Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988. Frjálst.óháÖ dagblaö Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 800 kr. Verð i lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Listrænn landbúnaður Málsvarar hins hefðbundna landbúnaðar hafa tekið undir skemmtilegar hugmyndir í flölmiðlum um, að fremur beri að líta á búsýslu sem hstgrein en sem at- vinnuveg. Þeir telja, að leggja verði hstrænt eða menn- ingarlegt mat á landbúnað og kostnaðinn við hann. Líta má svo á, að íslenzkur landbúnaður hafi svo mikið hstrænt og menningarlegt gildi, að réttmætt sé að hlúa að honum í samkeppni við útlendan landbúnað. Það er nokkurn veginn alveg eins og við höldum uppi Þjóðleikhúsi, Sinfóníuhljómsveit og Kvikmyndasjóði. Málsvarar landbúnaðarins eru ósköp fegnir að geta fallizt á, að í rauninni sé landbúnaður mikih fjárhagsleg- ur baggi. Þeim er léttir að fá að viðurkenna, að frjáls innflutningur erlendrar búvöru mundi lækka matvöru- verð og bæta þar með lífskjör fólksins í landinu. Þeir hafa dregið upp mynd af verzlunum, sem fyllist af „mjög ódýrum, erlendum matvælum“; af innlendri framleiðslu, sem seljist ekki; af gríðarlegum fólksflutn- ingum til útgerðarstaða og Reykjavíkur; af dýrri hús- byggingaþörf; og af hræðhegu borgríki framtíðarinnar. Málsvarar landbúnaðarins benda á, að talin sé menn- ingarleg eða hstræn ástæða til að halda uppi sinfóníu- hljómsveit, þótt hægt sé fyrir htið fé að hlusta á erlenda hljóðfæraleikara á Listahátíð og kaupa vandaða tónhst á geisladiskum frá útlöndum fyrir enn minni peninga. Ekki má gleyma, að í hstum veitum við okkur hvort tveggja, aðgang að erlendri og innlendri hst. Engar hömlur eru lagðar á innflutning erlendrar hstar eða menningar. Engir tollar eru á erlendum bókum, hsta- tímaritum, nótubókum, málverkum eða höggmyndum. Engum dettur í hug að banna innflutning erlends hstafólks til að taka þátt í hstahátíð eða hvenær sem okkur langar annars til. Við verjum gjaldeyri til að fá hingað tónhstarfólk og leikara, auk þess sem við kaup- um afurðir þeirra í þeim mæh, sem okkur þóknast. Yfir okkur situr enginn alfaðir í ráðuneyti til að ákveða, hvort okkur sé fyrir beztu að neyta erlendrar eða innlendrar hstar. Við fáum að ráða því sjálf. Við höfum hins vegar marga alfeður, sem ákveða, að okkur sé fyrir beztu að nota ekki ýmsa erlenda búvöru. Til þess að styðja innlenda hst í samkeppni við er- lenda og halda menningarlegri reisn verjum við í ár 629 mihjón krónum á fjárlögum. Til þess að koma út óseljan- legri búvöru og halda þar með menningarlegri og hst- rænni reisn í landbúnaði verjum við 3.361 mihjónum. Ef meta ætti afurðir kinda og kúa til jafns við allar aðrar afurðir hsta samanlagt, en ekki fimm sinnum hærra, þyrftu framlög til venjulegra hsta að hækka um meira en mihjarð króna og framlög til hefðbundins land- búnaðar að lækka um meira en mihjarð til jafnvægis. Eðlilegt framhald af almennri viðurkenningu á varð- veizlu kúa og kinda sem helmingi af allri hst í landinu, væri að skera niður opinber framlög til landbúnaðar og nota féð til að styðja hinn helminginn. Varla er hægt að hta á landbúnað sem meira en helming allrar hstar. Ennfremur er eðhlegt framhald, að leyfður verði toh- ftjáls innflutningur erlendrar búvöru, svo að fólk geti veitt sér aðgang að erlendri hst á því sviði, svo sem að fimm krónu smjöri frá Evrópubandalaginu, eins og það veitir sér í öðrum listgreinum, ef það kærir sig um. Óravegur er frá peningalegri viðurkenningu á menn- ingarlegu og hstrænu ghdi landbúnaðar yfir í, árlega mihjarðaútgerð á herðum 240 þúsund manna þjóðar. Jónas Kristjánsson Orvun til atvinnu- þátttöku fatlaðra Misjafnir eru mannanna hagir og á misjafnan veg bregöast menn við því, sem aö