Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Page 20
20 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1988. Erlend myndsjá Frambjóðendur Þar sem nú hefur veriö gengiö formlega frá útnefningu George Bush, vara- forseta Bandaríkjanna, sem forsetaefni repúblikanaflokksins í kosningunum í nóvember næstkomandi, er ekki úr vegi aö birta myndir af forsetaefninu og varaforsetaefni hans. Bush tók við útnefningu sinni fyrir helgina (mynd aö neðan). Hann hafði áöur útnefnt öldungadeildarmanninn Dan Quayle frá Indiana sem varaforsetaefni sitt (mynd til hægri). í lok-ráöstefnu repúblikananna-þótti svo auðvitaö tilhlýðilegt aö frambjóð- endurnir veifuðu til ráöstefnugesta, ásamt eiginkonum sínum. Lurie þykir hjal Jacksons um aö frelsa bandaríska gísla i Mið-Austurlönd- um heldur fáfengilegt, meöan Jackson sjálfur heldur demókrataflokknum í gíslingu. LURIE og baráttan Skopmyndateiknarinn LURIE hefur sitt til kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum að leggja, líkt og annarra dægurmála. Yfirleitt virð- ist honum fremur uppsigað við stjórnmálamenn, því þeir fá mun óvægari meðferði höndum hans en flestir aðrir. Virðingarleysi hans kemur enda vel fram í þeim mynd- um sem hér birtast, en þær tengj- ast allar frambjóðendum flokk- anna sem koma til með að bítast um forsetaembætti Bandaríkjanna í nóvember næstkomandi. Ekki hefur enn borist frá teiknar- anum útgáfa hans af varaforseta- efni repúblikana, en væntanlega verður þess ekki langt að bíða. Jim Baker, kosningastjóri Bush. Lloyd Bentsen, varaforsetaefni demókrata. George Bush á atkvæðaveiöum. Sameinaður demókrataflokkur, þar sem Jesse Jackson hefur flokks- bræður sí'na að ösnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.