Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988. Fréttir A annað hundrað hrein- dýr hafa fundist dauð „Það hafa hreindýr verið að fmnast dauö í Borgarfirði eystra án þess að menn viti hveijar skýr- ingamar eru. Þetta eru á annað hundrað dýr og vegna þess þorðum við ekki öðru en að minnka veiði- kvótann niður í 330 dýr. Ég held líka að það sé alveg víst að það fækkar í stofninum en við teljum hann vera á milli 3000 og 3500 dýr,“ sagði Runólfur Þórarinsson, deildarstjóri í menntamálaráðu- neytinu. Runólfur sagði aö veiðitíminn stæði frá 1. ágúst til 15. september. - talið að kjötverð hækki um helming I fyrra var leyfð veiði á 600 dýrum, 400 veiddust á sumarvertíðinni en 80 um veturinn. „Vetrarveiði er alger undantekning og var sú fyrsta í fjögur ár. Stefnan er að leyfa hana ekki,“ sagði Runólfur. Runólfur sagði að hreindýr hefðu verið talin úr flugvél inni undir Vatnajökli á afréttum Jökuldæl- inga og Fijótsdælinga. Virtust þau vera fleiri en í fyrra á þessum slóð- um og sennilega hefðu dýrin fært sig þangað af fjörðunum því að lítið hefði orðið vart við hreindýr þar. Eftirlitsmenn eru í hveriu sveitar- félagi fyrir austan og þeir hafa leyfi til þess að fella dýrin. Aðrir fá ekki að veiða og það er bannað að selja veiðileyfi. AIls munu það vera 32 hreppar sem hafa leyfi til að fella dýr,“ sagði Runólfur Þórarinsson. Verðið hækkar „Heildsöluverðiö í fyrra var 800 krónur á kílóið af læri og hrygg. Verðið í ár hefur ekki verið ákveð- ið enda er veiðin ekki byrjuö og venjan er sú að erfitt er að ná dýr- unum fyrr en seinni hluta ágúst- mánaðar. Ég held að það sé óhætt að ganga út frá því sem vísu að verðið verði hærra en í fyrra, bæði vegna minnkandi framboðs á kjöti svo og hækkandi verðlags en meðal annars leggst á söluskattur sem var ekki í fyrra. Það kæmi mér ekki á óvart þótt kílóverðið yrði 1200 króniu- þó að ég hafi ekkert fyrir mér í því nema eigið nef,“ sagði Jóhann Bjömsson, sölumaður í sláturhúsi Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöðum. JFJ Ólafs- firðingar fógeta- lausir - staðan augiýst aftur Staða bæjarfógetans á Ólafs- firði var auglýst laus til umsókn- ar í apríl eftir að Barði Þórhalls- son, fyrrum bæjarfógeta, var veitt lausn frá störfum. Enginn sótti um stöðuna þegar hún var auglýst og hún hefur ekki veriö auglýst aftur. Samkvæmt upplýs- ingum frá dómsmálaráðuneytfriu stendur hins vegar til að auglýsa stöðuna aflur innan skamms. Á meðan eru Ólafsfirðingar fóg- etaiausir en Elias Elíasson. hæj- arfógeö á Akureyri, gegnir jafii- framt stöðu bæjarfógeta fyrir Ól- afsfirðinga á meðan á þessu stendur. Mun Elias vera ætlað aö gegna stööunni út ágústmánuð. Vonast menn í dómsmálaráðu- neytinu að fyrir þann tíma verði búið aö ráða nýjan bæjarfógeta. Ekki hafa menn nelnar skýringar á því hversu illa hefur gengiö aö ráða í starfið en launin munu vera um 100.000 krónur á mánuði og hægt að búa í embættisbústað sem menn þurfa að leigja. JFJ Heyskapur Horfumar víðast góðar „Það hefur ekki verið gerö nein forraleg úttekt á þvi hvernig hey- skapurinn gengur en hann er í fullum gangi og gengur misjafn- lega eins og gengur og gerist. Þetta er hvorki slæmt né sérstak- lega gott ástand,“ sagði Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri. Heyskapur hófst í lok júní og bjnjun júlí en í heildina sagði búnaöarmálastjóri að hann hefði fariö seint af stað enda hefði tíðin ekki verið sérlcga góð. Horfumar væru víðast hvar þokkalegar en það gæti oröið erfiöara fyrir þá sem síðast hófu slátt og væru nú skaxnmt á veg komnir. „Því er ekki að neita aö veðrið sem var síðustu daga olli tjóni enda áttu menn von á þurrki þessa daga á Suöurlandi. Hvas- sviðriö kom lika illa við menn þegar hey fauk til og frá,“ sagði Jónas Jónsson. JFJ Halldór Halldórsson skipstjóri og áhöfn hans á Sif IS-225 