höndum ber, því hlut- skipti, sem hver og einn hlýtur. Sumir bugast við minnsta móúæti, aðrir stælast við hverja raun, enn aðrir fara dult með öll viðbrögð sín og virðast ekki haggast, þó hart séu leiknir. Hugleiðingar um þetta hafa víst harla lítinn tilgang, en þær verða óneitanlega áleitnari, þegar unnið er með fólki, og við skulum vona fyrir fólk, sem vírkilega hefur orðið fyrir áfollum í lífinu eða hef- ur frá upphafi ekki gengið heilt til skógar. Það sem mig undrar mest er jafn- aðargeð þessa fólks, þolgæði þess og innri styrkur og rósemi - ég er að sjálfsögðu að tala um meirihluta þessa hóps - afgerandi meinhluta, því auðvitað er annað til. Öll blæ- brigði mannlegs eðlis, mannlegs veikleika, fmnast hjá fótluðum, svo sem vera ber, og hlýtur og vera. En yflrgnæfandi einkenni eru þó þau að una hlutskipti sínu, án þess að missa í nokkru móðinn, halda reisn sinni allri, og ríflega það, og reyna til fullnustu að njóta þess, sem lífið hefur að bjóða, reyna að vera þar virkir þátttakendur og takast það alveg ótrúlega oft miöaö við aðstöðu og aðstæður allar. - Og vel að merkja miðað við það hvemig samfélagið býr að hinum fatlaða, eða má máski segja býr þeim hindranir og annmarka ýmsa á æviveginum, óvitandi sem vísvit- andi. Að einum þætti þess verður vikið í þessum pistli, þó að ýmislegt ann- að fléttisí óneitanlega inn í. Margt virðist ívegi Athafnaþörf fatlaöra er engu síðri en annarra og eðlilega telja mjög margir fatlaðir, aö því aðeins vilji samfélagið viðurkenna þá sem sjálfstæða einstakhnga, að þeir megi nýta starfskrafta sína til huga og handar í nytsamri iðju, sjálfum sér og samfélaginu til heiha. En margt virðist í vegi, þótt vissu- lega hafi ótrúlega vel áfram þok- ast. Þar koma menntunar- og end- urhæfingarmál ríkulega inn í myndina og á báðum þessum sviö- um er virkilega vel unnjð, þó enn þurfi að opna nýjar brautir, ryðja nýrri fjölbreytni slóð á veginum áfram til enn betri endurhæfingar, og endurmenntunar alveg sér í lagi. Hin mikla aðsókn að starfsþjálf- un fatlaðra og sá árangur, sem af verður, sýnir svo ekki verður um villzt hve rík og brýn þörfm er á alhliða möguleikum þess, sem misst hefur úr tíma, orku eða and- ans afl að ná sem fyrst sem allra beztri færni, annaöhvort í fyrra starfi eða nýju og allt öðruvísi. - Og þar sér jafnvel eins takmarkað- ur tölvuáhugamaöur og undirrit- aður, hversu þessi nýja undra- tækni getur öhu breytt á ótrúlega skömmum tíma. Jafnvel undirrit- uðum er alveg ljóst, að einmitt þessi töfratæki verða einhver mik- ilvægustu hjálpartæki hins fatlaða i náinni framtíð, hjálpartæki og um leið atvinnutæki þess, sem virkjar hugans orku og nýtur sköpunar- gleði vel unnins verks um leið. Ekki síður hagsmunasamtök Ný tækni opnar ýmsar leiðir, sem áður voru fótluðum htt færar og fyrir því er síaukinn skilningur, að öhum sé nauðsyn að hafa starf viö hæfi til framfærslu og lífsfyllingar um leið. Fatlaðir sjálfir hafa haft hér giftudrjúga forystu, enda vita þeir bezt, hvar skórinn kreppir og hvaöa úrlausnir séu vænlegastar til vinnings. Á öhum sviðum láta fatlaöir æ meira til sín taka, og vissulega er það rétt, sem Amþór Helgason, KjaUaiinn Helgi Seljan fyrrverandi alþingismaður andi, ef reynt verður í alvöru að stjórna þessu litla samfélagi okkar. Hins vegar vitum við vel, að kæmi til atvinnuleysis mundi það utan efa bitna á fótluðum mjög fljótt. Sú mun bitur reynsla annars staðar og lögmál vinnumarkaðar svipuð ahs staðar. En meðan við ágætt atvinnu- ástand er búiö, á meðan (og það er ahtaf vel að merkja) samfélagið þarf á hverri verkfærri hönd og vinnufúsum huga að halda, þa ber að tryggja það betur en nú er, með tengslum tryggingabóta og ann- arra tekna, að fólk einfaldlega verði ekki að spyrja sig, hvora leiöina það velur miðað við heildardæmi teknanna. Slíkt má í raun ekki ger- ast. Það má t.d. ekki tengja ýmis mikilvæg réttindi, sem þýða dágóð- „Vakandi barátta fatlaðra á vafalaust eftir að skila ærnum ávinningum, en miklu skiptir, að samfélagið skapi sem bezt skilyrði til farsældar fötluðum í námi, í starfi, í starfshæfmgu og endur- menntun og til jafnrar aðstöðu til eðli- legra lífshátta.