Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1988, Síða 32
MIÐVIKUDAGUR 4. MAl 1988.
Ný vináttubönd myndast
Þad ríkir góður félagsandi hér, seg-
Ir Lára Vilhelmsdóttir, forstöðukona
Félagsstarfs aldraðra i Lönguhlið
3. DV-mynd GVA.
„Það eru margar konur sem koma
hingað á hverjum degi, en þær eru
yfirleitt duglegri að koma en karl-
arnir,“ segir Lára Vilhelmsdóttir,
forstöðukona Félagsstarfs aldraðra í
Lönguhlíð 3.
Borgin ber allan kostnað af félags-
starfi aldraðra í Lönguhlíðinni og
býður auk þess upp á félagsstarf fyr-
ir borgara 67 ára og eldri í Norður-
brún 1, Furugerði, Frostaskjóli,
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi,
VR-húsinu Hvassaleiti 56-58 og Selja-
hlíð við Hjallasel og í haust var
opnuð ný félagsmiðstöð í Bólstaðar-
Sú afþreying og þjónusta sem boðið
er upp á á þessum stöðum er afar
fjölbreytt, má þar nefna handavinnu,
leirmunagerð, smeltvinnu, tau-
þrykk, leöurvinnu, enskunámskeið
og bókband. Auk þess eiga aldraðir
kost á að fara í leikfimi, hárgreiðslu,
fótsnyrtingu og fleira í félagsmið-
stöðvunum. Einnig er boðiö upp á
sundnámskeið.
öldruðum sent fréttabréf
„Öllu því fólki sem komið er yfir
67 ára aldur er sent fréttabréf um
málefni aldraðra og kynnt hvað sé í
boði á hveijuin, staö.
En auk þess að bjóða upp á afþrey-
ingu, líkamsrækt og snyrtingu selj-
um við mat og kaffi hér alla virka
daga,“ segir Lára. „Fólkiö verður að
koma sér hingað á eigin spýtur, en
þeir sem eru fatlaðir fá hjálp frá ör-
yrKjabandalaginu við að komast á
milli.
Það er mikið gert af handavinnu
hér, svo og af trévinnu. Vor og haust
höldum viö svo markað þar sem aldr-
aðir geta selt þá muni sem þeir hafa
unnið. En mikið af þeim hlutum sem
fólkið býr til hérna notar það raunar
til gjafa.“
Góður andi
„Það ríkir mjög góður félagsandi
hér. Almennt held ég að aldraðir séu
mjög ánægðir með þá þjónustu sem
boðið er upp á. Hér kynnist fólk hvert
öðru og ný vináttubönd myndast.
Margt af þessu fólki er mjög einmana
og því þykir því gott að eiga kost á
að geta tekið þátt í félagsstarfi.
Hér getur fólk keypt efni til hvers
kyns handavinnu mjög ódýrt. Og það
má einmg nefna að af verði hárklipp-
ingar og fótsnyrtingar borgar fólk
aðeins rúman helming þess sem það
kostar að fá slíkt gert á stofum út í
bæ,“ sagði Lára að lokum. -J.Mar
LífsstQI
Félagsstarf aldraðra:
Auk þess aö bjóöa upp á dans hefur félagið boðið upp á kennslu i tungumálum, handavinnu og framsögu.
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni:
Þar skemmta
allir sér
orðin hálffullorðin. Það hefur því
nógan tíma til að taka þátt í félags-
starfi," segir Pétur H. Ólafsson hjá
Félagi eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni.er DV tók hann tali á
spilakvöldi í Goðheimum og bað
hann að segja frá því helsta sem
félagiö býður upp á.
Félögum fjölgar stöðugt
„Félagið, sem er hvoru tveggja í
senn skemmtifélag og hagsmunafé-
lag, var stofnað 15. mars 1986.
Stofnfélagar voru 784 en í dag eru
félagsmenn 6.500.
Félagið rekur umfangsmikla fé-
lagsstarfsemi í Goðheimum, Sigt-
úni 3. Þar eru söngæfingar,
spilamennska, dans og fleira. Auk
þess sem félagið gefur út frétta-
um upp í húsaleiguna með því að
láta fólk borga fyrir þá skemmtun
sem hér er boöið upp á. Á þriðju-
dögum kostar 50 krónur að taka
þátt í spilamennskunni. Á fimmtu-
dögum kostar það 100 krónur og á
sunnudögum kostar 200 krónur,
enda leikur hljómsveit þá fyrir
dansi. Svo greiða félagsmenn fé-
lagsgjöld, sem eru 1200 krónur á
ári. En auk þessa höfum við fengið
styrki frá sveitarfélögunum.
