr. Borðstofu- eða eldhússettið kostar 8.260 kr. stóllinn og borðið 24.800 kr. verið að uppskera samkvæmt því. Ferskleikinn er allsráð- andi. Hönnuðir frá öðrum löndum beina augum sínum að því sem þar gerist og reyna síðan að nálgast þessar hugmyndir á álíka hátt meö sumt sem þeir hafa á prjónunum. Oft er talað um að svokallaður „post mod- ernismi" sé ríkjandi sem er ákveöin stefna sem tilheyrir Memphis-hópnum. Þessi hópur hefur losað um ákveðnar höml- ur sem verið höfðu á sviði húsgagnahönnunar. Hér er meira að segja um að ræða stíl sem er frá 1930 sem nefnist Bau- haus-stíll og hefur haldist allt Önnur efni Áður var algengt að fólk hefði 3-2-1 stílinn að leiðarljósi í upp- röðun á húsgögnum, þ.e. 3ja sæta, 2ja sæta sófa og stól, allt í sama lit og með sams konar áklæði. Nú er öldin önnur. Stakir tveggja sæta sófar með mismunandi áklæðum, rósótt- um eða marglitum, ásamt einlitum stól, sjást nú víða. Húsgögn þau, sem hönnuö eru á Italíu, hafa gjarnan verið hönnuð úr öðrum efnum en tíðkast hafa til þessa. Nú er mikið notað af gleri, krómi og leðri á annan hátt en gerst hef- ur og þá með öðrum efnum sem hafa til þessa þótt klassísk. Hugmynd fyrir þá sem vilja fleygja fötum á stóla, bord, gólf eda þaö sem hendi er næst. Hengi fyrir skyrtur og buxur og önnur föt tekur litið pláss, a.m.k. minna en stóll tekur. Slikt er nú hægt aö fá á mörgum stöðum í mismunandi gerðum. Verð þessa hengis er um 6.000 krónur. Rúsínan i pylsuendanum er kollurinn litli sem er innfluttur frá Sovétríkjunum og kost- ar 990 kr. Hann er úr birki. fram á þennan dag. Sjálfsagt verður hann ráöandi áfram að mörgu leyti en ekki eingöngu. Það hafa hugmyndaríkir nú- tímahönnuðir sýnt og sannað með hugmyndum sem heillað hafa almenning. „Þvi minna prjál...“ „Því minna prjál því betra“. Margir hönnuðir hafa löngum haft þessi orð að leiðarljósi þeg- ar þeir hafa fengist við verk sín. Einfalt og hagnýtt! Nú hafa margir smeygt sér framhjá þessum reglum en þó ekki allir. Eldri hönnuðir eru varir um sig og halda sig við klassískari við- fangsefni. Talað er um að hér sé tískufyrirbrigði á ferðinni sem ekki haldi velli þegar fram í sækir. Svo hefur reyndar einn- ig gilt um föt og tónlist þar sem hvert tiskufyrirbrigðið hefur komið um annað þvert. Þó hafa hin hefðbundnu form fata og tónlistar alltaf haldið sér. Manneskjan verður alltaf aö byggja á einhverjum grunni og breyta síðan til út frá honum. Þetta gildir einnig um húsgögn. Hönnun þessa stóls er dæmigerð tyrir efnisnotkun þá sem nú rikir í húsgagnahönnun. Útlitið er ferskt. ! Fyrir fáum árum hefði fáum dottið i hug að hanna stól úr basti og krómi. Nú er öldin önnur, ferskleiki króms- ins og bastsins nýtur sin óumdeilan- lega vel saman. Svona stóll kostar um 5.000 krónur. Veggljós eins og það sem er á myndinni gefur þægi- lega birtu sem endurkastast frá lofti. Svona Ijós er hægt að fá í mörgum gerðum. Þessi lampi kostar aðeins rúmar 1.000 kr. íslensk hönnun íslenskri hönnun hefur á síð- ustu árum vaxið fiskur um hrygg. Margir efnilegir hönn- uðir hafa komið fram og sýnt hæfileika sína. Að mörgu leyti má segja að hugmyndir hafi komið frá útlöndum þar sem ungt fólk hefur lagt stund á nám í öðrum löndum. Hugmyndir Þessi stóll stingur i stúf við aðra hvað hæö á baki snertir. Hönnuðurinn hét C.R. Macintósh og var uppi snemma á þessari öld. Hann var uppi á tímabili i list og hönnun sem hét „Modern Mowement“. Engu að síður fell- ur stóllinn vel inn i hugmyndariki hönnunar í dag. Stóll þessi er í senn listasmiði og húsgagn. Verðið er litlar 47.000 krónur. hafa allir á sinn hátt en hönn- uðir á litlum markaði eins og hér heima verða að hafa í huga að laga sig að því sem hér ger- ist. Fyrst og fremst verður að vera hagkvæmt að framleiða hönnunina þannig að notagildi, efnisval og útlit njóti sín sem best. Þannigeru hönnuðum settarskorður. Að sögn Péturs B. Lúthers- sonarhúsgagnahönnuðar « hefur á undanfömum árum gef- ist tilefni til fijálsrar hönnunar hér á landi. Hann segist bjart- sýnn á framtíð í íslenskri húsgagnahönnun. „Þaðer margt að gerast og mikill gró- andi í íslenskri hönnun.“ -ÓTT. Heimilið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.