Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Blaðsíða 36
-36
FIMMTUDAGUR 28. JÚLl 1988.
Lífsstm
Unglingar á útíhátíðum:
Ekkert töff að vera kaldur,
Drykkjarvörur
Á öllum mótsstöðum eru seldar
allar algengustu drykkjarvörur.
'Hins vegar má gera ráö fyrir að
ódýrara sé að kaupa drykkina áður
en lagt er af staö. Ef þið drekkið te
takiö þá nokkra tepoka með. Alls
konar drykkjarvörur, mjólk og
ávaxtasafi, fást í geymsluþolnum
umbúðum.
matarlaus og peningalaus
Betra er að koma helm meö afgang af matnum en standa uppl matar-
laus og peningalaus.
máltíðir sem lítil fyrirhöfn er að
elda. Franskar kartöflur í dós eru
líka auðveldari í meðförum heldur
en kartöflur í pokum sem verða
auðveldlega fyrir hnjaski.
Pakkasúpur eru léttavara og því
er engin fyrirhöfn að hafa með sér
nokkra pakka. Ef leiðindaveður
verður (sem alltaf má búast við) er
gott að geta hitaö sér einn súpu-
bolla þegar maður kemur kaldur
og blautur upp í tjald.
Brauð og álegg eru nauðsynlegir
ferðafélagar. Ef lítill tími er til und-
Útihátíðimar um verslunar-
mannahelgina er það sem heillar
unglingana mest. Á þessum stöð-
um er yfirleitt seldur einhver mat-
ur, aðallega samlokur og pylsur.
Unglingum flnnst það hentugt því
þeir nenna yfirleitt ekki að standa
í stússi við matargerð. En sá hæng-
ur er á að þetta fæði er yfirleitt
mjög dýrt. Krakkarnir eiga í flest-
um tilfellum nóg með að borga
ferðirnar til og frá samkomustaðn-
um svo og aðgangseyrinn. Nesti
þarf því að vera tilbúið, eða svo
gott sem, og auðvelt að nálgast það.
Þar sem ekki er hægt að ætlast til
þess að einhver fullorðinn sé til
staðar við undirbúning eru þessi
atriði sett á blað til að unglingamir
geti sjálfir útbúið sig á skynsamleg-'
an hátt. Það er ekkert töff við það
að standa uppi peningalaus, kaldur
og matarlaus á sunnudegi.
Kalt kjöt er hentugt sem ferða-
nesti. Steikið kjúkling, einn eða
fleiri, og látið hann kólna. Einnig
er hægt að kaupa grillaðan kjúkl-
ing í stórmörkuðum. Hlutið kjúkl-
inginn sundur til helminga eða í
fernt og pakkið hveijum hluta fyrir
sig þétt inn í álpappír.
Kótilettur steiktar á „gamla mát-
aim“ í raspi em hentugar til
geymslu. Steikið kótilettumar í
feiti á pönnu og látið þær kólna
vel. Pakkið hverri fyrir sig í ál-
pappír og raðið í box.
Köld svið em líka ágæt. Kaupið
hreinsuð svið og sjóðið í 1-121 klst
í söltu vatni. Látið sviðin kólna og
pakkið þeim vel inn í álpappír.
Pylsupakka er gott að hafa með
sér. Víða á þessum samkomustöð-
um em kynt upp grill fyrir fjöld-
ann. Þá er gott að eiga nokkrar
pylsur tíl að steikja sér. Einnig er
fljótlegt að sjóða pylsur í potti.
Kaupið litla pakka því pylsuraar
geymast lengur ferskar í lokuðum
umbúðum.
Dósamatur er ágætur í svona
ferðir ef ekki þarf að bera farangur-
inn langar leiðir. Dós með bökuð-
um baunum, spaghetti eða hrís-
gijónarétti er gott að hafa með sér.
Dósamat má hita í umbúðunum
svo maður sleppur við allt sem
heitir of mikið uppvask. í dósum
em líka til alls konar kjöt- eða fisk-
Tjaldlfflð verður mlklu þœgllegra og skemmtilegra ef maður fer vel út-
búinn af stað.
Umbúðir og innpökkun
Reynið að ganga vel frá öllum
mat. Pakkið inn í álpappír eða nest-
isplastpoka matnum. Hafið eining-
amar smáar svo maturinn verði
aðgengilegri. Það tekur kannski
aðeins lengri tíma að ganga vel frá
matnum. Hins vegar sparast tími
þegar á mótsstaöinn er komið ef
þið vitið hvar hver hlutur er. Þegar
smurðu brauði er pakkað inn hald-
ið aðskildum ólíkum tegundum af
áleggi, svo bragð smitist ekki á
milli. Ef þið getið, pakkið þá matn-
um, sérstaklega brauði, í bitabox.
Það kemur í veg fyrir að nestið
klessist saman. Eitt sniðugt ráð:
Hafið með ykkur litla hhðartösku.
í hana getið þið sett nesti þegar þið
farið á böllin, því enginn nennir að
fara upp í tjald þegar hann verður
svangur. Með því getið þið sparað
ykkur innkaup á staðnum. Hlutir
eins og harðfiskur, súkkulaði og
hnetur er auðvelt að grípa í.
Heilræði
Eldið aldrei inni í tjaldinu. Stór-
hættulegt getur verið að hafa gas-
tæki og grill meö sér inn í tjaldið
til að hita upp. Gangið vel frá öllum
umbúðum af matnum og skiljið
ekki eftir rusl í kringum ykkur.
-JJ
Lif og fjör fylgir sfórum útihátiðum.
irbúnings er þó skárra að taka með
sér ósmurt brauð og álegg heldur
en ekkert. Samt er mun þægilegra
að smyija sér nesti áður en lagt er
af stað. Reynið að hafa úrvalið
sæmilega fjölbreytt svo komist
verði hjá leiða á smurða brauöinu.
Hægt er aö telja upp margar útgáf-
ur af smurðu brauði. Flatbrauð
með hangikjöti, franskbrauð með
skinku og osti, heilhveitibrauð með
lifrarkæfu, gróft brauð með tómöt-
um og eggjum eða tómötum og ag-
úrku.
Ef þið hafið ekki trygga kæliað-
stöðu varist þá salöt unnin úr maj-
onesi, það getur verið stórvarasamt
að borða skemmt salat. Ef þið farið
með kælibox ættu salöt að geymast
aðeins lengur.
Ávexti er gott að narta í. Kaupið
þá ávexti sem ykkur finnast bestir.
Athugið bara að ganga vel frá
mjúkum ávöxtum. Bananar, vín-
ber og kMi em dæmi um ávexti
sem illa þola hnjask. Að finna
kramda banana innan um fótin í
töskunni er meiri háttar ógeðslegt.