Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Side 29
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988.
Hinhliðin
• Theodór Júlíusson leikur Tevje í uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Fiölaranum á þakinu. Theodór segir
að honum finnisl leiðinlegast að horfa á leiksýningu sem honum finnist léleg.
„Langar mest til
að hitta hana
Meryl Streep '
- segir Theodór Júlíusson, leikari á Akureyri
Leikfélag Akureyrar
hefur verið að sýna
verkið fræga, „Fiðlar-
inn á þakinu“ undan-
farnar vikur við frá-
bærar undirtektir.
Theodór Júhusson,
leikari á Akureyri, fer
með aðalhlutverkið og
leikur Tevje af mikilli
snilld. Frammistaða
hans hefur verið lofuð
og enn er ekki séð fyrir
endann á mjög góðri
aðsókn að Fiðlaranum.
Theodór hóf störf hjá
Leikfélagi Akureyrar
fyrir tíu árum og var
við sinn fyrsta samlest-
ur á afmælisdegi sín-
um. Óshtið hefur The-
ódór starfað hjá LA ut-
an eitt ár er hann
dvaldi við nám í Lon-
don.
„Það er voðalega
gaman þegar maður
finnur að fólk skemmt-
ir sér vel í leikhúsi.
Undirtektir hafa verið
mjög góðar og ég
reikna með að við sýn-
um fram yfir 17. júní,“
sagði Theodór í samtali
við DV en hann sýnir
lesendum á sér hina
hliðina að þessu sinni.
Fara svör hans hér á
eftir:
Fullt nafn: Theodór Júlíusson.
Fæðingardagur og ár: 21. ágúst
1949.
Maki: Guðrún Stefánsdóttir.
Börn: Hrafnhildur, Ásta Júlia, Sara
og Vigdís. Síðan er ég að passa dótt-
ursoninn Theodór og er hann einn
af heimilsfólkinu.
Bifreið: Honda Civic, árgerð 1983,
og Saab 99, árgerð 1977, sem ég
held mikið upp á.
Starf: Leikari.
Laun: Um 60 þúsund á mánuði.
Áhugamál: Fyrst og fremst starfið
og íþróttir.
Hvað hefur þú fengið margar tölur
réttar í lottói? Tvær, en ég hef lítið
spilað síðan í haust.
Hvað frnnst þér skemmtilegast að
gera? Einna skemmtilegast finnst
mér að fara í ferðalag meö fjöl-
skyldunni og helst að gista í tjaldi.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Aö horfa á leiksýningu sem
mér finnst léleg.
Hvað er það neyðarlegasta sem fyr-
ir þig hefur komið? Það er líklega
þegar ég hef kallað einhvern vit-
lausu nafni á leiksviðinu.
Uppáhaldsmatur: Sunnudags-
lambahryggur eins og hann hefur
verið í gegnum árin.
Uppáhaldsdrykkur: Góður bjór er
einn af uppáhaldsdrykkjunum.
Hvaða íslenskur íþróttamaður
stendur fremstur í dag? Arnór
Guðjohnsen og Kristján Arason.
Uppáhaldstímarit: Enskt leikara-
tímarit sem heitir Pleasant players.
Fallegasta kona sem þú hefur séð
fyrir utan konuna þína: Linda Pét-
ursdóttir, nýkrýnd fegurðardrottn-
ing íslands.
Hlynntur eða andvígur ríkisstjórn-
inni: Þessa stundina er ég andvígur
henni.
i hvaða sæti hafnar íslenska lands-
liðið í handknattleik í Seoul? Ég er
bjartsýnn og er að vona að það
hafni í 2. eða 3. sæti.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Meryl Streep. Hún gæti
örugglega gefið mér mörg góð ráð.
Uppáhaldsleikari: Þráinn Karlsson
og Sunna Borg.
Uppáhaldssöngvari: Kristján Jó-
hannsson.
Uppáhaldsstjómmálamaöur: Þeir
em nú ekki gæfulegir núna. Þessa
stundina er enginn í sérstöku
uppáhaldi.
Hlynntur eða andvígur bjórnum:
Hlynrttur honum en er svolítið
kvíðinn. Þetta gæti orðið erfitt.
Hlynntur eða andvígur vem varn-
arliðsins hér á landi: Andvígur.
Hver útvarpsstöðvanna fmnst þér
best? Ríkisútvarpið.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Ævar
Kjartansson.
