Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988.
9
Enrlque
Bemwdez segir af sér
Enrlque Bermudez sem nú tekur
að sér skipulagningu á öllum
hernaöaradgeróum kontraskæru-
liöa. Slmamynd Reuter
Kontraskæruliðar í Nicaragua
í gær að þeir hefðu faliö
Berraudez ofursta skipu-
_ . allra hemaðaraðgeröa
gegn sandinistasfjóminni.
Berraudez, sem verið hefur yfir-
■ herafla kontraskæruliða í
_______ landsins, kvaðst hafa
sagt af sér þvi starfi þar sem hann
hefði veriö kosinn í sjö manna
skæruliða fyrr í þessum
Kosning Berraudez olli því aö sjö
yfirmenn skæruliða í suðurhluta
landsins sögöu af sér á þeim for-
sendum að Bermudez heföi veriö í
hði Somoza fyrrum einræðisherra.
Honum var steypt af stóh í bylting-
unni 1978.
Sovétríkin hafa tilkynnt Banda-
rikjunum að þau vilji að Víetnamar
dragj sig til baka M Kampútseu,
aö því er Frank Carlucci, vamar-
málaráöherra Bandaríkjanna,
sagöi í gær. Þetta á aö hafa komið
fram i diplómatískum viöræðum.
Sovétmenn hafa opinberlega lýst
yflr ánægju sinni með væntanlega
brottför Víetnama en þeir hafa ekki
sagt opínberlega að þeir séu
hlynntir henni undir öllum kring-
umstæðum.
Að því er Bandaríkjamenn telja
nemur fjárhagsaðstoð Sovétmanna
við Víetnam um tveimur mihjörð-
um dollara á ári. Hluta af því fé
nota Vietnamar til þess að halda
um hundrað þúsund herraönnum
í Kampútseu.
Frank Carluccl, varnarmálaráð-
herra Bandarikjanna.
Simamynd Reuler
Gegn borgarastríði
Líbani ritar nafn slH á 100 metra langt mótmælaskjal gegn borgarastrið-
inu. Simamynd Routor
Um hundrað og tuttugu Beirútbúar sátu uppi í heila nótt viö víghnuna
í Beirút þar sem borgarastríö hefur geisað í mörg ár. Með vöku sinni
voru þeir að lýsa yfir andúð sinni á striðinu og krefjast nýs forseta sem
bundiö gæti enda á blóðbaðiö.
Sjötíu þúsund manns hafa ritað nöfn sín á 100 metra langt mótmæla-
skjal sem var breitt út meöfram víglínunni í Beirút.
Lent vegna vindlings
Farþegi, sem kveikti sér í vindlingi á flugvélarsalemi þar sem hann gat
ekki reykt í sæti sínu, varð til þess að flugvél breska flugfélagsins British
Airways neyddist til að lenda í Winnipeg á þriöjudaginn.
Farþeginn, sem er leikari frá Kaupmannahöfn, var leiddur fyrir rétt í
Winnipeg x gær. Var hann sakaður um að hafa valdið hættu um borð í
flugvélinni og ráðast á lögreglumann.
Leikarinn baröist við áhöfn flugvélarinnar, reyndi að opna flugvélardyr
og skvetti drykk í andht flugmannsins. Áhöfiiinni tókst þó að yfirbuga
reykingamanninn og var hann bundinn niður í sæti sitt. Flugsfjórinn bað
um lendingarleyfi í Winnipeg þar sem lögreglan mætti til leiks. Um borð
í véhnni voru um 380 farþegar.
Uk meölims mafíunnar á Sikiley.
Símamynd Reutor
Mafíustríð
Santo Prestifihppo var í gær skot-
inn til bana fyrir utan hús mafiu-
foringjans Greco á Sikiley. Presö-
fihppo var sakbomingur við fjölda-
réttarhöld gegn mafiunni sem lauk
í desember síðasthönum. Er hann
sjötö fanginn sem myrtur hefur
verið eftir að hafa verið láönn laus.
Að sögn lögreglunnar á Sikiley
em þeir allir fómarlömb nýs stríðs
milli tyikinga mafiunnar sem hófist
eftir dómsúrskurðinn.
Greco foringi neitar öhum ásök-
unum en hann afplánar nú lífsöö-
ardóm fyrir aö hafa skipað fyrir
um fjöruöu morð.
Reuter
Ötlönd
Tímabundið hlé
á viðræðum
Perez de Cuellar, aðalritari SÞ, ræddi í gær við Tareq Azia, utanríkisráð-
herra íraks. Engar viðræður fara fram i dag. Simamynd Reuter
í dag er tímabundið hlé á friðarvið-
ræðum Sameinuðu þjóðanna og
deiluaðila í Persaflóastríðinu, að
sögn Perez de Cuellars, aðalritara
SÞ. De Cuellar sagði að hann gerði
hlé á viðræðunum til aö sér gæfist
tóm öl að kynna sér öllögur írana
um vopnahlé. TihögiuTiar bárust de
Cuellar á fimdi hans með utanríkis-
ráðherra Irans, Æi Akbar Velyaö, í
gær. Því mxmu engar viðræður verða
í dag mihi de Cuellars og utanríkis-
ráðherranna.
