Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Síða 6
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988. Utlönd Gilbert kominn yffir Mexíkó og Texas Fellibylurinn Gilbert kom yfir strönd Mexíkó og Texas um níu leyt- ið í gærkvöldi að íslenskum tíma, eða um þrjú- til fjögurleytið að staðar- tíma. Nokkuð var af honum dregið frá því hann var upp á sitt besta fyrr í vikunni og olli sem mestu tjóni á Jamaica og Yucatanskaga í Mexíkó. Auga fellibylsins kom yfir talsvert sunnan við Brownsville í Texas eða á landamærum Bandaríkanna og Mexíkó. Hafði verið lýst yflr algeru neyðarástandi allt frá Corpus Cristi, í Texas í norðri, suður til Tampico í Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækurób. 10-12 Allir nema Ib.SP Sparireikningar 3jamán. uppsögn 12-14 Sb.Ab 6 mán. uppsögn 13-16 Ab 12mán. uppsögn 14-18 Ab 18mán. uppsögn 22 Ib Tékkareikningar, alm. 3-7 Ab Sértékkareikningar 5-14 Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán. uppsögn 4 Allir Innlánmeð sérkjörum 11-20 Lb Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 7,25-8 Vb.Ab Sterlingspund 9,75-10,50 Vb.Ab Vestur-þýskmörk 4-4,50 Vb.Sp,- Ab Danskarkrónur 7,50-8,50 Vb.Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 23,5 Allir Viöskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 25-36 Bb,lb,- Vb.Sp Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 26-28 Sb Utlán verðtryggð Skuldabréf 9-9,50 Bb.Sb,- Sp Útlán til framleiðslu isl. krónur 23-34 Lb SDR 9-9,75 Lb.Úb,- Sp Bandarikjadalir 10,25-11 Úb.Sp Sterlingspund 12,75- 13,50 Úb,Sp Vestur-þýsk mörk 7-7,50 Allir nema Vb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 49,2 4,1 á mán. MEÐALVEXTIR óverðtr. sept. 88 39,3 Verðtr. sept. 88 9,3 ViSITÖLUR Lánskjaravísitala sept. 2254 stig Byggingavísitala sept. 398 stig Byggingavísitalasept. l24,3stig Húsaleiguvísitala Hækkaði8%1. júli. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóða Einingabréf 1 3,259 Einingabréf 2 1,869 Einingabréf 3 2,083 Fjölþjóðabréf 1,268 Gengisbréf 1,530 Kjarabréf 3,273 Lífeyrisbréf 1.639 Markbréf 1,718 Sjóðsbréf 1 1,584 Sjóðsbréf 2 1,365 Tekjubréf 1,567 Rekstrarbréf 1,2841 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 115 kr. Eimskip 269 kr. Flugleiðir 240 kr. Hampiðjan 116 kr. Iðnaðarbankinn 168 kr. Skagstrendingur hf. 158 kr. Verslunarbankinn 120 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 123 kr. Tollvörugeymslan hf. 100 kr. Mexíkó. Dregið hafði hins vegar mjög úr vindhraða og var hann kominn niður í um eitt hundrað og níutíu km/klst. en var mestur þrjú hundruð og tutt- ugu km/klst. Samkvæmt heimildum DV er eitt hundrað og níutíu km/klst. álíka og mesti vindhraði sem mælst hefur við ísland. Meðfram strandlengjunni í Texas og Mexíkó haföi fólk verið ílutt á brott en um 80% íbúa neituðu að fara. Það svæði í Bandaríkjunum, sem fellibylurinn gengur yfir, er fátæk- asti hluti Bandaríkjanna og eru íbúar þar flestir af mexíkönskum uppruna. í Brownsville höfðu allar birgðir af dósamat tæmst úr verslunum og víða reyndu kaupmenn og aðrir að okra á fólki. Lögreglan brást mjög hart við og hótaði jafnvel að skjóta þá er slíkt iðkuðu. Við ströndina hafði vatnsyfirborð sjávar hækkað um'ijóra metra og úrkoma hafði mælst fimm hundruð millímetrar svo að miklar líkur voru taldar á flóðum. Þegar DV fór í prentun höfðu ekki borist fregnir af tjóni á svæðinu. Gífurleg flóð hafa fylgt fellibylnum Gilbert og hér má sjá ástandið I Can Cun á Yucatanskaga eftir að fellibylurinn gekk þar yfir. Opinber rannsókn Pétur h. Péturason, DV, Baiœlona; Fehpe González, forsætisráð- herra Spánar, hefur farið fram á opinbera rannsókn á meintura hlerunura á símum ýmissa framá- raanna í spænskum stjórnraálura. Þetta gerist í kjölfar kæruflóðs vegna símahlerana. Eftir aö vikuritið Tiempo fékk tæknimenn til að kanna hvort sím- ar ýmissa lykilmanna í stjórn- málum væru hleraöir hefur athygli manna mjög beinst aö þessum möguleika. Þannig hafa ýmsir aðil- ar, bæði einstaklingar, flokkar og stofnanir, fengið tæknimenn til að kanna hvort símar þeirra væru hleraðir. Þessar athuganir hafa leitt til þess að