Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Page 40
F R E T T A S K O T I Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiö- hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsirtgar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst, óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988. Skákþing íslands: Margeir vann Hannes ^ Margeir Pétursson vann Hannes Hlífar Stefánsson í hálfgerðri úrslita- skák í landsliðsflokki í gær. Margeir hafði svart og varð skákin 42 leikir en Margeiri tókst að kreista fram vinning í jafnteflislegu endatafli. Þar með hefur Margeir tekið forystu og hefur góða möguleika á að vinna titil- inn þriðja árið í röð. Margeir er með 7 vinninga, Jón L. með 6 V og Hann- es 6. Úrslit í gær uröu þannig - hvítur talinn á undan: Jón L. vann Bene- dikt. Jóhannes vann Ásgeir Þór. Þröstur tapaði fyrir Karli, Róbert vann Þráin og Davíð vann Ágúst. 9. umferð verður tefld í kvöld kl. 18. -SMJ Bílvelta í Eyjafirði Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Ökumaður, sem velti bíl sínum á Ólafsfjarðarvegi við Baldursheim í gærdag, er grunaður um ölvún við akstur. Fimm manns voru í bifreiðinni. Tvennt var flutt á sjúkrahús og önn- ur tvö héldu þangað síðar til að láta athuga meiðsli sín. Bifreiðin er gjör- ^ónýt eftir veltuna. Þá varð í gær harður árekstur á Drottningarbraut á Akureyri, á móts við Aðalstræti, en um meiösli var . ekki að ræða þar. 11 og 12 ára drengir: Reyndu tvær íkveikjur Tveir drengir, 11 og og 12 ára gaml- ir, reyndu tvívegis að kveikja eld í sambýlishúsum í gær. Húsin eru við Furugrund í Kópavogi. í fyrra tilfell- inu kveiktu drengirnir eld í barka á þurrkara í þurrkherbergi. Síðar kveiktu þeir eld í sorpgeymslu. íbúar húsanna urðu eldsins varir og höfðu náð að slökkva áður en slökkvilið kom á vettvang: Ekki er vitað hvað drengjunum, sem búa í Grundahverfi, gekk til. -sme SIMAÞJONUSTA 62 42 42 Sjukrabíll 11100 Slökkviliðið 11100 Lögrcglan 11166 Læknavakt 21230 LOKI Ætla þeir að „granda" Hval hf.? , ,Forstj óradraumara, segir forseti ASÍ um launalækkanir með niðurfærslu: Þjóðarsátt arri aðferð „Það er óðs manns æði að ætla sér að lækka kaupið um 11,5% um næstu mánaðamót eins og sett er fram í nefndinni. Síðan ætla þeir að láta sér nægja að eiga von í að verðlag lækki um 2 til 5%. Ég vona bara að ríkisstjórnin sé skynsam- ari en nefndin enda eru í henni sérkennilegir forstjóradraumar," sagði Ásmundur Stefánsson, for- maður ASÍ. Ásmundur sagði að þessar hugmyndir um launalækk- anir væru fyrst og fremst árás á þá sem byggju við taxtana og ör- uggt að þetta gengi ekki yfir alla. En hvað skyldi formaður ASÍ segja felst í ann- en þessari ingamálunum, ríkisfjármálunum og ekki síst gráa markaðnum auk almennrar uppstokkunar á at- vinnulífmu til að mæta þeim vanda sem nú liggur fyrir. Ekki þýddi að ráðast á kaupið eitt og sér. -SMJ um þjóðarsáttarhugmynd forsætis- ráðherra? „Þjóðarsátt hlýtur aö felast í ann- arri aðferð en þessari - og þá ekki einhverri einni og einfaldri aðferð sem menn halda að þeir geti gripið til," sagði Ásmundur. Hann sagði að ríkisstjómin yrði að taka á pen- Boðið i þorskinn á Faxamarkaði klukkan hálf átta í morgun. DV-mynd S Faxamarkaður: Selt úrÁsbimi RE í morgun „Þetta er alveg þokkaleg sala," sagði uppboöshaldarinn á Faxa- markaði, Pétur Þorbjörnsson, í morgun. Aflinn, sem seldur var, kom aö mestu leyti úr Ásbirni RE, togara Granda hf. Meöalverðiö fyrir þorskinn var um 43,50 krónur fyrir kílóiö og voru seld um 70 tonn. Ýsan fór á 61-65 krónur og fóru 6 tonn af henni að mestu leyti til fisksala. Tvær stórlúður fóru á 160 krónur kílóið. Að sögn Péturs koma menn víða að til að kaupa fisk á markaðnum. Þess eru dæmi að fiskkaupendur komi frá Grundarfirði og Dalvík að kaupa fisk í Reykjavík. Fiskverkend- ur af Suðurnesjum, Þorlákshöfn og Eyrarbakka koma reglulega. Pétur segir fiskveröið geta verið nokkuð brokkgengt en upp á síðkast- ið hafi gott verð fengist á markaðn- um. pv Sjónvarpið: Rúnar Gunnars- son tekur við af Ingimar „Rúnar Gunnarsson tekur við starfi fulltrúa framkvæmdastjóra Sjónvarpsins þann 1. september næstkomandi. Rúnar hefur starfað við innlenda dagskrárgerð og flyst í þetta starf þar til annað veröur ákveðið. Rúnar kemur til méð að sinna sömu verkefnum og Ingimar Ingimarsson hefur sinnt í stöðu aö- stoðarframkvæmdastjóra," sagði Pétur Guðfmnsson, framkvæmda- stjóri Sjónvarpsins, við DV í morgun. - Nú hefur Ingimar sagt að verk- efni hans væri lokið. „Það er rétt að tilteknum verkefn- um er lokið en önnur taka við. Þar á meðal eru stöðug rekstrarverkefni eins og hjá stórum fjölmiðli sem Sjónvarpið er. Þetta starf er í stöð- ugri mótun." -hlh Hitaveitan: Fjórir bjóða í útsýnishús í gær voru opnuð tilboð í steypu- vinnu við útsýnishúsið sem á að byggja ofan á hitaveitugeymunum í Öskjuhlíð. Fjórir verktakar fengu aö bjóða í verkið, ístak, Hagvirki, Byggðaverk og Ármannsfell. Þrjú fyrstnefndu fyrirtækin buöust til að vinna verkið fyrir um 110 millj- ónir króna en tilboö Ármannsfells var eitthvað hærra. Innan skamms verður ákveðið hver fær verkiö en því á að vera lok- ið í maí á næsta ári. pv Skaftárhlaup: Er í rénun „Þetta hlaup er í rénun. Það hefur- lækkað í ánni frá því í gær. Mest jókst í ánni um einn og hálfan metra. Þetta var mjög lítið flóð. Það getur hafa komið úr öðrum sigkatlinum," sagði Sigurrós Gunnarsdóttir, hús- freyja í Hvammi í Skaftártungum. Sigurrós sagði að þar sem dimmt heföi verið yfir jöklinum hefði ekki verið unnt að fljúga yfir og kanna hlaupiö. Hún sagöist ekki eiga von á að ef annað hlaup yrði aö það yröi meira en það sem nú er í rénun. „Þaö er þó aldrei hægt að segja til um slíkt með einhverri vissu,“ sagði Sigurrós Gunnarsdóttir. -sme Veðrið á morgun Norðaust- læg átt á landinu Á morgun verður norðaustlæg átt á landinu. Á Norður- og Aust- urlandi verður skýjað og dálítil súld eða rigning en þurrt og víða léttskýjað á Suður- og Vestur- landi. Hiti verður á bilinu 7-12 stig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.