Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1988, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1988.
Viðskipti
DV
Skóverslun Lárusar G. Lúðvikssonar. Nú Verslunarbankinn i
Bankastræti.
Mynd Magnús Ólafsson-Ljósmyndasafn Reykjavikurborgar
Edinborg. Sannur risi sem enginn hélt að liði nokkurn tima
undir lok. Mynd Magnús Ólafsson-Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar
Silli og Valdi i Aðalstræti. Nú Fógetinn.
Mynd Pétur Thomsen-Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar
Völundur, Kveldúlfur, Edinborg,
Lárus Lúðvíks og Silli og Valdi
- gamlir risar í viðskiptum sem nú em horfnir
Veldi Völundar i algleymingi á árum áður. Það er iallið af stallinum sem stærsta byggingarvöruverslun landsins
og BYKO og Húsasmiðjan hafa tekið við. Þau voru ekki til þegar þessi mynd var tekin.
Mynd Magnús Ólafsson-Ljósmyndasafn Reykjavikurborgar
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób 19 20 Ib.Ab
Sparireikningar
3ja mán. uppsogn 19 23 Ab.Sb
6 mán. uppsogn 20 25 Ab
12 mán. uppsogn 21 28 Ab
18mán. uppsogn 32 Ib
Tékkareikningar, alm. 8 12 Sb
Sértékkareikningar 9 23 Ab
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsogn 3.5 4 Ab.Úb. Lb.Vb, Bb.Sp
Innlánmeðsérkjörum 19 28 Lb.Sb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 5,75 7 Vb.Sb
Sterlmgspund 7,75 8,25 Ub
Vestur þýsk mork 2 3 Ab
Danskarkrónur 7.75-9 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv) 29.5-32 Sp
Viöskiptavixlar(forv-) (1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 31 35 Sp
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningaríyfirdr ) 32.5 36 Sp
Utlan verðtryggð
Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb
Útlántilframleiðslu
Isl krónur 30,5 34 Bb
SDR 7.75-8.25 Lb.Bb. Sb
Bandarikjadalir 8.75 9.5 Lb.Bb. Sb.Sp
Sterlingspund 11 11,5 Ub.Bb, Sb.Sp
Vestur-þýsk mork 5 5,75 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5 9
Dráttarvextir 45,6 3.8 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverðtr. april. 88 35.6
Verðtr. apríl. 88 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala april 1989stig
Byggingavisitala april 348stig
Byggingavisitala april 108.7 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 6% 1. apríl.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Avöxtunarbréf 1.5063
Einingabréf 1 2.763
Einingabréf 2 1.603
Einingabréf 3 1.765
Fjolþjóðabréf 1.268
Gengisbréf 1.0295
Kjarabréf 2.767
Lifeyrisbréf 1.389
Markbréf 1.440
Sjóðsbréf 1 1.339
Sjóðsbréf 2 1,221
Tekjubréf 1.367
Rekstrarbréf 1.08364
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. lOO.nafnv.:
Almennar tryggmgar 128 kr.
Eimskip 215 kr.
Flugleiöir 200 kr.
Hampiðjan 144kr.
Iðnaöarbankinn 148kr.
Skagstrendingurhf. 189 kr.
Verslunarbankinn 105 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100kr.
(1) Við kaup á viöskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað viö sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavixla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,-5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Ob = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánarl upplýalngar um peningamarkað-
Inn birtast f DV A fimmtudögum.
Timburverslunin Völundur,
Kveldúlfur, Verslunin Edinborg,
Timburverslun Árna Jónssonar,
Lárus G. Lúðvíksson, Haraldur
Árnason, Alience, Valdimar Poulsen
og síðast en ekki síst Silli og Valdi.
Öll voru þessi fyrirtæki risar í reyk-
visku viöskiptalífi fyrir nokkrum
áratugum. En nú eru þau horfin.
Erfingjum og afkomendum tókst
ekki að hcdda þeim úti í hinum harða
heimi viðskiptanna. Fyrirtæki eins
og BYKO, Húsasmiöjan, Hagkaup,
Grandi hf. og fleiri fyrirtæki tekin
við á toppnum - hvert á sínu sviði.
Til eru kenningar um að þriðja
kynslóðin í hverri ætt glati fyrirtækj-
um, komi þeim fyrir kattarnef vegna
lélegs reksturs. Ein er sú að fyrsta
kynslóðin safni peningum, önnur
völdum og sú þriðja leggist í listir
og skáldskap og hafi þess vegna lít-
inn áhuga á viðskiptum fyrirtækja.
Völundur
Ekki verður fariö nánar út í þessar
kenningar núna. Byrjum á Timbur-
vöruversluninni Völundi sem seld
var síðastliðið haust. Völundur var
við Skúlagötuna og er gott dæmi um
fallinn risa í timbursölu og bygging-
arvöruverslun hérlendis.
Það var stofnað af nokkrum tugum
trésmiða en síðan komst það í eigu
Sveins M. Jónssonar. Sonur hans,
Sveinn Sveinsson, rak síðan fyrir-
tækiö. Synir hans þeir Leifur og
Sveinn voru síðan við völd þegar það
leið undir lok. Þriðji bróðirinn, Har-
aldur, kom ekki mikið nálægt fyrir-
tækinu, heldur hefur verið
framkvæmdastjóri Morgunblaðsins
og notið velgengni í starfi.
Það var fyrirtækið Brauð hf. sem
keypti Völdund í vetur af Völundar-
fólkinu. Brauð seldi skömmu síðar
Þorsteini Guðnasyni fyrirtækið sem
sameinaði það JL-byggingarvörum
um áramót undir heitinu JL-Völund-
ur.
