Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1988, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1988, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1988. 5 Nafn: Theodór Júfiusson Aldur: 38 Staða: leikari Theodór Julíusson fer með að- alhlutverkið, Tevje, í leikritinu Fiðlarinn á þakinu sem Leikfélag Akureyrar hóf að sýna síðastlið- inn fóstudag. Theodór er einn af reyndustu leikurum Leikfélags Akureyrar en hann hefur verlð fastráðinn leikari hjá félaginu i 10 ár. Auk þess er hann formaður Leikfélags Akureyrar. Að mestu sjálfmenntaður „Ég kem úr áhugaleikhúsi og er að mestu sjálfmenntaður leik- ari. Ég fitlaöi við þetta í áhuga- mennsku þangað til ég var ráöinn til Leikfélags Akureyrar fyrir tíu árum. í fyrravetur fór ég svo í leiklistarnám til London í skóla sem heitir The Drama Studio. Skólinn er ætlaður sem fram- haldsnám fy rir leikara en ég fékk inngöngu vegna langrar starfs- reynslu og vegna þess að ég er í Félagi íslensfra leikara,“ segir Theodór. Ævintýralegt i London „Það var alveg ævintýralegt að dvelja í London. Ég hafði því mið- ur ekki ráð á að hafa íjölskylduna hjá mér en það hefði vissulega verið gaman. Ég leigði ibúð með fjórum skólafélögum og voru þetta auðvitað viðbrigði fyrir mann kominn á þennan aldur. Ég er vanur íjölskyldulífi og hafði varla verið lengur að heiman en í hálfan mánuð. Ég stefni að því að verða betri leikari og held að ég hafi lært þónokkuð. Ég sá heilmikið af ieiksýningum og finn að ég vinn öðruvísi eftir að ég kom heim ogþroskaðist heilm- ikið sjálfur." Theodór er fæddur Siglfirðing- ur og bjó á Siglufirði fram undir tvítugt. Hann er menntaður bak- ari og hefur rekið bakarí bæöi á Siglufirði og ísafirði, auk þess sem hann dvaldist í Osló um tíma. Eiginkona hans heitir Guörún Stefánsdóttir og starfar hún einn- ig hjá Leikfélagi Akureyrar. Þau hjónin eiga íjórar dætur: Hrafn- hildi sem er 19 ára, Ástu Júlíu sem er 16 ára, Söru sem er 13 ára og yngst er Vigdís sem er 8 ára. Auk þess eiga þau dótturson sem er nafni Theodórs og er guttinn einn af fjölskyldunni. Mftt eina sanna félag er KS „Vinnan er eitt af áhugamálum mínum því hjá mér snýst allt meira og minna um leikhús. Ég fer þó á skíði og hef gert það síð- an ég var barn. Svo er ég íþrótta- fan og hef gaman af knattspymu. Ég spilaöi fótbolta fram undir tvítugt en geri ekkert að því i dag. En mér fmnst voðalega gam- an að fara á völlinn. Mitt eina sanna félag er Knattspyrnufélag Siglufjarðar en á Akureyri er ég Þórsari. Það er lán í óláni að KS og Þór hafa aldrei verið í sömu deild svo ég get haldið með báð- um liðum,“ segir Theodór. -JBj Fréttir Óvissa um afdrif bjórfrumvarpsins í efri deild: Stuðningsmönnum að snúast hugur? Fullkomin óvissa ríkir nú um af- drif bjórfrumvarpsins í efri deild. Hingað til hefur meirihluti deildar- innar verið talinn fylgjandi frum- varpinu en það er talið hafa breyst á síðustu dögum. Sagði einn stuðn- ingsmanna frumvarpsins aö á undanförnum dögum hefði verið rekinn gegndarlaus áróður og „lobbíismi" sem ætti fáa sína líka. Linnulausum áróðri heíði rignt yfir þá sem væru taldir á báðum áttum. Því hefðu sumir þeirra sem ekki hefðu haft því ákveðnari skoðanir í málinu látið snúa sér gegn frum- varpinu. Enn hefur ekki komið minni- hlutaálit frá Guðrúnu Agnarsdóttur úr allsherjarnefnd efri deildar en hún hefur boðað það í dag. Guðrún lýsti yfir andstöðu sinni við frum- varpið og einnig Skúli Alexanders- son sem sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi. Ekki er enn ljóst hvort breytingar- tillögur við frumvarpið koma frá þingmönnum í efri deild en vitað er að þar hefur verið rætt um að vekja upp þjóðaratkvæðistillöguna. Nú, ef meirihluti er ekki fyrir frumvarpinu hvort eð er þá skipta breytingartil- lögur litlu en á það hefur verið bent að þingmönnum þyki mörgum hverj- um minna mál að samþykkja