Ferðalög og Færeyjaferð
Auk spila og danskvölda höfum
við staðið fyrir ferðalögum um
landið. Til dæmis fórum við í geysi-
fjölmenna ferð um Suðurlandsund-
irlendið í fyrra en alls tóku 1338
manns þátt í henni. Svo fórum við
„Hér er létt og kátt fólk og ekkert
sem heitir að láta sér leiðast. Það
fólk sem hingað sækir er orðið
laust undan þeim kvöðum sem hafa
hvílt á því. Börnin fyrir löngu orð-
in fullorðið fólk og bamabömin
bréf. Og býður upp á ferðalög á á
sumrin.
Félagsgjald og leiga
Við leigjum Goðheimana á 50
þúsund krónur á mánuði. Viö höf-
Sprengisandsleið í Gæsavötn sem
var mjög skemmtileg ferð. í hana
fóru 94 manneskjur á aldrinum
65-91 árs.
Það gekk raunar svolítið illa að
fá einhveija ferðaskrifstofu til að
ur á dansleik á Sauðárkróki. Þetta
veröur mjög ódýr ferð, hún kostar
ekki nema 36 þúsund fyrir mann-
inn. Og sitthvað fleira verður á
dagskránni hjá okkur auk þessa í
sumar.
Þurfum að eignast eigið
húsnæði
Eitt okkar brýnasta mál núna er
að eignast eigið húsnæði. Það er
mjög erfitt að reka umfangsmikla
félagsstarfsemi' og vera á hrak-
hólum méð húsnæði. Við erum að
hefja söfnun í þennan félagsheim-
ilssjóð. Og ég get nefnt að fyrir
skömmu var borin upp þessi tillaga
á fundi í stjóm félagsins og sam-
þykkt: Böm og barnabörn: Leggið
hönd á plóginn eftir efnum og
ástæðum og stuðlið að því að félag
eldri borgara á Reykjavíkursvæð-
inu komi sér upp félagsmiðstöð.
Um leið styrkið þið félagslíf ykkar
á elliárunum. Við erum að fara af
stað með þessa söfnun og getur fólk
lagt fram framlög á gíróreikning
félgsins.
Sendum þingmönnum bréf
í fyrra sendum við öllum ráðu-
neytum og þingmönnum bréf þar
sem við fómm fram á eftirfarandi:
Að ellilaun og örorkulaun miðist
við og verði aldrei lægri en lág-
markslaun samkvæmt Kjarasamn-
ingi Verkamannasambands
íslands.
I sumar ætlum við að skella okkur
til Færeyja, segir Pétur.
Að bundið veröi í lög að fasteig-
nagjald faUi niður af íbúð ellilauna-
þega eða öryrkja, búi hann í
íbúðinni sjálfur.
Að tekjutrygging ellilauna, eins
og hún er í núverandi mynd, skerð-
ist ekki enda þótt viðkomandi njóti
launa á vinnumarkaði eða úr líf-
eyrissjóði allt að lágmarkslaunum
samkvæmt kjarasamningi Verka-
mannasambands íslands.
Að gerðar verði þær breytingar á
lögum um tekjuskatt að þeir sem
komnir eru á ellilaunaaldur og
kjósa eftir sem áður að hafa að-
stöðu til þess að vinna á almennum
vinnumarkaði, njóti sérstakra
skattfríðinda. Enn höfum við ekki
fengið svar við þessari málaleitan.
Margt fleira höfum við gert á
hagsmunasviðinu. Við höfum til að
mynda útvegað eldri borgurum
5-10% afslátt í fjöldamörgum versl-
unum. Enda hlýtur að teljast mjög
hagkvæmt að gefa okkar fólki shk-
an afslátt þar sem þetta fólk
staðgreiðir það sem það er að
kaupa en borgar ekki með kredit-
kortum," sagði Pétur að lokum.
-J.Mar
Tíðarandi
taka þátt í því ævintýri með okkur.
Þeir héldu víst að það væri ófram-
kvæmanlegt að fara með svo
gamalt fólk í slíka ferð. En það
hafðist og við lögðum í hann á
þremur íjallabílum og ferðin gekk
í alla staði mjög vel.
í sumar erum við svo að hugsa
um að skella okkur til Færeyja í
samvinnu við Ferðafélagið og BSÍ.
Raunar ætti maður kannski frek-
ar að segja að við ætlum hringinn
með viðkomu í Færeyjum. Því við
ætlum að fara á rútum austur á
Seyðisfjörð og fara með Norrænu
út. í Færeyjum æltum við svo að
dvelja í 5 daga og þegar við komum
til baka ætlum viö aö fara norður-
leiðina. Jafnvel erum við að hugsa
um að fá eldri borgara á norður-
og norðvesturlandi til að hitta okk-
Góð þátttaka er yfirleitt á spilakvöldum félagsins. Venjulega er spilað
á 18-24 borðum. I verðlaun er svo yfirleitt eitthvað matarkyns sem fyrir-
tæki Jóns Júlíussonar í Nóatúni 17 gefur. DV-myndir Brynjar Gauti