Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Page 33
MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1988.
49
r>v
Síðasta freisting Krists
Guðlast eða meistaraverk?
Svidsljós
Ólyginn
sagði ...
Þann 12. ágúst sl. var tekin til sýn-
ingar í Bandaríkjunum myndin „The
Last Temptation of Christ”. Það væri
vægt til orða tekið að segja að mynd-
in hafi fengið umtal, svo miklu
íjaðrafoki hefur hún valdið. Hvar
sem hún hefur verið sýnd hafa
kristnir menn og konur fjölmennt
fyrir utan þau kvikmyndahús sem
sýna hana, mótmælt sýningu hennar
og gert hróp að bíógestum.
Síðasta freisting Krists verður
sýnd í Bretlandi í næsta mánuði og
af því tilefni sá útsendari breska
blaðsins The News of the World,
rokkarinn Alvin Stardust, myndina
í New York. Fylgir hér á eftir dómur
hans.
„Það er ekki erfitt að skilja hvers
vegna kristnir menn hrópa „guð-
last“. Meðal annars er Kristur sýnd-
ur sem mikill kvennamaður sem
feðrar hvert barnið á fætur öðru og
neitar því að Guð sé faðir hans.
Heggur að undirstöðum
kristinnar trúar
En í hreinskilni sagt þá varð ég
mjög leiður og rniður mín eftir að
hafa séð myndina. Leiður vegna þess
að fólk sem hefði átt að vita betur,
eins og leikstjórinn Martin Scorsese,
skuli hafa lagst svona lágt. Og miður
mín yfir því að svona slæm mynd,
sem heggur að undirstöðum trúar
okkar, skuli hafa verið gerð.
Framleiðendur myndarinnar vita
að þeim er ekki sjálfum ögrað þó að
þeim takist að hneyksla alla aðra.
ímyndið ykkur bara lætin sem yrðu
ef þeir gerðu svipaöa mynd um spá-
manninn Múhammeð. Múhammeðs-
trúarmenn myndu líklega brenna til
grunna öll kvikmyndahúsin. En
kristnir eru vamarlausir, sérstak-
lega gagnvart kvikmyndargerðar-
mönnum.
Því meiri læti sem verða yfir mynd-
inni, því breiðara verður brosað
framan í bankastjórann. Það er.leitt
að þurfa að segja þetta, en það er
bara sannleikurinn. Hver einasti trú-
arhópur í Bandaríkjunum virtist
vera þarna til að reyna að varna því
að fólk kæmist inn, en röðin fyrir
utan bíóhúsið náði nokkur hundruð
metra. Þetta líktist mest kapphlaupi
um bestu sætin wið réttarhöld, með
vopnuðum lögreglumönnum, starfs-
fólki sjónvarpsstöðva og hundruðum
mótmælenda, syngjandi og veifandi
kröfuspjöldum. í raun var þetta
miklu skemmtilegri sjón heldur en
myndin sjálf.
Meydómur Maríu goðsögn
Einn prestur grísku rétttrúnaðar-
kirkjunnar hélt langa og þrumandi
ræðu í viðtali við sjónvarpsstöð, en
hann hafði þó ekki roð við kaþólsk-
um presti sem náði að koma sér í
þrjú viðtöl á sama tíma; En þarna
voru líka mótmælendur til að móf
mæla mótmælunum og hvetja bíó-
gesti.
Einn maður veifaði spjaldi er á
stóð: „Jesús var mannlegur. Honum
féll vel að láta vel að konum. Móðir
hans var kynvera. Meydómur henn-
ar var goðsögn."
Margir af þeim valdamestu í Holly-
wood standa meö Scorsese og segja
að ef myndin yrði bönnuð þá yrði
það árás á málfrelsið. Leikarinn
Warren Beatty lofaði Scorsese og
Universal Picture fyrir að hafa gert
myndina og hvatti til framhalds á
slíku.
En ég stend fast við þá skoðun mína
að myndin hefði aldrei átt að vera
Fólk fjölmennti til að mótmæla sýningu myndarinnar, The Last Temptation
of Christ. Á bol eins bíógestsins má lesa: „Slappið af, þetta er aðeins bíó-
mynd.“
Bannað að koma til Bandaríkjanna
Ekki getur neitt orðiö úr þvi að Boy
George fdri í hljómleikaferð til
Bandaríkjanna. Útlendingaeftirlitið
sér til þess.
George. var bannað að koma til
landsins fyrir tveimur árum þegar
hann varð uppvís að notkun heróíns.
Var þá vegabréfsáritunin tekin af
honum og hana getur George ekki
fengið aftur nema hann geti sannað
að hann sé ekki lengur háður efninu.
Hinum kynhverfa söngvara verður
einnig meinuð innganga í Bandarík-
in ef hann reynist vera meö hættu-
legan sjúkdóm. Talsmaður George
sagði að söngvarinn heföi gengist
undir eyðnipróf og reynst neikvæð-
ur. Hann hefði einnig látið af notkun
ííkniefna og því væri nú engin
ástæða fyrir því að hann fengi ekki
vegabréfsáritun.
Utlendingaeftirlitið skrifaði lög-
fræðingi George í síðasta mánuði og
bað um skjöl yfir heilsu hans en á
eftir að fá svar. Ekkert verður gert í
málinu fyrr en skjölin hafa verið
skoðuð.
Boy George.
George er nýbúinn að syngja inn á
plötu. Honum hefur gengiö fremur
illa í Bretlandi að undanförnu og vill
því reyna í Bandaríkjunum. En jafn-
vel þótt ekkert sé að honum geta
Bandaríkin samt enn litið á hann
sem „óæskilegan útlending".
William Dafoe i hlutverki Jesú Krists
í myndinni Siðasta freisting Krists.
gerð. í mínum huga á hún skilið titil-
inn: Versta mynd sem nokkurn tíma
hefur verið gerð.“
Eins og áöur segir þykir myndin
vera guðlast og eru það sérstaklega
nokkur atriði í henni sem fara fyrir
brjóstið á mönnum.
Hefur mök við Magdalenu
Jesús er sýndur á gægjum við að
horfa á nakta og tattóveraða Maríu
Magdalénu í ástarleikjum viö menn
í hóruhúsi. Kristur hefur mök við
Magdalenu eftir að útsendarar djöf-
ulsins höfðu komið á' hjónabandi
hans. Eftir að Magdalena deyr, verð-
ur hann hórkarl. Hann kvænist Mar-
íu, annarri systurinni sem tók lík-
ama hans af krossinum, en samrekk-
ir svo systur hennar, Mörtu.
Hann feðrar fjölda barna og afneit- •
ar svo Guði sem föður sínum. Hinn
ungi Jesús býr til krossa fyrir Róm-
vérja til að nota við aftökur gyðinga.
Hann hjálpar til við aftökurnar og
aðrir gyðingar skyrpa á hann. Hann
Atriði úr myndinni, en hún hefur
valdió miklum deilum og komið
af stað kröftugum mótmælum.
hrópar: „Ég er lygari, ég er hræsn-
ari. Ég er hræddur við allt ... Djöfull-
inn er í mér.“
Júdas er gerður að hugrakkasta
lærisveininum og Jesús skipar hon-
um að svíkja sig. Páll postuli er
glæpamaður. Jesús segir að hann
hafi ekki dáið og risið upp að nýju
en Páll biður hann um að láta þá
staðreynd ekki hafa áhrif á góða
sögu. Jesús segir við lærisveina sína:
„Ég er giftur, ég á börn, ég vinn. í
raun hef ég aldrei skemmt mér eins
vel.“
Vilja banna
Scorsese
Leiðtogar kaþólsku kirKjunnar í
Feneyjum hvöttu skipuleggjendur
hinnar árlegu kvikmyndahátíðar
borgarinnar til að hætta við þá
áætlun sína að sýna hina umdeildu
mynd „The Last Temptation of
Christ“.
Skrifstofa kardinálans í Feneyj-
um sagði aö sú mynd sem dregin
væri upp af Kristi i kvikmyndinni
væri móðgandi og afbökuð. Hið
kaþólska samfélag Feneyja bæði
um virðingu.
Síðasta freisting Krists hefur
kynt undir miklum mótmælum
ineðal kristinna hópa í Bandaríkj-
unum, en myndin var frumsýnd
þar fyrir stuttu. í myndinni, sem
er bandarísk og var leikstýrt af
Martin Scorsese, er draumatriði
þar sem Jesús samrekkir Maríu
Magdalenu.
Framkvæmdastjóri kvikmynda-
hátíðarinnar i Feneyjum, Gugli-
elmo Biraghi, sagði fréttamönnum
að hann virti viðhorf kirkjunnar í
borginni og væri ánægöur með á
hversu öfgalausan hátt hún heföi
látið þau í ljós.
„Ef kirkjunnar menn liefðu beðið
og raunverulega séð myndina í stað
þess að treysta á viðbrögð handan
Atlantshafsins, þá hefði ef til vill
tilkynning skrifstofu kardinálans
verið enn öfgalausari,“ sagði hann.
Díana
prinsessa
lætur ekkert hafa eftir sér, en sú
saga gengur nú aö þegar þau
Karl áttu sjö ára brúðkaupsaf-
mæli. hafi hún gefið honum
myndband með sjálfri sér. Á
myndbandinu mun hún hafa
sungið lagið „All 1 Ask of You”,
sem er ástaróður úr söngleiknum
Phantom of the Opera. Mun
myndbandið hafa verið tekið upp
í hinu konunglega leikhúsi. Þetta
átti að vera mikið leyndarmál en
Buckinhgham Palace hefur samt
sem áður staðfest að til sé upp-
taka með Díönu sem tekin var
upp í þessu sama leikhúsi.
Bette Midler
leikur nú í enn einni myndinni.
Um þessar mundir vinnur hún
að gerð myndarinnar „Beaches"
fyrir Disneyfyrirtækiö. í mynd-
inni leikur hún söngkonu sem á
sínum fátæktarárum hittir til-
vonandi eiginmann sinn þegar
hún er send til að syngja fyrir
hann, íklædd kanínubúningi. Eft-
ir því sem Bette segir sjálf þá er
myndin ekki gamanmynd heldur
háalvarleg.
Jerry Hall
- sem er þessa stundina sögð hafa
sagt skilið við Mick Jagger -
reynir nú fyrir sér á sviði í New
Jersey. Hún mun víst leika sama
hlutverk og Marilyn Monroe lék
hér um áriö í myndinni „Bus
Stop“. Jerry segist ekki vera
kvíðin því hún kunni hlutverkiö
sitt og viti upp á hár hvað hún
eigi að segja.