Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1988, Blaðsíða 46
62 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988. Ferðamál DV Veikindi í útlöndum Krítarkortin tryggja læknisþjónustu Það er líklega vissara að eiga kritarkort í veskinu þegar ferðast er á er- lendri grund. Handhafar þeirra eru vel tryggðir gegn alls kyns áföllum, hvort sem það eru veikindi eða slys. Krítarkortin geta víðar komið í góðar þarfir en í verslunarhúsum erlendra stórborga. Handhafar þeirra eru tryggðir gegn alls konar skakkafóll- um á ferðum sínum um heiminn, hvort sem um er að ræða veikindi eða slys. Þeir þurfa því ekkert að greiða úr eigin vasa verði þeim eitt- hvað misdægurt. íslendingar á ferðalagi á Norður- löndunum og Stóra-Bretlandi þurfa þó ekki að hafa miklar fjárhagsá- hyggjur þótt þeir veikist skyndilega og þurfi á læknisaðstoð að halda. Beinir samningar um gagnkvæmar sjúkratryggingar eru í gildi milli þessara íanda. Ferðamaðuriim nýtur þannig sömu réttinda og þegnar við- komandi lands, greiðir hvorki meira né minna fyrir þá þjónustu sem hann þarfnast. Kort til bjargar Öðru máli gegnir um önnur lönd í Evrópu, að ekki sé talað um Banda- ríkin. Þar getur ferðamaðurinn þurft að greiða allan sjúkrakostnað út í hönd. Sá kostnaður fæst hins vegar endurgreiddur að hluta eöa öllu leyti þegar heim er komið, eftir ákveðnum reglum. Sjúkrasamlag viðkomandi einstakhngs endurgreiðir það sem samsvarandi þjónusta kostar hér á landi. Ef kostnaður erlendis er um- fram það tekur Tryggingastofnun ríkisins þátt í aö greiða umfram- kostnaðinn eftir ákveðnum reglum. Hér er það sem krítarkortin geta komið til bjargar. Þeir, sem slík kort hafa undir höndum, eru tryggðir í bak og fyrir, mismikið þó eftir því hvort menn hafa almenn kort eða gullkort. Gesa og Europ Assistance Allir handhafar Eurocards fá jafn- framt afhent kort frá erlendu hjálp- arfyrirtæki sem heitir Gesa. Viðlaga- þjónusta VISA er í höndum Europ Assistance, og þjónusta þessara tveggja fyrirtækja við korthafana er mjög svipuð. Malkar korthafa, svo og börn í foreldrahúsum innan 23 ára aldurs, njóta sömu réttinda. Ef veikindi eða slys ber að höndum, sjá aöstoðarfyrirtækin um að koma hinum veika á sjúkrahús og jafn- framt hafa þau samband við trygg- ingafélag það sem kemur til með að greiða allan lækniskostnaðinn. Sá kostnaður má vera allt að 25 þúsund dollarar fyrir handhafa almenns korts, en allt að 100 þúsund dollarar fyrir gullkorthafann. Þurfi korthafinn að dvelja á sjúkra- húsi í meira en tíu daga, getur að- standandi viðkomandi haldið utan á kostnað Gesa og Europ Assistance, sem einnig greiða dvalarkostnað er- lendis. Fyrirtækin greiða einnigfyrir flutning á sjúklingnum heim, ef þess gerist þörf. Hið sama gerist ef andlát ber aö höndum. í slíkum tilfellum sjá fyrirtækin einnig um allt sem snýr að yfirvöldum í því landi þar sem andlát korthafans ber að höndum. Pabbi, mamma og börnin Dánar- og örorkutrygging fylgir með báðum kortunum. Hjá Eurocard geta bætur hæstar orðið jafnvirði 100 þús- und dollara fyrir almennt kort en 200 þúsund dollara fyrir gullkort. Til að slík trygging öðhst gildi þarf handhafi almenna kortsins að greiða helming ferðakostnaðar síns með kortinu, en gullkorthafanum er að- eins gert að greiða einhvern hluta kostnaðarins með sínu korti. Trygg- ing þessi gildir líka fyrir maka kort- hafa og böm innan 23 ára aldurs. Samsvarandi bætur hjá VISA eru jafnvirði 125 þúsund dollara fyrir handhafa almenns korts, en 250 þús- und dollara hjá gullkorthafanum. VISA-höfum ber að greiða helming ferðakostnaðar með kortum sínum til að tryggingin öðlist gildi. Trygging VISA nær einnig til maka og barna yngri en 23 ára. Ekki gull fyrir alla Gullkortin veita ferðalöngum mun meiri tryggingu, eins og sjá má af ofansögðu. Það eru hins vegar ekki allir sem geta fengið slík kort. Gunn- ar Bæringsson, framkvæmdastjóri Kreditkorta hf. sem em með Euro- card, segir að til að fá gullkort þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði. Um- sækjandi þarf að hafa átt viðskipti við fyrirtækið í eitt ár að minnsta kosti, hann verður að hafa notað al- menna kortið reglulega og hafa stað- ið í skilum með greiðslur. „Ef við- skiptin hafa verið góð, sjáum við ekkert því til fyrirstöðu að menn fái gullkort," segir Gunnar. Einar S. Einarsson framkvæmda- stjóri VISA-íslands segir að ekki sé hægt aö sækja um gullkort VISA, heldur sé bestu viðskiptavinunum boöið það. Þeir, sem slíkt tilboð fá, verða