breyt- ingartillögu en frumvarpið sjálft. Þá hefur einn bjórandstæðingur sagt að þeir sem séu á móti bjór verði að treysta á að tvær grímur renni á þingmenn þegar sá dagur kemur að þeir standi frammi fyrir því að sam- þykkja bjórinn og senda hann út í þjóðfélagið. Þá verði þægileg undan- komuleið að flýja á náðir þjóðarat- kvæðistillögu. Einnig er Ij óst að ekki er mikill tími til stefnu til að ræða bjórinn. Dagur- inn í dag fer í að ræöa virðisauka- skattinn og því óvíst hvort 2. umræða fer fram fyrr en á föstudag. Þó að þing verði á laugardaginn eru ekki nema þrír dagar til stefnu að klára máliö úr þriðju umræðu. Stuðningsmenn frumvarpsins í efri deild hafa hingað til verið taldir vera: Halldór Ásgrímsson, Valgerður Sverrisdóttir, Salome Þorkelsdóttir, Júlíus Sólnes, Guðmundur Ágústs- son, Jóhann Einvarðsson, Halldór Blöndal, Guðmundur H. Garðarsson, Stefán Guðmundsson, Eiður Guðna- son, Eyjólfur K. Jónsson og Karvel Pálmason. Til andstæðinga teljast hins vegar: Jón Helgason, Karl Steinar Guðna- son, Guðrún Agnarsdóttir, Skúli Alexandersson, Margrét Frímans- dóttir, Svavar Gestsson, Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Afstaða þeirra Egils Jónssonar og Danfríðar Skarp- héðinsdóttur hefur ekki legið ljós fyrir fram til þessa en þó hafa þau bæði gefið í skyn að þau gætu sam- þykkt bjór með vissum skilyrðum. Þessi flokkaskipting gæti hins vegar hafa riðlast á síðustu dögum vegna þeirra ástæðna sem nefndar voru í upphafi. -SMJ Nýtt ráðuneyti um umhverfismál - sett á stofn um næstu áramót Nýtt ráðuneyti, umhverfismála- ráðuneyti, verður sett á stofn í upphafi næsta árs. í samtali við for- sætisráðherra í gær kom fram að hann hefur lagt fyrir ríkisstjórnina tillögu þar að lútandi og hefur hún verið samþykkt. Þingflokkarnir eru nú með tillöguna til umfjöllunar. Að sögn forsætisráðherra er stefnt að því að frumvarpið verði að lögum um næstu áramót en það verður ekki lagt fram fyrr en næsta haust. Þetta nýja ráðuneyti tengist sam- gönguráðuneytinu sem eftir það heitir samgöngu- og umhverfisráðu- neytið. Mun það sjá um samræmingu umhverfismála og fara með náttúru- vernd, landvernd, friðun dýra og verndun sjávar. Þar með verða um- hverfismál undir einu ráðuneyti en hafa hingað til tilheyrt átta ráðuneyt- um. -SMJ Forsætisráðhetra: Plútóníum- flutningar ræddir við Reagan Forsætisráðherra, Þorsteinn Páls- son, sagði við utandagskrárumræðu á Alþingi að hann ætlaði að ræða væntanlega plútóníumflutninga Bandaríkjamanna og Japana um ís- lenska lofthelgi á fundi sínum með bandarískum ráðamönnum um miðjan mánuðinn. Sagði Þorsteinn að þeim yrði gerð grein fyrir okkar afstöðu en íslensk lög bönnuðu yfir- flug af þessu tagi. Til umræðunnar var boðað að beiðni Hjörleifs Guttormssonar vegna fyrirhugaðrá flutninga á geislavirku plútóníum frá Frakk- landi til Japans yfir Norður-Atlants- haf. Sagði Hjörleifur að nauðsynlegt væri fyrir íslendinga að taka þetta mál upp eftir stjórnmálalegum leið- um en hér væri um að ræða mjög óvenjulega flutninga. Sagði Hjörleif- ur að ef eitthvað færi úrskeiðis þá gæti slys við þessa flutninga haft ótrúlegar afleiöingar fyrir okkur ís- lendinga. Krístín Einarsdóttir benti á að hér væri um mjög hættuleg efni að ræða - hættulegri en úraníum. Kjartan Jóhannsson sagðist vera undrandi á því að þessir flutningar færu fram í lofti. Þá lýstu þeir Albert Guðmunds- son, Stefán Valgeirsson og Páll Pétursson yfir áhyggjum sínum í þessu máli og kváðu hér tímabæra fyrirspurn á ferð. -SMJ SÝNING METTLER VOGIR Fimmtud. 5. og föstud. 6. þ.m. verður sýning á Mettler vogum að Langagerði 7 frá kl. 10-19, sýndar verða m.a. nýju Multirange iðnaðarvogirnar ásamt vogakerfum. EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI: KRISTIIUSSON HF., Langagerði 7,108 Reykjavík. Sími 30486.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.