Kveldúlfur
Kveldúlfur var stofnaður árið 1912
af Thor Jensen. Kveldúlfur var risi
í útvegi og fiskverkun. Þegar mest lét
átti fyrirtækiö um 7 togara og hagn-
aðist mjög á sölu saltfisks til Spánar.
Aðalstöðvarnar voru viö Skúlagöt-
una. Myndarlegt hús. Það er núna
hvítt með bláu þaki og má muna sinn
fífill fegurri. Eimskip notar þaö sem
geymslu.
En það tók að halla undan faeti hjá
Kveldúlfi. Synir Thors, þeir Ólafur
Thors, síðar forsætisráðherra, og
Thor Thors, síöar þingmaöur, voru
á kafi í pólitík og komu ekki mjög
nálægt stjóm Kveldúlfs. Það gerðu á
hinn bóginn bræður þeirra, Kjartan,
síðar formaður VSÍ, og þó sérstak-
lega Haukur og Ríkharður.
Sagt er um Kveldúlf aö hann hafi
verið orðinn þungur á fóðrunum, að
fyrirtækið hafi átt að sjá fyrir of
mörgum íjölskyldum. Stjórnunar-
spekúlantar nútímans segðu einfald-
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
lega að yfirbygging þessa fyrirtækis
hafi verið orðinn of mikil, að of marg-
ir hafi ætlað að stjóma.
Verslunin Edinborg
Verslunin Edinborg var vefnaðar-
og leikfangaverslun, stofnuð af Ás-
geiri Sigurðssyni. Edinborg stundaði
jafnframt útgerð. Ásgeir átti mikil
viðskipti við Skota, þess vegna hét
fyrirtækið Edinborg. Ásgeir var
breskur aðalkonsúll hér á landi og
þótti það mikill heiöur.
Ásgeir átti tvo syni, Harald Sig-
urösson leikara og Walter sem lést
af voðaskoti. Haraldur var þekktur
gamanleikari. Hann var digur mjög
og frægt varð þegar hann sagði: „Þeir
sem guðirnir elska deyja þungir."
Siguður B. Sigurðsson sem ekki var
sonur Ásgeirs eignaðist fyrirtækið.
Sigurður var stórkarl í Reykjavík,
heíðarmaður í hugum flestra. Áf son-
um hans má nefna Niels P. Sigurðs-
son sendiherra. Stórveldið Edinborg
endaði sinn glæsta feril á að byggja
húsið Domus við Laugaveginn. Það
reyndist ofraun. Edinborgarveldið
var hrunið. Nokkuð sem menn héldu
að myndi standast tímans tönn.
Lárus G. Lúðviksson
Lárus G. Lúðvíksson var stærsta
skóverslun landsins um árabil og var
til húsa í Bankastrætinu þar sem
Verslunarbankinn er núna. Margir
muna eftir versluninni. Þar var
karladeild og kvennadeild, breiður
stigi, dúkurinn eftirminnilegur og
skósalan á tveimur hæðum. Þetta
þótti geysilega fin búð. Margir muna
þó mest eftir afgreiðslumanninum
Ingólfi ísólfssyni, bróður Páls ísólfs-
sonar organista, en hann sneið
pappírinn á skókassann, tók snæri,
kastaði öllu upp í loft og í kassann
fóru skómir með glæsibrag. Snöggur
og dýrlegur afgreiðslumaður að mati
fólks sem keypti af honum skó.
Þessi gífurlega þekkta skóverslun
leið undir lok. Ótrúlegt en satt miðað
við umsvifin. Önnur verslun nálægt
Lárusi G. Lúðvíkssyni var fataversl-
unin Haraldur Ámason í Austur-
stæti þar sem nú er Karnabær.
Haraldur Ámason þótti hafa sérlega
fin fot og var leiðandi. Þessi búð var
eins konar Sævar Karl nútímans.
Marteinn Einarsson
Marteinn Einarsson og co. var
þekkt verslun við Laugaveginn þar
sem nú er Alþýöubankinn. Hún var
þekkt fyrir vefnaðarvörur. Var á
tveimur hæðum og þótti afskaplega
vönduð búð. Hún var virt. Reyndar
þótti Marteinn svo langt upp á
Laugavegi að sumir töluðu um að
hann væri of mikið út úr.
Gunn^r Hannesson, síðar formað-
ur Víkings og þekktur ljósmyndari,
var einhver eftirminnilegasti af-
greiðslumaðurinn hjá Marteini.
Marteinn bjó á þriðju hæðinni í
glæsilegri íbúö. Fyrirtækið heyrir nú
fortíðinni til.
Alience og Silli og Valdi
Loks skal minnst á Alience og þá
Silla og Valda. Aðalstöðvar Alience
voru við Tryggvagötu. Fyrirtækið
var risi í útgerð og var aöalforstjóri
þess Jón Ólafsson. Af honum tók viö
starfinu sonurinn Ólafur H. Jónsson.
Hvort sem það voru fiskmarkaðir
eða rangt skráð gengi þá gekk fyrir-
tækið ekki og hætti.
Silla og Valda, Sigurliða Kristins-
son og Valdimar Þórðarson, þekkja
allir. Þegar þeirra veldi leið undir lok
runnu eigur Sigurliða til íslensku
óperunnar og hins opinbera. Eigur
Valdimars runnu til þriggja bama
hans. En stórveldið á matvömmark-
aðnum, Hagkaup síns tíma, Silli og
Valdi, var liðið undir lok.
í mörgum þessum fyrirtækjum
kom þriðja kynslóðin ekki til sög-
unnar. Starfsemi þeirra lauk þegar
hjá annarri kynslóðinni.
-JGH
Þetta er hús Kveldúlfs við Skúlagötuna. Þetta hús er núna hvitt með bláu
þaki og á að hverfa innan skamms. Mynd Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar