Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Page 36
52
MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1988.
Andlát
Sr. Helgi Tryggvason yfirkennari,
ést aðfaranótt föstudagsins 19. ágúst
á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í
Xópavogi.
:lildegard Guðleifsson, Lyngheiði 15,
lelfossi, andaðist að kvöldi 18. ágúst
I gjörgæsludeild Landspítalans.
Jarðarfarir
Guðrún Þorsteinsdóttir kennari
verður jarðsungin frá Selfosskirkju
miðvikudaginn 24. ágúst kl. 15.
Þórarinn Kristjánsson, fyrrverandi
símritari, Kambsvegi 4, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni þriðju-
daginn 23. ágúst kl. 15.
~'Guðmundur Thorsteinsson bifreiða-
stjóri, Dvergabakka 34, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni þriðju-
daginn 23. ágúst kl. 13.30.
Guðmundur Kr. Símonarson lést 14.
ágúst sl. Hann fæddist að Götu í
Holtahreppi 22. ágúst 1897. Hann
fluttist til Reykjavíkur liðlega tvítug-
ur, nam sútaraiðn og lauk prófi í
þeirri starfsgrein. Fljótlega sneri
hann sér að verslunarstörfum sem
urðu hans ævistarf. Hann giftist
Magneu Gísladóttur en hún lést árið
1974. Þau hjónin eignuðust þrjú böm.
Útför Guömundar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
ÓDjRT
Boddívarahlutir
Driföxlar - Drifliðir
Vatnskassar-Bílrúður
BÍLLINN
Skeifunni 5 «5? 688510
Tilkyimingar
Landssýning sænskra
frímerkjasafnara
Dagana 11.-14. ágúst var haldin frí-
merkjasýningin „Scarex 88“ í bænum
Skara í Svíðþjóð. Sýning þessi var lands-
sýning sænskra frímerkjasafnara 1988, í
tengslum við 1000 ára afmæli bæjarins. í
sýningunni tóku þátt af íslands hálfu
þeir Hjalti Jóhannesson úr Reykjavík og
Óli Kristinsson frá Húsavík. Hlutu þeir
báðir stórt silfur fyrir íslandssöfn sín.
Aðstoðamaður
féiagsmálaráðherra ráðinn
Rannveig Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi
í Kópavogi, hefur verið ráðin aðstoðar-
maður félagsmálaráðherra. Rannveig er
fædd á ísafirði 15. september 1940. Hún
var kjörin í bæjarstjóm Kópavogs 1978
og hefur átt þar sæti síðan. Á vegum
Kópavogskaupstaðar hefur Rannveig
gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum, m.a.
verið formaður félagsmálaráðs, i stjórn
launanefndar sveitarfélaga, í stjóm
Sparisjóðs Kópavogs, forseti bæjarstjóm-
ar Kópavogs og formaður bæjarráðs.
Rannveig hefur verið formaður stjómar
Húsnæðisstofnunar ríkisins frá því i des-
ember 1987. Hún er gift Sverri Jónssyni
tæknifræðingi og eiga þau þrjú börn.
Varautanríkisráðherra Kína
kemurtil landsins
Varautanríkisráðherra Kina Hr. Zhou
Nan, ásamt fylgdarliði, dvelur á íslandi
25. til 29. ágúst nk. í boði Steingríms Her-
mannssonar utanríkisráðherra. Auk við-
ræðna við utanríkisráðherra mun vara-
utanríkisráðherrann m.a. hitta að máli
forsætisráðherra og samgönguráðherra.
Jafnframt mun varautanríkisráðherr-
ann heimsækja Alþingi í boði forseta
Sameinaðs þings. Varautanríkisráðherr-
ann mun einnig skoða söfn í Reykjavík
og heimsækja Vestmannaeyjar og Þing-
velli.
Handknattleiksskóli
Stjörnunnar
í Garðabæ verður starfræktur frá 22.
ágúst til 2. sept. fyrir stúlkur og drengi á
aldrinum 6-13 ára. Þátttakendum er skipt
i flokka eftir aldri og kunnáttu. Farið
verður í undirstöðuatriöi handknatt-
leiks, sérstök áhersla lögð á tækni, leik-
skilning og reglur. Landsliðsmenn koma
í heimsókn, veittar verða viðurkenningar
fyrir framfarir og árangur. Kennslustað-
ur er íþróttahúsið Ásgarður. Skólinn er
starfræktur frá kl. 9-10.30, böm fædd ’78
og yngri, og kl. 11-12.30, börn fædd ’77
og eldri. Innritun og upplýsingar í síma
53066 í dag og í íþróttahúsinu Ásgaröi.
