Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Qupperneq 48
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1988. Akureyri: r i • • r Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri: Þarna má sjá nokkra af forsvarsmönnum klúbbsins, s.s. Guðmund Lárus- son gjaldkera, Gunnar Sólnes formann og Árna S. Jónsson framkvæmda- stjóra. DV-myndir GK-Akureyri. Golfmenn á Akureyri urðu felmtri slegnir í lok janúar þeg- ar golfskáli þeirra að Jaðri brann og allt sem innanhúss var eyðilagðist. Golfskálinn var tæplega eins árs gamall þegar hann brann. Strax var haílst handa við upp- byggingu að nýju, og fyrir skömmu var endurreisnar- starfmu lokið og Jaðar hafði risið úr brunarústunum, glæsi- legri en fyrir brunann. Efnt var til hófs þegar þessum áfanga var náð og var mikið um dýrðir. Snæddur var veglegur kvöldverður, skemmtiatriði flutt og síðan dansað fram á nótt við undirleik Gauta frá Si- gluftrði. Amór Þorgeirsson skálar við mat- reiöslumeistarann Hermann H. Huijbens vlð glæsilegt veisluborð- ið. Sviðsljós Ólyginn sagði... Sylvester Stallone þóttist hafa fundið sér lífsfóru- naut um daginn þegar hann tók saman við Kathy Wardlow, dótt- ur milljónamærings. Það sam- band entist í sex vikur og nú er Stallone kominn með nýja. Hún er vart komin af barnsaldrinum, er nýorðin tvítug og starfar sem fyrirsæta. Hún heitir Dina Go- odmenson og er yfir sig ástfangin af Sylvester sem gæti verið faðir hennar því hann er 41 árs gamall. Mohammed Ali fyrrum heimsmeistari í boxi í þungavigt, sem áður var með kjaftforari mönnum - forðast nú að láta nokkurn heyra í sér. Hann er orðinn svo illa farinn af Park- inson-veiki að hann á í erfiðleik- um með að tjá sig á skiljanlegan hátt. Muhammed Ah skammast sín svo fyrir þetta að hann lokar sig inni og kemur aldrei fram opinberlega. Samningarnir um kaup Bridgesambandsins á eignarhlut Reykjavíkurborgar á Sigtúni 9, undirritaðir. Frá vinstri: hinn aldni, fyrrum keppnisstjóri Guð- mundur Kr. Sigurðsson, forseti Bridgesambandsins Jón Steinar Gunnlaugs- son og Davíð Oddsson borgarstjóri Reykjavíkurborgar. Hér eigast við tvær sveitir Bridgesambandsins, frá vinstri: Ólafur Lárusson framkvæmdastjóri BSÍ, Jón Steinar Gunnlaugsson forseti BSÍ, Esther Jak- obsdóttir gjaldkeri BSÍ og Siguröur B. Þorsteinsson meðstjórnandi. DV-myndir KAE Bo Derek er nú um þessar mundir stödd í Argentínu með eiginmanni sín- um, kvikmyndaframleiðandan- um John Derek, en'þau eru að leita að hentugu svæði til kvik- myndatöku nýrrar myndar. Sú mynd á að vera um Adam og Evu og Bo Derek leikur að sjálfsögðu Evu. Þau vilja helst að Arjiold Schwarzhenegger taki að sér hlutverk Adams en hann hefur ekki gefið jákvætt svar. Vonandi verður þessi mynd ekki sama kroppasýningin óg myndin Tarz- an the Apeman. Jóhannes Siguijónsson, DV, Húsavik Fyrir skömmu var bryddað upp á nýjung í skemmtanalífi á Húsavík en þá var haldin svokölluð „Gellu- gleði“ í félagsheimilinu. Konur á öllum aldri mættu til gleðinnar og skemmtu sér óskaplega að sögn, enda karlmenn hvergi nærri, nema þá helst framreiöslupiltar og þjón- ustudrengir. Það var ekki fyrr en heimatilbún- um skemmtiatriðum lauk að húsið var opnað fyrir karlpeningi, því eins og ein „gellan" sagði: „maðurverður að hafa eitthvað til að dansa við.“ Það voru soroptimistar á Húsavík sem áttu hugmyndina að þessum óvenjulega fagnaði. Iðunn Steins- dóttir, rithöfundur með meiru og fyrrverandi bæjarstjórafrú á Húsa- vík, stýrði gleðinni en hún var ein af fjölmörgum sem komu langt að til gleðinnar, m.a. komu 20 konur úr félagi þingeyskra kvenna í Reykjavík norður gagngert til gleðinnar. Ör- uggt er talið að efnt verði til gellu- gleði aö ári og er jafnvel rætt um að útiloka karlménn þá með öllu og brúka þá ekki einu sinni á dansgólfl. Hér er sungið um dans og drauma og vonir kvenna, lagið „Jón er kominn heim“, en textann gerði einmitt Iðunn Steinsdóttir sem er lengst til hægri. Hinar eru gamlir Húsvíkingar, Arnrún (móðir Arnórs Guðjohnsen) og Árn- ína Dúadóttir i miðið. DV-mynd Jóhannes S Keyptu hlut Reykjavíkurborgar Bridgehreyflngin í landinu stend- ur í miklum blóma um þessar mundir, enda stóðu íslendingar sig vel á síðasta Evrópumóti. Bridge- sambandið og félög innan þess voru um árabil á hrakhólum með húsnæði undir spilamennsku og aðra starf- semi sína, en um haustið 1985 var keypt húsnæði að Sigtúni 9 á móti Reykjavíkurborg, og hefur það hýst spilamennsku nokkurra klúbba og aðra starfsemi. Húsakaupin voru gerð möguleg að miklu leyti með höfðinglegri gjöf Guðmundar Kristins Sigurðssonar, sem var keppnisstjóri í tugi ára, en hann gaf íbúð sína til styrktar kaup- unum. Aðrir velviljaðir aðilar, svo og margir bridgespilarar sjálfir, hafa lagt málefninu lið með framlögum. Húsið var tekið í notkun eftir breytingar í janúarmánuði árið 1986 og eru þrjú bridgefélög með fasta starfsemi í þessu húsi. Auk þess er skrifstofa Bridgesambandsins í hús- inu. Nú fyrir skömmu seldi Reykja- víkurborg Bridgesambandinu sinn eignarhlut í húsinu og voru samn- ingarnir undirritaðir við hátíðlega athöfn. Um leið var komið á keppni ijögurra bridgesveita, tveggja sveita borgarstarfsmanna og tveggja , frá stjórn Bridgesambandsins. Borgarstjóri Reykjavíkur, Davíð Oddsson, var í annarri sveit borgar- starfsmanna, enda er hann mikill áhugamaður um bridge. Húsavík Gellugleði r a >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.