Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1988, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1988. Viðskipti DV Skóverslun Lárusar G. Lúðvikssonar. Nú Verslunarbankinn i Bankastræti. Mynd Magnús Ólafsson-Ljósmyndasafn Reykjavikurborgar Edinborg. Sannur risi sem enginn hélt að liði nokkurn tima undir lok. Mynd Magnús Ólafsson-Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar Silli og Valdi i Aðalstræti. Nú Fógetinn. Mynd Pétur Thomsen-Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar Völundur, Kveldúlfur, Edinborg, Lárus Lúðvíks og Silli og Valdi - gamlir risar í viðskiptum sem nú em horfnir Veldi Völundar i algleymingi á árum áður. Það er iallið af stallinum sem stærsta byggingarvöruverslun landsins og BYKO og Húsasmiðjan hafa tekið við. Þau voru ekki til þegar þessi mynd var tekin. Mynd Magnús Ólafsson-Ljósmyndasafn Reykjavikurborgar Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób 19 20 Ib.Ab Sparireikningar 3ja mán. uppsogn 19 23 Ab.Sb 6 mán. uppsogn 20 25 Ab 12 mán. uppsogn 21 28 Ab 18mán. uppsogn 32 Ib Tékkareikningar, alm. 8 12 Sb Sértékkareikningar 9 23 Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán. uppsogn 3.5 4 Ab.Úb. Lb.Vb, Bb.Sp Innlánmeðsérkjörum 19 28 Lb.Sb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 5,75 7 Vb.Sb Sterlmgspund 7,75 8,25 Ub Vestur þýsk mork 2 3 Ab Danskarkrónur 7.75-9 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv) 29.5-32 Sp Viöskiptavixlar(forv-) (1) kaupgengi Almenn skuldabréf 31 35 Sp Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningaríyfirdr ) 32.5 36 Sp Utlan verðtryggð Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb Útlántilframleiðslu Isl krónur 30,5 34 Bb SDR 7.75-8.25 Lb.Bb. Sb Bandarikjadalir 8.75 9.5 Lb.Bb. Sb.Sp Sterlingspund 11 11,5 Ub.Bb, Sb.Sp Vestur-þýsk mork 5 5,75 Úb Húsnæðislán 3.5 Lifeyrissjóðslán 5 9 Dráttarvextir 45,6 3.8 á mán. MEÐALVEXTIR óverðtr. april. 88 35.6 Verðtr. apríl. 88 9.5 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala april 1989stig Byggingavisitala april 348stig Byggingavisitala april 108.7 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 6% 1. apríl. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Avöxtunarbréf 1.5063 Einingabréf 1 2.763 Einingabréf 2 1.603 Einingabréf 3 1.765 Fjolþjóðabréf 1.268 Gengisbréf 1.0295 Kjarabréf 2.767 Lifeyrisbréf 1.389 Markbréf 1.440 Sjóðsbréf 1 1.339 Sjóðsbréf 2 1,221 Tekjubréf 1.367 Rekstrarbréf 1.08364 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. lOO.nafnv.: Almennar tryggmgar 128 kr. Eimskip 215 kr. Flugleiöir 200 kr. Hampiðjan 144kr. Iðnaöarbankinn 148kr. Skagstrendingurhf. 189 kr. Verslunarbankinn 105 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr. Tollvörugeymslan hf. 100kr. (1) Við kaup á viöskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað viö sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavixla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,-5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Ob = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánarl upplýalngar um peningamarkað- Inn birtast f DV A fimmtudögum. Timburverslunin Völundur, Kveldúlfur, Verslunin Edinborg, Timburverslun Árna Jónssonar, Lárus G. Lúðvíksson, Haraldur Árnason, Alience, Valdimar Poulsen og síðast en ekki síst Silli og Valdi. Öll voru þessi fyrirtæki risar í reyk- visku viöskiptalífi fyrir nokkrum áratugum. En nú eru þau horfin. Erfingjum og afkomendum tókst ekki að hcdda þeim úti í hinum harða heimi viðskiptanna. Fyrirtæki eins og BYKO, Húsasmiöjan, Hagkaup, Grandi hf. og fleiri fyrirtæki tekin við á toppnum - hvert á sínu sviði. Til eru kenningar um að þriðja kynslóðin í hverri ætt glati fyrirtækj- um, komi þeim fyrir kattarnef vegna lélegs reksturs. Ein er sú að fyrsta kynslóðin safni peningum, önnur völdum og sú þriðja leggist í listir og skáldskap og hafi þess vegna lít- inn áhuga á viðskiptum fyrirtækja. Völundur Ekki verður fariö nánar út í þessar kenningar núna. Byrjum á Timbur- vöruversluninni Völundi sem seld var síðastliðið haust. Völundur var við Skúlagötuna og er gott dæmi um fallinn risa í timbursölu og bygging- arvöruverslun hérlendis. Það var stofnað af nokkrum tugum trésmiða en síðan komst það í eigu Sveins M. Jónssonar. Sonur hans, Sveinn Sveinsson, rak síðan fyrir- tækiö. Synir hans þeir Leifur og Sveinn voru síðan við völd þegar það leið undir lok. Þriðji bróðirinn, Har- aldur, kom ekki mikið nálægt fyrir- tækinu, heldur hefur verið framkvæmdastjóri