Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1988, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1988, Síða 44
FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 MÁNUDAGUR 30. MAÍ 1988. Akureyri: Ók á hross Ökumaður ók á hross við golfvöll- •■fcn Jaðar á Akureyri í gærkvöld. Hrossiö sakaði ekki og ekki urðu slys á fólki. Bifreiðin skemmdist töluvert \ið höggiö. Töluvert er af hesthúsum í ná- grenni golfvallarins. -sme Þrjú þúsund og tvö hundruð manns á öllum aldri tóku þátt í hjólreiðadeginum í blíðskaparveðri í Reykjavík í gær þar sem hjólað var í þágu fatlaðra. Hjólað var frá sjö stöðum í Reykjavík og einum í Kópavogi að Kringlunni. Verslanirnar í Kringlunni hétu sjötíu og sex krónum á hvern þátttakanda til eflingar íþróttastarfsemi fatlaðra og styrktar sundlaugarbyggingu í Reykjadal í Mosfellssveit, þar sem áttatíu til níutíu fötluð börn dveljast á sumrin. -SÞ/DV-mynd KAE Uppgjör konu: Ekki búin að finna útgef- ánda ennþá - segir Halla Linker „Nei, ég hef ekki fengið neinn út- gefanda að bók minni ennþá. Ég er nú heldur ekki farin að leita mér að útgefanda enda ekki búin að þýða bókina, á eftir um 70 blaðsíður," sagði Halla Linker en hún er nú að ljúka þýðingu bókar sinnar, Uppgjör konu, sem var sem kunnugt er met- sölubókin hér á íslandi um síðustu jól. Halla sagði að það væri alveg óvíst hvort hún fengi útgefanda að bókinni 1. i Bandaríkjunum því þó hún væri '^iekkt á íslandi þá gegndi öðru máli í Bandaríkjunum. „Heima á íslandi þurfti ég ekki að leita að útgefanda heldur leituðu þeir að mér. Hér í Bandaríkjunum er þetta öðruvísi og ég er hrædd um að það hafi lítið að segja þó bókin hafi selst vei heima." Halla sagðist þó ætla að fara af stað með handrit bók- arinnar þegar þýðingu hennar væri lokið. Hún sagðist ekki vita hvenær það yrði enda þyrfti hún ekkert að flýta sér. Að sögn Höllu þá breytir ?»tún bókinni ákaflega lítið í þýðing- unni nema á einstöku stað þar sem ættir eru raktar er breytt enda skilja Bandaríkjamenn lítið í því. En er önnur bók á leiðinni? „Það er engin bók á leiðinni fyrr en ég skrifa skáldsögu. Ég þekki svo margt fólk sem hefur lifað ævintýra- legu lífi og það væri gaman að skrifa skáldsögu byggða á því,“ sagði Halla. -SMJ Islenskur náms- maður týndur i BanaariKiunum - ekkert til hans spurst síðan 14. mars Ekkert hefur spurst til íslensks námsmanns í Bandaríkjunum í tvo og hálfan mánuð og hefhr lögreglan verið beðin aö svipast um eftir hon- um. Þetta er 25 ára gamal piltur sem hefúr verið við nám í North Texas University í Texas en hafði brugðið sér í frí til Kalifomíu. Eftir að pilturinn hafði verið nokkum tíma í Kaliforníu hringdi hann til fslensks skólafélaga síns og bað um að senda sér peninga fyrir fiugfarseðli svo aö hann gæti flogið til baka til Texas en þá haföi bíl hans verið stolið. Höfðu öll skil- ríki hans horfið meö. Kunningi piltsins simsendi peningana en þegar hann birtist ekki í Texas fóru menn að hafa áhyggjur af honum. Þetta var 14. mars en síðan hefur ekkert til piltsins spurst. Að sögn Höllu