Hvort finnst þér betra, Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég á ekki myndlykil
þannig að samanburður er ekki til
staðar.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sigrún
Stefánsdóttir.
Uppáhaldsskemmtistaður: Leik-
húsið.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ég er
fæddur á Siglufirði og er því KS-
ingur en eftir að ég fluttist til Akur-
eyrar fyrir tíu árum þurfti ég að
gera upp á milh KA og Þórs og er
Þórsari.
Eitthvað sérstakt sem þú stefnir að
á þessu ári: Já ég ætla mér að reyna
að halda út reykingabindindið, en
ég hætti að reykja á reyklausa dag-
inn.
Hvað ætlar þú að gera í sumarleyf-
inu? Fara í þrjár vikur meö fjöl-
skyldunni til Kanada og heimsækja
bróður minn. ,
-SK
29
ÚTBOÐ Efnisvinnsla í Barðastrand- arsýslu 1988
v/vm \m Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- |f greint verk. Efnismagn: Tilhögun A 18.000 m3 og verklok 20. sept. 1988. Tilhögun B 28:000 m3 og verklok 1. júlí 1989. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 30. maí nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 13. júní 1988.
Vegamálastjóri
NEW LOOK
Þingholtsstræti 1, 101 Rvík sími 91-24666
Snyrtivöruverslun/heildverslun_
LITIR VERÐ
NAGLALAKK 76 175,-
VARALITIR 76 150,-
MASKARAR 24 200,-
EYELINER 12 225,-
GLOSS 24 150,-
AUGNBLÝANTAR 46 90,-
VARABLÝANTAR 12 90,-
AUGNSKUGGARx2 24 225,-
AUGNSKUGGAR x3 24 250,-
STEINPÚÐUR 6 250,-
KINNALITIR 10 240,-
MAKEUP 3 250,-
BURSTASETT10 stk. 8 1200,-
PARFUME10 gerðir, 100 ml 865,-
HÁRLAKK/Chantal 250,-
FROÐA/Chantal 150,-
óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða tit sýnis þriöjudaginn 31. mai 1988, kl.
13-16, i porti bak við skrifstofu vora aö Borgartúni 7, Reykjavík og viðar.
Tegundir Árg.
2 stk. Volvo 244 GL. fólksbifr. 1982-84
1 stk. Saab 99 GL fólksbifr. 1984
1 stk. Mazda 626 fólksbifr. 1983
1 stk. Mazda 323 fólksbifr. 1983
1 stk. Volkswagen Golf sendif. bifr. 1983
2stk. Subaru station 4x4 1981-82
1 stk. Lada station 1984
1 stk. Chevrolet pickup m/húsi dísil 4x4 1982
1 stk. Chevrolet Suburban bensin 4x4 1977
1 stk. Dodge Ramcharger 4x4 1979
1 stk. Toyota HiLux m/húsi bensin 4x4 1981
4 stk. Lada Sport bensín 4x4 1982-85
1 stk. Mitsubishi L-300 pickup 1981
1 stk. Ford Econoline sendif. bifr. 1979
1 stk. Volkswagen sendif.bifr. 1971
1 stk. Mercedes Benz vörubifr. 4x4 1970
1 stk. Volvo N84 fólksfl. og vörubifr. 1971
Til sýnis hjá RARIK Egilsstööum:
1 stk. Toyota Hilux pickup m/húsi 4x4 1982
Til sýnis hjá Áburöarverksmiðju rikisins Gufunesi:
1 stk. Mercedes Benz 309 fólksfl.bifr. 1980
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins Grafarvogi.
1 stk. Mercedes Bens AK 2632 dráttarbifr. 6x6 1979
1 stk. Kassbohr malarfiutn. vagn 1970
1 stk. VolvoFB 88 vörubifr. 1973
Til sýnis hjá Vegagerð rikisins Borgarnesi:
1 stk. Bröyt x-2 B. (vél Perkins) 1972
1 stk. Bröyt x-2 (vél Volvo D50) 1967
1 stk. Caterpiliar F-12 veghefíll 1972
1 stk. Caterpillar F-12 1966
Til sýnis hjá Vegagerö rikisins, Reyöarfirði.
1 stk. A. Barford S-600 veghefill 1974
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn
til aö hafna tilboöum sem ekki teijast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006