Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988. D.O.A. 51 * Kvikmyndir Kvikmyndahátíðin í Feneyjum: % f f Shirley MacLaine var önnur tveggja leikkvenna sem iengu verölaun fyrir bestan leik í kvenhiutverki fyrir leik sinn í Madame Sousatzka. Hún er hér ásamt leikstjóranum John Schlesinger. Nýlega lauk hinni árlegu kvik- myndahátíð í Feneyjum. Aö þessu sinni fékk ítalski leikstjórinn Er- manno Olmi gullljóniö fyrir kvik- mynd sína Leggenda del santo he- vitore Kvikmyndin er byggð á bók eftir austurriska rithöfundinn Joseph Roth sem dó af brennivinseitrun í París 1938. Fjallar sagan um um- renning í París sem fær peninga- lán, veröur ríkur en veröur áfeng- inu að bráð þegar peningaskuldir fara að hlaðast á hann. Olmi, sem er fimmtíu og sjö ára og gerði stuttar heimildamyndir í byrjun ferils síns, hefur áður verið verðlaunaður á stórhátíðum. Síð- ustu verðlaun hans voru gullpálm- inn í Cannes 1979 fyrir L’albero deglizoccoh. Aðaihlutverkið, um- renninginn í Leggenda del santo bevitore, leikur hollenski leikarinn Rutger Hauer sem á imdanfómum árum hefur leikið í bandariskum myndum. Verölaun fýrir bestan leik í karl- hlutverki hlutu hinn áttræði Don Ameche og Jœ Mantegna fyrir leik sinn í bandarísku myndinni Things Change sem leikstýrt er al'David Mamet sem hingað til hefur verið þekktari fyrir kvikmyndahandrit sínenleikstjórn. Verðlaununum fýrir bestan leik í kvenhlutverki var einnig skipt milli tveggja leikkvenna. Isabella Huppert hlaut verölaun fyrir leik sinn í Un affaire de femmes, sem er nýjasta kvikmynd Ciaude Chap- rol, og Shirley MacLaine var verð- launuðfyrir leik sinn í Madame Sousatzka sem John Schlesinger leikstýrir. Besti leikstjóri var val- inn Grikkinn Theo Angelopoulos. Það sem vakti einna mesta at- hygii í Feneyjum þetta áriö var sú hroðalega útreið sem nýjasta kvik- mynd Franco Zefferelli, The Young Toscanini, fékk. Baulað var og, flautaö i sýiiingarlok myndarinn- ar. Gagnrýnendur voru eimiig ósparir á lmeykslun sína. Sögðu fyrst og fremst að hátíðin hefði verið niðurlægð með sýningu myndarinnar. Einn gagm-ýnand- inn líkti myndinni viö myndlistar- sýningu þar sem sýnt væri saman- safnafpóstkortum. Zefferelli, sem mánuði áður hafði hótað að taka myndina út af dag- skrá hátíðarinnar vegna þess að sýna átti hina umdeildu mynd Martins Scorsese, The Last Tempt- ation of Christ, utan keppninnar, varð nú sjáifur fyrir því að mynd hans var talinn ósýningarhæf i keppninni. Þess má geta aö Elizabeth Taylor ieikur eitt aöalhlutverkið í The Young Toscanini og ekki fóru gagn- rýnendur betri oröum um frammi- stöðuhennar en sjálfa myndina. -HK Smáfréttir. M PHIL COLLINS er þúsund þjala smiður í tónlistinni, leikur á hljóð- færi, syngur og semur lög. Óhætt er að telja hann einn alvinsælasta popp- arann í dag. Honum virðist vera fleira til lista lagt, því á fimmtudag- inn var frumsýnd kvikmyndin Bust- er með honum í aðalhlutverki. Viö- stödd frumsýninguna voru Díana prinsessa og Karl prins og aðrir hátt- settir gestir. Buster er leikstýrt af David Greene og meðleikari Collins er hin ágæta gamanleikkona Julie Walters sem þekktust er fyrir leik sinn í Educating Rita. • • • r STANLEY KRAMER hefur verið fenginn til að leikstýra og framleiða kvikmynd sem byggð verður á ævi Lech Walesa, verkalýðsleiðtoga frá Póllandi. Mun myndin einnigfjalla um tilveru og uppruna Solidarnos, hinnar bönnuðu verkalýðshreifingar í Póllandi. Handritið að kvikmynd- inni, sem mun nefnast Polonaise, er skrifað af Daniel Taradash sem vann óskarsverðlaun 1953 fyrir handrit sittaðHeretoEternity.Handritið *- byggir hann á löngum viðtölum við Walesa. • • • KEN RUSSELL hefur byrjaö kvik- myndun á The Rainbow sem byggð er á skáldsögu eftir D.H. Lawrence. Hann hefur sem oft áður fengið til liðs við.sig úrvals leikara. Má þar nefna Glendu Jackson sem fyrst lék fyrir Russell í Women in Love fyrir tuttugu árum, Christhopher Gable og tvær ungar og efnilegar leikkon- ur, Amanda Donohoe og Sammi Dav- is. Það sem fréttnæmast þykir aftur á móti er að Elton John mun leika í myndinni. Hann hefur áður komið ^ fram