De Cuehar lét ekki uppi í hverju
tihögur írana fælust en sagði þær
gagnlegar í samningaxxmleitunxxm
hans. Utanríkisráöherra íraks,
Tareq Aziz, sem de Cuehar ræddi
eirnúg við í gær, ítrekaöi kröfu sína
um beinar viðræður stríðsaðila en
íranar hafa þvertekið fyrir þaö. ír-
aski utanríidsráðherrann sagði að
neitxm írana sýndi að friðarvilji
þeirra væri ekki einlægur.
Ekkert lát er á bardögum stríösað-
ila og er nú barist 100 kílómetra iim-
an landamæra írans. Slíkt hefur ekki
átt sér stað síðan stríðið hófst fyrir
átta árum. íranar saka Iraka um að
hafa notað efnavopn í bardögum síð-
ustu daga en írakar neita þvi. Bar-
dagar eru harðasör á suður- og núð-
vígstöðvunum.
Perez de CueUar kvaðst í gær hafa
ræö um örlög gíslanna í Libanon við
utanríkisráðherra írans, en sam-
þykkt írana á vopnahléstillögu SÞ
hefur vakið vomr maxma um að gísl-
armr verði e.t.v. látnir lausir. Afdrif
gíslanna hafa ekki fyrr verið öl um-
ræðu.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Richard Murphy,
sagði í gær aö vopnahlé í stríðinu
gæö fyrst komist á á næstu vikum.
Haim sagði að vopnahlé ætö að sam-
þykkja áöur en öh atriði samninga
hefðu veriö samþykkt. Hann sagði
einrng að Bandarikjastjóra myndi
ekki draga herskip sín á flóanum öl
baka fyrr en vopnahlé væri komið á.
í morgun ölkynnö íranska útvarp-
ið að stjóm Sovétríkjanna hefði boð-
iö deíhiaöilum th viðræðna í
Moskvu. íranar afþökkuðu boðið.
Reuter
Fleiri handteknir fyrir smygl
Fleiri hafa nú verið handtekmr
í tengslum viö stærsta eiturlyfia-
smyglhring söguxmar en á þriðju-
dag flettu lögregfuyfirvöfd í Banda-
ríkjunum, BreUandi og Spáni ofan
af höfuðpaumum, Bretanum
Dennis Marks. Marks var hand-
tekinn ásamt konu sinni og bresk-
um kunningja á Malforca. Tahð er
að smyglhringurinn, sem Marks
stjómaði, hafi smyglað þúsundum
tonna af hassi og marijuana frá
Asíu öl Bandaríkjanna, BreÖands,
og fleiri landa.
Fjórir aðrir vom handteknir í
gær, tveir Bretar, íri og Banda-
ríkjamaður. Lögregluyfirvöld hafa
nú ahs tekið í sína vörslu fimmtán
manns sem grunaðir em um aðhd
að hringnum. Alls Uggja tuttugu
og tveir menn undir grun.
Samvinna lögreglunnar í mörg-
um löndum leiddi th þess að upp
komst um starfsemi hringsins.
Miklar fiárhæðir em í húfi í eitur-
lyfjasamningum og er tahö að höf-
uðpaurinn, Marks, hafi fengið um
þrjár mhljónir dollara í sinn hlut
fyrir hveija sölu.
Tahð er að annar Bretanna, sem
handtekinn var í gær, sé fyrrum
viðskiptafélagi Sir Anthonys Mo-
ynihan, en hann kom lögreglunni
th aðstoðar eftir að honum var sagt
frá aukavinnu viöskiptafélagans.
Dennis Marks, höfuðpaurinn
sjálfur, sagði við handtökuna að
hann ynni fyrir bresku leyniþjón-
ustuna og aö hann notaði smyghö
sem dulargervi. Marks ku hafa
unnið fyrir leyniþjónustuna í eina
öö en bresk yfirvöld neita því að
hann vinni enn fyrir þau. Hann
sagði einnig að hann hefði hætt að
höndla meö eiturlyf fyrir fimmtán
árum.
Reuter
BURT MEÐ RYKIÐ
Vorum að fá vindskeiðar á
Subaru station, Subaru Justy,
Nissan Micra (March) og Nissan
Sunny hatchback. Passa hugsan-
lega á fleiri gerðir.
TILBOÐSVERÐ
KR. 2.800,-
með ásetningu.
SELJUM EINNIG FRAM AÐ VERSLUNARMANNAHELGI HJÓLKOPPA Á ALVEG
HLÆGILEGU VERÐI EÐA FRÁ KR. 1.900,- SETTIÐ.
ÁLFELGUR, MOTTUR OG FLEIRA OG FLEIRA Á SÉRSTÖKU TILBOÐSVERÐI.
NÚ ER RÉTTI TlMINN TIL AÐ GERA BÍLINN ÖRLÍTIÐ HUGGULEGRI.
NISSAN
Ingvar
Helgason hf.
sýningarsalurinn.
Rauðagerði
0) 84510