að hafa notað almennt kort reglulega í 18 mánuöi. Gullkortið er einkum ætlað þeim sem starfa síns vegna þurfa að ferðast mikið til út- landa og þurfa rýmri gjaldeyris- heimildir en hinn almenni ferðamað- ur. Neyðarþjónusta þessi gildir í öllum þeim löndum þar sem kortin eru í notkun. Ekki er vitað til þess að kort- in frá Gesa og Europ Assistance hafi ekki verið tekin gild þegar leita hefur þurft eftir læknisaðstoð, að sögn forráðamanna krítarkortafyrirtækj- anna. -gb Á flótta frá gráum hversdagsleikanum Á fantasíuhvíldarstöðunum á Hawaii geta gestir synt innan um höfrunga og imyndað sér að þeir séu staddir í hitabeltisfrumskógi. Fimm þúsund kókostré, saltvatns- lón, fossar sem synt er í gegnum, 18 holu golfvellir, tamdir höfrungar, lit- ríkir páfagaukar, svanir, 150 gráir hestar sem draga handsmíðaða vagna, hellisbarir. Og hvítar strend- ur Kyrrahafsins aðeins nokkra metra í burtu. Ótrúlegt? En satt engu að síður. Þannig er umhorfs í nýjustu ferða- mannaparadísunum sem stóru hót- elkeðjurnar í Bandaríkjunum kepp- ast við aö reisa á Hawaii. Þar er það hugarflugið sem ræður, og engu til sparaö í samkeppninni um þreytta kaupsýslumenn sem hafa ekki tíma til að leita uppi alvöru fossa, fram- andlegt dýralíf og fallegar strendur heldur vilja láta færa sér það á silfur- bakka, handsmiðaö, og hafa peninga til að borga. Bandaríkjamenn kalla þetta hvíld- arstaði. Þaö orð átti einu sinni viö litla fiölskyldurekna staði sem aðeins voru opnir hluta úr árinu. Nú eru þetta aftur á móti dýr lúxushótel, þar sem gestum er boðið upp á allt milh himins og jarðar, listaverk úr öllum heimshomum, skrautgarða, vatna- leiksvæði og einstæða byggingarlist, enda búið að hnýta orðinu „fantasíu" fyrir framan. Hvíldarstaðir þessir bjóða gestum sínum þó ekki eingöngu upp á tíma- bundinn flótta frá gráum hversdags- leikanum með öllum furðuverkun- um og litadýrðinni. Lykilorðið er þjónusta, og það miklu betri en geng- ur og gerist á venjulegum hótelum. Notuð glös eru fiarlægð áður en nokkur tekur eftir því að þau eru óhrein og fyrirspurnum gesta verður að svara um leið og þær eru bornar fram. Ekki má eyðileggja upphfun- ina með því að láta raunveruieikann læðast inn. Vegna þessa er hlutfall starfsmanna hærra en almennt ger- ist, og dæmi er um að þeir séu tvö- falt fleiri en gestirnir. Hyatt hótelkeðjan reið á vaðið með fantasíustaðina á Hawaii áriö 1980. Fram að þeim tíma hafði Sheraton boöið gestum sínum upp á vatna- svæði og nógu mikið af handklæðum til að sökkva heilU galeiðu. Hyatt vildi gera betur. Þá voru búnir til fossar sem hægt var synda í gegnum, klettabelti, og yfir eitt horniö á sund- lauginni var sett upp hengibrú úr kaðli. Allt var gert til að gestimir gætu ímyndað sér að þær væru staddir einhvers staðar úti í hita- beltisnáttúru, en ekki steinsnar frá vestrænu lúxushóteli. Aðrar hótelkeðjur, eins og Marri- ott, Four Seasons og Westin, fylgdu í kjölfarið. Og áður en varði voru allir farnir að reyna að gera betur en sá næsti á undan. Um þessar mundir er veriö að opna enn eitt svona hótel. Gestir þess eru um- kringdir vatni frá því þeir stíga inn í afgreiöslusaUnn. Bátar sigla með þá um tæplega tveggja kílómetra löng síki að herbergjunum sem flest vísa út að hafinu. A svæðinu er líka hálfs annars hektara lón með til- heyrandi sundlaug og fossum og vatnsrennibrautum, að ógleymdum höfrungunum og öðrum dýrum sem eiga að sjá um að skemmta gestun- um. Sérfræðingar.telja að kapphlaupið um ævintýralegustu hvíldarstaðina muni halda áfram enn um hríð. Þeir benda á að framtíðargestir þessara staða muni gera meiri kröfur en nokkru sinni áður, enda veraldar- vanari á allan hátt. Ekki leikur nokkur vafi a því að hvíld á hótelum þessum getur verið himnesk. Hitt er svo annað mál að flestir verða líklega að láta sér nægja að dreyma um hana. Dýrðin kostar nefnilega sitt. Einnar nætur gisting kostar frá 9 þúsund krónum upp í 70 þúsund, eftir því hvort um er að ræða herbergi sem snúa út í garð eða lúxusíbúðir við ströndina. Draumarnir kosta ekki neitt. -gb KENNARAR - KENNARAR Héraðsskólann í Reykjanesi við ísafjarðardjúp vantar 2 áhugasama kennara til að kenna ensku, dönsku, íslensku og samfélagsgreinar. Mjög góð vinnuaðstaða og gott ódýrt húsnæði. Nánari upplýsingar eru fúslega veittar hjá skólastjóra í símum 94-4840 og 94-4841 og hjá grunnskóla- deild menntamálaráðuneytisins, sími 91 -25000. Héraðsskólinn Reykjanesi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.