Þjónusta á sviði umbúðamála
Upplýsingaþjónusta á sviði umbúðamála
hefur verið tekin upp hjá Iðntasknistofn-
un íslands í þvi skyni að efla þekkingu á
umbúðum og flutningum og byggja upp
gagnabanka sem nýst getur íslenskum
fyrirtækjum. Rekstrartæknideild Iðn-
tæknistofnunar sér um umbúðaþjón-
ustuna. Efnt hefur verið til samstarfs við
Umbúða- og flutningastofnunina i Dan-
mörku til að íslensk fyrirtæki eigi þar
greiðari aðgang að tækjakostnaði til próf-
unar á umbúöum sínum. Jafnframt hefur
löntæknistofmm gerst aðih að SES, sam-
tökum umbúðastofnana á Norðurlönd-
um. Ætlunin er að gefa út fréttabréf með
völdum greinum úr því mikla magni sem
stofnuninni berst reglulega um umbúða-
mál auk þess sem fyrirtæki eiga kost á
upplýsingum um ákveðin efni úr gagna-
bankanum. Þá mun stofnunin skipu-
leggja hópferð umbúðaframleiðenda og
umbúðanotenda á sýninguna Scanpack
88 í Gautaborg í október.
Hrekkjusvínið, ný verslun
Opnuð hefur verið að Laugavegi 8,
Reykjavik, ný verslun sem heitir
til sölu, 3ja dyra, 5 gíra, ekinn 26.000 km.
Vetrardekk fylgja, Sérlega vel með farinn.
Einn eigandi.
Upplýsingar í símum 42461 eða 685445
eftir kl. 17.
F0RD ESC0RT 1300 CL ’87
sparieintak
Hrekkjusvínið. Um það er ekkert meira
að segja, nema aö þar fást alls konar
skemmtilegar og andstyggilegar hrekkja-
vörur. Ef þú þorir aö skoða búðina, fellur
þú áreiöanlega í viðeigandi stafi fyrir rit-
vélina þína, eða þá tölvuútstöðina, eftir
þvi hvar þú vinnur - ef þú kallar þetta
þá vinnu.
„Myndir fyrir nornir og böðla“
Bókafélagið Tunghð hefur sent frá sér
sína þriðju bók. Hún nefnist Myndir fyr-
ir nomir og böðla, eftir Sveinbjöm
Gröndal og Jón Egil Bergþórsson en
myndirnar teiknaði Helga Oskarsdóttir.
Absúrd leikrit, segja sumir, ljúfsár ástar-
saga, segja aðrir. En efni verksins er í
anda þjóðfélagslegs raunsæis með róm-
antískum blæ og súrrealískri undiröldu.
Klassíska heiðrikju má víða fmna en þó
má segja að hún sé oft undir dadaískum
áhrifum í bland með síðfútúrisma, ný-
rómantik og tilvistarstefnu.
Námskeið
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavikurdeild Rauða kross íslands
heldur námskeið í skyndihjálp sem hefst
miðvikudaginn 24. ágúst og stendur í 5
kvöld sem dreifast á 10 daga. Námskeiðið
verður haldið að Öldugötu 4. Öllum 14
ára og eldri er heimil þátttaka. Þeir sem
hafa áhuga á að komast á námskeiðið
geta skráð sig í síma 28222. Fjöldi þátttak-
enda er takmarkaður við 15. Notað verð-
ur nýtt námsefni sem RKÍ tók nýlega í
notkun og hefur gefið góða raim. Nokkuð
er um nýjungar. Lögö verður áhersla á
fyrirbyggjandi leiðbeiningar og ráð tU
almennings við slys og önnur óhöpp. Á
námskeiðinu verður kennt hjartahnoð,
fyrsta hjálp við bruna, kah og eitrunum.
Einnig verður kennd meðferð helstu
beinbrota og stöðvun blæðinga. Enn-
fremur verður fjallað um ýmsar ráðstaf-
anir til varnar slysum í heimahúsum og
margt fleira. Sýndar verða myndir um
helstu slys. Talið er æskilegt að taka
námskeiðið allt á 2 ára fresti og rifja upp
einu sinni á ári. Námskeiðinu lýkur með
prófl sem hægt er að fá metið í flestmn
framhaldsskólum.