kærur vegna sírna- hierana hafa stóraukist. Forsætisráöherrann lýsti því yfir í gær að þessar símalínur yrðu kannaðar af óvilhöllum aðila. Af- leiðingunum yrði tekið. Ef einhver fótur i’cyndist fyrir þessmn ásök- unum yrði þeim sem ábyrgur væri fyrir hlerununumharðlega refsað. González hefur látiö hafa eftir sér í flölmiðlum að um sviðsetningu sé aö ræða í því skyni að koma höggi á ríkisstjórn landsins. Samtímis þessu er að ljúka dóms- rannsókn á meintum símahlerun- um Ertzaintza, fylkislögreglunnar í Baskalandi. Rannsóknin þykir benda mjög eindregið til þess að lögreglan hafi hlerað ólöglega síma meints eiturlyflasala. Við hlerun sírnans tókst lögreglunni af tilvilj- un að koma upp um iðnaðarnjósn- ir. Þetta kúbanska flutningaskip fauk á land þegar fellibylurinn Gilbert gekk yfir Yucatanskaga í Mexíkó á fimmtudag. Stefnir í sigur Jafnaðar- manna í Svíþjóð Einar Baldvin Stefansson, DV, Helsingjaborg Svenska Dagbladet og Dagens Ny- heter birtu í gær niðurstöður síðustu skoðanakannana fyrir þingkosning- arnar sem fara fram á morgun. Samkvæmt könnun Svenska Dag- bladet fá borgaraflokkarnir þrír 44.6% atkvæða eða Hægri flokkurinn 18.2% (21.3% í kosningunum 1985), Þjóöarflokkurinn 14.8% (14.2%) og Miðílokkurinn 11.6% (10.1%). Jafn- aðarmenn og kommúnistar fá hins vegar til samans 46.2% það er Jafn- aðarmenn fá 42.0% (44.7) og komm- úrústar 4.2% (5.2%). Græningjar verða, samkvæmt þessari könnun, í lykilaðstöðu og er spáð 7.1% fylgi (1.5%). Loks fengu Kristilegir demókratar 2% (2.3%) og 4.1% aðspurðra voru óákveðnir. Samkvæmt könnun Dagens Nyhpt- er er borgaraflokkunum hins vegar spáð 41.5% fylgi eða Hægri flokknum 17.9%, Þjóðarflokknum 13.9% og Miðflokknum 9.7%. Jafnaðarmönnum og kommúnist- um er aftur á móti spáð 49.2% at- kvæða eða Jafnaöarmönnum 43.4% og kommúnistum 5.8%. Græningjum er spáð 6.1% fylgi og Kristilegum .demókrötum 2.6%. Samkvæmt könnun Dagens Nyhet- er voru 3% aðspurðra óákveðnir. Stjórnmálaflokkur í Svíþjóð verður að ná 4% lágmarksfylgi til þess að fá kjörinn fulltrúa á þing. Allt bendir nú til þess að Ingvar Carlsson, leiðtogi Jafnaðarmanna, verði áfram forsætisráðherra Svíþjóðar eftir kosningarnar á morgun. Fiskadauði í Kattegat (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavlxla gegn 31 % ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um penlngamarkað- inn birtast f DV á fimmtudögum. Gizur Helgason, DV, Reeisnæs: ■ Súrefnisskortur og fiskadauði breiðist hratt út í sjónum umhverfis Danmörku en þó sér í lagi í Katte- gat. Undanfarna daga hafa net sjó- manna í Kattegat verið hálffull eða full af dauðum fiski. Botninn á stórum svæðum í Katte- gat er þakinn hvítum bakteríugróðri sem kemur í ljós þegar súrefnið hverfur. Á þrettán metra dýpi virðist allt líf horfið. Þetta er í fyrsta sinn sem súrefms- skortur sjávarins í Kattegat kemur svo snemma og líta sjávarlíffræðing- ar mjög alvarlegum augum á málið. Súrefnisskorturinn er á stórum hafsvæðum þar sem slíkt hefur ekki áður gert vart við sig. Vart verður stundum við súrefnisskort á svæðum í hafinu umhverfis Danmörku en aldrei jafn stórum og nú og aldrei á þessum árstíma. Það var síðasthðinn sunnudag sem tilkynningar fóru að berast frá fisk- veiðibátum sem sögðu netin vera full af dauðum rauðsprettum og humri. Svipaðar tilkynningar hafa haldið áfram að berast alla vikuna. Á hafsbotninum berjast fiskar og sniglar fyrir lífi sínu og á myndum sem þar eru teknar má sjá kuðunga, svo sem beitukónga, sem skriðið hafa upp á hæstu steinana til þess að ná í súrefni. Samkvæmt upplýsingum sjávarlíf- fræðinga má reikna meö því að þessi súrefnisskortur verði í um tvo mán- uöi. Einnig má gera ráð fyrir að það taki mörg ár fyrir lífríkið að ná jafn- vægi á ný ef súrefnisskortur gerir ekki vart við sig á ný. Ástæðu súrefnisskortsins segja umhverfismálamenn vera mildan vetur á síðastliðnu ári sem svo hafi orsakað að mikið magn af köfnunar- efnum frá landbúnaðinum hafi runn- ið til sjávar. Við það hafi þörunga- magnið aukist. Þeir eru nú að opna sig og nota mikið af súrefni við þá efnabreytingu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.