Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Page 21
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988. 21 Lífsstfll Bílamarkaðurinn: Samdráttur hjá umboðunum Rýmt til fyrir nýni árgerð Eftir langt góðæri í bílasölu hér á landi bendir ýmislegt til að mark- aðurinn sé að mettast. Þetta sést á alls kyns rýmingarsölum hjá bíla- umboðum, auk þess sem nokkrar sviptingar hafa átt sér stað að und- anfomu. Fyrir nákvæmlega einu ári var þeirri spumingu varpaö fram hér á Neytendasíðu hvort bílamarkað- urinn væri að mettast. Þá sögðu menn að það hlyti að gerast fyrr eða síðar, þetta gæti ekki haldið svona áfram. Samkvæmt tölum frá Umferðarráði vom í fyrra yfir 100 þúsund bifreiðir í umferð á götun- um. Bifreiöum hefur fjölgaö síðan. Að sögn Óla H. Þórðarsonar hjá Umferðarráði eru skráðir milli 140 og 150 þúsund bílar á landinu. Sum- ir ém ekkert á ferðinni en Óli taldi alls ekki óvarlegt að ætla að nú væm um 110 þúsund bílar í umferð. Innflutningur fer minnkandi Ef htið er á tölur um innflutning bifreiða sést að hann hefur dregist verulega saman á þessu ári. Til júníloka höfðu verið skráöar 7.831 bifreið hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins. Á sama tíma í fyrra vom nýskráðar bifreiðir orðnar 12.689 talsins. Þess- ar tölur em ekki fjarri lagi en í þær vantar bíla sem til eru á lager eða eru á leið til landsins. Á móti kem- ur að hluti þessara bifreiða var fluttur inn á fyrra ári. Þær bifreiðir, sem fluttar hafa verið inn á þessu ári, virðast selj- ast illa. Nú hefur það gerst að sum umboðin hafa gripið til þess ráðs að rýma til fyrir nýjum árgerðum með útsölum. Þær em af ýmsum toga. Jöfur hf. býður mönnum þann kost aö þrífa bílana og skrá þá sjálfir gegn lægra verði. Ingvar Helgason heldur verksmiðjuútsölu og aðrir bjóða óverðtryggð lán til langs tíma. Allt þetta bendir sterklega til þess að nú sé veislan á enda og við blasi krepputíð í bílasölu. Notaðir bílar Ef bílar af síðustu árgerð em teknir að falla í verði, hvernig er þá staðan hjá þeim bílasölum sem selja notaðar bifreiö'ir? DV hafði samband við nokkra bQasala og spurðist fyrir um bílamarkaðinn. Fyrst var haft samband við Hall- dór Snorrason hjá Aðalbílasölunni við Miklatorg en hann hefur selt notaöa bíla frá árinu 1956. „Reikna með að sólin skíni aíltaf í heiði“ „Þaö lítur út fyrir að illa sé kom- ið fyrir mörgum bílaumboðum. Þeir reikna með að sólin skini allt- af í heiði og gæta þess ekki að það eina sem ræður markaðnum er framboð og eftirspurn." Halldór sagöi aö markaðurinn væri mettað- ur eftir algera endurnýjun á bíla- flota landsmanna undanfarin ár. „Þessir menn halda áfram að hella bílum á markaðinn þótt hvert mannsbam geti sagt sér sjálft að þegar eru komnir þrír bílar á hverja fjölskyldu er ekki hægt að selja fleiri. Það er ekki til fólk í landinu til að kaupa alla þessa bíla. En mennimir halda áfram að berja höfðinu við steininn. Þeir gera sér ekki grein fyrir því að það er höfuð- ið sem klofnar en ekki steinninn.“ Gott að selja notaða bíla Halldór sagði ennfremur að gott væri að selja notaöa böa núna. Aukið framboð yki freistingar og væru menn alltaf aö velta vöngum yfir notuðum bílum. „Það er ekki gott fyrir okkur bílasala ef illa gengur hjá umboðunum," bætti Halldór við. Neytendur Halldór sagði ennfremur að von- laust væri að reyna að selja bíla sem væm af árgerðum fyrir 1980 Halldór Snorrason hjá Aöalbíla- sölunni. nema um sérstaka glæsivagna væri að ræða. Einnig væri mikið um skipti, fólk tæki ódýrari bíl í milli- gjöf. En hvernig keppa bílasalar við útsölur umboðanna? „Við verðum náttúrlega að fylgj- ast grannt með öllu. Þetta er eins og í kauphöllunum í New York og London. En það er alltaf svona þeg- ar tekur að líða á haustið. Þetta er bara fyrr á ferðinni nú en áður. Það er eins og þeir séu að reyna aö bjarga sér fyrir horn," sagði Hall- dór að lokum. Gott hljóð í bílasölum Það var gott hljóð í fleiri bílasöl- um en Halldóri. Svo virðist sem ekkert lát sé á sölu notaðra bíla þrátt fyrir mettaðan markað. Það er engu líkara en salan aukist með auknu framboði nýTra bíla. Eða eins og einn sölumaðurinn orðaði það: „Aukið framboð hleypir fútti í braskið." -PLP Óli H. Þórðarson hjá Umferóarráói segir 440 þúsund dekk i umterö. 30000i 20000 - 10000 - Bifreiðainnflutningur Bílar á ári ’84 ’85 ’86 ’87 ’88 Jan-jún

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.