Tónleikar
Orgeltónleikar
Mánudaginn 22. ágúst heldur Árni Arin-
bjamarson orgeltónleika í kirkju Fíla-
delflusafnaöarins að Hátúni 2, Reykjavík.
Á efnisskrá eru verk eftir Buxtehude,
Bach, César Frank og Max Reger. Öllum
er heimill ókeypis aðgangur.
Tombóla
Nýlega héldu þessir krakkar tombólu til
styrktar Eþíópíusöfnun Rauða krossins
og söfnuðu 1600 krónum. Krakkarnir
heita: Gyða Björk Jóhannsdóttir, Linda
Dögg Jóhannsdóttir, Jón Finnbogason,
Anna Freyja Finnbogadóttir og Elínborg
Erla Knútsdóttir.
Reiðhjól tapaðist
Svart kvenhjól hvarf í miðbænum að-
faranótt sl. laugardags. Stýri og bjalla
hjólsins eru svartmáluð, auk þess sem
klikkhljóð heyrist þegar það er á ferð.
Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um
hjólið vinsamlegast hringi í síma 611610
eða 611447. Fundarlaun.
Angóraköttur týndur
úr vesturbæ
Þórður Aðalsteinn, steingrár angórakött-
ur, tapaðist frá Hringbraut 71. Hann er
merktur í eyra númeri og gæti verið
meiddur. Fólk í vesturbænum er vinsam-
legast beðið um að kíkja í garðana sína.
Upplýsingar í síma 10880 og 16558. Góð
fundarlaun.
Tapað-fundið
Þórður Aðalsteinn er týndur
Hann er steingrár angóraköttur og tapað-
ist frá Hringbraut 71. Hann er merktur í
eyra með númeri og gæti verið meiddur.
Fólk í vesturbænum er vinsamlegast beð-
ið að kíkja í garða sína. Upplýsingar í
símum 16558 og 10880.
Kettlingur fannst í Garðabæ
Hvítur högni, tæplega sex mánaða,
fannst við Holtsbúð í Garðabæ 16. ágúst
sl. Hann er mjög gæfur. Upplýsingar í
síma 43350 eða á Dýraspítalanum.
Kvikmyndir
DV
Hljómsveitin að leik.
Bíóhöllin:
í fullu fjóri
Leikstjóri: Joan Freeman.
Aóalhlutverk: Justine Bateman, Liam
Neeson, Trini Alvarado, Scott Coffey,
Britta Phillips, og Julia Roberts.
Kvikmyndin í fullu fjöri, sem
sýnd er um þessar mundir í Bíó-
höllinni, fjallar um rokkhljómsveit
úr fátækrahverfi sem ræður sig í
vinnu á sumardvalarstað ríkra úti
á strönd. Þar eyðir hljómsveitin
sumri og komast meölimir hennar
í kast við ýmislegt. Meiri er sögu-
þráðurinn ekki og gæti ekki verið
einfaldari.
Þrátt fyrir stutta sögu og einfalda
mistekst gjörsamlega að koma
henni til skila. Vegna hörmulegs
handrits drukknar þráðurinn í
bulli og verður hvorki fugl né íisk-
ur. En það er ekki bara lélegt hand-
rit sem skemmir myndina. Það er
eins og allt leggist á eitt.
Hljósmveitin sjálf er ekki beint
burðug. Henni var hóað saman í
snatri og höfðu leikararnir vart séð
áöur þau hljóðfæri sem þeir leika
á. Árangurinn er slöpp hljómsveit
sem spilar enn slappara rokk. Til
að kóróna herlegheitin er leik-
stjórn eins ómarkviss og hugsast
getur.
Ljósi punkturinn við myndina er
leikur. Þótt hljómsveitarmeðlimir
kunni ekki á hljóðfærin er leikur i
lagi. En handritið skemmir fyrir
og þrátt fyrir góðan vilja eiga leik-
arar erfitt með að skapa trúverðug-
ar persónur.
Það kemur á óvart að sjá íslenska
þýðingu myndarinnar. Bíóþýðing-
ar hér á landi eru alræmdar fyrir
hve lélegar þær eru en í þessari
mynd birtast allt í einu gullmolar
í textaræmunni. En ekki einu sinni
textinn dugar til bjargar. Myndin
missir gjörsamlega marks og er
eins gott að eyða tímanum í eitt-
hvað annað. -PLP