Morgunblaðsins og notið velgengni í starfi. Það var fyrirtækið Brauð hf. sem keypti Völdund í vetur af Völundar- fólkinu. Brauð seldi skömmu síðar Þorsteini Guðnasyni fyrirtækið sem sameinaði það JL-byggingarvörum um áramót undir heitinu JL-Völund- ur. Kveldúlfur Kveldúlfur var stofnaður árið 1912 af Thor Jensen. Kveldúlfur var risi í útvegi og fiskverkun. Þegar mest lét átti fyrirtækiö um 7 togara og hagn- aðist mjög á sölu saltfisks til Spánar. Aðalstöðvarnar voru viö Skúlagöt- una. Myndarlegt hús. Það er núna hvítt með bláu þaki og má muna sinn fífill fegurri. Eimskip notar þaö sem geymslu. En það tók að halla undan faeti hjá Kveldúlfi. Synir Thors, þeir Ólafur Thors, síðar forsætisráðherra, og Thor Thors, síöar þingmaöur, voru á kafi í pólitík og komu ekki mjög nálægt stjóm Kveldúlfs. Það gerðu á hinn bóginn bræður þeirra, Kjartan, síðar formaður VSÍ, og þó sérstak- lega Haukur og Ríkharður. Sagt er um Kveldúlf aö hann hafi verið orðinn þungur á fóðrunum, að fyrirtækið hafi átt að sjá fyrir of mörgum íjölskyldum. Stjórnunar- spekúlantar nútímans segðu einfald- Fréttaljós Jón G. Hauksson lega að yfirbygging þessa fyrirtækis hafi verið orðinn of mikil, að of marg- ir hafi ætlað að stjóma. Verslunin Edinborg Verslunin Edinborg var vefnaðar- og leikfangaverslun, stofnuð af Ás- geiri Sigurðssyni. Edinborg stundaði jafnframt útgerð. Ásgeir átti mikil viðskipti við Skota, þess vegna hét fyrirtækið Edinborg. Ásgeir var breskur aðalkonsúll hér á landi og þótti það mikill heiöur. Ásgeir átti tvo syni, Harald Sig- urösson leikara og Walter sem lést af voðaskoti. Haraldur var þekktur gamanleikari. Hann var digur mjög og frægt varð þegar hann sagði: „Þeir sem guðirnir elska deyja þungir." Siguður B. Sigurðsson sem ekki var sonur Ásgeirs eignaðist fyrirtækið. Sigurður var stórkarl í Reykjavík, heíðarmaður í hugum flestra. Áf son- um hans má nefna Niels P. Sigurðs- son sendiherra. Stórveldið Edinborg endaði sinn glæsta feril á að byggja húsið Domus við Laugaveginn. Það reyndist ofraun. Edinborgarveldið var hrunið. Nokkuð sem menn héldu að myndi standast tímans tönn. Lárus G. Lúðviksson Lárus G. Lúðvíksson var stærsta skóverslun landsins um árabil og var til húsa í Bankastrætinu þar sem Verslunarbankinn er núna. Margir muna eftir versluninni. Þar var karladeild og kvennadeild, breiður stigi, dúkurinn eftirminnilegur og skósalan á tveimur hæðum. Þetta þótti geysilega fin búð. Margir muna þó mest eftir afgreiðslumanninum Ingólfi ísólfssyni, bróður Páls ísólfs- sonar organista, en hann sneið pappírinn á skókassann, tók snæri, kastaði öllu upp í loft og í kassann fóru skómir með glæsibrag. Snöggur og dýrlegur afgreiðslumaður að mati fólks sem keypti af honum skó. Þessi gífurlega þekkta skóverslun leið undir lok. Ótrúlegt en satt miðað við umsvifin. Önnur verslun nálægt Lárusi G. Lúðvíkssyni var fataversl- unin Haraldur Ámason í Austur- stæti þar sem nú er Karnabær. Haraldur Ámason þótti hafa sérlega fin fot og var leiðandi. Þessi búð var eins konar Sævar Karl nútímans. Marteinn Einarsson Marteinn Einarsson og co. var þekkt verslun við Laugaveginn þar sem nú er Alþýöubankinn. Hún var þekkt fyrir vefnaðarvörur. Var á tveimur hæðum og þótti afskaplega vönduð búð. Hún var virt. Reyndar þótti Marteinn svo langt upp á Laugavegi að sumir töluðu um að hann væri of mikið út úr. Gunn^r Hannesson, síðar formað- ur Víkings og þekktur ljósmyndari, var einhver eftirminnilegasti af- greiðslumaðurinn hjá Marteini. Marteinn bjó á þriðju hæðinni í glæsilegri íbúö. Fyrirtækið heyrir nú fortíðinni til. Alience og Silli og Valdi Loks skal minnst á Alience og þá Silla og Valda. Aðalstöðvar Alience voru við Tryggvagötu. Fyrirtækið var risi í útgerð og var aöalforstjóri þess Jón Ólafsson. Af honum tók viö starfinu sonurinn Ólafur H. Jónsson. Hvort sem það voru fiskmarkaðir eða rangt skráð gengi þá gekk fyrir- tækið ekki og hætti. Silla og Valda, Sigurliða Kristins- son og Valdimar Þórðarson, þekkja allir. Þegar þeirra veldi leið undir lok runnu eigur Sigurliða til íslensku óperunnar og hins opinbera. Eigur Valdimars runnu til þriggja bama hans. En stórveldið á matvömmark- aðnum, Hagkaup síns tíma, Silli og Valdi, var liðið undir lok. í mörgum þessum fyrirtækjum kom þriðja kynslóðin ekki til sög- unnar. Starfsemi þeirra lauk þegar hjá annarri kynslóðinni. -JGH Þetta er hús Kveldúlfs við Skúlagötuna. Þetta hús er núna hvitt með bláu þaki og á að hverfa innan skamms. Mynd Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.