Linker, ræðis- manns íslands í Kaliforníu, hefur lögreglan þar svipast um eftir hon- um í rúma tvo mánuði. Halla sagði að þa_ð væri hins vegar oft erfitt fyrir íslendinga að gera sér grein fyrir þvi hve vandasarat getur ver- ið að hafa upp á týndu fólki i Bandaríkjunum. Lögreglan væri þó bjartsýn á að ekkert alvarlegt hefði komið fyrir piltinn. Bíllinn, sem pilturinn var á, fannst í smábæ þijá kilómetra frá landamæram Mexíkó og taldi lög- reglan í San Diego að hann hefði jafnvel farið til Mexikó. Hefur upp- lýsingum um piltinn verið dreift um öll Bandaríkin og Kanada. -SMJ LOKI Það er hart í norð- lensku gæðingunum. Veðrið á morgun: Bjartveður sunnan- lands Á morgun verður austlæg átt en dálítil rigning nyrst á landinu og þokuloft austanlands en bjart veður að mestu suðvestanlands, þó ef til vill síödegisskúrir. Hiti 3-7 stig viö noröur- og austur- ströndina en allt að 15 stiga hiti suðvestanlands. Metafli hjá Gylli, Flateyri: 175 tonn afgrálúðaá 33 tímum Reynir Traustason, DV, Flateyri: Togarinn Gyllir frá Flateyri setti heldur betur í hann fyrir helgir a þegar hann fékk 175 tonn af grálúða á 33 tímum. Aflinn fékkst á hefð- bundnum grálúðumiöum, 70 til 8o sjómílur vestur af Bjargtöngum. Þetta er mesti afli sem Gyllir hefur fengið á svo skömmum tíma. Togar- inn er búinn að landa um 900 tonnum af grálúðu á einum og hálfum mán- uði. Úthaldsdagar á tímabilinu eru aðeins 26. Hina dagana hefur hann legið bundinn í svokölluðu ráðherra- stoppi en skipið er á sóknarkvóta og verður þar af leiðandi aö liggja 110 daga á ári. Skipstjóri á Gylli er Grét- ar Kristjánsson. Túrinn tók þijá sól- arhringa höfn í höfn. Útbúnaði til köfunar stolið Innbrot var framið í fyrirtækið Prófun við Fiskislóð í Reylcjavík og stolið þaðan ýmsum útbúnaði til köf- unar. Prófun er þjónustufyrirtæki og sér um viðgerðir og stillingu á köfunarútbúnaði. Það var á laugardagsmorgun að starfsmenn fyrirtækisins urðu inn- brotsins varir. Rannsóknarlögreglan vinnur að rannsókn málsins. -sme Bókabúð Breiðholts: IVö innbrot með fárra daga millibili Tvö innbrot hafa verið framin í Bókabúð Breiðholts við Arnarbakka, með fárra daga millibili. í nótt hand- samaöi lögregla þrjá tjórtán ára gamla drengi við bókabúðina. Þeir voru með talsvert þýfl er þeir voru handteknir. Fyrra innbrotið var framið aðfara- nótt fóstudags. Þá var stolið skipti- mynt, vasareiknum og myndavélum. Rannsóknarlögregla vinnur að rann- sókn innbrotanna og kannar hvort sömu þjófar eigi sök á báðum inn- brotunum. -sme Umferðin: Hraðinn er mjög mikill Lögreglan í Reykjavík kærði á fóstudag og laugardag um 60 öku- menn fyrir of hraðan akstur. Þar af voru fjórir sviptir ökuleyfi. Á fóstudag voru þrír sviptir öku- leyfi, einn fyrir að aka á Kringlumýr- arbraut á' 133 kílómetra hraða og tveir fyrir að aka á 112 kílómetra hraða, annar í Ártúnsbrekku og hinn á Hringbraut við Bjarkargötu. Á laugardag var einn sviptur öku- leyfi vegna hraðaksturs. Sá var tek- inn fyrir að aka Hringbraut á 103 kílómetra hraða. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.