í my nd eftir Ken Russell, Tommy, en þá sem söng\rari. • • • IAN McKELLAN mun leika ráðherr- ann Profumo í Scandal. Eins og frægt er orðið er Profumo máliö eitt mesta hneykslismál í Englandi á þessari öld og olli því að ríkisstjórn íhaldsmanna féll í næstu kosningum. Gleðikonur, rússneskur njósnari og ráðherra eru ' miðdepill þessarar myndar. Aðrir leikarar í myndinni eru John Hurt, Joanna Whalley, Bridget Fonda, Daniel Massey, Jérome Krabbe og Brifj. Ekland. Leikstjóri er Michael Caton-Jones. • • • TOM SELLECK sló loksins í gegn í kvikmynduin í Three Men and a Baby. Hann var ekkert að flýta sér aö leika í annarri mynd, en er nú mættur til starfa í Her Alibi, þar sem hann leikur á móti Paulina Porizkova, sem er sögð hæstlaunað- asta sýningardama í heiminum í dag. Leikstjóri er Ástrahnn Bruce Beres- ford. Aðrir leikarar er Tess Harper, James Farentino og Ossie Davis. • • • FOXTROT er eins og alhr vita nafnið á nýjjistu íslensku kvikmyndinni. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem þetta nafn er notað á kvikmynd. Frá 1976 er til kvikmynd sem heitir Fox- trot. Hún þykir ekki merkileg, þrátt fyrir að stórleikarar á borð við Peter OToole, Charlotte Rampling og Max Von Sydow leiki í myndinm. I leit að eigin morðingja Dimma og óveðurssama nótt staulast maður inn á lögreglustöð og segir við varðstjórann að hann vilji tilkynna morð. Þegar varðstjórinn spyr hver hafi verið myrtur svarar háskólapró- fessorinn Dexter Cornell (Dennis Quaid): „Ég.“ Prófessorinn hefur gert sér grein fyrir að'honum hefur verið byrlað eitur sem er hægvirkt en drepur. Hann veit einnig að hann hefur tutt- ugu og fjóra tíma th að finna morð- ingja sinn og eitthvert mótefni ef það finnst. Honum th aðstoðar er ung stúlka Sidney Fuller (Meg Ryan). Saman lenda þau í miklum hhdarleik, þar sem gömul hneykslismál, auðæfi og hættulegar uppgötvanir verða á leið þeirra í leit að morðingj anum ... Þetta er sögusvið D.O. A., spennu- myndar sem Bíóborgin mun bráð- lega taka til sýninga. Leikstjórar eru tveir, Rocky Morton og Annabel Jankel. Þau eru bresk og er þetta fyrsta kvikmynd þeirra í fullri lengd. Morton og Jankel eru aðallega Kvikmyndir Hilmar Karlsson I leit að morðingja sínum. Dennis Quaid og Meg Ryan í hlutverkum sínum i D.O.A. Leikstjórarnir Rocky Morton og Annabel Jankel eru hér við tökur á D.O.A. í Austin, Texas ásamt leikurunum Daniel Stern og Dennis Quaid. þekkt fyrir að hafa gert hina sér- kennilegu og byltingarkenndu þætti með tölvutöffaranum Max Head- room. Hugmyndin að D.O.A. er ekki ný hugmynd. Tvær myndir hafa áöur verið gerðar um sama efnið. 1949 varð til mynd sem hét D.O. A. og er það fyrirmyndin að nýju myndinni og 1969 var gerð endurútgáfa af D.O. A. Hét sú mynd Color Me Dead. Sú fyrsta þykir ágæt aíþreying enn þann dag í dag en Color Me Deader flestum gleymd. Aðalleikarinn Dennis Quaid er einn allra eftirsóttasti kvikmynda- leikarinn í dag. í fyrra lék hann í þremur vinsælum kvikmyndum. Irinerspace, þar sem hann lék á móti Meg Ryan, mótleikara sínum í D.O.A., og sakamálamyndunum Suspect og The Big Easy. Hann hafði í raun ætlaö að taka sér frí eftir törnina í fyrra, eri hlutverk prófessorsins freistaði hans það mik- ið að fríinu var sleppt. Hann hefur nýlokiö viö að leika meö Jessicu Lange í Everybody’s All American sem leikstýrð er af Taylor Hackford. Meg Ryan er aðeins tuttugu og sjö ára og vakti fyrst athygli fyrir leik sinn í Top Gun. Síðan hefur hún leik- ið í gamanmyndinni Armed and Dan- gerous, Innerspace og nú D.O.A. Mesta leiksigur sinn þykir hún samt vinna í The Promised Land sem var til sýningar vestan hafs fyrr á árinu. Hún hefur nýlokið við að leika í Presidio ásamt Sean Connery og MarkHarmon. Þriðji aðalleikarinn er Charlotte Rampling. Hún á að baki fjölbreyttan og merkilegan leikferil. Hefur ávallt þorað að taka áhættu í hlutverka- vali. Áhættu sem stundum hefur borgað sig og uppskeran góðar kvik- myndir. Einnig hafa myndir sem hún hefur leikið í stunduiii vakið meira umtal af öðrum ástæðum en gæðum þeirra. -HK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.