“ formaður Ö.B.I. segir oft, að sam- tök fatlaöra séu ekkert síður hags- munasamtök, ekkert síður samtök ujn kjarabaráttu í víðasta skilningi en launþegasamtökin. í raun skilji þessi samtök það eitt að, að samtök fatlaðra geti ekki farið í verkfah eða hafi a.m.k. ekki gert það, hvað sem verði. Vakandi barátta fatl- aöra á vafalaust eftir að skila æm- um ávinningum, en miklu skiptir, aö samfélagið skapi sem bezt skil- yrði til farsældar fótluðum í námi, í starfi, í starfshæfingu og endur- menntun og til jafnrar aðstöðu til eðlilegra lífshátta. En þegar litið er til þess þáttar, sem snertir atvinnumál fatlaðra, er stutt yfir í atvinnutekjur og þá kemur tengingin við tryggingabæt- umar mjög inn í myndina. Um leið emm við komin að umdehdu at- riði, þar sem er grunnlífeyrir trygginganna ótekjutengdur og svo allar aðrar höfuðbætur hins fatl- aða, sem fara algerlega í upphæð- um eftir tekjum viðkomandi að öðru leyti. Þá má og á ein viðmiöun að vera öðmm ofar og æðri, þ.e. að tryggingabætur séu aldrei, eða í eins litlum mæh og mögulegt er, vinnuletjandi - hvetji í engu þann sem bætur hefur að halda að sér höndum og hafast ekki aö. Atvinnuleysi bitnar á fötiuð- um Fyrir skömmu átti ég tal við mann nýkominn úr langri dvöl í Danmörku. Þar sagði hann, aö samfélagið ýtti síöur en svo á, að fatlaðir fæm út á vinnumarkað, bótum væri m.a. hagað á þann veg, að ekki örvaði beint til atvinnuleit- ar. En - sagði hann svo - þar er bullandi atvinnuleysi og vandræð- in yfirþyrmandi, sem því era sam- fara. Örvandi aðgerðir samfélags- ins eiga því tæpast rétt á sér þar, sagði hann einnig. Hér á landi er sem betur fer öðm vísi um að htast, og verður von- ar upphæðir fyrir tekjulágan, fatl- aðan með óvisst atvinnuöryggi, tengja þær svo við tekjur, að nokkrar krónur í viðbót í öðrum tekjum svipti fólk þessum réttind- um aö fullu og öllu. En það gerist í dag, og er alltaf að gerast. Allar tekjur eiga að sjálfsögðu að koma inn í mynd öryrkjans, eins og annarra, en þær mega ekki valda neinum stökkbreytingum á högum hans. Jafnvel svo að sköp- um skipti um hag hans - einkum til framtíðar litið. Alltof margir öryrkjar spyrja í dag: Hvað má ég vinna mikið, svo aht fari ekki á annan endann. Vandasöm viðfangsefni Svona á ekki aö vera þörf á að spyija. En það er eðlilegt fyrir þann, sem er með takmarkaða vinnugetu og óvissu í heilsufari umfram aðra, að svo sé hugsað og spurt, miðað við aðstæður allar í dag. Þessu ber að breyta. Grunnlífeyri trygginga og öðram bótum, sem honum fylgja eða eru óbeint tengd- ar, þarf að breyta á meiri sanngirn- isveg en nú er og tekjutengingin - ekki síður réttindatengingin, má ekki og á ekki að velta á nokkrum tugum króna, eins og í dag, þannig að 100 krónur í atvinnutekjum lið- ins árs umfram mörk þýði t.d. um 15000 kr. hlunninda-, og um leið tekjuskerðingu næsta ár. Samtök fatlaöra era nú með í mótun beinar, markvissar tillögur í tryggingamálum, þar sem tvö markmið eru æðst: að tryggja hin- um fatlaða unandi kjör og örva hann í hvívetna til atvinnuþátt- töku. Svo er að sjá, hvort á verður hlustað og hver framkvæmdin muni svo í kjölfarið, því vandalaust er verkefnið ekki. Hins vegar eru vandasöm viö- fangsefni til þess að eiga við þau góða glímu og hafa að lokum sigur. Helgi Seljan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.