Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
w
Tímapantanir
13010
VERSLUNIN IÐUFELL
Opið frá 9-20 mánudaga til föstudaga,
10-19 laugardaga.
Eitt ódýrasta kjötborð landsins
VERSLUNIN IÐUFELL
Iðufelli 14
bívK
boH
ULTRA
GLOSS
endist langt umfram
hefðbundnar bóntegundir.
HVERSVEGNA?
Ultra Gloss er „paint sealant" meó glergrunni og gufar því ekki
upp I sumarsólinni og eyðist, eins og vaxbón gera. Ultra Gloss
ver lakkið upplitun af völdum sólarljóss. Ultra Gloss styrkir
lakk bílsins gegn steinkasti.
Utsölustaðir:
ESSO
stöðvarnar
HLEÐSLURNAR
fyrir sumarbústaðinn
eru komnar.
Utlönd
Sihanouk prins féll fra þeirri krofu sinni að alþjóðlegar eftirlitssveitir yrðu sendar til Kampútseu þegar vopnahlé
gengur í gildi. Símamynd Reuter
Engin samstaða
Rauöu kmeramir, stærsti skæru-
liðahópurinn í skæruliöahreyfing-
unni í Kampútseu, sögðu í yfirlýs-
ingu í morgun aö Víetnamar heföu
notað friðarviðræöur deiluaðila í
styijöldinni í Kampútseu til að koma
sjónarmiðum sínum á fraihfæri. Hun
Sen, forsætisráðherra leppstjórnar
Víetnama í Kampútseu, sagði að
rauðu kmeramir hefðu skemmt fyrir
tilraunum til friðarviðræðna. Engin
samstaða náðist á fundinum.
Engin sameiginleg yfirlýsing var
gefin út í morgun þar sem Rauöu
kmerarnir vildu ekki samþykkja
neina slíka. Deiluaöilar samþykktu
þó að setja á stofn nefnd sem skyldi
kanna möguleika á friði eftir tíu ára
styijöld í landinu. Fulltrúar allra
aðila eiga sæti í nefndinni, auk full-
trúa ASEAN, ríkja Suðaustur-Asíu.
Nefndin mun koma saman eins fljótt
og hægt er. Deiluaðilar í borgarstyij-
öld Kampútseu, skæruliöahreyfing-
in, sem í eru þrír hópar skæruliða,
og yfirvöld leppstjórnar Víetnama,
sem nú situr við völd í landinu, hafa
setið á fundum síöan á mánudag en
þetta er í fyrsta sinn sem alhr deilu-
aðilar ræðast við. Á miðvikudag
hljóp snurða á þráöinn í viðræðum
aðila. Ekki komu allir sér saman um
hvemig ætti aö hindra Rauðu kmer-
ana í að komast til valda í Kamp-
útseu á nýjan leik, en talið er að þeir
hafi valdið dauða milljón íbúa lands-
ins á valdatíma sínum á seinni hluta
síðasta áratugar. Sihanouk prins,
sem sagði af sér leiðtogaembætti
skæruliðahreyfingarinnar fyrr í
mánuðinum, lagði fram tillögu á
fundinum í gær þar sem gert er ráð
fyrir stjórn allra aðila. Hann féll
einnig frá þeirri kröfu sinni að al-
þjóðlegar eftirlitssveitir fylgist með
framkvæmd hugsanlegs friðar í
landinu. Þetta er tahn nokkuð mikil
eftirgjöf til handa Rauöu kmerunum,
Reuter
Fulltrúar hinna stríðandi aðila í Kampútseu komu sér ekki saman um sam-
eiginlega yfirlýsingu á síðasta degi friðarviðræðnanna sem haldnar eru í
Indónesíu.
Simamynd Reuter
Pantanir óskast sóttar.
PÓIARHF.
Cinholfi 6 Sími: 18401
Mótmæli í Burma
A.m.k. einn maður lét lífið í mót-
mælaaðgerðum sem brutust út í
Burma í kjölfar útnefningar Sein
Lwin th formanns sósíalistaílokks
landsins og forseta. Fimm manns
særðust í róstunum en lögregla
skaut úr byssum upp í loftið til að
dreifa manníjöldanum.
Ríkisrekið dagblað í Burma sagði
að mörg hundruð mótmælendur
heföu safnast saman í Myade hér-
aði, um 320 kílómetra norðaustur
af höfuðborginni, Rangoon. Dag-
blaðið sagði að mótmælendur
hefðu kastað gijóti aö lögreglu og
mannfiöldinn hefði lagt verslanir
og hús í rúst. Alls voru sex manns
hahdteknir.
Lögreglu tókst að dreifa mann-
íjöldanum í dögun í morgun. Út-
göngubann var sett á og er fólki
einnig bannað að safnast saman á
götum borga og bæja. Mótmælin
hóust eftir að Ne Win, sem gegnt
hefur formannsembætti sósíalista-
flokksins í 26 ár, sagði af sér og
Sein Lwin tók við. í gær tók Sein
Lwin einnig við embætti forseta.
Reuter
Krefjast lengra fris
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Norömenn eiga frí fjórar vikur á
ári. Nú krefst norska alþýðusam-
bandið, LO, einnar viku í viöbót. Th-
lögunni hefur nú þegar verið mót-
mælt harðlega af talsmönnum hægri
flokksins og flokki vinstri sósíahsta.
Búist er við að ríkisstjórnin snúist
einnig öndverð gegn því aö fjölga frí-
dögunum.
Fjárráð Norðmanna eru erfiðari en
oft áður og ríkisstjómin reynir aö
spara á öhum sviöum. Krafa Verka-
mannaflokksins kemur því á versta
tíma og henni verður trúlega ekki
sinnt.
Aftur á rrióti virðist vera áhugi í
flestum stjómmálaflokkum fyrir því
að lengja fæðingarorlof kvenna og
karla. Frá fyrsta júh í ár er norskt
fæðingarorlof tuttugu og fjórar vik-
ur. En samkvæmt nýjustu thlögum
gæti komið th greina að lengja það
verulega.
Annað stærsta launþegasamband
Noregs, YS, mun berjast fyrir því að
launað fæðingarorlof verði allt aö
fimmtíu og tvær vikur. YS telur að
þetta sé mun mikilvægara en fimmta
sumarleyfisvikan.
Bann við launahækkunum er ein
af aðgerðum ríkissfjórnarinnar gegn
kreppunni í norsku efnahagslífi og
þegar ekki er ráðrúm th launahækk-
ana er heldur ekki mögulegt að
lengja frí, stytta vinnudaginn eða
lækka aldur ehilífeyrisþega segir
fjármálaráðherrann, Gunnar Berge.