Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 32
32
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988.
íslendingur kallaóur til björgunarstarfa á slóðum fellibylsins Gilberts:
Saga þessa flugs er
skráð með blóði
- segir Gylfl Gunnarsson sem flýgur björgunarþyrlum við Mexíkóflóann:
Þótt fellibylurinn Gilbert ógni lífi
manna og eigum viö Mexíkóflóann
er hann þaö langt í burtu að við ís-
lendingar látum okkur nægja að
fylgjast með úr fjarlægð. Þó er einn
íslendingur sem getur ekki látið sér
á sama standa. Hann var hér í síð-
búnu sumarleyfi á heimaslóðum þeg-
ar kallið kom að hverfa til björgunar-
starfa þarna suðurfrá. Hann hefur
atvinnu af að fljúga þyrlum í þjón-
ustu við olíubormenn á flóanum.
Þessir menn eru í hættu þegar felli-
bylur ríður yfir rétt éins og aðrir sem
búa á svæðinu. islendingurinn sem
hér um ræðir heitir Gylfi Gunnars-
son. Hann settist á spjall viö helgar-
blaðið nokkrum klukkustundum áð-
ur en hann hélt utan, rólegur og af-
slappaður og sagði að þetta væri at-
vinnan sín.
Kallaður út í snatri
Gylfi býr í Houston í Texas ásamt
konu sinni Debru Jane. Þegar þau
héldu í snatri heimleiðis í gærmorg-
un var ekki annað vitað en heimili
þeirra í Houston væri í hættu vegna
flóða og þá var ekki vitað með vissu
hvort fellibylurinn legði leið sína yfir
'Houston.
„Það er ekki alveg á hreinu hvort
flugvöllurinn í Houston verði opinn
þegar ég kem út á laugardaginn,“
segir Gylfi þegar hann spáir í stöð-
una. „Það getur verið erfiðleikum
bundið aö komast á leiðarenda. Ef
ekki verður hægt að lenda í Houston,
því fellibylurinn stefnir þangað, þá
verður að lenda í Dallas eða annars
staðar."
Þegar út er komið tekur björgunar-
starfið við hjá Gylfa. „Ég reikna með
að fara beint í flugið þegar ég.kem
út ef stormurinn stendur þá enn,“
segir hann. „Það er möguleiki að
hann verði gengin yfir en hvernig
sem staðan verður þá er nóg að gera
fyrir þyrlurnar. Skemmdirnar eru
miklar og enginn veit hvað það tekur
langan tíma að koma öllu í samt lag
á ný.“
Fyrirtækið sem Gylfi vinnur hjá
heitir Petroleum Hehcopters. Þetta
er stærsta þyrluflugfélag í heiminum
með 350 þyrlur í flotanum. Af þeim
eru um 290 þyrlur í þjónustunni við
olíuborpallana við Mexíkóflóann.
Allt á síðustu stundu
„Við verðum umsvifalaust að
ganga inn í björgunaráætlanir þegar
neyðarástand skapast," segir Gylfi.
„Þyrlunum er ekki komið í öruggt
skjól fyrr en rétt í þann mund sem
veðriö gegnur yfir. Það er síðasti lið-
urinn í björgunaráætlunni þegar
svona veður gengur yfir.
Það verður ekki ákveðið fyrr en á
síðustu stundu hvað verður gert við
þær. Það veit enginn nákvæmlega í
hvaða átt fellibylurin fer þótt hægt
sé að spá um það í aðalatriðum. Við
getum þurft að fara með þyrlurnar
um fimm til sex hundruð mílur inn
í land. Fyrst þarf þó að bjarga öllum
starfsmönnum af olíuborpöllunum í
land.“
Um 40 ohufélög eiga borpaha á
Mexíkóflóanum. Þessi félög eru með
um 10 þúsund manns að staðaldri á
pöllunum við olíuvinnsluna. „Hvert
olíufélag hefur sína áætlun um brott-
flutning starfsfólksins og björgun
verðmæta,“ segir Gylfi. „Þau kaupa
aðstoð við björgunarstarfiö af þyrlu-
félögum eins og því sem ég starfa hjá.
Fyrsta skrefið er að flytja alla þá í
land sem ekki veröa nauðsynlega að
vera á pöllunum. Að því loknu eru
öh tæki, sem ekki eru líkleg til að
þola náttúruhamfarir af þessu tagi,
flutt í land. Að því loknu eru menn-