Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Page 33
33 . ÍWÍV' .«? í33,2vi 'KSStWSM MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988. 259 innijurtir Hoilráð og heUsuvernd Á markaö er komin handbók um umhirðu innijurta. í bókinni er fjaiiað um hverja jurt á tveimur blaðsíðum með iitmyndum og teikningum. Hand- bókum inni- jurtir Heimilissíðunum hefur borist nýleg handbók um ræktun inni- jurta. Hún heitir einfaldlega Jurtahandbókin og er gefm út af Almenna bókafélaginu. í bókinni eru leiðbeiningar um umhirðu 259 jurta - blóma og blaðplantna, kaktusa og þykkblöðunga, pálma og burkna. Þarna má einnig lesa sér til um margs konar blóm- lauka og einærar plöntur sem má rækta í pottum og kerjum innanhúss. í bótónni eru um 500 litmyndir og 800 teikningar á 560 blaðsíöum. Fremst í Jurtahandbótónni er að finna skrá yfir nöfn jurtanna, bæöi á íslensku og latínu. Þessu fylgir svo viöeigandi blaðsíðutal. Því ætti aö vera nokkuð greinarg- ott að finna viðkomandi plöntur í bókinni, svo framarlega sem les- andi veit nákvæmlega nafn þeirra. Sem dæmi má nefna Sverðburkna ogParadísarpálma, Hvað er að? Fjallað er um hverja jurt á tveimur blaðsíðum. Þar er tiltek- in birtu- og rakaþörf hennar og æskilegasta hitastig. Einnig eru leiðbeiningar um áburðargjöf og umpottun og hvaða tegund skuli nota. Auk þessa eru á athyglis- verðan hátt tekin fyrir möguleg veikleikamerki við hvetja jurt. Sem dæmi má nefiia gulnuð blöð, brúna blaðodda, hægan vöxt og það helsta sem mögulega getur verið að hverri tegund. í hverju tilfelli er útskýrt hvernig bregðast skuli við sjúk- dómseinkennum. Hvort þurfi að umpotta, hvort um of lítinn hita sé aö ræða, of mikið eða lítið vök- vað eða um birtuskilyrði. Framarlega í bókinni eru svo leiðbeiningar um notkun hennar. Þar er helstu nauðsynlegra verk- færa viö ræktun getið og góð ráö gefm um vökvun, umpottun og margt fleira. Aftast eru svo leið- beiningar um innkaup. Höfundar bókarinnar eru fjór- ir: David Longman, Tom Gough, John Pilbeam og Norman Simp- son - kunnh sérfræðingar á sínu sviði. Þýöandi er Óskar Ingimars- son. Jurtahandbókin er kærkomin hjálp fyrir byrjendur í blómarækt jafnt sem lengra komna. Hún kostar um 2.400 krónur á útsölu- verði. -ÓTT. ___________________________________________Lífsstai Fastur hluti af tilverunni: Leikvöllur skipulagður við raðhús Viö Bollagarða á Seltjarnarnesi hefur verið skipulagt mjög skemmti- legt leiksvæði sem tilheyrir þremur raðhúsalengjum - ellefu húsum. Lít- ill er hann en snotur og glæsilegur í senn. Þetta er nýbreytni sem nú þegar hefur verið útfærð á fleiri stöðum. íbúar hverfisins eru mjög ánægðir með framkvæmdina, jafnt yngri sem eldri. Á Seltjarnarnesi eru sem stendur engir skipulagðir leikvellir. Krakka úr aðliggjandi hverfum hef- ur því drifið að í löngum bunum. Fýsilegur kostur fyrir byggðarkjarna Oft eru svæði skipulögð meö leik- svæöi í huga. Hér er um sameign aö ræða. Viö Bollagarða hafði leiksvæð- ið staðiö óskipulagt í um sex ár - á meðan veriö var að byggja og ganga frá. Eigendum er í sjálfsvald sett hvernig plássið er nýtt. Um marga möguléika er að ræða, allt eftir hugmyndaflugi og fjárráð- um. Kostnaður dreifist þó á margar hendur. íbúar raðhúsanna fengu svæðið teiknað og síðan samþykkt Þetta hús tilheyrir leikvelli barna við þrjár raðhúsalengjur við Bollagarða á Seltjarnarnesi. Krakkana drífur víða að twmmn" fn Tv*; V y ' \ , <,-x Ekki er verra að hafa leikvöll sem fastan hluta af tilverunni rétt við húsið sitt. hjá byggingarfulltrúa. Að lokum framkvæmdi Hagvirki hf. verkið. Fastur punktur í tilveru krakkanna... Að sögn íbúa við Bollagarða hefur börn drifið að til að dvelja á leik- svæöi þeirra - á mismunandi aldri. T.d. koma stúlkur, sem passa börn, oft við. Krökkum finnst gott aö hafa eitthvert fast afdrep. Meira að segja er hægt að skríða inn í hús þegar rignir. .. .og foreldranna Fyrir fullorðna fólkið er einnig heppilegt að vita af börnunum á ákveðnum stað. ekki bara einhvers staðar úti. Auk þess er enginn of gamall til að leika sér meö börnum sínum og annarra. Svona fyrirkomulag ýtir óneitan- lega undir samstööu í hverfum og byggðarkjörnum. Samkomulag mun vera mjög gott og ibúarnir grilla t.d. ■ og snæða úti einu sinni á ári. Því er kjörið fyrir þá sem hafa svona fram- kvæmdir í huga aðláta hanna svæði með tilliti til þessa þátta, hafa fastan punkt og geta verið saman. -ÓTT. Skipulag leikvalla er oft i höndum ibúðar- eða húseigenda í viðkom- andi hverfi. Blindhœð framundan. Við vitum ekki hvað leynist handan við hana. Ökum eins langt til hægri og kostur er og drögum úr hraða. Tökum aldrei áhættul il&r3®"' fæst á járnbrautar- stöðinni í Kaup- mannahöfn otryu í veginrt! í i BLAÐ BURÐARFÓLK Reykjavík Lönguhlíð Háteigsveg 50-56 Úthlið Flókagötu 52-út Tjarnargötu Suðurgötu Bjarkargötu Skaftahlið Bólstaðarhlíð 1-30 Sóleyjargötu Fjólugötu Skothúsveg Laugaveg 2-120 sléttar tölur Hverfisgötu 1-66 Flókagötu 1-40 Karlagötu Mánagötu Skarphéðinsgötu Háagerði Langagerði Laufásveg Miðstræti Laugaveg Bankastræti Sörlaskjól Faxaskjól \ • ííV'v- 11 n AFGREIÐSLA i $ í t i ^ ^ SIMI 27022

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.