dytta að snurvoðinni svo allt verði skothelt fyrir næstu töm. DV-mynd Reynir. Metveiði í snuivoð á Vestfjörðum: Víkingur fékk 15 tonn á 15 mínútum Reynix Traustason, DV, Flateyri: Mokveiði hefur verið að undan- fömu h)á snurvoöarbátum frá Vest- fjörðum. Tveir bátar, Sif og Jónína, em gerðir út á snurvoð frá Flateyri og hafa fengið upp í 10 tonn í róðri, sem þykir mjög gott. Víkingur III frá ísaflrði hefur þó slegiö öll met. Hann er búinn aö landa 250 tonnum á einum mánuði, aðallega þorski. Gísli Skarphéðins- son, skipstjóri á Víkingi, sagði í sam- tali við DV aö þeir hefðu fengið mest 15 tonn í kasti, það er eftir 15 minút- ur. Að sögn Gísla hafa þeir verið að veiðum á Amarfjarðarsvæöinu, svo og síðustu daga inni á Dýrafiröi. Fékk far heim af dansleik: Skaut að tveim mönnum í gegnum framrúðu bíls Maöur skaut í gegnum framrúð- una á bíl þar sem tveir menn sátu án þess þó að hitta mennina. Gerðist þetta rétt utan við Húsavík. Tveir menn höfðu ekiö þeim þriðja heim af dansleik aðfaranótt laugar- dagsins. Sinnaöist mönnunum eitt- hvaö á leiðinni. Þegar heim er komið hleypur sá er ekið var inn í húsið og kom að vörmu spori aftur með byssu í höndunum. Skaut hann umsvifa- laust á mennina í framsæti bilsins, en án þess að hitta. Mennimir óku í burtu og á lög- reglustöðina þar sem þeir kærðu skotárásina. Handtók lögregla skot- manninn og fann hjá honum eitthvað af skotvopnum sem vora gerö upp- tæk. Að sögn lögreglunnar á Húsavík haföi maðurinn skotið fleiri skotum án þess að hitta neitt sem máli skipti. Höfðu hin skotvopnin verið notuð áður, en á eðlilegan hátt að sögn lög- reglu. Var skotmaöurinn settur í gæslu- varðhald, en sleppt lausum í gær- morgun þar sem lögregla telur sig hafa allár upplýsingar í málinu. Skotmaðurinn var ölvaður þegar þetta gerðist. Þekkjast mennimir og era allir milli 20 og 30 ára gamlir. Fær málið venjulega meðhöndlun að rannsókn lokinni. -hlh uram Pósturinn er nú aö dreifa um 35 þúsund umsiögum sem hafa að geyma ávisanir frá ríkissjóði að upphæð 13 milijarðar króna. Viðtakendur eru þeir sem hafa rétt á barnabótum, bamabóta- auka, húsnæöisbótum og vaxta: hvetju urnslagi er ávísun að meö- altali aö upphæö um 55 þúsund krónur. Bamabætur hjóna með eitt bara, sem útborgaðar verða nú, eru ura 4.850 krónur. Einstætt foreldri meö eitt bam fær hins vegar um 14.500 krónur. Bama- bætur hjóna með tvö böra og annaö undir sjö ára aldrí era tæplega 17 þúsund krónur. Ein- stætt foreldi með jafiimörg börn og annað undir sjö ára aldri fær hins vegar tæpar 34 þúsund krón- ur. Ef foreldrið fær einnig barna- bótaauka fær þaö nú um 45 þús- und krónur. Alls verða borgaðar út 800 miHj- ónir í bamabætur og barnabóta- auka. Vaxtaafslátturinn er sam- tals 700 miiijónir og húsnæðis- bæturnar 400 miiijónir. Sjö tíma flug að ná ítvo sjómenn Þyrla vamarliösins sótti í gær tvo sovéska sjómenn um borð í sovéska togara um 350 mílur suð- vestur af landinu. Var annar meö opiö handieggsbrot og hinn bráöa botnlangabólgu. Vegna fjarlægðarinnar tlaug eldsneytisvéi frá vamarliöinu með þyrlunni Lenti þyrlan við Borgarspítalann iaust fyrir átta í gærkvöldi og halði þá verið um 7 tíma á flugi. -hlh öðrum sovéska sjómanninum fylgt frá þyrlu vamarliðsins Inn f Borgarspitalann. Hann hafði op- fð beínbrot við olnboga og gekk óstuddur. Sá með magakveisuna gekk elnnlg óstuddur Inn f spftal- ann. DV-mynd S Skoðanakönnun Skáis: 65% á móti I skoðanakönnun Skáís fýr Stöö 2 kom frara að 64,9% þeiri sem tóku afstööu styöja ekki ríl isstjórnina. 35,1% styðja hana. Þá var spurt að því hvenær fól teldí að stjómin félii. Af þeim sei tóku afstöðu sögðu 42% að stjón in félii á næstunni. u,i% sögð að hún félii í hausi 63% að hú KIl! i---x* i.J - --Tt/ bilið. 74,4% vilja kjósa aftur en 25,6% -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.