Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988. 5 Fréttir Sverrir Ólafsson myndlistarmaður situr þarna á stafla af gömlum ofnum sem hafa verið settir til geymslu við hliðina á vinnustofu hans á Korpúlfs- stöðum. DV-mynd GVA Sagt upp húsnæði á Korpúlfsstöðum: „Ofsóknir á hendur mér“ „Eftir vatnsskaðann sem varð í vinnuhúsnæði mínu í nóvember 1986 virtist viðhorf borgarverkfræðings til mín gerbreytast. Má segja að um ofsóknir á hendur mér hafi verið að ræða. Ég hef verið í húsnæðinu frá 1978 og greitt leigu skilvíslega eftir að hennar var krafist. Eftir vatns- skaðann og samkomulag mitt við borgarlögfræðing um bætur, hættu gíróseðlar með leigunni að berast til mín. Gerði ég margar tilraunir til að borga mína leigu, en var sagt aö málið væri í athugun. í janúar í fyrra er mér síðan sagt upp húsnæðinu með þriggja mánaða fyrirvara. Var mér meðal annars borið á brýn að hafa ekki sýnt áhuga á að borga leig- una og haft skuldbindingar gagnvart borginni að engu,“ sagði Sverrir Ól- afsson við DV. Segir Sverrir að þrátt fyrir sam- komulag þar sem gert var ráð fyrir að hann yrði áfram í húsnæði sínu, virtist borgarverkfræðingur hafa einsett sér að koma honum út. „Eitthvað virðist þetta mál hafa farið fyrir hjartað á borgarverk- fræðingi. Sama dag og lögfræðingur- inn minn sendi bréf þar sem hann bað um viðræður um mögulega bóta- skyldu borgarinnar í máhnu var mér sent uppsagnarbréf. Var uppsagnar- fresturinn 3 mánuðir en samkvæmt leigulögum átti hann að vera 9 mán- uðir. Mér tókst þó að semja um að fá að vera í húsnæðinu fram í sept- ember í ár, ella hefði ég lent á göt- unni. En eins og að þessu hefur verið staðið er ekki hægt að líta á aögerðir borgarverkfræðings sem útburð.“ Sverrir sagði undarlegt að hann skyldi borinn út meðan bitlingakarl- ar fengju að geyma þama hitt og þetta dót sem ætti frekar heima á haugunum og greiddu ekkert fyrir. Væri ein geymslan til að mynda full af gömlum úreltum tölvubúnaði frá spítölunum. „Ég hef heyrt að myndhöggvarafé- lagið, sem er á efri hæðinni, fái sömu örlög og ég með tímanum. Þannig virðist borgarverkfræðingur ætla aö vinna gegn þeim hugmyndum sem hafa verið um að gera Korpúlfsstaði að alhliða menningar-, lista- og úti- vistarmiðstöð. Korpúlfsstaðir eru að verða að einhverjum allsheijar geymslustað undir ónothæft drasl sem sumir virðast hafa sérstakar mætur á.“ -hlh Erfitt reyndist að finna eiganda hins úrelta tölvubúnaðar á þessari mynd. Datt mönnum spítalarnir í hug. Davíð Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna, kannaðist ekki við búnaðinn en lét þau orð fylgja að hann skildi ekki af hverju menn væru að geyma svona úrelt drasl. DV-mynd JAK KorpúKsstaðir: Altt í óvissu um nýtingu staðarins „Það er á hreinu aö Korpúlfsstaöir munu standa en það er enn óljóst hvemig nýtingu þeirra verður hátt- að. Sú hugmynd hefur komið fram að þeir yrðu nýttir að hluta til í þágu hverfastofnana eða hverfaþjónustu fyrir íbúðabyggðlna sem mun rísa þarna eftir 5-7 ár. Það er líka hægt aö hugsa sér víðtækari notkun þar sem Qeiri aðilar munu koma við sögu. Það verður alla vega lögö áhersla á að þama verði mannlíf,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaöur skipulagsnefndar borgar- innar, viö DV. Skipulag borgarinnar gerir ráð fyr- ir íbúðabyggingum í landi Korpúlfs- staöa og í kring. Framtíð Korpúlfs- staða hefur ekki borið mjög á góma upp á síðkastið en undanafarin ár hafa komið upp ýmsar hugmyndir um nýtingu staðarins. Meðal annars hafa komið fram hugmyndir um hót- el og veitingastað að Korpúlfsstöðum en þær fengu ekki meðbyr hjá borg- arráöi. „Það þarf aö skoða þær hugmyndir sem fram koma um Korpúlfsstaði. Þetta er stórt húsnæði, um 4-5 þús- und fermetrar. Það þarf að koma því í nothæft ástand og það getur kostaö milljónir eða tugi milljóna. Við hpld- um möguleikunum opnum og því er ekki séð fyrir endann á hvað verður um Korpúlfsstaði." -hlh Leisure 2000 íþróttaskór. Hvítir, svartir. St. 36-46. 2.575 Verð nú kr. 1.490 ^ Glansgallar Verð áður kr. 4.700 Verð nú kr. 2.900 Barnajogginggallar Verð áður kr. 2.460 Verð nú kr. 1.790 Flippaðar flipphúfur kr. 790 BERLiN Hi Walk íþróttaskór Verð áður kr. 1.890 Sendum í póstkröfu. »huoimeP^ Töskur Verð áður kr. 1. 640 SPORTBUÐIN Verð nú kr. 990 ÁRMÚLA 40 REYKJAVlK SlMI 83555 Verð nú kr. 990

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.