Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988. 29 Lífsstfll Æft af mikilli elju - fynr ólympíuleika fatlaðra í Seoul Sundkrakkarnir Olafur og Lilja María létu sig ekki muna um að vippa sér upp á bakkann. Um helgina komu ólympíufarar íþróttasambands fatlaöra sam- an í æfingabúðum í annaö sinn í sumar. „Það er ákaflega mikil- vægur þáttur í undirbúningn- um fyrir leikana aö koma svona saman og æfa. Með þessu er stuðlað að því aö sem bestur árangur náist og eiris er þetta til þess að þjappa hópnum sam- an og efla andann,“ sagði Mark- ús Einarsson, starfsmaður íþróttasambands fatlaöra, í samtab við DV sem heimsótti búðirnar um helgina. Æfingabúðir mikilvægar í undirbúningi Ólympíuleikar fatlaðra verða haldnir í Seoul í Suður-Kóreu dagana 15.-24. október náest- komandi. Notaðir verða sömu vellir og hótel og á ólympíuleik- um ófatlaðra. Æfingabúðir ólympíufaranna voru að þessu sinni í Reykjavík, nánar tiltekið í Laugardalnum að mestum hluta. Fyrr í sumar hittust keppendumir í 5 daga í æfingabúðum í Hrafnagili í Eyjafirði. DV hitti að máli nokkra ólympíufara þar sem þeir voru að æfa af mikilli elju. Annars vegar voru það frjálsíþrótta- mennirnir er æfðu á Valbjarn- arvelli og hins vegar sundfólkið sem synti af kappi í Laugardals- lauginni. Á þegar heimsmet Reynir Kristófersson er elsti keppandinn í hópnum. Hann mun keppa í kastgreinum. Er þetta í annað sinn sem hann tekur þátt í ólympíuleikunum. „Þetta er náttúrlega hely... púl, en maður lætur sig hafa það. Ekki þýðir annað,“ sagði Reyn- ir um leið og hann reyrði stól- inn sinn fastan við jörðina. Síð- an tók hann kúluna og kastaði henni með glæsilegri sveiflu. Á hlaupabrautinni hljóp Haukur Gunnarsson hverja ferðina á fætur annarri með háum hnélyftum. Hann hefur nú æft í sex ár og á þegar heims- met í 100 og 4Ö0 metra hlaupum. Einnig á hann stútt eftir í heimsmetiö í 200 metra hlaupi í sínum flokki. Það var létt hljóðið Hauki og hann virtist bjartsýnn á góðan árangurSeo- ulíoktóber. Arnar Klemensson frá Seyð- isíirði, sem keppa mun í hjóla- stólaakstri á leikunum, þaut hring eftir hring á vellinum og sló ekki af þótt ljósmyndari væri að flækjast fyrir honum. Greinilegt var að hann ætlaði ekki að láta sitt eftir hggj a. Taka skólabækurnar með í Laugardaislauginni var sundfólkið að synda síðasta sprettinn í þolsundi þegar DV baraðgarði. Tvö ungmenni, Lilja María Snorradóttir frá Sauðárkróki og Ólafur Eiríksson úr Kópa- vogi, eru nú aö fara í fyrsta sinn á ólympíuleikana. Þau kváðust hlakkamikiötil. Þau eru bæði að fara í níunda bekk og sögðust ekki hafa mikl- ar áhyggjur af því að þetta hefði áhrif á námið. „Það veröa líka kennarar með í ferðinni sem reka á eftir þeim með harðri hendi,“ skaut Markús inn í í gamansömum tón. Krakkarnir tóku því létt, og létu sig ekki muna um að vippa sér upp á bakkann fyrir myndatöku. Giæsilegur árangur á fyrri leikum Að þessu sinni tekur ísland . - _ Reynir Kristófersson kastaði kúlunni fimlega. sýnn til Seoul, Haukur Gunnarsson hlaupari. DV-myndir KAE þátt í ólympíuleikum fatlaðra í þriðja sinn. Alls munu 14 ís- lenskir íþróttamenn fara. Eru þetta 10 sundmenn, 3 frjáls- íþróttamenn og 1 borðtennis- leikari. Með þessum fóngulega hópi fára 9 þjálfarar, fararstjór- ar og aðstoðarmenn. Keppend- ur eru frá sex stöðum á landinu, Selfossi, Seyðisfirði, Akureyri, Sauðárkróki, Njarðvík og Reykjavík. Aðalfararstjóri í hópnum verður Sveinn Áki Lúðvíksson. Árið 1980 fóru leikarnir fram í Hollandi og unnu íslensku keppendurnir þá til tvennra verðlauna. Fengu þeir 1 gull og 1 brons. Árangur íslensku keppendanna var enn glæsi- legri íjórum árum síðar er leik- arnir fóru fram í Bandaríkjun- um og Englandi. Þá unnu þeir alls til 11 verðlauna, fengu 2 silf- urog9brons. Enn vantar fjármagn Að sögn Markúsar Einarsson- ar hggur geysimikill undirbún- ingur að baki slíkri ferö. Fram aö leikunum munu keppendur æfa 6 daga í viku í að minnsta kosti2tímaádag. Áætlaður kostnaður vegna þátttöku er um 3,5 miljónir króna. Ennþá vantar töluvert upp á að endar nái saman en Markús kvaðst vona að á næstu vikum tækist að klára aö safna Tíðarandi fyrir kostnaöinum. „Það er markmið okkar að keppend- urnir þurfi ekki að bera fjár- hagslegan bagga vegna leik- anna. Okkur flnnst að þeir leggi nógu mikið á sig og fórni öðru eins með öllum þeim tíma sem þeir verja í æfingar og annað i kringum þetta," sagði Markús aðlokum. -gh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.